Dagur - 07.02.1992, Síða 7
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 7
Hvað ER AÐ GERAST?
Flugásar í Borgarbíói
- Hamlet sýnd á mánudag og þriðjudag
Borgarbíó sýnir hina stór-
skemmtilegu mynd Flugásar um
helgina og fram í næstu viku.
Þessi mynd kemur frá fram-
leiðendum Airplane og Naked
Gun og þykir bráðskemmtileg.
Myndin er sýnd í kvöld og um
helgina kl. 9.00 en kl. 9.05 á
mánudag og þriðjudag.
Myndin Freddy er dauður er
sýnd kl. 9.05 í kvöld og um helg-
ina. Ottó 3 er enn til sýninga hjá
Borgarbíói og er sýnd kl. 11.00 í
kvöld og um helgina og einnig
myndin Ungir harðjaxlar.
Stórmyndin Hamlet með þeim
Mel Gibson og Glenn Close verð-
ur sýnd á mánudag og þriðjudag
kl. 9.00. Þá verða tvær barna-
myndir sýndar kl. 3.00 á sunnu-
dag, annars vegar Leitin að
týnda lampanum og hins vegar
Supermann.
Margrét Bóasdóttir
og Tríó Reykjavíkur:
Tónleikar
á Húsavík
og Akureyri
Margrét Bóasdóttir, sópransöng-
kona og Tríó Reykjavíkur halda
tvenna tónleika á Norðurlandi
um helgina. Hinir fyrri verða í
Safnahúsinu á Húsavík kl. 16 á
morgun en hinir síðari í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju kl. 17
á sunnudag.
Á efniskránni verða 7 rómöns-
ur eftir rússneska tónskáldið
Dmitri Sjostakóvitsj en þær
frumflutti Margrét ásamt tríóinu
í Hafnarfirði sl. vor. Einnig
verða á tónleikunum tveimur tríó
eftir Þorkel Sigurbjórnsson og
tríó eftir Franz Schubert.
Vinir og synir
í Sjallanum
Hljómsveitin Vinir og synir leik-
ur fyrir dansi í Sjallanum föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Hljómsveitin var stofnuð á Akur-
eyri fyrir skömmu og er skipuð
þremur fyrrverandi Skriðjöklum,
Námskeið á Snyrtistofu Nönnu:
íslandsmeistari í
förðun í heimsókn
þeim Jakobi Jónssyni, Jóni Hauk
Brynjólfssyni og Jóhanni Ingva-
syni, auk þeirra Kristjáns Edel-
stein, sem leikið hefur með ýms-
um þekktum hljómsveitum, s.s.
Strax, Chaplin og Hunangstungl-
inu, og Val Halldórssyni sem
þekktastur er fyrir leik sinn í
Svörtu Köggunum. Þessir kappar
sjá um tónlistina í nýrri söng-
skeinmtun sem frumsýnd verður
í Sjallanum um næstu helgi og
munu þeir kynna nokkur lög úr
sýningunni í kvöld og annað
kvöld. Húsið verður opnað kl. 11
bæði kvöldin og verður dansað til
kl. 3.
Líney Rut Karlsdóttir, förðun-
armeistari, verður með námskeið
á Snyrtistofu Nönnu við Strand-
götu á Akureyri um helgina. Lín-
ey Rut er tvöfaldur íslandsmeist-
ari í förðun og rekur Förðunar-
meistarann í Borgarkringlunni.
Námskeiðin verða á laugardag
og sunnudag og stendur hvert
þeirra yfir í þrjá til fjóra tíma.
Líney Rut mun kenna hverri og
einni konu förðun og kynna þær
vörur sem hún flytur inn. Þetta eru
sérhæfðar förðunarvörur og heita
Make-Up Forever.
Enn er hægt að taka við nokkr-
um konum til viðbótar á nám-
skeiðin og geta þær haft samband
við Snyrtistofu Nönnu.
Kvennaknattspyrnudeild íþrótta-
félagsins Þórs verður með kaffi-
Þá verður karaokesöngvélin
sívinsæla á sínum stað í Kjallar-
anum sem er opnaður kl. 18 alla
daga.
hlaðborð í Hamri frá kl. 15.00
sunnudaginn 9. febrúar nk.
KafiGhlaðborð í
Hamri á sunnudag
Sálin í 1929
Valgeir á Uppanum
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns, með Stefán Hilmarsson í
broddi fylkingar, leikur á
skemmtistaðnum 1929 í kvöld.
Sálin hefur komið margar ferðir
norður og skemmt Akureyring-
um og nærsveitamönnum.
Á morgun laugardag verður
diskótek í 1929 og þeir sem mæta
á staðinn í kvöld, fá frítt inn á
morgun. Valgeir Skagfjörð mætir
enn og aftur á Uppann og
skemmtir þar á morgun laugar-
dag.
Þórsarar og aðrir velunnarar
félagsins eru hvattir til þess að
líta við í Hamri á sunnudaginn,
gæða sér á kaffi, kökum og öðru
góðmeti og skoða húsakynnin
sem tekið hafa miklum stakka-
skiptum síðustu mánuði.
Hótel KEA:
Leikhúsmatseðill-
inn vinsæli
Hótel KEA býður einstaklingum
og hópum upp á vinsælan leik-
Akureyri:
húsmatseðil. Hann inniheldur
rjómalagaða rækjusúpu, heil-
steiktan nautahryggvöðva með
madeirasósu, kaffi og konfekt-
köku.
Portið af stað á ný
Portið á Akureyri fer nú af stað á
ný á morgun eftir nokkurt hlé og
verður starfrækt sem fyrr í nýju
slökkvistöðinni við Árstíg á laug-
ardögum.
Portið verður opið frá kl.
11.00-16.00 og þeir sem vilja
panta bása, er beðnir að hafa
samband í síma 22381, eftir kl.
16.00 alla virka daga.
Á laugardagskvöldum er dans-
leikur innifalinn í verðinu á
matnum og er borðum haldið á
meðan á leiksýningu stendur, fyr-
ir þá sem vilja.
Þá býður Súlnaberg upp á
þorramat á hlaðborði alla daga út
þorra.
Leikfélag Akureyrar:
Tjútt & tregi
Leikfélag Akureyrar sýnir söng-
leikinn Tjútt & trega í Samkomu-
húsinu föstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30.
Höfundur tónlistar og texta,
Valgeir Skagfjörð, hefur fengið
mikið lof fyrir verk sitt svo og
aðrir aðstandendur sýningarinnar
og þátttakendur. Urmull af góð-
um lögum prýða leikinn og er
Tjútt & tregi kærkomin upplyft-
ing fyrir Norðlendinga og lands-
menn alla.
Til leigu
25 m2 herbergi á annarri hæð í Oddeyrar-
skála.
Hentar undir skrifstofuhald, eða aðra skylda starf-
semi.
Upplýsingar í síma 96-24131.
EIMSKIP
-----------------------------------------------------------------------N
AKUREYRARB/ÍR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 10. febrúar 1992, kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Björn Jósef Arnviðarson og
Kolbrún Þormóðsdóttir til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður ieyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.