Dagur - 07.02.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 7. febrúar 1992
Fréttir
Gefla hf.: ^
Kaupir vinnsluvélar frá HÓ
Heilbrigðisráðherra á fundi á Siglufirði sl. miðvikudagskvöld:
Hlífum þeim sem minnst mega sín
„Þegar við erum að tala um 15
milljarða niðurskurð eða
sparnað á einu ári, þá ráða
menn ekkert við slíka tölu með
því að ganga framhjá heil-
brigðisráðuneytinu með 43
milljarða króna á sínum vegum
og menntamálaráðuneytinu
með 13,7 milljarða króna.
Hvað er þetta? Þetta er vel-
ferðarkerfið á íslandi. Við
komumst ekki hjá því að
endurskoða þetta kerfi þegar
útgjaldavandi okkar er orðinn
svona mikill.“
Þetta sagði Sighvatur Björg-
vinsson, heilbrigðisráðherra, á
fundi á Hótel Höfn á Siglufirði sl.
miðvikudagskvöld. Fundurinn
hófst kl. 20.30 og stóð framyfir
miðnætti. Á milli fimmtíu og
hundrað manns sóttu fundinn og
voru umræður líflegar, en jafn-
framt málefnalegar. Sumir fund-
armanna hældu heilbrigðisráð-
herra og ríkisstjórninni fyrir
framgönguna í niðurskurði ríkis-
útgjalda, en öðrum fannst rangt
vera farið að.
Hátekju- og fjármagns-
tekjuskattur segja lítið
Sighvati varð tíðrætt um bæði
svokallaðan hátekjuskatt og
fjármagnstekjuskatt og lýsti hann
sig fylgjandi slíkri skattheimtu.
Hann benti þó á að með því að
leggja þá á væru ekki öll vanda-
mál á bak og burt. Hátekju-
skatturinn gæfi aðeins 1,3 millj-
arð króna í ríkiskassann, sem
væri aðeins brot af þeim vanda
sem við væri að etja. Fjármagns-
tekjuskatturinn gæfi ívið lægri
upphæð, eða um 1 milljarð
króna. „Enginn neitar einum
milljarði, en þið borgið ekki upp
í fimmtán milljarða gat með ein-
um milljarði. Það var bara Jesús
Kristur sem gat satt sitt fólk með
tveimur brauðum og fimm
fiskum,“ sagði heilbrigðisráð-
herra.
Kjarninn í velferðar-
kerfínu varðveittur
Sighvatur sagði að niðurskurðar-
aðgerðir í heilbrigðiskerfinu mið-
uðu að því að varðveita „kjarn-
ann í velferðarkerfinu“. Sú kyn-
slóð sem hann væri af væri kröfu-
hörð, en kröfuharkan mætti ekki
koma í veg fyrir það að þeir gætu
notið velferðarkerfisins sem
þyrftu þess fyrst og fremst við.
„Það er kjarninn í velferðarkerf-
inu, en ekki að allir fái allt fyrir
ekki neitt, heldur að þeir fái not-
ið velferðarinnar sem hennar
þurfa með,“ sagði ráðherra. Og
hann bætti við: „Við erum að
innleiða hærri notendagjöld fyrir
heilbrigðisþjónustuna en áður.
Ég er ekki að draga fjöður yfir
það, en við erum að reyna að
framkvæma það þannig að hlífa
þeim sem minnst mega sín í sam-
félaginu.“
Fjölmiðlarnir
vilja hanaslag
Sighvatur sýndi Siglfirðingum
tölulegar upplýsingar til að færa
sönnur á að tekist hafi að verja
hag t.d. aldraðra og barnafólks í
niðurskurðinum í heilbrigðiskerf-
inu. „Fjölmiðlarnir hafa ekki
óskaplega mikinn áhuga á að
skýra út hlutina fyrir fólki. Þeir
hafa miklu meiri áhuga á því að
etja mér saman við einhverja
aðra og vita hvort þeir fái ekki
hanaslag úr því,“ sagði Sighvat-
ur.
Hvað ætlar ríkisstjórnin
að gera varðandi
kjarasamninga?
Fjölmargir Siglfirðingar tóku til
máls að lokinni framsögu heil-
brigðisráðherra. Olafur Péturs-
son, starfsmaður Þormóðs
ramma, lýsti m.a. áhyggjum sín-
um yfir gangi kjarasamninganna
og vildi fá að vita hvað ríkis-
stjórnin ætlaði að gera til að
greiða fyrir þeim. Ef ekkert færi
að gerast væri óhjákvæmilegt fyr-
ir fólk að sækja kjarabætur með
verkf allsaðgerðum.
Ragnar Ólafsson, bæjarfull-
trúi og skipstjóri á Siglfirðingi,
sagði að þrátt fyrir að hann væri
hvorki krati eða sjálfstæðismaður
styddi hann heilbrigðisráðherra í
aðgerðum hans og í sama streng
tók Erlingur Óskarsson, bæjar-
fógeti.
Skiptar skoðanir
Bogi Sigurbjörnsson, skattstjóri
Norðurlands vestra, var hins veg-
ar allt annað en ánægður með
aðgerðir heilbrigðisráðherra og
sagði þær koma harðast niður á
þeim sem síst skyldi. í stað þess
að láta þá bera þessar byrðar sem
síst gætu borið þær, hefði verið
mun gáfulegra að hækka tekju-
skattsprósentuna og láta samfé-
lagið allt borga vandann.
Skarphéðinn Guðmundsson,
Sighvatur Björgvinsson: „Það var
bara Jesús Kristur sem gat satt sitt
fólk með tveimur brauðum og fimm
fiskum.“
bæjarfulltrúi, sagðist vera sam-
mála um nauðsyn þess að spara,
en ekki væri sama hvernig það
væri gert og Jóhann Möller,
fyrrverandi bæjarfulltrúi krata til
fjölda ára, varaði heilbrigðisráð-
herra við að skera velferðarkerf-
ið niður með þeim hætti sem gert
hefði verið. Gleymst hafi að hafa
„grasrótina“ í landinu með í ráð-
um við niðurskurðinn. óþh
Blönduós:
Fatahreinsun opnuð
Þann 15. febrúar nk. verður
opnuð á Blönduósi fatahreins-
un og er það fyrsta þjónustu-
fyrirtækið sinnar tegundar sem
starfrækt verður í Húnavatns-
sýslum. Eigendur eru hjónin
Brynja Ingibersdóttir og Öskar
Húnfjörð.
Að sögn Óskars er stofnkostn-
aður við fatahreinsunina um
fimm milljónir króna, en öll tæki
voru keypt ný. Fatahreinsunin er
til húsa að Hlíðarbraut 10 á
Blönduósi, en einnig verða
umboðsaðilar fyrir hana á
Hvammstanga og Skagaströnd.
Óskar segir að jafnmikið muni
kosta fyrir fólk að láta hreinsa
fyrir sig, hvort sem það er statt á
Hvammstanga eða Blönduósi og
sé það liður í góðri þjónustu.
Hingað til hafa Húnvetningar
aðallega látið hreinsa fyrir sig föt
og annað á Sauðárkróki, en einn-
ig segist Óskar telja að margir
hafi bara tekið fötin með sér suð-
ur til Reykjavíkur eða norður til
Akureyrar og látið hreinsa þau
þar.
„Við erum mjög bjartsýn á að
þetta verði það mikið að það dugi
til að halda uppi einu starfi og
það munar um minna,“ segir
Óskar.
SBG
Fundur heilbrigðisráðherra var allvel sóttur og spunnust töluvert fjörlegar umræður. Ráðherra var hælt fyrir fram-
göngu hans við að skera niður ríkisútgjöld, en hann fékk einnig bágt fyrir. Myndir: Goiii
Hagfélagið hf.:
Beðið eftir Byggðastoftiun
„Þaö er beöið eftir svari frá
Byggðastofnun og við reynum
að halda Átaksverkefninu
gangandi þangað til hægt er að
ganga frá stofnun Hagféiagsins
hf.“ segir Karl Sigurgeirsson,
Af gefnu tilefni vill forstöðu-
maður Sundlaugar Akureyrar
benda sundlaugargestum á að
geyma verðmæti sín í afgreiðslu
sundlaugarinnar, en ekki í fata-
skápunum.
Það hefur færst nokkuð í vöxt
að einhverjir hafa verið að
gramsa í fötum sundlaugargesta
og verðmæti hafa horfið. Því vill
framkvæmdastjóri Átaksverk-
efnis V-Hún.
Formlega lauk starfi Átaks-
verkefnisins um áramótin síðustu
en að sögn Karls er reynt að
halda ýmsum málum þess gang-
andi þangað til Hagfélagið tekur
forstöðumaðurinn hvetja fólk til
að láta starfsmenn geyma pen-
ingaveski, úr og önnur verðmæti
í afgreiðslunni.
Sömu skilaboð eiga við um
íþróttahús bæjarins. Ekki er hægt
að taka ábyrgð á verðmætum
sem hverfa úr búningsklefum og
því er ráðlegast að geyma þau í
afgreiðslunni. SS
yfir til að ekkert slitni í sundur.
Fyrsti stofnfundur Hagfélagsins
hf. var haldinn í desember, en þá
vantaði umboð frá Byggðastofn-
un til að skrifa hana fyrir 700 þús.
króna hlut í félaginu. Á fundum
Byggðastofnunar hefur málinu
síðan alltaf verið frestað og það
síðast í þessari viku vegna þess
að stofnunin er að kanna stöðu
mála hjá atvinnuþróunarfélögum
á landinu öllu.
Hlutafé Hagfélagsins hf. á að
vera 2,1 milljón króna í upphafi
og að sögn Karls er reiknað með
að Byggðastofnun sjái um þriðj-
ung þeirrar upphæðar, auk þriðj-
ungs af rekstrarfé sem reiknað er
með að verði 4,5 milljónir króna.
„Ég lít svo á að Átaksverkefn-
inu sé lokið, en við erum ennþá
að vinna að ýmsum frágangsmál-
um á því fjármagni sem eftir var.
Hinsvegar er ljóst að ekki er unn-
ið markvisst að nýjum málum í
atvinnuþróun meðan allt er í
þessari óvissu og það harma ég,“
segir Karl.
Rækjuvcrksmiðjan Gefla hf.
hefur tryggt sér nýtt húsnæði á
Kópaskeri, eins og við höfum
greint frá, og nú er verið að
semja um kaup á framleiðslu-
tækjum rækjuverksmiðju
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar.
Þær upplýsingar fengust á
skrifstofu Jökuls hf. á Raufar-
höfn, en Jökull á 75% í Geflu, að
vélarnar í Geflu væru komnar til
Rúnar Sigurpálsson sigraði í
fimmta 15 mínútna stigamóti
Skákfélags Akureyrar og er
hann með örugga forystu í stiga-
keppninni þegar aðeins tvö
mót eru eftir. Hörð barátta er
um næstu verðlaunasæti.
Rúnar fékk 5 vinninga, Gylfi
Þórhallsson varð annar með AVi
vinning og Sigurjón Sigurbjörns-
son þriðji með 4 vinninga.
Eftir fimm mót er Rúnar kom-
ára sinna og sumar úr sér
gengnar. Rækjuverksmiðjan í
Ólafsfirði væri hins vegar nýleg
og vélarnar lítið notaðar.
Gefla hf. verður flutt í fisk-
verkunarhúsið sem keypt var af
Fiskveiðasjóði með vorinu og um
leið verða framleiðslutækin
endurnýjuð ef samningar takast
við Hraðfrystihús Ólafsfjarðar.
inn með 35 stig og verður veldi
hans ekki ógnað. Þórleifur Karls-
son er með 18 stig og Gylfi Þór-
hallsson 17, en stutt er í næstu
menn og eflaust verður hörð bar-
átta í síðustu mótunum.
Tvær umferðir hafa verið tefld-
ar á Skákþingi Akureyrar en lín-
ur eru óskýrar vegna biðskáka.
Þátttaka varð minni en við var
búist. Keppendur eru tíu talsins
og tefla í einum flokki. SS
Sundlaug Akureyrar:
Geymid verðmætin
í afgreiðslmmi
ss
Skák
Stigamót SA:
Rúnar Sigurpálsson
með örugga forystu