Dagur - 04.02.1992, Blaðsíða 16
9mm
Akureyri, þriðjudagur 4. febrúar 1992
Kodak ^
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
besta ^PediGinyndir'
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Útlit fyrir að loðna fari loks að
berast til Siglufjarðar:
Tertan verður tilbúin
- segir forseti bæjarstjórnar
„Tertan verður til. Uppskriftin
er kiár og það er fljótgert að
hræra í hana. Þetta verður stór
og mikil rjómaterta sem duga
mun skipshöfninni hálfa leið til
baka,“ segir Kristján Möller,
forseti bæjarstjórnar Siglu-
ljarðar, sem heitið hefur
rjómatertu fyrstu áhöfninni
sem landar loðnu á Siglufirði á
vertíðinni. Vegna mokveiði á
miðunum er útlit fyrir að senn
fari að berast Ioðna til Siglu-
Bilunin í Súlunni EA:
Vélin reynslu-
keyrð í gær
„Þetta er á réttri leið. Við von-
umst til að þetta fari í gang í
kvöld,“ sagði Bjarni Bjarna-
son, skipstjóri á Súlunni EA-
300, þegar haft var samband
við hann í gær en skipið var þá
við bryggju á Norðfirði.
Sprenging varð í aðalvél Súl-
unnar á loðnumiðunum á
föstudagsmorguninn og hefur
viðgerð staðið óslitið alla helg-
ina.
Tveir blásarar við aðalvélina
sprungu og skemmdist búnaður
kringum þá talsvert. Vél frá
Flugfélagi Norðurlands var flogið
strax á föstudagskvöld til Noregs
eftir nýjum blásara og lenti hún á
Egilsstöðum á laugardagsmorg-
un. Bjarni segir að vélin hafi
verið yfirfarin og mæld og ekkert
bendi til annars en hún sé í lagi,
ef frá eru taldir blásararnir. Hann
gerði ráð fyrir að prófun yrði á
vélinni seint í gærkvöld og ef
ekkert óvænt kæmi í ljós yrði
haldið strax á loðnumiðin.
„Mér hálfleiðist líka að liggja
hérna þegar þeir eru að landa allt
í kringum mig. Eftir að þetta
verður komið í lag þá er ekki eft-
ir neinu að bíða,“ sagði Bjarni
Bjarnason. JÓH
fjarðar.
„Ég hef ekki verið svartsýnn á
að ekki kæmi hingað loðna en
það sem mér þykir öllu alvarlegra
er að ég er viss um að það næst
ekki allur afli sem heimilt er að
veiða,“ sagði Kristján.
Hann bætti við að það verði
núna skýlaus krafa þeirra hags-
munaaðila sem funduðu á Akur-
eyri sl. haust að stjórnvöld gefi út
byrjunarkvóta, ekki seinna en 1.
september í ár þannig að hægt
verði að hefja loðnuveiðarnar
fyrr. „Mér finnst skilyrði fyrir því
að gefa út 500 þúsund tonna byrj-
unarkvóta. Núna hefði verið
betra fyrir alla ef veiðst hefðu 200
þúsund tonn fyrir Norðurlandi
fyrir áramót,“ sagði Kristján.
JÓH
Þór og KA háðu „snjóboItaIeik“
helgarinnar bls. 7,8 og 9.
á KA-vellinum sl. laugardag. Þórsarar höfðu betur að þessu sinni. Allt um íþróttir
Mynd: Golli
„Getspakir golfarar“ á Akureyri unnu um 11,7 milljónir í getraunum:
Búumst við mikilli aukningu um næstu helgi
- segir Smári Garðarsson, einn af „yfirtippurunum“
Tíu raðir reyndust vera með Þessi upphæð deildist á fimm-
þrettán rétta, þar af tvær hér á tíu aðila á Akureyri, sem
landi, í íslensk-sænsku get- keyptu 13.800 getraunaraðir
raununum um helgina. Önnur fyrir rúmlega 80 þúsund krónur.
Þeir sem borguðu þúsund
krónur í pottinn fengu 133 þús-
und og þrjú þúsund krónur
gáfu þrefalda þá upphæð. Tíu
röðin var keypt á Akureyri og
hin í Reykjavík. Þrettán leikir
réttir gáfu hvorki meira né
minna en 9,8 milljónir króna.
einstaklingar borguðu þrjú
þúsund í pottinn og fengu því
um 400 þúsund krónur hver.
Auk fyrsta vinnings voru þessir
getspöku menn með 8 raðir með
12 réttum, 28 raðir með 11 rétt-
um og 71 röð með 10 réttum.
Samtals gaf getraunapotturinn
íþróttaskemman á Akureyri:
„íþróttahreyfingin getur
ekki séð af Skemmnnni“
- segir Hreinn Óskarsson, forstöðumaður
„Ég dreg stórlega í efa að
Akureyrararbær nái fram
sparnaði vegna íþróttamann-
virkja með þeirri ráðstöfun að
loka Iþróttaskemmunni,“ segir
Hreinn Óskarsson, forstöðu-
maður Iþróttaskemmunnar á
Gleráreyrum, og er afar óhress
með málflutning Sigurðar J.
Sigurðssonar, forseta bæjar-
Róbert Agnarsson ráðinn bæjarstjóri Mosfellsbæjar:
,Ánægður með að skila góðu búi“
- segir fráfarandi framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar hf.
Róbert B. Agnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar hf.
í Mývatnssveit, hefur verið
ráðinn bæjarstjóri Mosfells-
bæjar. Hann var valinn úr hópi
þrjátíu og tveggja umsækj-
enda.
„Það er stefnt að því að ég taki
við starfinu um mánaðamótin
mars-apríl, en það fer dálítið eft-
ir því hvernig gengur að ráða
eftirmann minn,“ sagði Róbert í
samtali við Dag í gær. Staða
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar
verður væntanlega auglýst laus til
umsóknar innan tíðar.
Róbert er 34 ára gamall, fædd-
ur í „rúmi í Bústaðahverfi“ eins
og hann komst að orði og hann
hefur verið framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar frá því hann lauk
háskólanámi 1982, eða í tæpan
áratug. Hann segir að þetta séu
ágæt tímamót til að skipta um
starf. Róbert er stjórnarformað-
ur Hlutabréfasjóðs Norðurlands
og bjóst hann við að láta af því
starfi einnig.
„Ég held að það geti verið hollt
fyrir mig og Kísiliðjuna að breyta
til. Þetta hefur gengið ljómandi
vel og ég er ánægður með að skila
góðu búi. Ég held að Mosfellsbær
hafi upp á ýmislegt að bjóða sem
er mér að skapi og starfið er vafa-
laust krefjandi og spennandi
þannig að mér líst vel á þetta,"
sagði Róbert. SS
stjórnar Akureyrar, er fram
kom í Degi nýverið.
Hreinn segist ekki geta skilið
þá ráðstöfun að leggja skuli
Iþróttaskemmuna af sem íþrótta-
mannvirki þar sem engin gild rök
liggja fyrir þar að lútandi.
„Málflutningur Sigurðar hvað
rekstrarkostnað hússins varðar er
villandi. f ár er áætlaður rekstrar-
kostnaður íþróttaskemmunnar
krónur 4.673.000.00 og rekstrar-
tekjur kr. 4.215.000.00. Þarna
ber í milli kr. 458.000.00, sem er
ekki mikið að mínu mati. Skemm-
an er fullbókuð hvern virkan dag
frá kl. 17.00 til 23.00 og allir tím-
ar um helgar eru fullsetnir.
Skólakennslan hefur dregist sam-
an í húsinu þar sem börnum hef-
ur fækkað í Oddeyrarskóla. Ég
hef gælt við þá hugmynd að nýta
þá tíma sem eru á lausu fyrir
trimmara. Mikið er lagt upp úr
fyrirbyggjandi aðgerðum og ný-
verið var stofnað til íþróttasam-
bands trimmara á 80 ára afmæli
ÍSÍ. íþróttaskemman getur tekið
við nýju hlutverki í framtíðinni
og reksturinn færst á betri veg.
íþróttahreyfingin getur ekki séð
af íþróttaskemmunni. Það ætti
öllum að vera Ijóst,“ sagði Hreinn
Óskarsson. ój
þeim um 11,7 milljónir í aðra
hönd.
Smári Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Akur-
eyrar, er einn af höfuðpaurunum
í getraunahópnum. Hann sagði
að menn væru auðvitað ánægðir
með stóra vinninginn.
Smári sagði að í desember sl.
hafi hópur manna byrjað að
koma saman að Jaðri og leggja í
sameiginlegan getraunapott.
Menn hafi haft tvennt í huga;
annars vegar að spila upp á vinn-
ingsvonina og hins vegar að
styrkja Golfklúbb Akureyrar,
enda renni ákveðin prósenta af
hverri seldri röð til klúbbsins ef
getraunanúmer hans er skráð á
hvern miða.
Að sögn Smára kom stóri vinn-
ingurinn á kerfisseðil, sem kost-
aði 27 þúsund krónur. „Við erum
með allskyns kerfi og þetta var
eitt varnarkerfið. Á þessum seðli
settum við öll bestu liðin út í
kuldann,“ sagði Smári.
Hann sagði að fjölmargir hafi
haft samband við golfskálann að
Jaðri síðan vinningurinn spurðist
út og sýnt áhuga á að vera með í
pottinum um næstu helgi. „Við
búumst við mikilli aukningu.
Hugmynd okkar er að búa til
fleiri getraunahópa og láta mönn-
um í té aðstöðu til að tippa auk
allra upplýsinga,“ sagði Smári.
„Klúbburinn fékk 70-80 þús-
und í tekjur í desember af sölu
getraunamiða og við stefnum að
því að margfalda þá upphæð. Um
næstu helgi höfum við tekið
stefnuna á 30 þúsund raðir,“
sagði Smári. óþh
Skagafjörður:
Ekið á hross
Ekið var á hross á veginum yfir
Vatnsskarð að kvöldi föstudags.
Aflífa þurfti hrossið og er jeppa-
bifreiðin sem á því lenti mikið
skemmd. Ekki urðu slys á fólki
við áreksturinn. SBG