Dagur - 07.02.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Missti hendurnar í slysi fyrir 10 árum:
Með hægri höndina
á vinstri handlegg
ímyndið ykkur að þið séuð ein-
hent og hægri höndin sé á vinstri
handlegg! Þannig horfir lífið við
Bud Collins og hann segir: „Öfug
hendi er betri en hafa alls enga.“
Bud varð fyrir hroðalegu slysi
fyrir 10 árum og missti þá hægri
handlegg og höndina af vinstri
handlegg. Hann ók flutningabíl
fyrir námafyrirtæki og eitt sinn
þegar hann var að sinna bíl sín-
um rann annar 50 tonna trukkur
af stað og á bílinn. Collins tókst
næstum að forða sér en vinstri
höndin kramdist á milli. Þegar
hann féll til jarðar varð hægri
handleggurinn undir hjólum fer-
líksins og stórskaddaðist
Collins var fluttur með hraði á
sjúkrahús þó augljóst væri að ill-
mögulegt yrði gera að sárum
hans svo vel færi. Þar sem hægri
höndin var í lagi ákváðu læknarn-
ir að gera nokkuð sem þeir höfðu
aldrei glímt við áður, þ.e. að
græða hægri höndina á vinstri
handleggginn.
„Ég sagði þeim að gera það
sem þeir teldu ráðlegast," segir
Collins. „Aðgerðin tók 19 tíma
og það ótrúlega er að hún skilaði
árangri.“
Eftir tveggja ára þjálfun og
endurhæfingu gat Collins hreyft
fingurna. Þá kom batinn fljótt og
örugglega og eftir önnur tvö ár
fékk hann ökuskírteini á ný. Nú
er hann fær í flestan sjó í lífinu
þó auðvitað sé ekki einhentum
manni allir vegir færir.
„Hún fær að vita af því þessi,“
segir hann og horfir á hendina.
„Ég baða mig, borða með henni,
geri við húsið og keyri bílinn. f>ó
höndin sé öfug miðað við það
sem hún á að vera þá er ég alla
vega með mína eigin hönd og
þakka Guði fyrir það.“
Tilboð óskast
í eftirtalin tæki:
★ 4 tonna Clark disel lyftara árg. 1978.
★ 1,8 tonna Linde rafmagnslyftara árg. 1985.
Tækin eru til sýnis í vöruafgreiðslu Eim-
skips Oddeyrarskála og seljast í núverandi
ástandi.
Upplýsingar í síma 96-24131.
EIMSKIP
Þorrablót
Öxndælinga
Öxndælingar, búsettir, burtfluttir, innfædd-
ir og aðfluttir.
Árlegt þorrablót okkar verður haldið í Hlíðarbæ
laugardaginn 15. febrúar nk. og hefst kl. 21.
FjölmenniÖ og takið með ykkur gesti.
Þátttaka tilkynnist í símum 26839 (Erla), 26829 (Ásrún),
26838 (Þórunn) fyrir 12. febrúar. Hittumst hress og kát.
Nefndin.
Komið og gerið góð kaup
Black-Jack vinnubuxur, verð kr. 1.700,-
Flauelsbuxur, verð kr. 1.500,-
Vinnuskyrtur, verð kr. 1.180,-
Takkainniskórnir komnir aftur, kr. 995,-
Vorum að setja fullt
af vörum í utsöluhornid
Nú er 50-60% afsláttur
T.d.: Gallabuxur, stærðir 116-146, kr. 805,-
Flauelsbuxur (spari) st. 98-128, kr. 1.700,-
st. 6-12 kr. 1.250,-
Herrabaðsloppar kr. 1.997,- og ótal margt fleira.
Sjón er sögu ríkari.
1|J EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Simi 22275
Bílasala • Bílaskipti
L- ^ .:;a * ■ qgr
MMC Galant 1600 árg. 87. Ek. 48.000. Toyota Corolla DX árg. 88. Ek. 50.000. Verð 700.000. Verð 750.000.
Subaru 4x4 st. árg. 88. Ek. 80.000. Fiat Uno 60 S árg. 86. Ek. 65.000.
Verð 1.050.000. Verð 330.000.
Nissan Sunny Coupé árg. 87. Ek. 65.000. Toyota Tercel 4x4 árg. 88. Ek. 30.000.
Verð 750.000. Verð 860.000.
MMC Lancer GLXi árg. 91. Ek. 20.000. Subaru Justy 4x4 árg. 86. Ek. 21.000.
Verð 1.000.000. Verð480.000.
Mikið úrval
af vélsleðum
á góðum kjörum
Y bíiasaunn '}
Möldursf.
BÍLASALA
við Hvannavelli
Símar 241 19 og 24170