Dagur - 07.02.1992, Blaðsíða 3
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 3
Frettir
Aðilar vinnumarkaðarins standa frammi fyrir þeim vanda að geta ekki beðið
ríkisstjórnina um félagsmálapakka eins og stundum áður, sagði Halldór
Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra m.a. á fundinum á Húsavík.
Mynd: IM
55
Fundur sjálfstæðismanna á Húsavík:
Nauðsynlegt að kjarasamn-
ingar taldst sem fyrst“
„Málið er, höfum við burði til
að standa svo að þeim kjara-
samningum sem framundan
eru að þeir gangi fljótt fyrir
sig? Á meðan þessi óvissa
varir, sem búin er að vera allt
of lengi hjá okkur, þá halda
menn að sér höndum. Menn
fara ekki út í framkvæmdir við
nýja hluti, og verða ekki öruggir
um að það verði vinnufriður
næsta árið,“ sagði Halldór
Blöndal, ráðherra, í framsögu-
ræðu sinni á fundi Kjördæma-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna, sem
haldinn var á Húsavík sl. mið-
vikudag.
„Þeim mun lengur sem aðilar
vinnumarkaðarins ráða ekki við
að ná niðurstöðu í sínum málum,
þeim mun lengur mun sá doði
vera yfir okkar atvinnulífi sem
við sjáum nú, og engin von til
þess að menn bryddi upp á
áhættusömum nýjungum í
Skólastjórar og yfirkennarar senda
menntamálaráðherra mótmæli:
Skólarnir gerðir vanmáttugir
tU að sirrna skyldum sínum
Stjórn landssamtaka skóla-
stjóra og yfirkennara hefur
sent Ólafi G. Einarssyni,
menntamálaráðherra harðorð
mótmæli vegna fyrirhugaðs
niðurskurðar á kennslumagni
til grunnskóla. Stjórnin varar
við þeim alvarlegu afleiðingum
sem slíkt geti haft.
„Með lögum um grunnskóla
sem sett voru síðastliðið vor
vöknuðu vonir skólamanna um
að nú skyldi spyrnt við fótum og
hafist handa við að byggja upp
grunnskólana í landinu sem
höfðu setið á hakanum meðan
nauðsynleg frumuppbygging fór
fram á framhaldsskólum. Þrátt
fyrir þröngan kost hefur skóla-
stjórnendum og kennurum tekist
að vinna framsækið starf, eins og
fjöldi skólanámsskráa bera
gleggst vitni. Nú hefur mennta-
málaráðherra hins vegar boðað
niðurskurð sem mun án efa kæfa
þessa framþróun," segir stjórn
félags skólastjóra og yfirkennara
í greinargerð með ályktun sinni.
í greinargerðinni segir að
menntamálaráðherra hafi vitnað
til þess að skera megi niður svo-
nefndar stundir til ráðstöfunar í
skólunum. Þessum stundum sé
hins vegar langt frá því ofaukið
við úthlutun tíma til skólanna.
Þeim sé ætlað að mæta þeim fjöl-
þættu kröfum sem gerðar séu til
skólanna í dag. Megi þar nefnda
fræðslu um fíknivarnir, umhverf-
ismennt, umferðarfræðslu, kyn-
fræðslu jafnréttisfræðslu og
tölvufræðslu auk þess að mæta
kröfum um aukið framboð á val-
greinum í efstu bekkjum grunn-
skólans. Við þetta bætist að ef
leggja eigi ríka áherslu á ein-
hverja námsgrein s.s. íslensku þá
eigi að nýta þessa tíma til þess.
„Á þessu má ljóst vera að fyrir-
hugaður niðurskurður á kennslu-
tímum í grunnskólum verður til
þess eins að skólarnir verða
Bridds
Akureyrarmótið í tví-
menningi, Hafspilsmót:
Siguriim í höfii hjá
Antoni og Pétri
Þó enn séu 4 umferðir eftir á
Akureyrarmótinu í tvímenn-
ingi í bridds, Hafspilsmóti,
hafa Anton Haraldsson og
Pétur Guðjónsson þegar tryggt
sér sigur. Anton og Pétur hafa
176 stiga forystu fyrir síðasta
spilakvöldið en þeir félagar
hafa reyndar leitt mótið frá
upphafí.
Keppnin um næstu sæti eru
mun jafnari og þar berjast nokk-
ur pör. Þeir Hermann Tómasson
og Ásgeir Stefánsson standa þar
best vígi og eru í öðru sæti.
Spilaður er barometer, þ.e. all-
ir spila á sömu spil í hverri
umferð. Mótinu lýkur í Hamri
nk. þriðjudagskvöld en staðan
eftir 19 umferðir af 23 er þessi:
1. Anton Haraldsson/ stig
Pétur Guðjónsson 332
2. Hermann Tómasson/
Ásgeir Stefánsson 156
3. Örn Einarsson/
Hörður Steinbergsson 124
4,- -5. Páll Pálsson/
Þórarinn B. Jónsson 108
4.- ■5. Jakob Kristinsson/
Stefán Ragnarsson 108
6. Jón Sverrisson/
Kristján Guðjónsson 85
7. Ármann Helgason/
Sigfús Hreiðarsson 73
8. Gísli Pálsson/
Árni Arnsteinsson 52
-KK
allsendis vanmáttugir til að sinna
þeim skyldum sem lög og reglu-
gerðir segja til um og það sem
verra er, tefur þessi niðurskurður
verulega fyrir því að íslensk
börn geti náð sömu menntun-
arstöðu og börn nágrannaþjóð-
anna hvað þá að þau geti lokið
prófum s.s. stúdentsprófum á
sama tíma og þau.“ JÓH
atvinnulífi og leggi fé sitt þar til.
Þessvegna er nauðsynlegt að sem
fyrst takist kjarasamningar,"
sagði Halldór.
Ráðherra sagði að aðilar
vinnumarkaðarins stæðu einnig
frammi fyrir þeim vanda að geta
ekki beðið ríkistjórnina um fé-
lagsmálapakka, eins og stundum
hefði verið gert áður, því með
því að veita félagsmálapakka
mundi ríkisstjórnin vinna á móti
markmiðum sínum. „Menn
verða að gera sér það ljóst að við
verðum að semja á þeim kjörum
og undir þeim skilmálum að
verðbólga hér á landi verði ekki
sambærileg við það sem er í ná-
grannalöndum okkar, heldur að
hún verði hvergi minni. Einungis
með því að ná slíkum stöðugleika
tekst okkur að byggja og treysta
okkar gjaldmiðli jákvætt merki,
og þá mun það gerast samtímis
að verðlagið fari lækkandi og við
munum fá í staðinn betri
lífskjör." IM
Vöruskiptin við útlönd á síðasta ári:
Óhagstæð um 0,7
milljarða króna
Árið 1991 voru fluttar út vörur
fyrir tæpa 91,6 milljarða kr. en
inn fyrir ríflega 92,2 milljarða
kr. fob. Vöruskiptajöfnuður-
inn á árinu var því óhagstæður
um 0,7 milljarða kr. en árið
áður var hann hagstæður um
4,5 milljarða á sama gengi.
Tekið er fram að kaup Flug-
leiða á nýrri Boeing-757 flugvél
fyrir um 2,5 milljarða kr. eru
ekki meðtalin í innflutningi 1991.
Árið 1991 voru flutt út skip og
flugvélar fyrir 150 milljónir kr. en
verðmæti innfluttra skipa og flug-
véla nam alls um 3,6 milljörðum
kr. Að frátöldum út- og innflutn-
ingi skipa og flugvéla var vöru-
skiptajöfnuðurinn við útlönd
hagstæður um 2,8 milljarða á
árinu 1991, samanborið við 11,5
milljarða hagstæðan jöfnuð árið
1990.
Árið 1991 var verðmæti vöru-
útflutnings 1% minna á föstu
gengi en á árinu 1990. Sjávar-
afurðir voru um 80% alls útflutn-
ingsins og var verðmæti þeirra
um 5% meira en árið áður.
Útflutningur á áli var 16% minni
og útflutningur kísiljárns 27%
minni á föstu gengi en árið 1990.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ingsins fob árið 1991 var nær 5%
meira en árið 1990. Innflutningur
sérstakrar fjárfestingarvöru
(skip, flugvélar, Landsvirkjun)
var nær helmingi minni en árið
áður. Verðmæti innflutnings til
stóriðju var 5% meira en árið
áður en olíuinnflutnings um 11%
minna en 1990. Þessir innflutn-
ingsliðir eru jafnan breytilegir frá
einu tímabili til annars en séu
þeir frátaldir reynist annar inn-
flutningur (81% af heildinni)
hafa orðið nær 14% meiri en á
árinu 1990. -KK
r ekki kominn tími til að
skreppa suður og gera eitthvað
fyrir sjálfan sig. Kíkja í búðir,
fara í leikhús,koma við á krá
njóta skemmtunar á Hótel
íslandi og fullkomna ferðina
með dvöl á fyrsta flokks hóteli.
Láttu þetta eftir þér, þú átt það
skilið.
Pantanasími 688999.
Grœnt símanúmer 996099
H Ó T E L
ISLANÐ
Ármúli 9, 108 Reykjavík.