Dagur - 04.02.1992, Síða 5
Þriðjudagur 4. febrúar 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Sameining hreppanna framan Akureyrar:
Það hefur gengið betur en ég bjóst við
- segir Birgir Þórðarson, oddviti sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar
Birgir Þórðarson, oddviti
sveitarstjórnar Eyjafjarðar-
sveitar, segist telja að í Ijósi
síðasta árs, hafi það verið hár-
rétt ákvörðun að sameina
Öngulsstaðahrepp, Saurbæjar-
hrepp og Hrafnagilshrepp í eitt
sveitarfélag, um áramótin
1990-1991. Ibúar sveitarfélags-
ins séu almennt ánægðir með
hvernig til hafi tekist.
„Það er ekki búið að gera upp
ársreikninga fyrir síðasta ár og
því sjáum við ekki fjárhagsútkom-
una, en ég held að megi segja að
sameiningin hafi gengið betur en
ég bjóst við. Umsvif sveitarfélags-
ins eru mikil og það er meiri vinna
í kringum þetta en ég gerði fyrir-
fram ráð fyrir,“ sagði Birgir.
„Ég sé ekki að hafi komið fram
neinir vankantar eða ókostir við
sameininguna og mér finnst að
íbúarnir séu yfirleitt mjög ánægð-
ir með þetta, að minnsta kosti
heyrir maður ekki óánægjuradd-
ir. Hafi einhverntímann verið
hrepparígur hér, þá held ég að
hann sé á hröðu undanhaldi,"
bætti hann við.
Birgir sagði að hann hafi gert
sér von um að sú mikla umræða.
sem var á sl. sumri um samein-
ingu sveitarfélaga í tengslum við
skýrslu félagsmálaráðuneytisins
um skiptingu landsins í sveitar-
félög, héldi áfram. „Það hefur
því miður ekki gengið eftir. Ef til
vill hefur umræða um stór sveit-
arfélög dregið úr mönnum kjark-
inn í bili,“ sagði Birgir. óþh
Bókun bæjarráðs Akureyrar um mál Roars Kvam:
„Ljóst að viðkomandi starfs-
maður hafi brotið af sér í starfi“
Eins og fram kom í Degi sl.
laugardag samþykkti bæjarráð
Akureyrar á fundi sínum sl.
fimmtudag að veita Roari
Kvam lausn frá starfí skóla-
stjóra Tónlistarskólans á
Akureyri. Þessi samþykkt
kemur til afgreiðslu á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í dag.
I bókun bæjarráðs 30. janúar
sl. segir orðrétt: „Borist hefur
bréf frá bæjarfógetanum á Akur-
eyri dags. 28. janúar 1992 ásamt
bréfi dags. 22. janúar 1992 frá
ríkissaksóknara um ætluð skírlíf-
isbrot Roars Kvam, skólastjóra
Tónlistarskólans á Akureyri.
Með vísan til upplýsinga, sem
fram koma í bréfunum, er ljóst
að viðkomandi starfsmaður hafi
brotið af sér í starfi. Meirihluti
bæjarráðs leggur til við bæjar-
stjórn að bókun stjórnar Tónlist-
arskólans frá 16. desember sl., 4.
liður, verði samþykkt og Roari
Kvam veitt að fullu lausn úr starfi
þegar í stað. Bæjarráðsmaður
Björn Jósef Arnviðarson greiddi
atkvæði gegn tillögunni." óþh
LANGAR ÞIG I
TILBREYTINGU,
hafa góða afkomu og starfa sjálfstætt við eigið
fyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæðinu?
Af sérstökum ástæöum er til sölu mjög fallegt og
þrifalegt fyrirtæki í fullum rekstri.
Umtaisveröir tekjumöguleikar.
Lítill tilkostnaður í rekstri.
Fyrirtækiö hefur um 230 fm húsnæöi á besta stað til
umráða.
Ekki þarf nema eina manneskju á vakt hverju sinni
og hentar jafnt körlum og konum.
Tilvaliö fyrir einn, tvo aöila t.d. hjón eöa heila fjöl-
skyldu.
Fyrirtækið er eitt hiö glæsilegasta sinnar tegundar.
Möguleiki að taka góða fasteign upp í kaupin.
Hafir þú áhuga á frekari upplýsingum skrifaöu þá
nafn, heimilisfang og síma og upplýsingar sem
skipta máli og póstlegðu. Utanáskriftin er: Pósthólf
9013, 109 Reykjavík.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Mótmælir fyrirhuguðum niður-
skurði 1 grunnskólanum
- að skerða grunnskólann er skammsýni
sem samfélagið á eftir að gjalda fyrir
Félag íslenskra sérkennara
mótmælir harðlega fyrirhuguð-
um niðurskurði í grunnskólan-
um. Félagið bendir á að
aðstæður barna á íslandi eru á
margan hátt mjög slæmar, sem
birtist m.a. í auknum fjölda
barna sem glíma við félags- og
tilfinningalega erfiðleika, eins
og segir í ályktun félagsins.
Grunnskólinn er mikilvægur
þáttur í uppeldi og menntun
barnanna og getur, ef vel er að
honum búið, bætt börnunum upp
slæm uppeldisskilyrði á öðrum
vettvangi. Að skerða starfsemi
hans enn frekar en orðið er, er
skammsýni sem samfélagið á eftir
að gjalda fyrir.
Félagið skorar því á mennta-
málaráðherra að standa vörð um
íslenskt skólakerfi og afstýra
frekari niðurskurði á því. - Og
hefja þess í stað markvissa sókn
til eflingar grunnskólanum af
metnaði og framsýni, eins og seg-
ir ennfremur í ályktuninni. -KK
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
á Norðurlandi eystra:
Stjóramálaftmdir á Húsavík,
Þórshöfh og Raufarhöfii
- Halldór Blöndal, landbúnaðar- og
samgönguráðherra á meðal ræðumanna
Kjördæmisráð Sjálfstæðisfé-
laganna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra boðar til ahnennra
stjórnmálafunda í kjördæminu
næstu daga.
Fyrsti fundurinn verður á
Húsavfk á morgun, miðvikudag-
inn 5. febrúar á Hótel Húsavík
og hefst kl. 20.30. Ræðumenn
verða Halldór Blöndal, landbún-
aðar- og samgönguráðherra og
Tómas Ingi Olrich, alþingismað-
ur.
Fimmtudaginn 6. febrúar verð-
ur haldinn fundur í Þórsveri á
Þórshöfn og hefst hann kl. 20.30.
Ræðumenn verða Halldór
Blöndal, Tómas Ingi Olrich og
Svanhildur Árnadóttir, varaþing-
maður.
Þriðji fundurinn verður síðan
haldinn í Hnitbjörgum á Raufar-
höfn föstudaginn 7. febrúar og
hefst kl. 20.30. Þar verða sömu
ræðumenn og á Þórshöfn, þ.e.
Halldór, Tómas og Svanhildur.
-KK
a
Kynningarfundir
heilbrigðis- og
tryggingainálaráöherra,
Sighvats Björgvinssonar
á Norðurlandi.
Siglufjörður - miövikudaginn 5. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 71700.
Fundur í Borgarkaffi kl. 20.30.
Sauðárkrókur - fimmudaginn 6. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 35133.
Opinn fundur í Safnahúsinu kl. 20.30.
Akureyri - miðvikudaginn 12. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 21000.
Opinn fundur í Alþýðuhúsinu kl. 20.30.
Húsavík - Fimmtudaginn 13. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 41222.
Fundur á Hótel Húsavík kl. 20.30.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið