Dagur - 07.02.1992, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 7. febrúar 1992
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Dagskrá fjölmiðla
I dag, föstudag, kl. 21.05, er á dagskrá Sjónvarpsins Söngvakeppni Sjónvarpsins. Nú er
komið að þeim árlega viðburði þegar þjóðin velur sér lag til að keppa fyrir hennar hönd í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Á myndinni eru Björn Emilsson, stjórnandi upp-
töku og Bjarni Felix Bjarnason, aðstoðardagskrárgerðarmaður.
Sjónvarpið
Föstudagur 7. febrúar
18.00 Flugbangsar (4).
18.30 Beykigróf (21).
(Byker Grove n.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Tíðarandinn.
19.30 Gamla gengid (6).
(The Old Boy Network.)
Lokaþáttur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Kastljós.
21.05 Söngvakeppni Sjón-
varpsins.
Kynnt verða fimm af þeim
níu lögum sem valin voru til
að taka þátt í forkeppni hér
heima vegna söngvakeppni
sjónvarpsstöðva Evrópu en
hún verður haldin í Málm*
haugum í Svíþjóð hinn 9.
maí.
21.35 Annir og aldinmauk (3).
í þættinum verður litið inn í
Iðnskólann í Reykjavík og
hugað að viðfangsefnum
nemenda þar.
22.05 Samherjar (9).
(Jake and the Fat Man.)
22.55 Rauðrefur.
Fyrri hluti.
(Red Fox.)
Bresk spennumynd frá 1990
byggð á metsölubók eftir
Gerald Seymour.
Starfsmanni vopnafyrirtækis
er rænt í París og yfirmaður
öryggismála hjá fyrirtækinu
er sendur til þess að hafa
uppi á honum.
Aðalhlutverk: John Hurt,
Jane Birkin og Brian Cox.
Seinni hluti myndarinnar
verður sýndur laugardaginn
8. febrúar.
00.25 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 7. febrúar
16.45 Nágrannar.
17.30 Gosi.
17.50 Ævintýri Villa og
Tedda.
(Bill and Ted’s Excellent
Adventures.)
18.15 Ævintýri í Eikarstræti.
18.30 Bylmingur.
19.19 19:19
20.10 Kænar konur.
(Designing Women.)
20.35 Ferðast um tímann.
(Quantum Leap III.)
21.25 Stjúpa mín er geimvera.
(My Stepmother Is an Alien.)
Það er hin leggjalanga og
fallega Kim Basinger sem fer
með aðalhlutverkið í þessari
léttu og skemmtilegu
gamanmynd ásamt Dan
Aykroyd, Jon Lovits og
Alyson Hannigan.
23.05 Á milii bræðra.
(Untem Bmdern.)
Það er lögreglumaðurinn
Schimanski sem hér fæst við
enn eitt dularfulla sakamál-
ið.
Bönnuð börnum.
00.35 Rauðá.
(Red River.)
Myndin segir frá hópi
manna sem hafa það að
atvinnu að reka kýr frá ein-
um stað til annars. Þegar
einn þeirra gerir uppreisn
gegn foringjanum fer allt úr
böndurium.
Aðalhlutverk: James
Arness, Bmce Boxleitner og
Gregory Harrison.
Stranglega bönnuð
börnum.
02.05 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 7. febrúar
MORGUNÚTVARP
KL. 06.45-09.00
06.45 Veðurfregnir ■ Bæn.
07.00 Fréttir.
07.03 Morgunþáttur Rásar 1.
- Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrisson.
7.30 Fréttayfirlit.
Gluggað í blöðin.
7.45 Kritík.
08.00 Fréttir.
08.10 Að utan.
08.15 Veðurfregnir.
08.30 Fróttayfirlit.
08.40 Helgin framundan.
ÁRDEGISÚTVARP
KL. 09.00-12.00
09.00 Fréttir.
09.03 „Ég man þá tíð“.
09.45 „Svefnpokinn sem gat
ekki sofnað" eftir Kristinu
Jónsdóttur.
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi
með Halldóru Björnsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.20 Mannlífið.
11.00 Fréttir.
11.03 Tónmál - Frá alþjóða-
djasshátíð evrópskra
útvarpsstöðva í Pori í
Finnlandi.
11.53 Dagbókin.
HÁDEGISÚTVARP
KL. 12.00-13.05
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Auðlindin.
Sjávarútvegs- og viðskipta-
mál.
12.55 Dánarfregnir - Auglýs-
ingar.
MIÐDEGISÚTVARP
KL. 13.05-16.00
13.05 Út í loftið.
Rabb, gestir og tónlist.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan:
„Morgunn lifsins" eftir
Kristmann Guðmundsson.
Gunnar Stefánsson les (4).
14.30 Út í loftið
- heldur áfram.
15.00 Fréttir.
15.03 Útilegumannasögur.
SÍÐDEGISÚTVARP
KL. 16.00-19.00
16.00 Fréttir.
16.05 Völuskrín.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlist á síðdegi.
17.00 Fréttir.
17.03 Litið um öxl.
17.30 Hér og nú.
Fréttaskýringaþáttur Frétta-
stofu.
17.45 „Svefnpokinn sem gat
ekki sofnað" eftir Kristínu
Jónsdóttur.
18.00 Fréttir.
18.03 Átyllan.
18.30 Auglýsingar - Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir - Auglýs-
ingar.
KVÖLDÚTVARP
KL. 19.00-01.00
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Kviksjá.
20.00 „Árstíðirnar" eftir
Antonio Vivaldi.
21.00 Af öðru fólki.
Þáttur Önnu Margrétar Sig-
urðardóttur.
21.30 Harmonikuþáttur.
22.00 Fréttir - Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dagskrá morgundags-
ins.
22.30 Þankar.
23.00 Kvöldgestir.
Þáttur Jónasar Jónassonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónmál.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Rás 2
Föstudagur 7. febrúar
07.03 Morgunútvarpið -
Vaknað til lífsins.
Leifur Hauksson og Eiríkur
Hjálmarsson.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur
áfram.
- Fjölmiðlagagnrýni.
09.03 9-fjögur.
Ekki bara undirspil í amstri
dagsins.
Umsjón: Þorgeir Ástvalds-
son, Magnús R. Einarsson
og Margrét Blöndal.
Sagan á bak við lagið.
Furðufregnir utan úr hinum
stóra heimi.
Limra dagsins.
Afmæliskveðjur. Síminn er
91-687123.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9-fjögur.
- heldur áfram.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmála-
útvarp og fréttir.
Starfsmenn dægurmála-
útvarpsins og fréttaritarar
heima og erlendis rekja stór
og smá mál dagsins.
17.00 Fréttir.
- Dagskrá heldur áfram,
meðal annars með pistli
Gunnlaugs Johnsons.
17.30 Hér og nú.
Fréttaskýringaþáttur Frétta-
stofu.
- Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund-
ur í beinni útsendingu.
Sigurður G. Tómasson og
Stefán Jón Hafstein sitja við
símann, sem er 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir.
19.32 Gettu betur.
Spurningakeppni framhalds-
skólanna.
Sextán liða úrslit.
20.30 Kvöldtónar.
21.05 Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva.
Undankeppni.
Fyrstu fimm lögin sem kom-
ust í úrslit samsend með
Sjónvarpinu.
22.07 Stungið af.
Umsjón: Margrét Hugrún
Gústavsdóttir.
00.10 Fimm freknur.
Lög og kveðjur beint frá
Akureyri.
Umsjón: Guðrún Gunnars-
dóttir.
02.00 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Fréttir kl. 7,7.30,8,8.30,9,10,
11,12,12.20,14,15,16,17,18,
19, 22 og 24.
Næturútvarpið
02.00 Fréttir.
- Rokkþáttur Andreu Jóns-
dóttur.
03.30 Næturtónar.
04.30 Veðurfregnir.
05.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
-- Næturtónar halda áfram.
06.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
06.01 Næturtónar.
07.00 Morguntónar.
Ríkisútvarpið á
Akureyri
Föstudagur 7. febrúar
08.10-08.30 Útvarp Norður-
lands.
18.35-19.00 Útvarp Norður-
lands.
Bylgjan
Föstudagur 7. febrúar
07.00 Morgunþáttur
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra með skemmtilegan
morgunþátt. Það er fátt sem
þau láta sig ekki máli skipta
og svo hafa þau fengið
Steinunni ráðagóðu til liðs
við sig sen hún gefur ykkur
skemmtilegar og hagnýtar
ráðleggingar varðandi heim-
ilishaldið.
Fréttir kl. 7, 8 og 9.
Fréttayfirlit klukkan 7.30 og
8.30.
09.00 Anna Björk Birgisdóttir.
Mannamál kl. 10.00 og
11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
12.10 Anna Björk Birgisdóttir.
13.00 íþróttafréttir.
13.05 Sigurður Ragnarsson.
Góð tónlist og leít spjall við
vinnuna.
Mannamál kl. 14 og 16.
16.00 Reykjavík síðdegis.
Hallgrímur Thorsteinsson
og Steingrímur Ólafsson
fjalla um málefni líðandi
stundar og hjá þeim eru
engar kýr heilagar.
17.00 Fréttaþáttur frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
17.30 Reykjavík síðdegis
heldur áfram.
18.00 Fréttaþáttur frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
18.05 Landssíminn.
Bjarni Dagur Jónsson tekur
púlsinn á mannlífinu og ræð-
ir við hlustendur um það
sem er þeim efst í huga. Sím-
inn er 671111.
19.30 Fréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason.
Helgin byrjar á hárréttan
hátt á Bylgjunni, hressileg
stuðtónlist og óskalögin á
sínum stað. Rokk og róleg-
heit alveg út í gegn.
00.00 Næturvaktin.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 7. febrúar
17.00-19.00 Axel Axelsson
tekur púlsinn á því sem er að
gerast um helgina. Axel hit-
ar upp fyrir helgina með
góðri tónlist. Síminn 27711
er opinn fyrir afmæliskveðjur
og óskalög. Fréttir frá frétta-
stofu Bylgjunnar/Stöðvar 2
kl. 18.00.
ifí Forfeður mínir voru alltaf
ásóttir fyrir að fá stór
verkefni og eiga mikla
'tjj peninga. Til þessa dags, hef ég þurft að sætta mig
Ui við það!
and MÉ
Forfeður mínir voru ásóttir
fyrir aö vera hjólbeinóttir
og með skrækar raddir!
Til þessa dags, hef ég þurft
að sætta mig við það líka!
# Samdráttar-
einkenni í
Reykjavík
Það fór eins og marga á lands-
byggðinni grunaði, að þegar
samdráttareinkenni koma í Ijós i
höfuðborginni, sem sennilega
verður 100 þúsund manna borg í
þessum mánuði, þá ætlar allt um
koil að keyra í fjölmiðlum. Þetta
ágæta fjölmíðlafólk virðist ekki
átta sig á þvi að síðustu ár hefur
verið iátlaus samdráttur á lands-
byggðinni, fólk hefur misst vinn
una og kvótaskerðing í sjávarút-
vegi og landbúnaði hefur verið
árviss undanfarin ár. Fólkinu á
landsbyggðinni hefur tekist að
búa við þetta ástand og menn
hafa tekið höndum saman til að
draga úr samdráttaráhrifunum
og í mörgum tilfellum hefur tek-
ist vel til. Þess er þó skylt að
geta að sveitarfélögin hafa orðið
að nota I mörgum tilfellum stór-
an hluta af skatttekjum sínum til
að fólk missti ekki vinnuna. í
Reykjavík er þessu öfugt farið.
Ráðamenn borgarinnar hafa ekki
Ijáð máls á því að taka þátt I
atvinnurekstri eða bjarga fyrir-
tækjum I erfiðleikum. Þeir hafa í
staðinn reist sér minnisvarða
eins og Perluna og Ráðhúsið,
sem koma til með að kosta um 5
milljarða króna. í Reykjavík hef-
ur ríkt þensluástand, öfugt við
það sem verið hefur á lands-
byggðlnni og með því að byggja
aSTÓBT
áðurnefnd minnismerki hafa
ráðamenn borgarinnar ýtt undir
þensluna, sem ekki getur talist
skynsamleg ráðstöfun.
# Þenslutíma-
bilið syðra
á enda?
En nú virðist þenslutímabilið í
borginni vera á enda, borgin
dregur saman seglin, ríkið dreg-
ur saman seglin og fyrirtækin I
borginni draga trúlega saman
seglin en þau byggja að miklu
leyti á þjónustu við íbúana og
raunar alla landsmenn. Það er
greinilegt af fréttum að nokkurn
hroll setur að borgarbúum
vegna væntanlegs samdráttar
og er það ekki óeðlilegt eftir all-
an uppganginn undanfarin ár.
Þar hafa risið heilu íbúðahverfin
á stuttum tíma og fólk af lands-
byggðinni hefur flykkst til
Reykjavíkur undanfarin ár. Gíf-
urleg svartsýni hefur fylgt þess-
um samdráttareinkennum í
höfuðborginni. Ráðamenn
landsins, sem rætt er við svo til
daglega í fjölmiðlum, mála
skrattann á vegginn og sjá ekk-
ert nema dauða og dj.... fram-
undan. Þessu er öfugt farið á
landsbyggðinni. Fólk er sæmi-
lega bjartsýnt um framtíðina og
stjórnendur sveitarfélaga og
fyrirtækja taka myndarlega á
málum og láta svartsýnisrausið I
Reykjavík sem vind um eyru
þjóta.