Dagur - 04.02.1992, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 4. febrúar 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H, BRAGASON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Vextir þurfa ad
lækka enn frekar
Bankaráð Búnaðarbanka íslands ákvað í síðustu
viku að lækka vexti af óverðtryggðum lánum um
2% frá og með 1. febrúar. Þessi vaxtalækkun
hefur því þegar tekið gildi. Á sama tíma lækkaði
Landsbankinn vexti um 0,25-0,50% og íslands-
banki og sparisjóðirnir um 0,75% að jafnaði.
Vaxtalækkun Búnaðarbankans nú er sýnilega
langmest og er það sérlega athyglisvert í ljósi
þess að útlánsvextir bankans voru lægstir fyrir.
Eftir lækkunina eru víxilvextir og algengustu
skuldabréfavextir 12,5-13,25% í Búnaðarbanka
en 14,5-15,25% í öllum hinum peningastofnun-
unum.
Sem kunnugt er er verðbólga hér á landi vart
mælanleg um þessar mundir. Þess vegna eru
nafnvextir upp á 15 af hundraði af óverðtryggð-
um lánum í það minnsta helmingi of háir. Þeir
jafngilda því sem næst 15% raunvöxtum meðan
raunvextir í nágrannalöndum okkar eru á bilinu
3-5%. Raunvextir á verðtryggðum lánum eru nú
um 10 af hundraði. Þeir eru einnig allt of háir.
Þess vegna eru það sannmæli að segja að hér
ríki löglegt vaxtaokur. Vaxtalækkun Búnaðar-
bankans gefur örlitlar vonir um að okrið sé á
undanhaldi, þótt stjórnendur hinna peninga-
stofnanna þrjóskist við.
Sem kunnugt er á vaxtaokrið rætur sínar að
rekja til ríkisvaldsins. Ríkið hefur undanfarin ár
verið stærsti lántakandinn á verðbréfamarkað-
inum og því ráðið miklu um eftirspurn eftir
lánsfé. Ríkið hefur boðist til að greiða mjög háa
vexti fyrir það fé sem það fær að láni. Af því leið-
ir að bankarnir einir eiga ekki sök á vaxtaokrinu;
þeir verða að standa sig í samkeppninni um
sparifé landsmanna. Ríkisvaldið sjálft er höfuð-
sökudólgurinn. Fyrsta verk núverandi ríkis-
stjórnar, eftir að hún tók við völdum sl. vor, var
að hækka vexti á ríkisvíxlum og spariskírteinum
ríkissjóðs um nálægt tvo af hundraði. Það gerði
hún til að „vera betur í stakk búin í samkeppn-
inni um spariféð“, eins og það var orðað. Vaxta-
hækkun ríkisstjórnarinnar leiddi til þess eins að
bankar og sparisjóðir hækkuðu einnig vextina.
Með öðrum orðum hækkaði ríkisstjórnin raun-
vexti í landinu um tvo af hundraði með einu
pennastriki. Þá vaxtahækkun hefur ríkisstjórnin
ekki afturkallað.
í þeim kjaraviðræðum sem í hönd fara hljóta
talsmenn launafólks að krefjast frekari vaxta-
lækkunar án tafar. Ríkisvaldinu ber að draga til
baka ótímabæra vaxtahækkun sína frá því fyrir
tæpu ári. Bankarnir munu þá fylgja í kjölfarið.
Raunvextir upp á 10-15 af hundraði eru okur-
vextir. Þá þarf að lækka, með góðu eða illu. BB.
Loforðin, svikin og efiidimar
„Hvar er afmælisgjöfin sem þið
gáfuð ykkur og okkur hinum?“
spyr Davíð Stefánsson í Degi 29.
jan. Spurningunni beinir hann til
„þeirra sem telja sig forsvars-
menn hjá Akureyrarbæ". Hvern-
ig svo sem skal afmarka þann hóp
ætla ég sem formaður menning-
armálanefndar Akureyrarbæjar
að svara spurningunni og upplýsa
D.S. í leiðinni um nokkur áhuga-
verð atriði sem snerta menning-
armálin hér í bæ.
I
Fyrst er að leiðrétta dálítinn mis-
skilning sem slæðst hefur inn í
grein D.S. Á hátíðarfundi bæjar-
stjórnar Akureyrar 1987 var að
sönnu ákveðið að reisa skyldi
viðbyggingu við Amtsbókasafn-
ið. Þar var hins vegar ekki sam-
þykkt að byggja skyldi sam-
kvæmt einhverri ákveðinni til-
löguteikningu. Samkeppnin fór
að sjálfsögðu fram síðar. Tillagan
sem vann til verðlauna gerði ráð
fyrir talsvert viðameiri byggingu
en samkeppnisforsendurnar
sögðu til um. Það er hins vegar
rétt sem segir í myndatexta með
grein D.S. að verðlaunatillagan
var um „glæsilegt mannvirki“.
Reyndar svo glæsilegt að stefnu-
skrár flestra flokka þögðu þunnu
hljóði um þessa framkvæmd fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar.
II
Þegar samkomulag varð um
myndun núverandi meirihluta
bæjarstjórnar var ekki sú ástæð-
an fyrir því veigaminnst að hjá
báðum aðilum var raunverulegur
áhugi á því að taka myndarlega á
í menningarmálunum. Við það
sem þá var sagt hefur verið staðið
svikalaust, þ.á m. að stuðla að
uppbyggingu margvíslegrar lista-
starfsemi í Grófargili í þeim um
margt glæsilegu húsum þar sem
KEA var að hætta sinni starf-
semi. Ennfremur að hafist skyldi
handa um viðbyggingu við Amts-
Þröstur Ásmundsson.
bókasafnið á kjörtímabilinu, en
til þess eru nú allar forsendur.
Menn geta haft hvaða skoðun
sem þeir vilja á framkvæmdunum
í Grófargili. Það er ekki hægt að
neyða neinn til að skilja „strate-
gískt“ mikilvægi Gilsins fyrir
endurreisn miðbæjarins né þá
möguleika sem þar eru fyrir
hendi fyrir menningarlífið á
Akureyri. En sem betur fer var
það breiður hópur sem skildi að
framkvæmdirnar í Grófargili
gætu haft mjög jákvæð áhrif á
bæjarbrag og ímynd Akureyrar.
Það segir sína sögu að atvinnu-
málanefnd bæjarins hefur frá
upphafi stuðlað að framgangi
málsins.
Bæjarstjórn Akureyrar sýndi
óneitanlega bæði dirfsku og
framsýni þegar hún ákvað að
kaupa hús KEA í Grófargili. Og
hagsýni: Á endanum fáum við
„meira fyrir minna" svo notað sé
mál markaðstorgsins. Því með
ákvörðun sinni markaði bæjar-
stjórn ákveðna stefnu í menning-
armálum sem snerti að hluta til
áformin um viðbyggingu við
Amtsbókasafnið: Myndlist og
tónlist skyldu eiga óðöl sín í
Grófargili en bækur og fræði fá
þá umgjörð sem þeim bæri í við-
byggingunni í Amtsbókasafninu.
III
í anda þessarar stefnumótunar
hefur síðan verið unnið. í Gróf-
argili hefur húsnæði verið ýmist
selt einstaklingum, sem þar með
verða að leggja fram mikla fjár-
muni við endurbæturnar, eða þá
leigt einstaklingum og félaga-
samtökum. Þar er t.d. gert ráð
fyrir umtalsverðri sjálfboðavinnu
áhugamanna. Að auki hefur ver-
ið unnið að hönnun sýningarsala
fyrir Listasafnið á Akureyri í
Samlagshúsinu. Vonir standa til
að hægt verði að ná einhverjum
áfanga í uppbyggingu þess í
sumar. Meira er ekki fyrirhugað
að gera í Gilinu á næstunni nema
til komi peningar frá öðrum en
Akureyrarbæ.
Samhliða þessu hefur verið unn-
ið að því að breyta forsendum
viðbyggingarinnar við Amts-
bókasafnið til samræmis við þær
áherslubreytingar sem fólust í
ákvörðun bæjarstjórnar. Um ára-
mótin var síðan gengið frá
hönnunarsamningi við Guðmund
Jónsson arkitekt. Framkvæmdir
við hina glæsilegu viðbyggingu
munu svo hefjast á næsta ári og
þá um leið hafa þær allan
forgang. Yfirlýsingar þeirra sem
gengið hafa fram fyrir skjöldu og
lýst stuðningi sínum við Amts-
bókasafnið ber því að geyma en
ekki gleyma.
IV
Menn geta svo skoðað þær tölur
sem hér fylgja. Þar kemur í ljós
að kostnaður við að framkvæma
verðlaunatillögu Guðmundar
Jónssonar um 2400 mhús er hinn
sami og kostnaður við viðbygg-
ingu við Amtsbókasafnið þar sem
einvörðungu er miðað við óskir
Amtsbókasafnsins og Héraðs-
skjalasafnsins og í viðbót kostn-
aðurinn við fullbúin húsin í Gróf-
argili (sem eðli málsins sam-
kvæmt er framtíðarverkefni sem
hægt er að vinna í áföngum) og
eru samtals 5250 m'. Menn geta
svo spurt myndlistarmenn, tón-
listarmenn og í raun hvaða heil-
vita mann sem er, hvor leiðin er
skynsamlegri og árangursríkari
fyrir menningarlífið á Akureyri.
Svarið er svo augljóst að óþarft
er að hafa orð á því.
V
Það má hafa um þetta allt saman
langt mál og víkja að ýmislegu
öðru áhugaverðu sem menning-
armálanefnd hefur fengist við á
þessu kjörtímabili og tengist því
sem hér hefur verið fjallað um.
Þ.á m. um tilraunir til að heimta
réttmætan hlut af ríkisframlögum
til menningarmála, m.a. til
Amtsbókasafnsins. Ekki er útséð
um þau mál ennþá. En þótt hér
sé látið staðar numið er vonandi
ljóst að það eru hlægileg öfug-
mæli að segja að í þessum mála-
flokki hafi menn svikið einhver
loforð.
Ég vil að lokum þakka D.S.
fyrir spurninguna sem var tilefni
þessarar greinar. Svarið við
spurningu hans er þetta: Afmæl-
isgjöfina færðu. Það er ekki ein-
asta að enginn verði svikinn -
heldur verður meira efnt en lofað
var. Einu svikin í þessu máli
verða vonsvik nátttröllanna sem
ekki hafa mátt heyra minnst á
framkvæmdir í menningarmálum
eða hafa verið með illspár um að
ekki yrði staðið við gefin fyrir-
heit.
Þröstur Ásmundsson.
Höfundur er formaður menningarmálanefndar
Akureyrarbæjar.
Nýbygging við Amtsbókasafn og Listamiðstöð í Grófargili. Yfirlit yfir áætlanir annars vegar 1988 og hins vegar 1992.
Amtsbókasafn Listamiðstöð Samtals
1988 Samkvæmt tillögum Guðm. Jónss. Safn og Listamiðstöð. Stærð ca. 2400 m2 Áætl. kostn. ca. 406 millj. 0 406 millj.
1992 Samkv. endurskoðaðri till. Guðm. Jónss. Eingöngu viðb. við söfnin Stærð 1150 m2 Áætl. kostn. ca. 170 millj. Kaupverð - endursk. 54 millj. (Lóðir 13 millj.) Áætl. kostn. bæjarins: Kaupv.s. 23 9 millj. Samlag 115 millj. Ketilhús 59 millj.
Alls 237 millj.
Stærðca. 4100 m2 407 millj.
Stærð samtals 5250 m2
Allar verðtölur miðaðar við byggingavísitölu 187. (Nóv.-des. 1991.)
'tebókasafhið offafn
aofínjii bæJgg;
að loford oi' ,
^mennt vcrður að scni-i
fesfS-J
Pald scm skyidi Fn ,
^jómálamenn ekH víö S
m Þa a ekki að ,á(a
■ • Scinnyorn og réttm-er
|ym crafþví e«a ‘
Vf'^.álZkáraatai
“*L samÞykklu aliir
fcr e'nr‘ima á bæjar-
gcfa sjálfun, sér
Tfoða S/öf. Bæjar-
l|r kom saman á
fcrrundi u8 ákvað
ftega álhuguðu
■iru kain.a,- .
er og á að V,
enda cin af
stoínunum ;j
er Þ‘> ekki a
hvort unir;edi
um bctri. M
viðhorf þcir
malsin.s. sem
rumum 4 úru,
Nu standa
framkvæmdir
um bæjarins ,
múlu, vcgna ;
Um úgæ
latrð, cn vænta
fe’angsröð megin
mgarmálum
Amtsbökasa fnic
mrgang.
Greinin sem Þröstur gerir að umtalsefni birtist í Degi 29. jan. sl.