Dagur - 04.02.1992, Síða 11
Þriðjudagur 4. febrúar 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
„Hraöbraut dauAans“ - þótt eyðileggingin í írak væri mikil vaknaði íraski herinn aftur til lífsins og Saddam Hussein
situr sem fastast í Bagdad - bandarískum frammámönnum til lítillar gleði.
Ár frá Persaílóastríðinu:
„Stór aðgerð sem
aldrei var lokið“
Endalok Persaflóastríðsins 16.
febrúar 1991 ættu eflaust að vera
flestum enn í fersku minni þótt
þau yrðu ekki með eins drama-
tískum hætti í beinni útsendingu
á sjónvarpsskjám Vesturlandabúa
eins og upphaf þess sex vikum
fyrr. Þótt stríðslokin ættu síst að
vera minni viðburður og meira
fagnaðarefni heldur en stríðsyfir-
lýsingar og hernaðaraðgerðir
hurfu endalok Eyðimerkurstorms-
ins fremur í gleymsku en upphaf
aðgerðanna gegn Saddam Huss-
ein. Vesturlönd voru undir for-
ystu George Bush, forseta
Bandaríkjanna, búin að draga
saman 443,000 manna fjölþjóða-
her, sem búinn var öflugustu og
tæknilegustu vopnum sem til eru
í veröldinni. Tæknin brást heldur
ekki - sprengjurnar rötuðu
„rétta“ leið, jafnvel ofan í lyftu-
op og stigahús fyrirfram ákveð-
inna bygginga í írak með tilheyr-
andi drápum og eyðileggingu sem
Vesturlandabúar hafa ekki enn
fengið fullkomna vitneskju um.
Samt vöktu endalok stríðsins
ekki verðskuldaða athygli á Vest-
urlöndum. Af hverju ekki mætti
spyrja. Styrjöldin lenti í einskon-
ar sjálfheldu þar sem báðir stríðs-
aðilar töldu geta lýst sig sigur-
vegara þrátt fyrir gífurlegt
mannfall og eyðileggingu innan
landamæra Íraks. Spurningin
sem George Bush stóð frammi
fyrir morguninn sem hann ákvað
að hætta hernaðaraðgerðunum
gegn írak var einfaldlega sú hve-
nær og á hvaða stigi hann ætti að
stöðva stríðið. Við hvaða stöðu
íraka að stríðinu loknu hann gæti
sætt sig við. Eftir sex vikna
sprengjuregn á írak - hið mesta í
sögu veraldarinnar virtist íraski
herinn orðinn að stórum heila-
lausum klunna, sem hvorki virtist
sjá eða hafa hugmynd til að taka
á móti fjölþjóðahernúm er hann
gekk á land í kjölfar loftárás-
anna. Pað var George Bush
ásamt Quayle, varaforseta,
Cheney landvarnarráðherra,
Baker utanríkisráðherra, Sununu
fyrrverandi starfsmannastjóra
Hvíta hússins, Bernt Scowcroft,
Robert Gates og Colin Powell,
yfirherráðsforingja, sem komu
saman á forsetaskrifstofunni
þcnnan morgun sigurvissu og
léttis og tóku ákvörðum um að
stöðva framhald aðgerða. Fram-
rás fjölþjóðahersins í gegnum
Kúweit og inn í írak á 24 klukku-
stundum var með þeim hætti að
afl íraska hersins virtist gjörsam-
lega brotið á bak aftur. Stríðið
var unnið.
í dag eru margir frammámenn
í bandaríkska hernum á annarri
skoðun. Og ástæðan er augljós.
„Heilalausi klunninn“ lifði eyði-
legginguna af og Saddam Hussein
er staðráðinn í að halda öllum
yfirráðum í írak. Eyðimerkur-
stormurinn er því í raun stór
aðgerð sem aldrei var lokið eða
eins og amerískur liðsforingi orð-
aði það - við verðum að ljúka
þessu verki innan nokkurra ára.
Þorrablót
burtfluttra Svarfdælinga
verður haldið laugardaginn 15. febrúar á Grund.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í símum 61499 (Anna
Sigga), 61632 (Sumarrós), 61184 (Árni) fyrir 8.
febrúar.
Nefndin.
Aðstandenda-
námskeið!
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur alkohól-
ista hefst fimmtudaginn 6. febrúar nk.
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofunni, Gler-
árgötu 28 og í síma 27611.
S.Á.Á.-N.
Þorrablót
Öxndælinga
Öxndælingar, búsettir, burtfluttir, innfædd-
ir og aðfluttir.
Árlegt þorrablót okkar verður haldið í Hlíðarbæ
laugardaginn 15. febrúar nk. og hefst kl. 21.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Þátttaka tilkynnist í símum 26839 (Erla), 26829 (Ásrún),
26838 (Þórunn) fyrir 12. febrúar. Hittumst hress og kát.
Nefndin.
AKUREYRARB/ÍR
Húsfriðunarsjóður
Akureyrar
Umsóknir um lán eða styrki úr Húsfriðunar-
sjóði Akureyrar á þessu ári þurfa að berast
fyrir 1. mars n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
byggingarfulltrúa, Geislagötu 9 og á skrifstofu
menningarmála, Strandgötu 19b. Á þeim stöðum
eru einnig veittar nánari upplýsingar um húsfrið-
unarsjóðinn.
Menningarfulltrúi.
tmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmam^m^mmmmmmmmmmm
Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í
Norðurlandskjördæmi eystra boðar til
almennra stjórnmálafunda:
Húsavík miðvikudag 5. febrúar í Hótel Húsavík kl.
20.30.
Ræðumenn: Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra og
Tómas I. Olrich alþm.
Þórshöfn fimmtudag 6. febrúar í Þórsveri kl. 20.30.
Ræðumenn: Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra,
Tómas I. Olrich alþm. og Svanhildur Árnadóttir, varaþingm.
Raufarhöfn föstudag 7. febrúar í Hnitbjörgum kl.
20.30.
Ræðumenn: Halldór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra,
Tómas I. Olrich, alþm. og Svanhildur Árnadóttir, varaþingm.