Dagur - 07.02.1992, Qupperneq 13
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 13
MlNNING
t
Runólftir Jónsson
Fæddur 4. nóvember 1902 - Dáinn 1. febrúar 1992
Runólfur Jónsson frá Litla-Sand-
felli í Skriðdal lést þann 1. þessa
mánaðar, 89 ára að aldri.
Runólfur fæddist á Stóra-Sand-
felli í Skriðdal en ólst upp á Litla-
Sandfelli í sömu sveit og bjó þar
síðan búi í ríflega 30 ár, frá 1926
til 1958. Það ár fluttist hann til
Akureyrar, ásamt konu sinni,
Jónínu Vilborgu Jónsdóttur, frá
Vaði í Skriðdal. Þau bjuggu
lengst af í Langholti 17.
Fyrstu árin eftir að þau hjónin
fluttu „á mölina“ vann Runólfur
á Sambandsverksmiðjunum og
síðan við ýmis byggingastörf.
Árið 1963 tók hann að sér að
annast innheimtu fyrir ýmis fyrir-
tæki í bænum. Meðal þeirra fyrir-
tækja sem fengu að njóta krafta
Runólfs á þeim árum var Dagur,
sem þá kom út einu sinni í viku
að jafnaði. Fyrst í stað annaðist
Runólfur smáviðvik fyrir blaðið
en smám saman urðu verkefnin
fleiri og stærri. Innan þriggja ára
var Runólfur fastráðinn í hálft
starf hjá blaðinu og gegndi því
starfi af trúmennsku og einurð
um 15 ára skeið, langt fram á ævi-
kvöldið.
Runólfur lét af störfum hjá
Degi árið 1978, 76 ára að aldri.
Fyrr þótti honum ekki tímabært
að setjast í helgan stein, slík var
eljan og ástundunarsemin.
Dagur þakkar Runólfi skemmti-
leg kynni og farsæl störf á liðnum
árum.
Bragi V. Bergmann.
í dag kveðjum við hann afa og'
okkur systkinin langar að minn-
ast hans með nokkrum orðum.
Afi lést aðfaranótt 1. feb. sl. á
Hjúkrunarheimilinu Seli en þar
dvaldi hann síðustu mánuðina.
Við kölluðum hann oft „afa
niðri“, en hann og amma áttu
heima í sama húsi og við, á neðri
hæðinni í Langholti 17.
Ófá sporin áttum við systkinin
niður til þeirra, til dæmis að biðja
afa að hita kalda putta, spila
lönguvitleysu, líta í Tímann eða
spjalla um heima og geyma og
alltaf var tekið á móti okkur með
ást og hlýju.
Afi var að austan, hann var
bóndi á Litla-Sandfelli í Skriðdal,
þar til þau amma fluttu til Akur-
eyrar. Afi sagði okkur oft
skemmtilegar sögur úr sveitinni
sinni, frá því þegar pabbi okkar
var drengur eða sögur af smala-
hundinum sínum. Við systkinin
erum þakklát fyrir þá gæfu að
hafa alist upp með afa og ömmu
við hlið okkar. Barnabarnabörn-
in fengu líka að kynnast þeim vel
og sakna nú langafa, en vita að
honum líður vel hjá Guði. Við
vottum pabba og systkinum hans
okkar einlægu samúð.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Elín Kristbjörg, Baldur,
Jón Reynir og Árni Viðar.
Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna:
Veigamiklar breytingar
boðaðar á námslánakerflnu
Málefni Lánasjóðs íslenskra
námsmanna koma til með að
verða fyrirferðamikil í umræð-
um á Alþingi með vorinu.
Olafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, lagði fyrir
skömmu fram lagafrumvarp
um sjóðinn þar sem boðuð er
umtalsverð breyting á lánum,
kjörum þeirra og endurgreiðsl-
um. Þessar breytingar eru
augljóslega átakamál enda
samþykktu fulltrúar náms-
manna ekki þetta frumvarp og
skilaði fulltrúi samstarfsnefnd-
ar námsmannahreyfinganna í
nefnd um endurskoðun laga
um LÍN séráliti um þetta mál.
Horfur eru á að tekist verði á
um endurgreiðslur lánanna en
eins og þær eru boðaðar í
frumvarpinu er um umtals-
verða breytingu að ræða frá
því sem er í núgildandi lögum.
Verði frumvarpið að lögum í
núverandi formi, sem margir
telja ótrúlegt sökum andstöðu á
þinginu, verða námslán eftirleiðis
verðtryggð og með 3% ársvöxt-
um en þeir verða reiknaðir frá
námslokum. Þau lán sem nú eru
veitt eru með verðtryggingu en
vaxtalaus.
„Námslán skal endurgreitt
með jöfnum greiðslum vaxta og
afborgana, jafngreiðslulán að
viðbættum verðbótum skv. láns-
kjaravísitölu.
Árleg endurgreiðsla ákvarðast
í tvennu lagi. Annars vegar er
föst greiðsla sem innheimt er á
fyrri hluta ársins, óháð tekjum og
hins vegar viðbótargreiðsla sem
innheimt er á síðari hluta ársins
og er háð tekjum fyrra árs,“ segir
í frumvarpinu.
Styrkhlutfall ríkisins
lækkar úr 65% í 25%
„Með þeim tillögum um breyt-
ingar á Lánasjóðnum sem hér eru
settar fram næst það markmið að
tryggja fjárhagsstöðu hans í
framtíðinni, þ.e. eftir 10-15 ár
miðað við svipað ríkisframlag og
nú er til LÍN. Þessu má best lýsa
með því að styrkhlutfall ríkisins
lækkar úr um 65% í um 25%
miðað við 6% ávöxtunarkröfu,“
segir í greinargerð með frum-
varpinu.
„Ljóst er að gildandi námslána-
kerfi, sem byggist á lögum nr. 72/
1982, getur ekki til frambúðar
tryggt Lánasjóði íslenskra
námsmanna það ráðstöfunarfé
sem hann þarf til þess að geta
gegnt hlutverki sínu. Fjárþörf
LÍN hefur aukist verulega á
undanförnum árum. Þetta hefur
valdið bæði auknum lántökum
sjóðsins og vaxandi ríkisframlagi.
Ef svo fer fram sem horfir mun
spurn eftir námslánum vaxa á
komandi árum. Á aukinni fjár-
þörf sjóðsins eru ýmsar skýring-
ar: 1) Flest nám að loknum
grunnskóla er nú talið lánshæft
að einhverju leyti ef undan er
skilið nám til stúdentsprófs. 2)
Nemendum á háskólastigi og
framhaldsskólastigi hefur fjölgað
umtalsvert. 3) Við mat á lánsþörf
er nú tekið tillit til fleiri atriða en
áður, yfirleitt til hækkunar. 4)
Framfærslu- og námskostnaður
almennt, þ.m.t. skólagjöld hefur
aukist verulega. 5) Kostnaður
sjóðsins vegna eigin lántöku hef-
ur aukist vegna þess m.a. að
ríkisframlag hefur ekki aukist til
jafns við útlán. 6) Lítill hvati er í
núgildandi kerfi fyrir námsmann
til að takmarka lántökur sínar."
Endurgreitt á
fjórföldum námstíma
í námslánakerfinu í dag eru veitt
vaxtalaus en verðtryggð lán til 40
ára. Eftirstöðvar þeirra falla nið-
ur þegar greitt hefur verið í 40 ár.
Afborganir hefjast þremur árum
eftir námslok og greitt er að
hámarki 3,75% af útsvarsstofni
ársins á undan, þó að lágmarki
rúm 26 þúsund á ári.
í greinargerð frumvarpsins er
bent á að námslán séu nú að
hluta til styrkir. Þar sem endur-
greiðsla sé takmörkuð við tíma
og hundraðshluta útvars séu 19%
veittra lána í raun styrkir. í reynd
hafi því tæpir 5 milljarðar króna
af útistandandi lánum í árslok
1990 verið styrkir.
Þær endurgreiðslureglur sem eru
nú boðaðar eru þannig að láns-
tími námsláns skal vera fjórfald-
ur eðlilegur tími þess náms sem
lánað er til. Ljúki námsmaður
ekki námi skal lánstími vera tvö-
faldur eðlilegur námstími.
Endurgreiðsla skal hefjast einu
ári eftir námslok. Sjóðsstjórn
skilgreinir hvað telja beri náms-
lok og endurgreiðslutíma.
En hvaða áhrif munu veiga-
miklar breytingar á námslána-
kerfinu hafa? Auk þess sem lána-
sjóðurinn verður léttari byrði á
herðum ríkissjóðs geta þessar
breytingar orðið til þess að draga
úr eftirspurn eftir lánum. í grein-
argerð með frumvarpinu segir:
„Með samþykkt þessa frum-
varps mun að líkindum draga
eitthvað úr spurn eftir námslán-
um þar sem þau verða ekki eins
eftirsóknarverð og áður. Einnig
er aðgangur að námslánum lítil-
lega takmarkaður frá núgildandi
lögum. Eins munu vextir, hertar
endurgreiðslureglur, auknar
kröfur um ábyrgðarmenn og lán-
tökugjöld hvetja til varfærni og
ráðdeildar."
„Stuðningur ríkisins (almenn-
ings) við menntun er áfram nauð-
synlegur og er veittur með vaxta-
leysi á námstíma og eftirgjöf á
markaðsvöxtum. Árið 1992 er
áætlað að þessi stuðningur ríkis-
ins nemi 400 millj. kr. í formi
vaxtaleysis á námstíma og 400
millj. kr. í formi vaxtaniður-
greiðslna. Samanlagður stuðn-
ingur ríkisins við menntun sam-
kvæmt frumvarpi þessu yrði í
heild nálægt einum milljarði
króna árið 1992.“ JÓH
r-----------------------\
SKATTFRAMTÖL
fyrir einstaklinga og minni
fyrirtæki
Rolf Hannén, Norðurbyggð 15. Sími 27721.
Óskum að ráða
barþjóna (hiutastorf)
Yngri en 20 ára koma ekki til greina.
Uppl. veittar á staönum
milli kl. 13-15 laugard.
KÍSILIÐJAN"
REYKJAHLÍÐ VIÐ MÝVATN
Framkvæmdastjóri
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra.
Kísiliöjan starfrækir verksmiöju, sem framleiöir síunar-
og fylliefni úr kísilgúr, aöallega til útflutnings. Starfs-
mannafjöldi er 61. Afkoma félagsins hefur veriö góð
og eiginfjárstaða er mjög traust. Aöaleigendur Kísil-
iðjunnar eru Ríkissjóöur íslands (51%) og banda-
ríska fyrirtækið Celite Corporation (48,56%).
Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt, en er aðallega
fólgiö í stefnumörkun, áætlanagerð, ásamt stjórnun
og ábyrgö á daglegum rekstri. Framkvæmdastjóri
kemur fram fyrir hönd félagsins og gætir hagsmuna
þess út á við.
Leitað er aö hæfum manni, helst meö reynslu í fyrir-
tækjastjórnun, sem tilbúinn er aö takast á viö krefj-
andi ábyrgðar og stjórnunarstarf. Góö kunnátta í
ensku er skilyrði.
Skriflegum umsóknum um starf framkvæmdastjóra
ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun, skal
merkja stjórn félagsins og senda til Kísiliðjunnar hf.,
660 Reykjahlíð, fyrir 24. febrúar nk. Umsóknum skal
skila á íslensku og í enskri þýðingu. Nánari upplýs-
ingar um starfiö veita:
Róbert B. Agnarsson, framkvæmdastjóri, vs. 96-
44190, hs. 96-44129.
Pétur Torfason, stjórnarformaður, vs. 96-22543, hs.
96-22117.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim svarað.
.t
Eiginmaður minn,
KRISTJÁN BJARNASON,
frá Sigtúnum,
Einilundi 2 c, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, 5. febrúar.
Jaðarförin verður auglýst síðar.
Mekkín Guðnadóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTBJÖRG ÓLAFÍA BJÖRNSDÓTTIR,
Stafholti 12, Akureyri,
verður jarðsungin frá Glerárkirkju, mánudaginn 10. febrúar kl.
13.30.
Þeir sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlegast látið
Krabbameinsfélag Akureyrar njóta þess.
Aðalsteinn Hjaltason,
börn, tengdabörn og barnabörn.