Dagur - 04.02.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 4. febrúar 1992
Áramótamyndagáta Dags:
Ólafsfirðingur hlaut 1. verðlaun
í gær var dregið úr innsendum
lausnum á áramótamyndagátu
Dags en alls voru þær á annað
hundrað talsins.
Tvenn verðlaun voru í boði
fyrir rétta lausn og reglurnar þær
að handhafi þess seðils, sem
fyrst yrði dreginn úr bunkanum,
hlyti 1. verðlaun. Upp kom nafn
Þórgunnar Rögnvaldsdóttur,
Ægisgötu 1, Ólafsfirði. Þórgunn-
ur hlýtur að launum SHARP
QT238 ferðatæki með útvarpi og
tvöföldu segulbandi, að verðmæti
15.412 krónur.
2. verðlaun, SHARP QT247
ferðatæki, með útvarpi og segul-
bandi, að verðmæti 6.719 krónur,
hlýtur Sigurður Steingrímsson,
Víðilundi 2 A, Akureyri. Gef-
andi vinninga er Vöruhús KEA,
Akureyri.
Rétt lausn myndagátunnar er
svohljóðandi: Hvað er frantund-
an í íslensku þjóðlífi? Er ríkis-
stjórn Davíðs og félaga á villigöt-
um með nýtt vegabréf inn í nýja
öld?
Við þökkum lesendum fyrir
þátttökuna og vonum að þeir
hafi haft gaman af. Jafnframt
þökkum við Vöruhúsi KEA fyrir
þess þátt í leiknum.
Um síðustu áramót höfðu hér á landi greinst
69 með smit af völdum HlV-veirunnar:
Þetta er ekki faraldur sem
breiðist út eins og svartidauði
- segir Haraldur Briem, læknir á Borgarspítalanum
Dreifing HlV-smitaðra eftir smitleiðum og áhættuhegðun 31. desember 1991
Hópar einstaklinga Karlar Konur Samtals %
Hommar/tvíkynhneigðir 45 0 45 65
Rkniefnaneytendur (í æð) 7 2 9 13
Hópur1+2 2 0 2 3
Gagnkynhneigöir (kynmök) 4 4 8 12
Blóðþegar 0 4 4 6
Dreyrasjúklingar 0 0 0 0
Óþekkt 1 0 1 1
Samtals 59 10 69 100
30 T
o
s?
1.85 Z85 1.86 2.86 U7Z87 1.88 Z88 1.89 Z89 150 Z901.91 Z91
Árshelmingur
Samanlagður fjöldi sjúklinga með alnæmi og sem látist hefur vegna alnæmis
miðað við 31. desember 1991.
E5
'I 'I ■ I '1 M 'I 'IM ■ I 'I ■] M T'l ■ I U 'I 'r'l ■! ‘I 'I »1 ’l '1 'I M 'I ’l TM M ’l11 '
, 123412341234123412341234123412341234/91
Ar 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991
Samanlagður fjöldi einstaklinga með HI V-smit og alnæmi miðað við 31. des-
ember 1991.
Um síðustu áramót höfðu 69
einstaklingar á íslandi greinst
með smit af völdum HIV
(Human Immunodeficiency
Virus). Á síðasta ári greindust
10 með HlV-smit og 6 greind-
ust með alnæmi, lokastig sjúk-
dómsins. Haraldur Briem,
læknir á Borgarspítalanum,
sagði í samtali við Dag að þessi
sjúkdómur breiddist hratt út
hér á landi sem annars staðar í
heiminum, en hins vegar væru
HlV-smitaðir hér á landi ekki
eins margir í dag og spár sér-
fræðinga árið 1985, þegar HIV
greindist hér á landi í fyrsta
skipti, gerðu ráð fyrir.
Haraldur sagði að fjöldi smit-
aðra af sjúkdómnum hér á landi
væri hlutfallslega mjög svipaður
og í nágrannalöndunum, einkum
þó Noregi og Svíþjóð. „Að vísu
hefur ekki orðið jafn mikil
útbreiðsla sjúkdómsins meðal
fíkniefnaneytenda hér á landi og
í þessum löndum,“ sagði Harald-
ur. Sjúkdómsins varð fyrst vart í
Svíþjóð árið 1982, en þrem árum
síðar hér á landi.
Vinningstölur laugardaginn (tÝíy (29j(3; 1. feb. ’92
3j (7)
VINNINGAR | VINNING^rAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 | 3 1.057.023,-
2.4^1® 7 78.745,-
3. 4af5 I 122 7.793,-
4. 3af5 | 4.609 481,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.889.959.-
J I#
UPPLÝSINGAR:S[MSVAR|91 -681511 LUKKUllNA 991002
Fjölþættar rannsóknir
á sjúkdómnum
Haraldur sagði að hér á landi
væru stundaðar fjölþættar rann-
sóknir vegna þessa sjúkdóms.
„Þetta eru t.d. rannsóknir í far-
aldsfræði og meðferð og rann-
sóknir á HlV-veirunni sjálfri.
Faraldsfræði- og meðferðarrann-
sóknir eru að mestu leyti á Borg-
arspítalanum, en Rannsókna-
stofa Háskólans í veirufræði hef-
ur haft með veiruna sjálfa að gera
og Rannsóknastofan í ónæmis-
fræði hefur rannsakað ónæmis-
kerfið. Það eru því margir sem
koma að þessum rannsóknum,"
sagði Haraldur.
Sigríður Haraldsdóttir, land-
fræðingur, gerði fyrir fáum áruni
merkilega faraldsfræðilega úttekt
á útbreiðslu sjúkdómsins hér á
landi. Þessi úttekt gaf góða hug-
mynd um eftir hvaða leiðum
sjúkdómurinn breiddist út hér á
landi og var ómetanleg hjálp fyrir
þá sem þessar rannsóknir stunda.
Haraldur sagði að mikill fengur
yrði af því ef Sigríði yrði gert
kleift að halda áfram á sömu
braut.
Þaö hefur náðst árangur
í baráttunni gegn
sjúkdómnum
Með reglulegu millibili flytja fjöl-
miðlar fréttir af því að búið sé að
finna upp lyf, sem flytji fjöll í
baráttunni gegn HIV. Haraldur
var spurður um hvort þessar
fréttir væru meira og minna til-
búningur? „Það er vissulega allt-
af verið að greina frá undralyfj-
um, sem geta lofað góðu, en eru
ekki kómin langt í rannsóknum.
Menn hafa oft tilkynnt um lyf,
sem hafa sýnt árangur í tilrauna-
glasi, en ekki sýnt árangur á
sjúklingum. En það eru til lyf
sem ekki bara lengja líf þeirra
sem hafa fengið alnæmi, lokastig
sjúkdómsins, heldur draga einnig
úr líkum á því að þeir sem eru
smitaðir fái alnæmi. Það er alveg
ljóst að það hefur náðst töluverð-
ur árangur í baráttunni við sjúk-
dóminn, þó ekki hafi fundist
lækning," sagði Haraldur.
Fólk er mun betur upplýst
Áætlað er að um aldamótin verði
40 milljónir manna smitaðar af
HlV-veirunni. Þetta er að sjálf-
sögðu ógnvekjandi há tala, en þó
er það nú svo að fyrir nokkrum
árum gerðu sérfræðingar ráð fyrir
mun meiri útbreiðslu sjúkdóms-
ins, en raunin hefur orðið. Þar
kemur til að vitneskja almenn-
ings um sjúkdóminn er mun
meiri og betri, en fyrir fáum
árum. Þá eru sérfræðingar sam-
mála um að meðferð á HIV-
smituðum hafi fækkað umtalsvert
þeim sem fá sjúkdóminn á loka-
stigi.
Haraldur segir að almenningur
sé ekki eins óttasleginn yfir þess-
um sjúkdómi og árið 1985, þegar
hans varð fyrst vart hér á landi.
„Fólk er rólegra en áður. Það
veit að þetta er ekki faraldur,
sem breiðist út eins og Svarti-
dauði. Auðvitað eru margir ein-
staklingar mjög viðkvæmir fyrir
þessu, en almennt horfir fólk
skynsamlega á þetta. Það er upp-
lýst um smitleiðir og það veit
einnig að ef það er ekki með
þessa áhættuhegðun, þá eru lík-
urnar á því að fá sjúkdóminn afar
litlar," sagði Haraldur
Til stærstu áhættuhópanna telj-
ast samkynhneigðir og fíkniefna-
neytendur og þá sagði Haraldur
rétt að undirstrika að gagnkyn-
hneigðir væru líka áhættuhópur,
ef þeir væru mjög fjöllyndir í
kynlífi. „Það hefur valdið okkur
áhyggjum að lifrabólga hefur
breiðst út talsvert á meðal fíkni-
efnaneytenda og hún hefur alveg
sama farveg og alnæmisveiran,“
sagði Haraldur.
Fræðsla um alnæmissjúkdóm-
inn er mun meiri og markvissari
en áður. Haraldur telur vera
mjög jákvætt að fá umræðu um
þessi mál í skólunum. Hún sé til
þess fallin að auka vitneskju fólks
um HIV og alnæmi.
69 greinst með HIY-smit
um síðustu áramót
Samkvæmt upplýsingum Land-
læknisembættisins höfðu samtals
69 einstaklingar greinst með smit
af völdum HIV um síðustu ára-
mót. Á árinu 1991 greindust 10
einstaklingar með HlV-smit og af
HlV-smituðum greindust 6 með
alnæmi á árinu. Á íslandi hafa
því greinst samtals 22 einstakl-
ingar með alnæmi, lokastig sjúk-
dómsins, og eru 11 þeirra látnir.
Samanlagt nýgengi sjúkdómsins
hér á landi er því 8,5/100.000
íbúa. Kynjahlutfall HlV-smit-
aðra, samkvæmt upplýsingum
Landlæknisembættins, er u.þ.b.
1 kona fyrir hverja 6 karlmenn.
óþh