Dagur - 04.02.1992, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 4. febrúar 1992
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Aðalstræti 14, neðri hæð að
norðan, Akureyri, þingl. eigandi
Áslaug Magnúsdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
íslandsbanki.
Arnarsíða 10 c, Akureyri, þingl. eig-
andi Óskar Jóhannsson, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Logi Egilsson hdl. og Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Hafnarbraut 23, Dalvík, þingl. eig-
andi Haraldur Teitsson og Heiða
Magnúsdóttir, föstud. 7. febrúar
1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ævar Guðmundsson hdl., Gunnar
Sólnes hrl., Jón Ingólfsson hdl. og
Hróbjartur Jónatansson hrl.
Hafnarstræti 86 a, miðhæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Sigtryggur Sig-
tryggsson o.fl., föstud. 7. febrúar
1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Helgi Sigurðsson hdl., Eggert B.
Ólafsson hdl. og Bæjarsjóður Akur-
eyrar.
Hjallalundi 20, íb. 02-01, Akureyri,
þingl. eigandi Ólafur Einarsson og
Margrét Baldursdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Hjallalundi 20, íb. 04-01, þingl. eig-
andi Margrét Þorvaldsdóttir, föstud.
7. febrúar 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Hjallalundi 5 a, Akureyri, þingl. eig-
andi Nanna Marinósdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og Sig-
ríður Thorlacius hdl.
Hjallalundi 5 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Guðbjörg Herbertsdóttir,
föstud. 7. febrúar 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun rfkisins og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Hólabraut 19, Hrísey, þingl. eigandi
Birgitta Antonsdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtustofnun sveitarfélaga og
Gunnar Sólnes hrl.
Hríseyjargötu 5, Akureyri, þingl.
eigandi Sævar Pálsson og Garðar
Pálsson, föstud. 7. febrúar 1992, kl.
13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Keilusíðu 7 h, Akureyri, þingl. eig-
andi Marta E. Jóhannsdóttir, föstud.
7. febrúar 1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl. og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Keilusíðu 9 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Sólveig Rögnvaldsdóttir,
föstud. 7. febrúar 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Litla-Garði, Eyjafjarðarsveit, þingl.
eigandi Heiðbjört Kristinsdóttir, tal-
inn eigandi Ármann Ólafsson,
föstud. 7. febrúar 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Miðbraut 13, Hrísey, þingl. eigandi
Hríseyjarhreppur, talinn eigandi
Ólafur S. Guðjónsson, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Miðhúsavegi 4, Akureyri, þingl. eig-
andi Ýtan hf., föstud. 7. febrúar
1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Múlasíðu 3 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Sigursteinn Magnússon og
Elísabet W. Birgisdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Óseyri 1 a, norðurhluti, Akureyri,
þingl. eigandi Þb. Trésmíðavinnust.
Þór, talinn, eigandi Bifreiðastöðin
Stefnir hf., föstud. 7. febrúar 1992,
kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Skiðabraut 11, Dalvík, þingl. eig-
andi Svavar Marinósson og Hall-
fríður Hauksdóttir, föstud. 7. febrúar
1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Axelsson hrl., Húsnæðis-
stofnun ríkisins, Gunnar Sólnes hrl.,
Jón Ingólfsson hdl., Benedikt Ólafs-
son hdl. og Hróbjartur Jónatansson
hrl.
Smárahlíð 7 L, Akureyri, þingl. eig-
andi Halldór Kristinsson og Anna
Hjaltadóttir, föstud. 7. febrúar 1992,
kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Stapasíðu 14, Akureyri, þingl. eig-
andi Skúli Torfason o.fl., föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins og Sigríð-
ur Thorlacius hdl.
Steindyrum, Svarfaðardal, þingl.
eigandi Ármann Sveinsson, föstud.
7. febrúar 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Sigurður G. Guðjóns-
son hdl.
Strandgötu 6, íbúðarhús, Akureyri,
þingl. eigandi Sportbúðin hf.,
föstud. 7. febrúar 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru.
Ingólfur Friðjónsson hdl., Benedikt
Ólafsson hdl., Sigríður Thorlacius
hdl., Gunnar Sólnes hrl. og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Sunnuhlíð 23 f, Akureyri, þingl. eig-
andi Fanney Rafnsdóttir, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Sunnuhlíð 23 g, Akureyri, þingl. eig-
andi Dagmar Jóhannsdóttir, föstud.
7. febrúar 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Arnarsíðu 4c, Akureyri, þingl. eig-
andi Trausti Haraldsson, föstud. 7.
febrúar 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður, Byggðastofnun og
Þórður Gunnarsson hrl.
Hrafnabjörgum 1, Akureyri, þingl.
eigandi Sigurgeir Bragason o.fl.,
föstud. 7. febrúar 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Kristinn Hallgrímsson hdl., Gunnar
Sólnes hrl., Húsnæðisstofnun ríkis-
ins og Bæjarsjóður Akureyrar.
Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi
Fjölnismenn hf., föstud. 7. febrúar
1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður og Ingólfur Friðjóns-
son hdl.
Sandskeiði 26, Dalvík, þingl. eig-
andi Þrb. Pólstjörnunnar hf., föstud.
7. febrúar 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
„Hafi það verið ætlun ríkisstjórnarinnar að selja fyrirtækið, verður að segjast að þær aðferðir sem notaðar hafa
verið, eru ærið nýstárlegar,“ segir m.a. í grein undirbúningsnefndarinnar sem hér birtist.
Ríkisskip og einkavæðingin
Þegar núverandi ríkisstjórn tók
við völdum lýsti hún því yfir að
stefnt yrði að einkavæðingu
ýmissa ríkisfyrirtækja og síðla
sumars kom fram í blaðaviðtöl-
um að til stæði að selja Ríkisskip,
jafnvel leggja fyrirtækið niður.
Hafi það verið ætlun ríkis-
stjórnarinnar að selja fyrirtækið,
verður að segjast að þær aðferðir
sem notaðar hafa verið, eru ærið
nýstárlegar. Mjög skilvíslega hef-
ur að hálfu ráðherra verið tíund-
að hve reksturinn gangi illa, hve
mikið þurfi að borga með honum
og hve þungur baggi hann sé eig-
endunum. Lögð hefur verið
áhersla á að siglingar til Færeyja
séu baggi á rekstri félagsins, en
stjórnendur þess hafa sýnt fram á
að einmitt þessar siglingar hafa
skilað félaginu töluverðri
framlegð.
Þannig hafa eigendur félagsins
dregið fram allt það sem neikvætt
getur talist í rekstri þess, en hinu
hefur ekki verið haldið á lofti
hvaða hlutverki félagið hefur
gegnt í strandsiglingum hér við
land, og hvað þjóðin hefur í raun
fengið til baka í formi þjónustu,
öryggis og á annan hátt fyrir þá
fjármuni sem gengið hafa til
reksturs Ríkisskipa.
Samgönguráðherra ákvað í
september að félagið hætti sigl-
ingum til Færeyja um áramótin
og jafnframt að einu af þrem
skipum félagsins yrði lagt. Með
þessari ákvörðun má segja að
eigendur hafi skaðað félagið,
jafnvel rýrt verðgildi eigna þess
og þá viðskiptavild sem ótvírætt
var í félaginu.
Það var því einkennileg staða
sem komin var upp s.l. haust þeg-
ar starfsmenn félagsins hófu við-
ræður við samgönguráðherra um
kaup á félaginu.
Undirbúningsfélag stofnað
í byrjun nóvember gengu full-
trúar starfsmanna á fund ráð-
herra og lýstu vilja sínum til að
kaupa félagið og eignir þess í
þeim tilgangi að halda rekstrin-
um áfram. Jafnframt fóru þeir
þess á leit að félagið fengi að
„vera í friði“, þ.e. að ekki yrðu
lagðar af neinar siglingaleiðir og
viðskiptavild félagsins þannig
varðveitt þar til fyrir lægi hvort
þessi tilraun starfsmanna næði
fram að ganga. Starfsmenn telja
sig hafa fengið góð orð um að
þetta gæti orðið, þó reyndin hafi
orðið á annan veg.
Þann 20. október s.l. var kosin
undirbúningsnefnd um að kaupa
rekstur og eingnir Skipaútgerðar
ríkisins og stofna nýtt hlutafélag
um þessa starfsemi. Að félaginu
stóðu flestir starfsmenn Ríkis-
skipa, fulltrúi úr röðum Félags
fsl. stórkaupmanna og fjöldi ein-
staklinga með atvinnurekstur og
sveitarfélög um allt land að bak-
hjarli.
Undirbúningsnefndin kaus sér
stjórn sem hóf strax að vinna að
málinu og lagði fram tilboð í
eignir Ríkisskipa þann 12. des-
ember s.l. Enfremur lagði hún
fram tilboð um þjónustusamning
sem miðaði að því að hið nýja
félag gæti rækt þær skyldur við
landsbyggðina sem Ríkisskip
hafa gert nú í rúm 60 ár.
Viðræður hefjast
Eftir tilboðið 12. desember hóf-
ust hinar eiginlegu samningavið-
ræður. Það var þó ekki fyrr en
laugardaginn 21. desember sem
svar barst frá ráðherra. Ef
tryggja hefði átt að málið gengi
fljótt og vel fyrir sig, hefði verið
heppilegra að fá þetta svar fyrr,
þar sem 8 frídagar voru næstu 11
daga og því erfiðara um vik að
vinna áfram í málum. Svar ráð-
herra var þess efnis að hann tæki
tilboðinu í eignir en hafnaði
þj ónustusamningi.
Undirbúningsnefndin svaraði
ráðherra með bréfi 30. desember
og staðfesti tilboð sitt frá 12. des-
ember. Nefndin fór fram á það
við ráðherra að hann gerði henni
grein fyrir hvort og þá hvernig
ríkið ætlaði að tryggja þjónustu
við landsbyggðina og ítrekaði
ennfremur fyrri óskir um að
þjónusta Skipaútgerðarinnar yrði
óbreytt meðan kannaðar væru
leiðir til samkomulags um þessi
mál.
Þennan sama dag, 30. desem-
ber, sendi samgönguráðherra
fjölmiðlum fréttatilkynningu og
upplýsti m.a. að dregið yrði veru-
lega úr starfsemi Ríkisskipa og
einu skipanna lagt. Jafnframt
kemur fram í fréttatilkynning-
unni, að hann vilji láta á það
reyna til þrautar hvort samningar
takist við undirbúningsnefndina
um kaup á eignum Ríkisskipa og
að hann muni ekki hefja formleg-
ar viðræður við aðra aðila á með-
an þær viðræður standi yfir,
hvorki um kaup á eignum né
rekstri Ríkisskipa.
Benedikt Jóhannesson, for-
maður stjórnar Ríkisskipa, svar-
aði bréfi undirbúningsnefndar-
innar með bréfi 2. janúar 1992. í
bréfi hans kemur m.a. fram að
ekki hafi verið tekin ákvörðun
um styrk ríkisins til einstakra
byggðarlaga vegna flutninga, en
slá megi því föstu að einungis
verði um styrk til örfárra fámennra
byggðarlaga að ræða og óvíst
hvernig þau muni verja þeim
styrk. Þá ítrekar Benedikt að
kaupverð Ríkisskipa verði í sam-
ræmi við tilboð undirbúnings-
nefndarinnar frá 12. desember,
en skilyrði ríkisins sé að hið nýja
félag hafi traustan fjárhag og
leggi fram „trúverðugar rekstrar-
áætlanir“. Undirbúningsnefnd-
inni fannst hins vegar ekki rétt að
veita ráðherra eða umboðsmönn-
um hans aðgang að rekstraráætl-
unum, enda þær trúnaðarmál
innan nefndarinnar. Ef mál
hefðu hins vegar svo skipast,
hefði ráðherra getað fengið
umsögn viðskiptabanka um
„trúverðugleika“ væntanlegs
hlutafélags og áætlana þess.
í framhaldi af bréfi Benedikts
sendi undirbúningsnefndin hon-
um bréf 5. janúar og bað um nán-
ari skýringar á hvernig stjórnvöld
ætluðu að greiða fyrir flutnings-
þjónustu á landsbyggðinni.
Þessu bréfi svaraði samgöngu-
ráðherra sjálfur 6. janúar og segir
nú að ekki sé gert ráð fyrir opin-
berum framlögum til strandsigl-
inga né til flutningsþjónustu við
einstök byggðarlög.
Málið tekur nýja stefnu
Þann 13. janúar sendi undirbún-
ingsnefndin enn bréf til ráðherra
og benti á að ráðherra hafi, þrátt
fyrir fyrri yfirlýsingar hafið við-
ræður við fleiri aðila um sölu
eigna Ríkisskipa og einnig gert
þær breytingar á rekstri Ríkis-
skipa að staða félagsins hafi til
muna veikst og eignir þess
rýrnað. Þar með sé komin upp
önnur staða í málinu og því
nauðsynlegt fyrir undirbúnings-
nefndina að fá frekara svigrúm til
að gera nýtt tilboð. Nefndin fór
fram á tvær vikur og myndi hún
eigi síðar en að þeim tíma lokn-
um leggja fram tilboð og setja
ábyrgðir fyrir greiðslum.
I bréfi ráðherra 14. janúar var
umbeðnum fresti undirbúnings-
nefdarinnar hafnað, enda „óhjá-
kvæmilegt að taka þegar í stað
upp viðræður við Samskip hf. um
hugsanleg kaup þeirra á m/s Esju
og e.t.v. fleiri skipum Skipa-
útgerðar ríkisins". Þar með hafði
ráðherra í raun slitið viðræðum
við undirbúningsnefndina. Af i
öllu þessu máli má vera ljóst, að
áhugi ráðherrans á að Ríkisskip í
væru rekin áfram sem sjálfstætt
hlutafélag var ekki fyrir hendi. Á
sama tíma og samgönguráðherra
talaði vinsamlega til starfsmanna
Ríkisskipa og undirbúnings-
nefndarinnar og fullvissaði menn