Dagur - 04.02.1992, Qupperneq 9
Þriðjudagur 4. febrúar 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Liverpool hnaut um Chelsea á Anfield
- létt hjá Leeds Utd. gegn Notts County - jafnteíli kostaði Man. Utd. efsta sætið
Winnie Jones sækir hér að marki Liverpool en hann skoraði fyrra mark Chelsea í leiknum á laugardag.
Það var hart barist í 1. deild-
inni á Englandi um helgina,
enda hvert stig dýrmætt í bar-
áttunni sem sífellt fer harðn-
andi á toppnum. Leeds Utd.
mjakaði sér í efsta sætið, með
jafnmörg stig og Man. Utd. en
markatala liðsins er betri.
Manchester liðið á hins vegar
leik til góða, en Liverpool sem
hefur verið á góðri siglingu að
undanförnu tapaði óvænt
heima. En þá eru það leikir
laugardagsins.
■ Stórleikur umferðarinnar,
viðureign Arsenal og Man. Utd.
var sýndur í sjónvarpinu undir
öruggri stjórn Bjarna Fel. sem
ekki lét sig vanta á Highbury.
Man. Utd. virtist svo gott sem
hafa tekið við meistaratitlinum af
Arsenal þegar Brian McClair
náði verðskuldað forystu fyrir
Utd. á 27. mín. Manchester liðið
var sterkara í fyrri hálfleiknum
og hinn eldfljóti útherji Andrej
Kantchelkis var besti leikmaður
vallarins. En David Rocastle
náði að jafna fyrir Arsenal á síð-
ustu mín. fyrri hálfleiks eftir
mjög góðan undirbúning Ian
Wright og Arsenal hafði síðan
undirtökin í síðari hálfleiknum,
en ekki voru fleiri mörk skoruð
og jafnteflið sanngjörn úrslit.
■ Chelsea hefur farið heldur illa
með Liverpool liðin þessa vik-
una, um síðustu helgi sló liðið
Everton úr FA-bikarnum og á
laugardaginn stöðvaði liðið langa
sigurgöngu Liverpool og það á
Anfield.
Chelsea hóf leikinn af miklum
krafti og Vinnie Jones náði for-
ystu fyrir liðið á 22. mín. með
langskoti sem fór í þverslá og
inn. Liverpool liðið færðist í auk-
ana við markið og Steve
McManaman misnotaði opið
færi, en á 33. mín. jafnaði
Ronnie Rosenthal fyrir Liver-
pool með góðu marki eftir send-
ingu frá Rob Jones. Yfirburðir
*
Urslit
1. deild
Arsenal-Manchester Utd. 1:1
Crystal Palace-Coventry 0:1
Leeds Utd.-Notts County 3:0
Liverpool-Chelsea 1:2
Manchester City-Tottenham 1:0
Norwich-Southampton 2:1
Nottingham For.-Sheffield Utd. 2:5
Q.P.R.-Wimbledon 1:1
Sheffield Wed.-Luton 3:2
West Ham-Oldham 1:0
Aston Villa-Everton 0:0
2. deild
Cambridge-Tranmere 0:0
Blackburn-Swindon 2:1
Brighton-Charlton 1:2
Bristol City-Bamsley 0:2
Middlesbrough-Grimsby frestaö
Millwall-Ipswich 2:3
Oxford-Newcastle 5:2
Piymouth-Bristol Rovers 0:0
Portsmouth-Dcrby 0:1
Southcnd-Watford 1:0
Sunderland-Port Vaie 1:1
Wolves-Leicester 1:0
Úrslit í vikunni.
FA-bikarinn 4. umferð.
Southampton-Manchester Utd. 0:0
1. deild
Livcrpool-Arsenal 2:0
2. deild
Bristol Rovers-Portsmouth 1:0
Swindon-Oxford 2:1
Liverpool voru miklir og Kevin
Hitchcock í marki Chelsea varði
glæsilega aukaspyrnu Jan Molby
og Rosenthal skallaði í slá. En á
73. mín. kom úrslita markið,
Dennis Wise skoraði eftir send-
ingu Andy Townsend, en eins og
Vinnie Jones er Wise fyrrum
Wimbledon leikmaður og
Wimbledon hefur ávallt verið
erfitt viðureignar fyrir Liverpool.
Tveim mín. síðar fékk Wise tæki-
færi á að gulltryggja sigurinn er
liðið fékk vítaspyrnu vegna brots
Mike Marsh á Clive Allen innan
teigs, en Bruce Grobbelaar í
marki Liverpool varði frá Wise.
■ Leeds Utd. komst í efsta sætið
eftir auðveldan 3:0 sigur gegn
Notts County á Elland Road, en
það er einmitt í leikjum sem
þessum sem Leeds Utd. hefur
verið að tapa stigum. Fyrsta
markið kom á 12. mín. er bak-
vörðurinn Mel Sterland skallaði
inn vel tekna hornspyrnu Gordon
Strachan. Sterland fór meiddur
útaf í hálfleik, en það kom ekki
að sök og liðið bætti öðru marki
við á 57. mín. Eftir hornspyrnu
Notts County hreinsaði Tony
Dorigo langt fram þar sem David
Batty tók við boltanum, iék
áfram og skoraði framhjá Steve
Cherry markverði County. Lítil
spenna var í leiknum og Tommy
Johnson misnotaði besta færi
County í leiknum er hann skaut
framhjá opnu marki, honum var
síðar skipt útaf og lét hann þá
óánægju sína óspart í ljós. Síð-
asta markið kom á 77. mín. er
Steve Hodge skallaði aukaspyrnu
Strachan fyrir markið þar sem
Rodney Wallace var óvaldaður
og skallaði boltann í netið.
■ Nottingham For. fékk heldur
háðulega útreið á heimavelli sín-
um gegn Sheffield Utd. og tapaði
2:5. Eftir 24 mín. leik var staðan
orðin 3:1, Mike Lake og John
Gannon með hörkuskotum af
löngu færi og síðan Ian Bryson
höfðu skorað mörk gestanna, en
Roy Keane svaraði fyrir Forest.
Carl Bradshaw bætti fjórða
marki Sheffield liðsins við eftir
klukkutíma leik, en Stuart
Pearce svaraði með marki úr
vítaspyrnu fyrir Forest er 15 mín.
voru til leiksloka. Forest sótti
látlaust í lokin og það notfærði
Brian Deane sér undir lokin er
hann náði að skora fimmta mark
Sheff. Utd.
■ Manchester City lét eitt mark
duga gegn Tottenham og það
nægði til sigurs, David White
skoraði með skalla eftir auka-
spyrnu Mike Hughes á 30. mín.
Manchester liðið hefði þó átt að
skora mun fleiri mörk, White
misnotaði að minnsta kosti fjögur
dauðafæri. Paul Stewart fékk
besta færi Tottenham í leiknum
undir lokin, en skaut í Tony Cot-
on markvörð City af tveggja
metra færi og áhangendur City
önduðu léttar þegar flautað var
af og liðið er enn með í barátt-
unni um meistaratitilinn.
■ Öll mörkin í leik Norwich og
Southampton komu í síðari hálf-
leik, en í slökum fyrri hálfleik
hafði Alan Shearer mistekist að
ná verðskuldaðri forystu fyrir
Southampton. Rob Ullathorne
náði síðan forystu fyrir Norwich
með skalla eftir góða sendingu
Darren Beckford, en Glenn
Cockerill jafnaði með góðu lang-
skoti fyrir Southampton. Sigur-
mark Norwich gerði síðan
Robert Fleck eftir að Tim Flow-
ers markvörður Southampton
hafði hálfvarið skot Mark
Bowen.
■ Crystal Palace virðist eiga
erfitt um þessar mundir, liðið
seldi í síðustu viku Marco
Gabbiadini til Derby eftir að
þessum skæða sóknarmanni hafði
mistekist að sanna sig hjá liðinu,
en hann var keyptur frá Sunder-
land fyrr í vetur. Og á laugardag
varð liðið að sætta sig við tap á
heimavelli gegn Coventry þar
sem David Smith skoraði eina
mark leiksins í fyrri hálfleiknum
fyrir Coventry.
■ Bakvörðurinn Mitchell Thom-
as sem áður lék með Tottenham
skoraði sigurmark West Ham í
mikilvægum sigri liðsins gegn
Oldham. Markið var skorað í
fyrri hálfleik og lagar stöðu West
Ham við botn deildarinnar.
■ Sheffield Wed. fékk óvænta
og harða mótstöðu á heimavelli
gegn Luton og mátti þakka fyrir
3:2 sigur í lokin. Bandaríkjamað-
urinn John Harkes skoraði sigur-
mark Sheff. Wed. undir lok leiks-
ins. David Hirst náði þó foryst-
unni fyrir Sheff. Wed. strax í
upphafi, en David Preece jafnaði
fljótlega fyrir Luton og Scott
Oakes náði síðan forystunni fyrir
liðið. Chris Bart Williams jafnaði
síðan fyrir Sheff. Wed. í 2:2.
■ Lundúnaliðin Q.P.R. og
Wimbledon gerðu síðan 1:1 jafn-
tefli í sínum leik. Gary Penrice
náði forystunni fyrir Q.P.R. í
fyrri hálfleik, en í þeim síðari
jafnaði John Fashanu úr víti fyrir
Wimbledon.
■ Á sunnudag gerðu Aston
Villa og Everton markalaust
jafntefli í sjónvarpsleiknum hjá
BBC.
■ Þá gekk franski landsliðsmið-
herjinn og vandræðagripurinn
Eric Cantona til liðs við Leeds
Utd. á sunnudaginn, en hann
hafði áður verið orðaður við
Sheffield Wed. Hann mun verða
hjá Leeds Utd. til loka leiktíma-
bilsins og kosta félagið £100.000,
en það vantar sárlega sterkan
miðherja hjá félaginu um þessar
mundir vegna meiðsla Lee
Chapman.
2. deild
■ Blackburn er enn efst í 2.
deild eftir 2:1 sigur á Swindon
sem náði forystu með marki
Dave Mitchell, en Colin Hendry
og David Speedie svöruðu fyrir
Blackburn.
■ Jason Dozzell, Neil Thomp-
son og Chris Kiwomya skoruðu
mörk Ipswich sem talið er leika
besta fótboltann í deildinni.
■ Steve Bull skoraði sigurmark
Wolves gegn Leicester, en Úlf-
arnir hafa læðst upp töfluna að
undanförnu.
Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Leeds Utd. 27 15-11- 1 52:21 56
Manchester Utd. 26 16- 8- 2 47:20 56
Liverpool 27 12-11- 4 35:24 47
Manchester City 27 13- 8- 6 36:29 47
Sheffield Wednesday 26 13- 7- 6 42:32 46
Aston Villa 27 11- 5-11 34:31 38
Chelsea 27 10- 8- 9 37:39 38
Arsenal 26 9- 9- 841:32 36
Everton 27 9- 8-10 36:32 35
Crystal Palace 25 9- 8- 8 36:43 35
Tottenham 26 10- 4-12 35:34 34
Nottingham For. 26 10- 6-10 41:41 33
Norwich 26 8- 9- 9 32:35 33
QPR 27 7-12- 8 28:33 33
Covenlry 26 9- 4-13 28:29 31
Oldham 27 8- 7-1241:47 31
Shefiield Utd. 27 8- 6-13 39:46 30
Wimbledon 26 6-10-10 30:34 28
Notls County 26 7- 6-1328:37 27
West Ham 26 6- 9-1125:38 27
Southampton 26 5- 7-14 26:44 22
Luton 26 5- 7-14 20:47 22
2. deild
Blackburn 27 15- 6- 6 43:25 51
Southend 29 14- 8- 7 43:32 50
Ipsvvich 29 14- 8- 7 43:33 50
Cambridge 27 12- 9- 6 39:28 45
Middlesbrough 27 13- 6- 8 34:27 45
leicester 28 13- 6- 9 37:33 45
Portsmouth 28 12- 7- 9 35:28 43
Charlton 28 12- 7- 9 36:34 43
Swindon 28 11- 9- 8 48:37 42
Wolves 28 12- 6-10 38:31 42
Derby 2712- 6- 936:29 42
Sunderland 29 11- 6-12 44:41 39
Millvvall 28 10- 6-12 44:48 36
Tranmere 26 7-14- 5 27:27 35
Bristol Rovers 30 8-10-12 35:44 34
Bristol City 29 8-10-10 32:42 34
W'atford 29 9- 6-14 32:36 33
Plymoulh 27 9- 6-12 30:39 33
Port Vale 30 7-12-1130:3933
Bamsley 30 9- 6-15 24:43 331
Grimsby 26 8- 6-12 30:39 30
Brighton 30 7- 8-15 38:48 29
Newcastle 30 6-11-13 44:59 29
Oxford 29 7- 4-18 42:50 25
Stuart Slater, útherji West Ham, í hvítum búningi, sést hér í baráttu við Earl
Barrett hjá Oldham en West Ham sigraði í leiknum.