Dagur - 07.02.1992, Síða 5
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 5
Tannverndarvika
Iannvernd í skólum
og heilsugæslukerfínu
Pegar hefur komið fram að tann-
vernd heimilanna er hornsteinn
góðrar tannheilsu. Tannhirða
lærist ekki sjálfkrafa, því fer mikil
fræðslustarfsemi fram í grunn-
skólunum og eiga skólahjúkrun-
arfræðingar heiðurinn þar af.
Einnig hefur heilbrigðisráðu-
neytið sent tannfræðinga af og til
í grunnskólana til að fræða börn-
in um tannhirðu og skaðsemi syk-
urs í millimálabitanum.
í skólunum fá börnin flúorskol
og læra burstun. Skólahjúkrun-
arfræðingar fylgjast með því að
allir fari í skólaskoðun til tann-
læknis, taka við upplýsingum frá
tannlæknum, skoða tannhirðu-
tölur einstaklinga og fylgjast með
þeim sem þar eru í lægri kantin-
um. Tannlæknar og skólahjúkr-
unarfræðingar vinna þannig sam-
an að bættri tannheilsu barn-
anna. Tannfræðingar koma inní
myndina með sína fræðslu og
árangurinn er orðinn það góður
að hola í tönn unglings er að
verða sjaldgæft fyrirbæri.
Tannvernd heilsugæslunnar
Samkvæmt lögum á heilsugæslan
að sjá um veigamikinn þátt í
tannvernd bæði ungbarna og
skólabarna, einnig um tann-
heilsugæslu þeirra er til hennar
leita með kvilla sína. Góð reynsla
fékkst af því að hafa tannfræðing
starfandi við ungbarnaeftirlitið
en það lagðist af er tannfræðing-
urinn fór til annarra starfa. Nú
þegar tannfræðingar bjóðast
kemur sparnaður í veg fyrir að
Lesendahornið
Hörður Þórleifsson.
3. grein
þráðurinn sé tekinn upp að nýju
og er það rniður.
Heilsugæslan sér um eftirlit
með heilsu ungbarna, barna á
skólaaldri, hún sér um heima-
hjúkrun og auk þess kemur
almenningur til að leita sér lækn-
inga. Allir þurfa á tannheilsu-
gæslu að halda en aðeins skóla-
börnin fá reglulega umönnun.
Það komst á fyrir frumkvæði
tannlækna á Akureyri og er fram-
kvæmt með hjálp skólahjúkrun-
arfræðinga, sem ráðnir eru hjá
heilsugæslunni.
Sjúklingum á sjúkrahúsum og
elliheimilum hefur fram til þessa |
ekki verið boðið upp á tann-
læknaþjónustu og ekki virðast
neinar líkur á því í bráð að fólk
með menntun í tann- og munn-
sjúkdómum verði ráðið að þess-
um stofnunum.
Tannheilsa fyrir alla
árið 2000
Hér er vitnað í markmið Samein-
uðu þjóðanna um heilsu fyrir
aila. Tannlæknar vilja einnig
tannheiisu fyrir alla og ef það á
að nást þarf að virkja heilsugæsl-
una betur, skipuleggja fræðsluna,
gera „tannheilsugæslu" að orði
sem hefur þýðingu innan heilsu-
gæslukerfisins. Ráðamönnum
verður að skiljast að sparnaður
næst best með góðu forvarnar-
starfi og það starf á heima innan
heilsugæslunnar eins og varnir
gegn öðrum sjúkdómum.
Það er álit Tannlæknafélags
Norðurlands að fræðslustarf,
upplýsingamiðlun, stjórnun kerf-
isbundinna tannverndaraðgerða
og eftirlit með tannlæknaþjón-
ustu sem greidd er af Trygginga-
stofnun ríkisins verði í höndum
heilsugæslunnar. Aftur á móti
skuli sjálf tannlæknaþjónustan
vera í höndum sjálfstætt starfandi
tannlækna. Með góðu sainstarfi
tannlækna og heilsugæslu er hægt
að ná góðri tannheilsu hjá öllum
aldurshópum eins og þegar hefur
verið gert hjá grunnskólabörnun-
um.
Hörður Þórleifsson.
Höfundur er tannlæknir á Akureyri.
Um slæma umferðarmenn-
ingu og gömul jólatré
Mig langar til að fara fáum orð-
um um umferðarmenninguna hér
á Akureyri, þótt margir hafi áður
gert hana að umtalsefni.
Vinnu minnar vegna þarf ég að
vera mikið á ferðinni alla virka
daga. Ég hef veitt því athygli og
finnst það alveg furðulegt hvað
ökumenn tefja umferðina með
því ýmist að gefa ekki stefnuljós
eða gefa það á síðustu stundu.
Mér finnst notkunarleysi stefnu-
ljósa sérstaklega áberandi á
gatnamótum Hlíðarbrautar og
Austursíðu (þ.e. á horninu hjá
Hita). Lögreglan fer ekki á und-
an með góðu fordæmi, því hún er
ekkert betri hvað þetta varðar,
að mínum dómi.
Annað atriði, sem fer mjög í
taugarnar á mér í umferðinni á
Akureyri, er skortur ökumanna á
almennri kurteisi. Þetta er mjög
áberandi þegar maður þarf að
koma bílnum sínum út á akbraut
úr bílastæði. Jafnvel þótt bíllinn
sé kominn hálfur út í götuna er
mjög algengt að aðvífandi bíll
taki sveig til að komast áfram
frekar en að bíða augnablik, sem
er almenn kurteisi.
Og svo yfir í allt aðra sálma.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast á jólatréin, sem liggja
víða á lóðum. Sem dæmi vil ég
nefna að þegar ég sest niður í
kaffistofunni á vinnustað mínum,
blasir við mér tré, sem legið hef-
ur fyrir utan stofugluggann á rað-
húsi í nágrenninu síðan um jól.
Þegar þetta er skrifað er kominn
5. febrúar og mér finnst eiginlega
tími til kominn að láta þetta tré,
sem og öll önnur jólatré frá síð-
ustu jólum, hverfa.
Það er svo ekki fleira að sinni.
Ein óhress með sumt
í bænum okkar.
Eru þetta boðberar sannleikans?
Eru þetta boðberar sannleikans?
Eftir að hafa hlustað á útvarps-
þáttinn „í vikulokin" laugardag-
inn 1. feb. sl. fann ég hvöt hjá
mér til að biðja Dag að birta frá
mér nokkrar línur um atriði sem
þar kom fram.
Tveir þeirra manna sem fram
komu í þættinum minntust Þjóð-
viljans, sem þá var í andarslitrun-
um sem dagblað. Þetta voru:
Haraldur Blöndal sjálfstæðis-
maður og Guðmundur Einarsson
alþýðuflokksmaður. Þeir gátu
ekki ieynt heiftarhug til blaðsins,
og sagði Haraldur að það hefði
aldrei sagt satt orð en Guðmund-
ur sagði að það hefði aldrei stutt
nema vond mál.
Það er við þessa illmælgi sem
ég vil fyrst og fremst koma leið-
réttingu á framfæri.
Þjóðviljinn var ekki sökudólg-
urinn, heldur allir þeir sem skrif-
uðu íhann og þeir, sem létu hann
birta vond og neikvæð mál.
Hér eins og í öðrum auðvalds-
ríkjum, er það fjármagnið sem
skapar grunninn að áhrifum og
völdum. Það er ekki réttlætis- og
sannleiksást sem gerði Moggann
og DV stærst og útbreiddust
dagblaða í landinu, heldur fjár-
magnið sem bakvið þau stóð. Nú
lifa þessi hægri blöð mikla blóma-
tíð á meðan frjálshyggjueinka-
fjármagnið böðlast um í þjóðfé-
laginu og misrétti meðal þegn-
anna vex.
Utvarpshlustandi.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Slotnaö 5 nóv 1928 PO Bo« 348 - 602Akureyn'
Laugardagskvöldið 8. febrúar
Veitingasalir II. hæð
Lokað vegna einkasamkvæmis
☆
Við minnum einstaklinga og hópa
á leikhúsmatseðilinn!
Rjómalöguð rækjusúpa
Heilsteiktur nautahryggvöðvi með madeirasósu
Kaffi og konfektkaka
Verð kr. 2.050,-
Verð á laugardagskvöldum kr. 2.500,-
þá innifalinn dansleikur.
Ath. Höldum borðum meðan á sýningu stendur.
☆
SÚLNABERG
Þorramatur á hlaðborði
alla daga út þorra!
EIMSKIP
AÐALFUNDUR
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu
fimmtudaginn 5. mars 1992,
og hefst kl. 14.00.
---------- DAGSKRÁ -----------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14.
grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hiuthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá
28. febrúar til hádegis 5. mars.
Reykjavík, 1. febrúar 1992
STJÖRN HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS