Dagur - 04.02.1992, Síða 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 4. febrúar 1992
23. tölublað
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Norðlendingar fá loks loðnu:
Þrær á Austfjörðum
að fyllast
Loðnuveiðin virðist loks vera
að taka við sér. Góð veiði var
fyrir helgina og fylltu skipin sig
á stuttum tíma og sama var að
segja í fyrrinótt, þegar stærstur
hluti flotans var á miðunum.
Nú er komin bið eftir löndun á
Austfjörðum þar sem verk-
smiðjur hafa ekki undan og
standa vonir til að nú fari loks
að berast loðna til Siglufjarðar
en þar hefur ekkert verið unn-
ið af loðnu síðan í fyrravetur.
Um miðjan dag í gær voru öll
loðnuskipin á leið til lands með
fullfermi. Nokkur skip fóru á
Austfjarðahafnir, fimm skip fóru
til Þórshafnar og Raufarhafnar en
önnur á Suður- og Vesturlands-
hafnir.
Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri Krossanesverk-
smiðjunnar, sagðist reikna með
að stutt verði þar til loðna berist
verksmiðjunni. „Mér sýnist að
þrær séu að fyllast á Austfjörðun-
um og flotinn er með tvöfalda
afkastagetu á við verksmiðjurnar
í landinu þannig að ef svona veið-
ist þá er nóg að gera fyrir allar
verksmiðjur. Til samans bræða
verksmiðjurnar 9-10.000 tonn á
sólarhring en í flotanum eru 40
skip sem geta verið með burðar-
getu upp á 8-900 tonn. Þó skipin
fengju ekki fullfermi nema annan
hvern sólarhring þá eru þau samt
helmingi afkastameiri en verk-
smiðjurnar," sagði Jóhann Pétur.
Þórhallur Jónasson, rekstrar-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði, reiknar með að nú
styttist bið Siglfirðinga eftir
loðnu. Haldi veiðar áfram af
sama krafti og síðustu daga verði
þess vart langt að bíða að verk-
smiðjan fari í gang. „Verksmiðj-
urnar á Austfjörðum hafa verið
að vísa frá sér bátum þannig að
þetta getur allt snúist til betri
vegar. Við erum í það minnsta
klárir og vorum það fyrir hálfu
ári en nú horfir þannig að fram-
boðið sé það mikið að við verð-
um inni í þessum loðnuslag,"
sagði Pórhallur.
Að sögn Sveins Jónssonar hjá
Félagi íslenskra fiskmjölsfram-
leiðenda voru í gærmorgun kom-
in 79 þúsund tonn af loðnu á land
frá því um áramót en við þessa
tölu má leggja afla skipanna í
fyrrinótt. Veiðin á vetrarvertíð
fer því að nálgast 100 þúsund
tonn. JÓH
Séð yfir verksmiðjuhús Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, Frystihúsið, loðnubræðslan og útgerð Stakfells ÞH eru undir
sama þaki og eru um 90 manns í vinnu hjá fyrirtækinu. Mynd: Golli
, Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Útgerð og vinnsla á sömu hendi
- um 90 manns í vinnu eftir samruna við ÚNÞ
Um síðustu áramót runnu
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
og Utgerðarfélag Norður-
Þingeyinga saman í eitt fyrir-
tæki og eru starfsmenn Hrað-
frystistöðvarinnar nú um 90
talsins þegar áhöfnin á Stak-
fellinu er talin með. Meirihluti
íbúa Þórshafnar byggir
afkomu sína á þessu stórfyrir-
Meðalhiti í janúar á Akureyri 2,9 stig:
„Ekki sést hærri
hitatala í janúar“
Janúar var um margt sérkenni-
legur á Akureyri þegar litið er
til veðurfars. Til staðfestingar
hafði Dagur samband við
Veðurstofu íslands og fyrir
svörum varð Adda Bára Sig-
fúsdóttir, veðurfræðingur.
„Akureyri er feikilega
skemmtileg þegar litið er til
veðurfars í janúar. Meðalhitinn
er 2,9 stig, sem er 5,1 stigi yfir
meðallagi janúarmánaðar.
Veðurstofa íslands á hitamæling-
ar fyrir Akureyri allt frá 1882.
Janúarmánuður 1947 slær nýlið-
inn mánuð út, en þá var meðal-
hitinn 3,2 stig. Til eru hámarks-
mælingar hvers dags frá 1928.
Við höfum aldrei séð jafnháa
tölu og þann 14. janúar sl., en þá
mældist hæsta hitastig 17,5 stig.
Þrátt fyrir háan meðalhita í
janúar var kalt fyrstu 11 dagana.
Þannig fór hitinn niður í mínus
13,4 í lágmarkinu þann 4. janúar
og það var heilmikill snjór. Á
lögreglustöðinni, þar sem mæl-
ingar fara fram, mældist snjó-
þykktin 50 sentimetrar. Úrkoma
liðins mánaðar var 42 millimetr-
ar, sem er 3/4 af meðalúrkomu,
og sólskinsstundir voru 2,5,“
sagði Adda Bára Sigfúsdóttir. ój
Dalvík:
Innbrot og árekstur
Lögreglan á Dalvík fékk til-
kynningu um árekstur á
Arskógsströnd um kl. 16. síð-
astliðinn föstudag. Bifreið
hafði lent aftan á annarri á
mótum Hauganesvegar og
Olafsfjarðarvegar. Bílarnir
skemmdust nokkuð en ekki
urðu slys á fólki.
Að sögn lögregluþjóns á Dal-
vík var fljúgandi hálka á vegum
og aftanákeyrslan rakin til
hennar.
í gærmorgun var lögreglunni
tilkynnt um innbrot í yfirgefið
hús á Dalvík, en nokkuð hefur
borið á innbrotum að undan-
förnu þar sem litlu hefur verið
stolið en meira skemmt. SS
tæki staðarins.
Hraðfrystistöðin tekur á móti
bolfiski og síld til frystingar, þar
er saltfiskverkun og vinnsla á
loðnuhrognum svo og loðnu-
bræðsla. Að sögn Hilmars Þórs
Hilmarssonar, verksmiðjustjóra
hjá Hraðfrystistöðinni, hefur afli
verið tregur síðustu vikurnar.
í lok janúar var loðnuverk-
smiðja Hraðfrystistöðvarinnar
búin að fá um 11 þúsund tonn af
loðnu og 3 þúsund tonn af síld,
sem er öllu minna en á sama tíma
í fyrra.
„Þetta er lélegra en á sama
tíma í fyrra, sérstaklega var
haustið slappt. Við megum samt
vera þokkalega ánægðir miðað
við það sem gengur og gerist því
við höfum fengið um 10% af
loðnuaflanum í heild,“ sagði
Hilmar Þór.
Á síðasta ári var byrjað að
taka Ioðnuhrogn hjá verksmiðj-
unni og er nú verið að gera vél-
arnar klárar fyrir hrognin. Hilm-
ar Þór sagði að hrognin væru seld
til Japans, en þar væru menn vit-
lausir í þau. SS
Almennur hreppsfundur í Skarðshreppi:
Samþykkt að skoða
sameiningarmál
Ibúar Skaröshrepps héldu
almennan hreppsfund sl. föstu-
dagskvöld þar sem m.a. var
rætt um tilboð Sauðárkróks-
bæjar um sölu á heitu vatni
til hreppsbúa. Einnig voru
sameiningarmál rædd og
samþykkt að kanna grundvöll
fyrir sameiningu Skarðshrepps
og Sauðárkrókskaupstaðar.
• •
Akureyri:
Okumönnum varð
hált á svellinu
Mjög harður árekstur varð á
Akureyri laust eftir hádegi í
gær. Tvær bifreiðar skullu
saman á mótum Hlíðarbrautar
og Austursíðu og skemmdust
þær báðar mjög mikið og varð
að kalla til kranabifreið til að
fjarlægja bflana. Enginn
meiddist í þessum harða
árekstri.
Síðastliðinn sunnudag valt
bifreið á Hjalteyrargötu. Öku-
maðurinn missti stjórn á bíl sín-
um vegna hálku en honum varð
ekki meint af veltunni.
Einn minniháttar árekstur varð
á Akureyri á laugardaginn og
annar á sunnudagskvöld.
Að sögn lögregluvarðstjóra var
helgin tiltölulega róleg. Þrír gistu
fangageymslur vegna ölvunar og
einn ökumaður var tekinn grun-
aður um meinta ölvun við akstur.
SS
Að sögn Úlfars Sveinssonar,
oddvita Skarðshrepps, fór fund-
urinn vel fram. Á honum voru
kynntar ýmsar hliðar á vatnsmál-
inu, en eins og Dagur greindi frá
á sínum tíma bauð veitustjórn
Sauðárkróks Skarðshreppingum
og Staðarhreppingum, heitt vatn
á 33% af gjaldskrárverði til
bæjarbúa. Var það tilboð miðað
við að viðkomandi hreppar sæju
sjálfir um að leiða vatnið frá
bæjarmörkum.
Úlfar segir engar ákvarðanir
hafa verið teknar varðandi vatns-
málin, en m.a. hafi á fundinum
komið fram að miðað við
útreikninga myndi hitunarkostn-
aður á bæjum hækka töluvert
mikið ef ráðist yrði í að leggja
hituveitu um hreppinn.
Aftur á móti samþykkti fund-
urinn að hreppsnefnd skyldi sem
fyrst kjósa menn í nefnd sem
myndi kanna grundvöll fyrir sam-
einingu Skarðshrepps og Sauðár-
krókskaupstaðar. SBG
Húsavík:
Gömul kona fyrir bíl
Gömul kona varð fyrir bifreið
laust fyrir hádegi í gærmorgun.
Konan var flutt á sjúkrahús, en
meiðsl hennar ekki talin alvar-
leg, samkvæmt upplýsingum
lögreglu.
Konan, sem mun vera um
áttrætt, var á gangi á Stangar-
bakka, á móts við Olís, er hún
varð fyrir bifreið sem ekið var í
norðurátt. Mikil hálka var á göt-
unni er slysið átti sér stað. IM