Dagur - 07.02.1992, Page 14
14 - DAGUR - Föstudagur 7. febrúar 1992
Tónlist
Píanótónleíkar Zsuzsönnu Budai
Laugardaginn 1. febrúar hélt
Zsuzsanna Budai, píanóleikari,
tónleika á Sal Tónlistarskólans á
Akureyri.
Zsuzsanna Budai er fædd árið
1964 í Szeged í Ungverjalandi.
Hún hóf nám í píanóleik einungis
sex ára að aldri og hélt í tónlist-
armenntaskóla að grunnskóla-
námi loknu. Hún vann til fyrstu
verðlauna í píanókeppni æsku-
fólks árið 1983 og náði öðru sæti
í Leó Wainer kammertónlistar-
keppninni árið 1987. Árin 1983
til 1988 nam Zsuzsanna við Franz
Liszt tónlistarskólann í Búdapest
og lauk þaðan brottfararprófi.
Eftir það kenndi hún í Búdapest
en hélt auk þess píanó- og kamm-
ertónleika jrar í borg og víðar í
Ungverjalandi. Zsuzsanna Budai
kom til íslands í haust leið og
kennir nú píanóleik við Tónlist-
arskólann á ísafirði.
Á efnisskrá tónleika Zsuzs-
önna Budai voru eingöngu verk
klassískra tónskálda. Fyrst lék
hún sónötu í F-dúr Hob.XVI/23.
í þessu verki skorti dálítið á
ákveðni og nákvæmni og var sem
listamaðurinn væri ekki meira en
svo kominn á skrið. Sér í lagi bar
á þessu í fyrsta kaflanum,
Moderato, sem ef til vill var líka
í hraðasta Iagi. Þá kann ókunn-
ugleiki við hljóðfærið að hafa
valdið einhverju og auk þess
nokkuð truflandi aukahljóð, sem
virtust koma úr pedalbúnaði
þess.
Annað verkið á efnisskránni
var Sónata í c-moll op 13, „Pat-
hétique“ eftir Beethoven. í þessu
verki færðist Zsuzsanna Budai í
aukana og lék af verulegu öryggi
og þrótti. Henni tókst skemmti-
lega að draga fram blæbrigði
þessa magnaða tónverks. Á
stundum virtist þó svörun hljóð-
færisins ekki vera að fullu sú, sem
listamaðurinn hefði viljað. Þar
kemur það væntanlega til, að
flygill tónlistarskólans er ekki af
fullri konsertstærð og hefur að
sjálfsögðu sín takmörk.
Pá lék Zsuzsanna Budai tvö
verk eftir Franz Liszt: Gnomen-
reigen (Álfadans) og Waldes-
rauschen (Skógarþyt). Bæði þessi
verk eru dæmigerð „prógramm-
stykki“, þar sem tónskáldið er að
skapa myndir þess, sem það fjall-
ar um. Flutningur Zsuzsönnu
Budai var innilegur og tilbrigða-
ríkur. Lokahendingar Gnomen-
reigens í flutningi Waldes-
rauschens gáfu verkinu raun-
sannan og tjáningarríkan blæ.
Lokaatriði efnisskrárinnar
voru tvö verk eftir Fréderic
Chopin: Ballade nr. 3 í As-dúr
op. 47 og Scherzo nr. 2 í b-moll
op. 31. Þessi verk flutti Zsuzs-
anna Budai af verulegri innlifun
og öryggi, svo að tæplega bar
skugga á. í fiutningi byggja bæði
mjög á blæbrigðum í styrkleika,
áslætti og hraða. Píanóleikaran-
um tókst vel að draga fram þessi
atriði í túlkun sinni og ná tilfinn-
ingu í leik sinn.
Tónleikar Zsuzsönnu Budai
voru sæmilega sóttir, en því mið-
ur ekki meira en það. Fleiri á
meðal tónlistarunnenda Akur-
eyrar hefðu mátt láta forvitni um
tónlistarmanninn ráða tíma
sínum. Það er ætíð skemmtilegt
og ekki síður fróðlegt að hlýða á
það fólk, sem kennir við tónlist-
arskóla landsins. í slíku fá áhuga-
menn um tónlist og tónlistar-
kennslu tækifæri til þess að heyra
og kynnast getu þeirra iðulega
ágætu listamanna, sem starfa við
skólana. Því ættu kennaratón-
leikar að vera fastir liðir í starf-
semi tónlistarskólanna og jafnvel
hluti af starfsskyldu kennara
þeirra.
Haukur Ágústsson.
Landsfundur Sambands Alþýðuflokkskvenna:
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Arnarsíða 12 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinn Ævar Stefánsson, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn
12. febrúar 1992, kl. 16.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Valgeir Pálsson hdl., Magnús H.
Magnússon hdl., Húsnæðisstofnun
ríkisins, Sigurmar K. Albertsson
hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Gránufélagsgata 33, Akureyri,
þingl. eigandi Hákon Henriksen
o.fl., fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 12. febrúar 1992, kl.
17.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Gústafsson hrl., Ólafur Birgir
Árnason hrl. og Arnar Sigfússon
hdl.
Grenilundur 15, Akureyri, þingl. eig-
andi Haukur Adolfsson, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 12.
febrúar 1992, kl. 17.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Valgeir Pálsson hdl.
Hafnarstræti 77,3. og 4. hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Jóna Ákadóttir
o.fl., fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 12. febrúar 1992, kl.
16.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Hjarðarslóð 2 b, Dalvík, þingl. eig-
andi Stefán P. Georgsson, fer fram
á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12.
febrúar 1992, kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Gunnar
Sólnes hrl. og Ævar Guðmundsson
hdl.
Hólabraut 20, Hrísey, þingl. eigandi
Jóhann S. Brynjarsson o.fl., ferfram
á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12.
febrúar 1992, kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins, Sigríður
Thorlacius hdl. og innheimtumaður
ríkissjóðs.
Karlsbraut 7, Dalvik, þingl. eigandi
Sigurjón Kristjánsson, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 12.
febrúar 1992, kl. 09.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Norðurgata 3 1. hæð, norðurhluti,
Akureyri, þingl. eigandi Jóhanna S.
Gísladóttir, fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 12. febrúar 1992, kl.
15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun rikisins, Gunnar
Sólnes hrl., Ólafur Birgir Árnason
hrl. og Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu
Varar við spamaðaráformuin sem
bitna á velferð fjölskyldunnar
10. landsfundur Sambands
Alþýðuflokkskvenna sem
haldinn var 17. og 18. janúar
1992, skorar á þingmenn og
ráðherra Aiþýðuflokksins í
núverandi stjórnarsamstarfí að
„standa vörð um grundvallar-
sjónarmið jafnaðarstefnunnar
sem byggja á frelsi einstakling-
anna og jafnrétti fyrir alla.
Rétturinn til lífsgæðanna, þátt-
taka í menningu og atvinnulífí
og rétturinn til að lifa með
mannlegri reisn er ekki bundinn
við kyn, aldur eða atgervi.“
Á þessum orðum hefst ályktun
Landsfundar Sambands Alþýðu-
flokkskvenna. í henni er hjöðnun
verðbólgu og þeim stöðugleika
sem náðst hefur í efnahagsmálum
fagnað og minnt á að þar með
hafi skapast forsendur fyrir
vaxtalækkun, sem brýnt sé að
knýja á um nú þegar.
Síðan segir í ályktuninni: „Enn
á ný minnir landsfundur S.A. á
breytta stöðu fjölskyldunnar í
þjóðfélaginu m.a. vegna aukinn-
ar atvinnuþátttöku kvenna. Kon-
ur eru komnar út á vinnumarkað-
inn til að vera. Þeirri þróun verð-
ur ekki snúið við. Enn skortir
mikið á að þjóðfélagið hafi viður-
kennt þessa staðreynd í verki.
Öflugt og traust velferðarkerfi er
forsenda þess að fjölskyldan geti
í dag verið sá hornsteinn þjóðfé-
lagsins sem menn vilja vera að
láta á hátíðarstundum. Því varar
landsfundurinn við sparnaðar-
áformum sem bitnað gætu á vel-
ferð fjölskyldunnar. Landsfund-
urinn skorar á ráðherra og þing-
menn flokksins að hrinda nú þeg-
ar í framkvæmd áformum ríkis-
stjórnarinnar um aðgerðir í
skatta- og félagsmálum til að
bæta kjör láglaunafólks.“
Landsfundur S.A. skorar á
stjórnvöld að gera sitt til að
tryggja fulla atvinnu og standa
vörð um hagsmuni lágtekjufólks
og vinna að launajafnrétti. Síðan
segir m.a.:
„Það er sögulegt hlutverk jafn-
aðarmanna að breyta til almenn-
ingsheilla skiptingu valds og auðs
í þjóðfélaginu. Landsfundur
S.A. skorar á ráðherra og þing-
menn flokksins að gera sitt til að
bæta úr, og hafa kjark til að taka af
þeim sem mest bera úr býtum og
nýta það í þágu þeirra sem minna
mega sín. Þegar á þessu þingi
verði lögfestur skattur á fjár-
magnstekjur, þó án þess að
vaxtatekjur af almennum sparn-
aði launafólks beri skatt. Tryggt
verði að lög gegn einokun og
hringamyndun verði sett áður en
til sölu ríkisfyrirtækja kemur.
Jafnframt telur landsfundurinn
óhjákvæmilegt við núverandi
aðstæður að lagður verði á
hátekjuskattur og að gripið verði
til harðra aðgerða gegn skattsvik-
um.“
í lok ályktunar sinnar minna
Alþýðuflokkskonur á að tryggja
þurfi að framfærsla heimilanna
verði fjölskyldum ekki ofviða og
í því sambandi verði aðgerðir
ríkisstjórnarinnar að beinast að
lækkun á húsnæðiskostnaði leigj-
enda, lækkun virðisaukaskatts og
hækkun skattleysismarka. „Til að
ná fram lækkun á matvöruverði
og þar með auknum kaupmætti
þá beinir landsfundurinn því til
þingmanna Alþýðuflokksins að
þeir beiti sér fyrir því að efnd
verði þau ákvæði búvörusamn-
ingsins sem kveða á um opinbera
úttekt á verðmyndunarkerfi land-
búnaðarafurða. Breyting núver-
andi verðmyndunarkerfis mun
leiða til verulegrar lækkunar á
landbúnaðarafurðum án þess að
rýra þurfi kjör bænda.“
Skákþing Akureyrar:
Yngri flokkar
fara af stað
Skákþing Akureyrar í yngri
flokkum hefst næstkomandi laug-
ardag kl. 13.30 og er öllum börn-
um og unglingum heimil þátt-
taka. Teflt verður í félagsheimili
Skákfélags Akureyrar við Þing-
vallastræti.
Keppt verður í flokki 13-15 ára
og 12 ára og yngri. Stúlkur tefla
ekki í sérstökum flokki heldur
með 12 ára og yngri en efstu
stúlkurnar fá verðlaun.
Leiðrétting
í blaðinu á miðvikdag, þar sem
fjallað var um gjafir til Krabba-
meinsfélags Suður-Þingeyinga,
var farið rangt með nafn Arn-
bjargar Sigurðardóttur frá
Rauðuskriðu og sagt að hún hafi
heitið Aðalbjörg. Þetta leiðréttist
hér með og eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Oddur Óskarsson, sölumaður hjá Höldur, umboðsaðila Heklu á Akureyri, afhendir Alberti Valdimarssyni, bif-
reiðastjóra á BSO, lyklana af VW Caravella. Hjá þeim stendur Marinó Björnsson, sölustjóri VW hjá Heklu.
Mynd: Golli
Akureyri:
Fyrsti bfllinn af gerðinni VW Caravella aflientur
- ætlaður til leigubílaaksturs og hefur þá
sérstöðu að geta tekið farþega í hjólastól
Fyrsti bíllinn af gerðinni VW
Caravella, hefur verið afhentur
á Akureyri. Hann er ætlaður til
leiguaksturs og hefur þá sér-
stöðu að geta tekið farþega í
hjólastól.
Þessir bílar eru hentugir til
slíks aksturs og hafa sjö slíkir
verið teknir í notkun á Reykja-
víkursvæðinu á síðustu vikum.
Hekla hf. hóf sölu á nýjum VW
fólksflutningabíl og sendibíl
(Caravella, Kombi og Trans-
porter) í apríl á síðasta ári og
hefur þessi bíll hlotið lof kaup-
enda og er hann mikið breyttur
frá fyrirrennara sínum (rúg-
brauðinu).
Nýi bíllinn er framhjóladrif-
inn, með vökvastýri, 5 gíra,
búinn 2ja lítra bensínvél með
beinni innsprautun eða 5 cyl.
2.4 lítra dieselvél.
Markaðshlutdeild VW sendi-
bíla á síðasta ári var 9,3% og
eru forsvarsmenn Heklu nokk-
uð ánægðir með þann árangur.