Dagur - 04.02.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 4. febrúar 1992
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur
1. deild
Valur-KA 27:29
FH-Stjarnan 31:28
ÍBV-Víkingur mánud.
FH 17 14-2- 1 482:393 30
Víkingur 15 12-2- 1 389:324 26
Fram 16 7-4- 5 368:378 18
Selfoss 15 8-1- 6 401:390 17
KA 16 7-3- 6 393:393 17
Stjarnan 17 7-1- 9 417:402 15
Valur 15 5-5- 5 371:364 15
ÍBV 15 6-2- 7 402:388 14
Haukar 16 5-4- 7 386:395 14
Grótta 16 3-4- 9 323:387 10
HK 15 3-2-10 340:363 8
UBK 16 2-2-12 292:377 6
2. deild
Fjölnir-HKN 23:27
KR-IR 23:32
ÍH-Ögri 35:17
ÍR 11 11-0- 0 308:193 22
Þór 9 9-0- 0 246:161 18
HKN 12 9-0- 3 301:231 18
UMFA 11 7-0- 4 236:214 14
ÍH 10 6-0- 4 226:219 12
Ármann 12 5-0- 7 264:253 10
KR 11 3-1- 7 243:243 7
Fjölnir 11 3-1- 7 218:257 7
Völsungur 12 2-0-10 241:305 4
Ögri 12 0-0-12 178:331 0
Úrvalsdeild
A-riðill
UMFN-UMFG 104:74
Snæfell-ÍBK 71:90
Tindastóll-Haukar 103:96
Valnr-Skallagrímur 107:85
KR-Þór 105:83
UMFN 18 15- 3 1710:1433 30
KR 18 14- 4 1665:1453 28
Tindastóll 18 10- 8 1656:1624 20
Snæfell 18 3-15 1407:1688 6
Skallagrímur 18 3-15 1449:1761 6
B-riðill
ÍBK 18 17- 1 1796:1506 34
Valur 18 11- 7 1684:1584 22
UMFG 18 7-11 1507:1489 14
Haukar 17 7-10 1548:1659 14
Þór 17 3-14 1445:1670 4
Blak
1. deild karla
ÍS-HK 3:0
Sindri-KA 0:3
Víkingur 9 9-0 27: 4 18
ÍS 10 8-2 26:15 16
HK 12 7-5 25:19 14
Völsungur 11 5-6 21:21 10
UBK 9 54 18:19 10
KA 11 4-7 21:22 8
Þróttur N. 9 1-8 7:24 2
Sindri 7 0-7 0:21 0
1. deild kvenna
ÍS-HK 3:1
ÍS 12 12- 0 36: 7 24
KA 11 8- 3 27:12 16
HK 12 8- 4 26:18 16
Þróttur N. 12 4- 8 19:26 8
Þróttur R. 10 2- 8 12:27 4
Umf.Skeið 13 1-12 6:36 2
Fyrsti útisigur KA-manna:
„Fengum í raun flögur stíg“
- sagði Alfreð Gíslason eftir sigur á meisturum Vals
Pétur Bjarnason glímdi við landsliðsmanninn Valdimar Grímsson og gerði
honum gramt í geði. Mynd: Goiii
KA-menn unnu sinn fyrsta úti-
sigur í íslandsmótinu í hand-
knattleik þegar þeir lögðu
íslandsmeistara Vals 29:27 að
Hlíðarenda á laugardaginn.
Sigurinn var einkar mikilvægur
enda hart barist um sæti í úr-
slitakeppninni og hvert stig
getur skipt gríðarlega miklu
máli þegar upp er staðið.
Eftir afspyrnuslakan fyrri hálf-
leik hristu KA-menn af sér slenið
með Alfreð og Sigurpál í broddi
fylkingar og tóku ungt, reynslu-
lítið og vængbrotið Valslið í
karphúsið. Valsmenn léku án
þriggja lykilmanna, Jakobs Sig-
urðssonar, Brynjars Harðarsonar
og Júlíusar Gunnarssonar og lið-
ið á erfiða daga framundan þótt
ungu strákarnir lofi vissulega
góðu.
„Ég er mjög ánægður með
sigurinn og við fengum í raun
fjögur stig fyrir hann. Leikirnir
hafa verið köflóttir hjá okkur að
undanförnu en núna náði liðið
sér á strik á réttum tíma,“ sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
sem átti enn einn stórleikinn fyrir
lið sitt.
Segja má að liðin hafi skipt
leiknum bróðurlega á milli sín,
Valsmenn betri í fyrri hálfleik en
KA-menn í þeim seinni. Ungir
og frískir Hlíðarendapiltar áttu
alls kostar við þunglamalega KA-
menn frá fyrstu mínútu og náðu
fjögurra marka forystu fyrir hlé,
17:13. Þessu forskoti héldu þeir
fyrstu 10 mínúturnar í seinni
Eftir jafnan og spennandi leik
milli Tindastóls og Hauka á
Sauðárkróki sl. sunnudag tókst
heimamönnum að fara með
sigur af hólmi. Stólarnir sigr-
uðu í leiknum 103:96, en stað-
an í hálfleik var 50:50.
Leikurinn fór rólega af stað og
bæði lið tóku vörnina alvarlega.
Fyrsta karfan var ekki gerð fyrr
en eftir eina og hálfa mínútu og
voru það heimamenn sem opn-
uðu reikninginn. Staðan eftir níu
mínútna leik var 17:9 fyrirTinda-
stól og náðu þeir mest tuttugu
stiga forystu á 15. mín. Þegar
tæpar þrjár mínútur voru til hálf-
leiks var staðan 50:33, en þá fóru
Haukar að pressa og börðust eins
Þórsarar sóttu ekki gull í greip-
ar hinna röndóttu KR-inga
á Seltjarnarnesinu á sunnu-
dagskvöldið. KR-ingar unnu
öruggan sigur, 105:84. KR-ing-
ar höfðu undirtökin allan leik-
inn enda virðist Þórsliðið búið
að missa allt sjálfstraust og
ládeyðan er allsráðandi.
Um leikinn er í raun lítið ann-
að að segja en að KR-ingar höfðu
hann í hendi sér allan tímann.
Þórsarar sýndu klærnar í nokkrar
mínútur í fyrri hálfleik en síðan
ekki söguna meir. Eftir slaka
byrjun tókst norðanmönnum að
minnka muninn í 5 stig, 55:50, en
staðan í hléi var 58:52. í seinni
hálfleik fengu varamenn KR að
spreyta sig en það breytti litlu,
hálfleik en þá snérist leikurinnj
við. Þegar staðan var 20:17 fyrir
Val voru KA-menn tveimur færri
en náðu engu að síður að jafna
20:20 með gífurlegri baráttu og
síðan sigu þeir fram úr og náðu
fjögurra marka forystu, 27:23,
sem Valsmenn náðu ekki að
vinna upp í lokin.
Alfreð og Sigurpáll áttu frá-
bæran leik fyrir KA og Pétur
Bjarnason stóð sig eins og hetja í
slag við hættulegasta mann
Valsmanna, Valdimar Grímsson.
Axel hefur oft leikið betur í
markinu en var þó skömminni
skárri en landsliðsmaðurinn
Guðmundur Hrafnkelsson í hinu
markinu. Þá átti Þorvaldur Þor-
valdsson góðan leik í vörn KA.
„Auðvitað voru þetta von-
brigði en það var kannski ekki
við öðru að búast þar sem okkur
vantar þrjá menn í byrjunarliðið.
Þetta var fyrsti leikur ungu strák-
ana í heilar 60 mínútur og þeir
höfðu ekki þrek til að klára
þetta,“ sagði Valdimar
Grímsson, fyrirliði Vals. -bjb
Mörk Vals: Finnur Jóhannesson 6,
Valdimar Grímsson 6/1, Dagur Sigurðs-
son 5, Sveinn Sigfússon 3, Ólafur Þóris-
son 2, Ármann Sigurvinsson 2, Gr. Jóns-
son 2, Fóröur Sigurðsson 1.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
10/4, Alfreð Gísiason 9, Erlingur Krist-
jánsson 4, Pétur Bjarnason 2, Stefán
Kristjánsson 1, Jóhann Jóhannsson 1,
Þorvaldur Þorvaldsson 1, Árni Stefáns-
son 1.
Dömarar: Gunnar Kjartansson og Óli P.
Ólsen. Áttu ekki góðan dag en KA-menn
gátu ekki kvartað undan þeim.
og ljón þar til leikhlésflautan gall
og höfðu þá náð að jafna 50:50.
Þetta slæma tímabil í leiknum
hjá Tindastól hélt áfram eftir
leikhlé og Haukar gerðu fyrstu
tíu stigin og komust í 50:60. En
þá virtust Stólarnir hrökkva í gír-
inn að nýju og náðu aftur forystu
á 8. mín hálfleiksins, 64:63. Eftir
þetta var leikurinn mjög jafn, en
Tindastóll náði þó að halda for-
ystu þó aldrei yrði meira en sjö
stig. Síðustu mín. voru býsna
spennandi, enda bæði lið komin í
bónus, en Haukar hittu ekki
nógu vel úr sínum vítaskotum og
leikurinn endaði því 103:96.
„Við byrjuðum illa og misstum
þá langt fram fyrir okkur, en náð-
Þórsarar voru heillum horfnir og
munurinn jókst sífellt. Mestur
varð hann 26 stig, 95:69, fimm
mínútum fyrir leikslok.
Joe Harge klóraði einna mest í
bakkann af Þórsurum og sýndi
ágæt tilþrif en reyndi of mikið
upp á eigin spýtur. Þá átti Högni
Friðriksson spretti í fyrri hálfleik.
KR-ingar leika án Páls Kol-
beinssonar og Axels Nikulásson-
ar þessa dagana en maður kemur
í manns stað á þeim bænum. Jon
Baer var bestur í annars jöfnu
liði og markvörður knattspyrnu-
liðs KR, Ólafur Gottskálksson,
sýndi að hann styrkir körfuknatt-
leikslið félagsins mikið.
Guðmundur Björnsson,
leikmaður Þórs, hafði lítið um
leikinn að segja annað en að leik-
um okkur síðan aðeins upp. í
seinni hálfleik náðum við ekki að
spila eins vel og við vildum á móti
svæðisvörninni og þess vegna
töpuðum við leiknum. En við
erum ekki hættir," sagði Jón
Arnar Ingvarsson, Haukur, eftir
leikinn.
„Við byrjuðum vel en létum þá
slá okkur út af laginu með pressu-
vörninni í smátíma undir lok fyrri
hálfleiks. í seinni hálfleiknum
byrjuðum við illa, en um leið og
við fórum að leyfa boltanum að
ganga og spila af viti í sókninni
náðum við að halda okkar. Ann-
ars var þetta mjög jafn og góður
leikur,“ sagði Einar Einarsson,
leikmaður Tindastóls að leik
loknum.
Bestu menn leiksins voru Val-
ur Ingimundarson og Pétur
Guðmundsson hjá Tindastól og
JohnRhodeshjáHaukum. SBG
gleði liðsins væri orðin takmörkuð
og menn þyrftu að taka sig á í
fallbaráttunni. „Það þýðir ekkert
að gefast upp, næst er að vinna
Njarðvíkinga,“ sagði Guðmund-
ur og glotti. í þeim leik mæta
Þórsarar sínum fyrrum félögum
Sturlu og Gunnari Örlygssyni og
verður væntanlega lítið gefið eftir
í þeirri viðureign. -bjb
Stig KR: Jon Baer 27, Guðni Guðnason
19, Hermann Hauksson 17, Lárus Árna-
son 11, Matthías Einarsson 10, Ólafur
Gottskálksson 10, Óskar Krisljánsson 4,
Sigurður Jónsson 4, Tómas Hermanns-
son 3.
Stig Þórs: Joe Harge 31, Konráð Óskars-
son 15, Högni Friðriksson 10, Guðmund-
ur Björnsson 9, Helgi Jóhannesson 8,
Jóhann Sigurðsson 7, Björn Sveinsson 2,
Árni Jónsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og
Kristinn Óskarsson. Áttu náðugan dag.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 36,
Einar Einarsson 22, Ivan Jonas 15, Pétur
Guðmundsson 15, Björn Sigtryggsson 8,
Haraldur Leifsson 5, Hinrik Gunnarsson
2.
Stig Hauka: John Rhodes 42, Henning
Henningsson 13, Jón Arnar Ingvarsson
12, Jón Örn Guðmundsson 9, ívar
Ásgrímsson 8, Tryggvi Jónsson 6, Pétur
Ingvarsson 2, Bragi Magnússon 2, Reynir
Kristjánsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján
Möller. Dæmdu vel.
Blak:
Létt hjá KA
á Homafirði
KA vann auðvcldan sigur á
Sindra, 3:0, í 1. deild kvenna
í blaki á Hornafirði á laugar-
dag.
KA-liðið lék ágætlega og
sigurinn á slöku liði Sindra var
fyrirhafnarlítill, 15:1, 15:2 og
15:3. Leikurinn tók aðeins 30
mínútur.
Íshokkí:
SR burstaði
Bjöminn
Síðasti leikur 2. umferðar í
íslandsmótinu í íshokkí fór
fram á skautasvellinu í Laugar-
dal á sunnudagskvöldið. Þar
áttust við ísknattleiksfélagið
Björninn og Skautafélag
Reykjavíkur og lauk leiknum
með sigri SR, 17:4.
Staðan í deildinni er þessi:
SA 4 3-1 45:11 6
SR 4 3-1 34:13 6
Björninn 4 0-4 6:59 0
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
findastóll lagði Hauka
Enn tapa Pórsarar í körfuboltanum:
„Næst er að vinna Njarðvíkinga“