Dagur - 04.02.1992, Síða 7
Þriðjudagur 4. febrúar 1992 - DAGUR - 7
Bidasoa enn með leiðindi:
Þorbergur vill Alfreð
ef Júlíus fær ekki frí
Þorbergur Aðalsteinsson,
Iandsliðsþjálfari í handknatt-
leik, segist verða að fara fram
á að Alfreð Gíslason gefi kost
á sér í landsliðið fyrir B-keppn-
ina í Austurríki ef Júlíus Jón-
asson fær ekki frí frá Bidasoa.
Spænska félagið hefur lýst því
yfir að Júlíus geti farið til
Austurríkis eftir að bikar-
keppninni á Spáni lýkur, 22.
mars, en Þorbergur segir það
alls ekki fullnægjandi því þá
verði riðlakeppninni í B-
keppninni Iokið.
Þorbergur fylgdist með leik
Vals og KA á laugardaginn og
sagði þá að nauðsynlegt væri fyrir
liðið að hafa Alfreð með ef Júlíus
kæmist ekki en enn væru vonir
bundnar við að Bidasoa gæfi
eftir. Spánverjarnir lýstu því yfir
á sunnudag að Júlíus gæti farið
eftir að bikarkeppninni á Spáni
lyki en hún hefst 19. mars, sama
dag og B-keppnin, og lýkur 22.
mars, sama dag og fsland spilar
síðasta leikinn í riðlinum í Aust-
urrfki. Þorbergur sagði í gær að
þetta væri alls ekki ásættanlegt en
vildi ekki segja meira um málið
fyrr en hann væri búinn að fá
upplýsingar frá Alþjóða hand-
knattleikssambandinu sem hann
beið eftir.
Eins og kunnugt er hefur
Alfreð ekki gefið kost á sér og
hann sagði í samtali við Dag aö
það hefði ekkert breyst enda væri
líklegast að Bidasoa myndi gefa
eftir þar sem félagið mætti að
öðrum kosti búast við sektum.
„En ef það gengur ekki gæti orð-
ið erfitt að segja nei,“ sagði
Alfreð.
Þorbergur var einnig spurður
hvort KA-maðurinn Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson væri ekki inni
í myndinni en hann hefur átt
hvern stórleikinn á fætur öðrum
upp á síðkastið. „Sigurpáll er inni
í myndinni hjá landsliðinu en
verður að öllum líkindum ekki
valinn í hópinn fyrir B-keppnina.
Hann hefur tekið miklum fram-
förum en vantar ennþá líkamleg-
an styrk,“ sagði Þorbergur.
-bjb/JHB
Ekki harma allir tíðarfarið:
Fótboltinn rúllar á Akureyri
Knattspyrnumenn hafa glaðst
yfir tíðarfarinu að undanförnu
og á laugardaginn voru leiknir
tveir æfingarleikir á KA-velIin-
um á Akureyri, þrátt fyrir að
þá hafi verið kominn snjóföl.
Þór sigraði KA 5:1 og Magni
sigraði SM 5:2.
KA-menn náðu forystunni
gegn Þór þegar Bjarni Jónsson
skoraði úr vítaspyrnu. En Þórsar-
ar höfðu öll tök á leiknum eftir
það og Bjarni Sveinbjörnsson
skoraði þrívegis og Halldór
Áskelsson tvívegis. Töluverðan
mannskap vantaði í bæði lið en
þess má geta að Sveinbjörn Há-
konarson lék með Þórsurum og
kom vel út.
„Ég er ánægður með að hafa
getað spilað þennan leik þótt það
hafi verið kominn pínulítill snjór.
Tíðarfarið hefur verið mjög hag-
stætt að undanförnu og ég vona
að það verði eitthvað svipað
áfram,“ sagði Sigurður Lárusson,
þjálfari Þórs. Hann sagðist stefna
að því að láta lið sitt spila um
hverja helgi á næstunni, m.a.
verður farið til Reykjavíkur og
spilað við Breiðablik 22. febrúar
og Víði daginn eftir.
Magni undirbýr sig fyrir úr-
slitaleikinn um 3. deildarsætið
við Hött og sigraði SM 5:2 fyrr
um daginn. Sverrir Heimisson
skoraði tvö mörk fyrir Magna og
Kristján Kristjánsson, Þorsteinn
Friðriksson og Hreinn Hringsson
eitt hver. Hreinn hafði reyndar
skorað eitt sem lánsmaður hjá
SM í fyrri hálfleik en Jóhann Ein-
arsson skoraði hitt.
í kvöld:
ÍR-Þór
í kvöld kl. 20 mætast ÍR og
Þór í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik í Seljaskóla.
Óhætt er að segja að þetta sé
annar af tveimur úrslitaleikj-
um deildarinnar enda liðin í
sérflokki og hefur hvorugt
þeirra tapað stigi hingað til.
Handknattleikur:
Mundi í firí
Guðmundur Guðmundsson,
línumaður í handboltaliði
KA, segist ekki reikna með
að leika meira með iiðinu í
vetur vegna anna í vinnu.
„Það er búið að vera mikið
að gera hjá mér og ég hef ekki
getað æft á fullu síðan um ára-
mót. Ég var ekki með um
helgina og reikna ekki með að
spila meira í vetur enda hefur
liðið tvo aðra línumenn. Ég
ætla þó að æfa og halda mér í
formi ef eitthvað kemur upp
á,“ sagði Guðmundur í sam-
tali við Dag.
Akureyri:
Skíðamenn á fiillu
Skíðamenn hafa ekki látið
deigan síga þrátt fyrir „óhag-
stætt“ tíðarfar að undanförnu.
A Akureyri hefur verið æft vítt
og breitt um bæinn undir
stjórn pólska þjálfarans Kam-
inskis og Akureyringanna
Kristins Svanbergssonar og
Ingólfs Gíslasonar. Einnig
hafa verið haldnar 20 æfingar í
fjallinu, á skíðuin þótt ótrúlegt
megi virðast, og nýlega var þar
haldið æfíngamót.
Skíðamenn hafa fundið snjó
uppi í Strýtu og hafa þar haldið
20 æfingar síðan í desember.
Nýlega var haldið æfingamót þar
sem keppt var í þremur flokkum
og urðu úrslit þessi:
13-14 ára:
1. Brynja Þorsteinsdóttir 1.03,54
2. Hrefna Óladóttir 1.04,35
3. Alla Reynisdóttir 1.06,19
1. Jóhann Arnarson 1.03,73
2. Fjalar Úlfarsson 1.04,47
3. Magnús Árnason 1.05,58
15-16 ára:
1. Fjóla Bjarnadóttir 1.02,54
María Magnúsdóttir.
1. Alexander Kárason 1.01,88
2. Gauti Reynisson 1.02,02
3. Magnús Lárusson 1.02,84
17 ára og eldri:
1. María Magnúsdóttir 1.00,63
2. Linda Pálsdóttir 1.03,78
1. Birgir Ólafsson 1.00,74
Þorbergur fylgdist með stórleik Alfreðs á laugardag og á í viðræðum við
hann um að leika í B-keppninni. Mynd: Goiii
Knattspyrna:
Sigurður fer með
tvo til Belgíu
Sigurður Lárusson, þjálfari
knattspyrnuliðs Þórs, fer til
Belgíu á næstunni og fylgist
með þjálfun hjá Lokeren í eina
viku. Með honum fara tveir
leikmenn liðsins sem munu
æfa með Lokeren til loka mán-
aðarins og spila að öllum lík-
indum 2-3 leiki með varaliði
félagsins.
Leikmennirnir tveir eru Lárus
Orri Sigurðsson og Þórir Áskels-
son. Þremenningarnir fara út 12.
febrúar, Sigurður kemur heim
viku seinna en Lárus Orri og Þór-
ir ekki fyrr en 29. febrúar. „Mér
nægir að vera í viku en þeir verða
lengur. Ég mun fylgjast með
æfingum hjá Lokeren og e.t.v.
einhverjum fleirum og kynna
Sigurður Lárusson.
mér það nýjasta sem er að gerast
í þjálfun,“ sagði Sigurður Lárus-
son.
Markahæstu menn:
Sigurpáll í þriðja sæti
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson,
hornamaður úr KA, er kominn
í þriðja sæti á lista yfír marka-
hæstu menn 1. deildarinnar í
handknattleik. Hann hefur
skorað 107 mörk, jafnmörg og
Michael Tonar úr HK, en fleiri
mörk Sigurpáls hafa verið
skoruð úr vítaköstum.
Listi yfir 10 markahæstu menn
lítur svona út:
Hans Guðmundsson, FH 124/40
Michael Tonar, HK 107/25
Sigurpáll Á. Aðalsteinsson, KA 107/35
Sigurður Sveinsson, Self. 102/43
Guðmundur Albertsson, Gróttu 100/54
Gunnar Andrésson, Fram 98/29
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni 98/46
Petr Baumruk, Haukum 96/29
Soltan Belany, ÍBV 94/30
Kristján Arason, FH 88/13