Dagur - 04.02.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 4. febrúar 1992
Fréttir
Aðstæöur til slökkvistarfs voru erfiðar, mikill hiti í stöðinni og varasamur reykur. Háspennurofarnir eru ónýtir og
eru eldsupptök rakin til bilunar í þeim. Mynd: Goiií
Slökkvilið Akureyrar:
Glímt við eld og eitur-
gufur í háspennurofum
- nokkrir slökkviliðsmenn fengu eitrunareinkenni
Rauðinúpur ÞH:
Vélamar
pruíu-
keyrðar
I dag á að prufukeyra vélar
togarans Rauðanúps ÞH, en
sem kunnugt er varð hann tví-
vegis vélarvana með stuttu
millibili eftir sprengingu í
sveifarhúsi. Vonast er til að
viðgerð takist svo ekki þurfl að
koma til meiriháttar endurnýj-
unar.
Að sögn Gunnars F. Jónasson-
ar, verkstjóra hjá Fiskiðju Rauf-
arhafnar, verða vélarnar senni-
lega látnar ganga í sólarhring eða
lengur. Síðan verður vélin opnuð
aftur og athugað hvort ekki sé
allt með felldu.
Aðspurður um ráðningu fram-
kvæmdastjóra Jökuls hf. og
Fiskiðjunnar sagði Gunnar að
einn umsækjandi hefði verið boð-
aður til fundar um síðustu helgi
og það yrði væntanlega ljóst í dag
hvort stjórnir fyrirtækjanna
myndu bjóða honum starfið.
Umsækjandinn myndi síðan fá
nokkurra daga umhugsunarfrest.
SS
Akureyri:
Ný blásara-
sveit stofnuð
- 30 börn og unglingar
heQa æfingar undir
stjórn Roars Kvam
Á fundi sem haldinn var á
sunnudaginn var ákveðið að ný
blásarasveit undir stjórn Roars
Kvam myndi hefja æfingar hið
fyrsta. Jafnframt var skipuð
undirbúningsnefnd til að boða
stofnfund nýrrar og sjálfstæðr-
ar sveitar.
Roar Kvam hefur um árabil
stjórnað svonefndri D-sveit Tón-
listarskólans á Akureyri en hætti
því um leið og hann lét af störf-
um sem skólastjóri sl. haust.
Ranghermt var hér í blaðinu á
föstudaginn að starf sveitarinnar
hefði legið niðri síðan Roar
hætti. Sveitin hefur æft undir
stjórn annarra kennara og hélt
tónleika um jólin.
Á fundinum á sunnudaginn
mættu 30 börn og unglingar og
foreldrar þeirra en þeir höfðu
lagt að Roari að stofna nýja blás-
arasveit sem ekki tengdist Tón-
listarskólanum. Flestir blásararn-
ir eru úr D-sveitinni en hún hefur
talið 33 blásara. Engar ákvarðan-
ir voru teknar um nafn á nýju
sveitinni né heldur um hugsan-
lega utanlandsferð sveitarinnar.
Það bíður stofnfundar sem hald-
inn verður bráðlega. -ÞH
Síðastliðinn föstudag varð bil-
un í háspennurofum í dreifi-
stöð Rafveitu Akureyrar við
Stapasíðu 11. Eldur kviknaði í
rofunum og Glerárhverfi varð
rafmagnslaust. Slökkviliði
Akureyrar var tilkynnt um eld-
inn kl. 17.22 og gaus svartur og
illa lyktandi reykur upp úr
spennustöðinni jþegar slökkvi-
liðsmenn komu á staðinn.
Þær upplýsingar fengust hjá
slökkviliðinu að tveir reykkafarar
hefðu verið sendir inn í spennu-
stöðina og sprautuðu þeir úr
handslökkvitæki til að kæla rof-
Sjúkrahúsinu í Húsavík var
gert að spara rúmlega 14 millj-
ónir og heilsugæslustöðinni á
aðra milljón, samkvæmt niður-
skurðarfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar. Ólafur Erlendsson,
framkvæmdastjóri sjúkrahúss-
ins, sagði að stjómin hefði ekki
enn fundið endanlegar leiðir til
sparnaðar á heilsugæslustöð-
inni, en fram væru komin
sparnaðaráform í rekstri
sjúkrahússins að upphæð rúm-
ana. Ekki var þorandi að nota
vatn fyrr en ljóst var að enginn
straumur var á háspennurofun-
um. Mikill hiti var inni í stöðinni
og kolsvartur reykur. Slökkvi-
liðsmönnum gekk vel að halda
eldinum í skefjum og þegar gefið
var leyfi til að nota vatn varð
slökkvistarfið auðveldara
viðfangs.
Eiturgufur stigu upp við brun-
ann og var íbúum í nágrenninu
ráðlagt að loka öllum gluggum á
húsum sínum. Nokkrir slökkvi-
liðsmenn sem stóðu fyrir utan
spennustöðina og voru ekki með
reykgrímur fengu snert af eitrun,
lega 12 milljónir.
Á síðasta ári var rekstur
sjúkrahússins í jafnvægi, halli
nam 126 þúsundum króna en
halli hefur verið 6-10 milljónir á
árunum þar á undan. Ólafur
sagðist þakka þetta jafnvægi
sparnaðaraðgerðum sem fram-
kvæmdar hefðu verið, vélvæð-
ingu í þvottahúsi og fækkun
starfsfólks á deildum.
Aðspurður um hvernig stjórn-
in ætlaði að ná 12 milljón króna
sparnaði til viðbótar, sagði Ólaf-
ur að fyrirhugað væri að draga úr
kostnaði við afleysingar og yfir-
vinnu, en loka skurðstofu og
fæðingardeild í sex vikur, ásamt
hálfri deildinni á annarri hæð, en
þar er lyflæknis- og handlæknis-
deild sjúkrahússins. Á þessu ári
mun einnig koma fram sparnaður
vegna hagræðingar í þvottahúsi.
Fyrirhugað er að lækka launa-
kostnað með því að minnka yfir-
vinnu. „Það verður reynt að
spara eitthvað á öllum sviðum,“
sagði Ólafur. Hann sagði að
eitthvað yrði dregið úr þjónustu á
röntgen, rannsókn og skurðstofu,
þar yrði vinnuhlutfall eitthvað
minnkað, einnig hjá læknum. Til-
lögur eru ekki fullmótaðar um.
það.
Ólafur sagði að ekki væri mein-
ingin að segja starfsfólki upp,
sem lýsti sér með höfuðverk og
magakveisu.
Að sögn Svanbjörns Sigurðs-
sonar, rafveitustjóra, varð allt
Glerárhverfi rafmagnslaust þegar
háspennurofarnir biluðu en fljót-
lega tókst að koma rafmagni á að
nýju nema á því svæði sem dreifi-
stöðin annar, en um hundrað
slíkar stöðvar eru í bænum. Þar
komst rafmagn á upp úr kl. 20
um kvöldið.
Svanbjörn sagði að háspennu-
rofabúnaðurinn væri ónýtur og
þetta væri tjón upp á aðra milljón
króna. Hann sagði að bilun af
þessu tagi væri fátíð. SS
nema þá í litlum mæli, en dregið
yrði úr bakvöktum. „Þetta mælist
auðvitað ekki vel fyrir en það er
ekki mikil andstaða um þetta við
okkur,“ sagði Ólafur, aðpurður
um viðbrögð við tillögum stjórn-
arinnar. IM
Vör hf. Akureyri:
Uppsagnir átján
starfsmanna
dregnar tQ baka
Uppsagnir 18 starfsmanna
skipasmíöastöövarinnar Varar
hf. á Akureyri komu ekki til
framkvæmda 1. febrúar sl. eins
og jafnvel var búist við.
Þessir starfsmenn Varar hf.
fengu uppsagnarbréf í hendur um
mánaðamótin október-nóvember
í haust vegna þess að fyrirsjáan-
legt var að verkefni væru af
skornum skammti. Uppsagnirnar
voru síðan dregnar til baka, að
sögn Hallgríms Skaptasonar,
framkvæmdastjóra Varar hf.,
vegna bættrar verkefnastöðu.
Hins vegar segir Hallgrímur ekki
sjá fyrir hversu lengi þau verkefni
dugi, sem nú sé verið að vinna
að. óþh
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt að lóð . Sundlaugar
Akureyrar verði nr. 21 við
Þingvallastræti og lóð Háskól-
ans á Akureyri verði nr. 23 við
sömu götu.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi Stefáns Stefáns-
sonar f.h. Akureyrarbæjar um
leyfi til að breyta notkun efri
hæðar Gránufélagsgötu 6 úr
íbúðarhúsnæði í skrifstofu fyr-
ir heilbrigðisfulltrúa.
■ Bæjarráð gerir ekki
athugasemd við veitingu leyfis
til handa Úllu Árdal til rekst-
urs gistiheimilis að Löngumýri
6 á Akureyri.
■ Á fundi bæjarráðs 23.
janúar sl. spunnust umræður
um tillögu Guðmundar
Stefánssonar (B) um úrbætur í
atvinnumálum. Samþykkt var
að fela sviðsstjórum að gera
athugun á því hvort unnt væri
að dreifa fyrirhuguðum fram-
kvæmdum ársins 1992 þannig
að þær auki atvinnu þá mán-
uði sem alla jafna eru erfiðast-
ir í atvinnulegu tilliti.
■ Fyrir fundi bæjarráðs 23.
janúar sl. voru tvö erindi, sem
fjalla um pylsuvagna og stað-
setningu þeirra. Annað erind-
ið var frá Smára Ólafssyni og
Einari Benediktssyni, eigend-
um Borgarsölunnar og Turns-
ins við Hafnarstræti og hins
vegar frá Gunnari Eiríkssyni,
sem sækir um að setja upp
pylsuvagn við Mímisveg og
eða í nánd við tjaldsvæðið.
Bæjarráð vísaði erindunum til
bæj arverkfræðings.
■ Með bréfi dags. 24. janúar
sl. leitar íþróttafélagið Þór
heimildar bæjarstjórnar til
þess að veðsetja félagsheimili
félagsins, Hamar, til trygging-
ar láni hjá Búnaðarbanka
Islands að upphæð kr. 3 millj-
ónir. Bæjarráð samþykkti
erindið,
■ Bæjarráð hefur falið bæjar-
lögmanni að ganga til samn-
inga við Baldur Halldórsson á
Hlíðarenda um kaup Akur-
eyrarbæjar á landi í Hlíðar-
fjalli og leggja kaupsamning-
inn fyrir bæjarráð.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi Aðalgeirs Finns-
sonar fyrir hönd samnefnds
fyrirtækis um lóð við Krossa-
nesbraut - Skálaborgum, til að
byggja á iðnaðarhús. Bygg-
ingarfrestur er til 1. júlí 1992.
■ Þá hefur Aðalgeir Finnsson
sótt um endurnýjun bygg-
ingarleyfis fyrir verslunar-,
skrifstofu- og íbúðarhús á lóð-
inni nr. 9 við Skipagötu. Bygg-
inganefnd samþykkti erindið
með fyrirvara um samþykki
eigenda Hofsbótar 4 um fjar-
lægð milli húsa. Björgunarop
verði á skrifstofum á 2. og 3.
hæð. Gerð er krafa um
greiðslu bílastæðagjalds skv.
samþykkt Akureyrarbæjar þár
um.
■ Byggingancfnd hefur hafn-
að erindi frá Steinþóri K. Sig-
urðssyni f.h. Blómahússins um
lóð fyrir gróðurhús á svæðinu
norðan Hafnarstrætis 20. Vís-
að er til þess að unnið er að
deiliskipulagi á svæðinu.
Fiskmlölun Noröurlands á Dalvík - Fiskverö á markaöi vikuna 26.01-01.021992
Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verð Meðalverö (kr/kg) Magn (kg) Verömæti
Grálúöa 65 65 65,00 20 1.300
Hrogn 150 90 122,18 78 9.530
Karfi 50 47 49,05 644 31.589
Keila 30 30 30 11 330
Skata 20 20 20,00 9 180
Steinbítur 35 35 35,00 90 3.150
Ufsi 54 43 48,11 28.358 1.364.276
Ýsa 108 100 102,79 66 6.784
Þorskur 105 77 94,67 18.096 1.713.147
Þorskur, smár 71,50 71 71,33 1.316 93.874
Samtals 66,22 48.688 3.224.150
Dagur btrtir vikulega töftu yfir fiskverö hjé Fiskmifilun Noröurlands é Dalvik og greinir þar fré veréínu
sem fékkst I vikunni é undan. Þetta er gert í Ijési þess aö hlutverk fiskmarkaöa f verðmyndun
íslenskra sjávarafuröa hefur vaxið hrööum skrefum og þvl sjálfsagt að gera lesendum blaðsins
kleift aö fylgjast meö þróun markaösverðs é fiski hér é Norðurlandi.
Sjúkrahúsið í Húsavík:
Tillögur um spamað vegna
aðgerða stjómvalda
- skurðstofu, fæðingadeild og hálfri sjúkradeildinni lokað í sex vikur