Dagur - 07.02.1992, Síða 15
Föstudagur 7. febrúar 1992 - DAGUR - 15
Iþróttir
Jón Haukur Brynjólfsson
Vetrarólympíuleikarnir settir á morgun:
Rögnvaldur og Haukur byrja á mánudag
Vetrarólympíuleikarnir 1992
verða settir í Albertyille í
Frakklandi á morgun. íslend-
ingar eiga fímm keppendur á
leikunum, alpagreinafólkið
Kristinn Björnsson, Ólafsfírði,
Örnólf Valdimarsson, Reykja-
vík, og Ástu Halldórsdóttur,
Isafírði, og skíðagöngumenn-
ina Rögnvald Ingþórsson og
Hauk Eiríksson frá Akureyri.
Haukur og Rögnvaldur keppa
í 30 km göngu á mánudaginn
en alpagreinafólkið keppir
fyrst í risastórsvigi 16. og 17.
febrúar.
DV segir Alfreð verða með í Austurríki:
„Þessi frétt er aJröng“
Alfreð Gíslason, þjálfari og
leikmaður handknattleiksliðs
KA, segir alrangt að hann hafí
ákveðið að leika með íslenska
landsliðinu í B-keppninni í
Austurríki í næsta mánuði.
DV hefur þetta eftir „öruggum
heimildum“ í gær.
Vitað er að Alfreð hefur verið
undir miklum þrýstingi að gefa
kost á sér fyrir B-keppnina en
hann hefur alltaf neitað. „Þessi
frétt er alröng. Þaö hefur ekkert
breyst og það er ennþá jafn erfitt
fyrir mig að gefa kost á mér. Það
bendir ekkert til þess að ég verði
með í Austurríki en ég verð
greinilega að fara að gefa stóryrt-
ari yfirlýsingar til að tekið verði
mark á þeim,“ sagði Alfreð í
samtali við Dag.
Handknattleikur
1. deild
Grótta-Valur
KA-UBK
HK-FH
Fram-Víkingur
Selfoss-Haukar
FH
Víkingur
Selfoss
KA
Fram
ÍBV
Stjarnan
Valur
Haukar
Grótta
HK
UBK
18 15-2-1
17 13-2-2
16 9-1-6
17 8-3-6
7-4-6
7-2-7
7-1-9
5-5-6
5-4-8
4-4-9
17 3-2-12
17 2-2-13
21:20
28:18
20:28
29:31
28:27
510:413 32
444:38128
429:417 19
421:41119
397:409 18
430:412 16
417:402 15
391:385 15
413:423 14
344:407 12
380:419 8
310:405 6
íþróttir
HANDKNATTLEIKUR
Fusludagur 1. deild: KA-Grótta kl. 20.30
2. dcild: KR-Völsungur Laugardtigur 2. deild: kl. 20.00
Fjölnir-Völsungur kl. 14.00
BLAK
Laugardugur 1. deild karla:
KA-Þróttur R. Bikarkeppni kvennu: kl. 14.00
KA-Víkingur kl. 15.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sunnudagur Úrvalsdeild: Tindastóll-UMFG kl. 20.00
Snæfell-Þór kl. 18.00
FIMLEIKAR
Skrúfumól í almennum fimleikum
veröur haldið í Iþróttahöllinni á Akureyri á laugardag kl. 14.00
ÍSHOKKÍ
Laugardagur: SA-Björninn (ungl.fl.) kl. 10.30
SA-Björninn (m.fl.) Sunnudagur: kl 14
SA-Bjöminn (ungl.fi) kl. 10.30
Auk skíðamannanna eru
komnir til Frakklands þjálfararn-
ir Sigurður Jónsson og Bo Erics-
son, flokkstjórarnir Helgi Geir-
harðsson og Inga Hildur Trausta-
dóttir og aðalfararstjórinn og
fulltrúi Olympíunefndar íslands,
Ágúst Ásgeirsson. Gísli Hall-
dórsson, formaður Ólympíu-
nefndarinnar, verður viðstaddur
hluta af leikunum.
Sjónvarpið mun sýna beint frá
opnunarhátíðinni og hefst
útsendingin kl. 15.50 á morgun.
Á sunnudaginn hefst bein
útsending kl. 8.50 og verður sýnt
með hléum til kl. 15, auk þess
sem rennt verður yfir helstu við-
burði dagsins um kvöldið. Á
mánudaginn verður sýnt beint frá
30 km göngu karla, þar sem
Haukur og Rögnvaldur verða
meðal þátttakenda, og stendur sú
útsending frá kl. 8.55-11.10.
Nánar verður fjallað um beinar
útsendingar sjónvarpsins síðar.
Rögnvaldur Ingþórsson og Haukur Eiríksson byrja á 30 km göngu á inánu-
dag.
Handknattleikur:
Formsatriði hjá KA-mönnum
- sigruðu Breiðablik 28:18
KA-menn þurftu ekki að hafa
mikið fyrir sigri sínum á botn-
liöi Breiðabliks þegar liðin
mættust í KA-húsinu á
miðvikudagskvöldið. KA-
menn höfðu fádæma yfírburði
í fyrri hálfleik og náðu þá 11
marka forystu en slökuðu á í
seinni hállleik og lokatölurnar
urðu 28:18. Liðið er nú í fjórða
sæti deildarinnar en hefði
munurinn orðið þremur mörk-
um meiri væri það í þriðja
sæti.
Lið Breiðabliks er bersýnilega
það langslakasta í deildinni og
viðureignin á miðvikudagskvöld-
ið vakti upp spurningar um
hvernig KA-menn fóru að því að
tapa stigi í viðureign liðanna í
Kópavogi fyrr í vetur. Það var
hins vegar greinilegt að KA-
menn ætluðu ekki að láta þann
leik endurtaka sig og þeir gengu
yfir gestina strax í byrjun. Sókn-
arleikur Breiðabliks var algerlega
bitlaus, hvað eftir annað glopraði
liðið boltanum klaufalega niður
og KA-menn refsuðu því grimmi-
lega með því að skora hvert
markið á fætur öðru úr hraða-
upphlaupum. Úrslitin voru ráðin
strax í fyrri hálfleik þegar staðan
var orðin 15:4 en Blikar skoruðu
tvö síðustu mörkin fyrir hlé. í
seinni hálfleik tóku KÁ-menn líf-
Þorrablót KA
í kvöld
Þorrablót KA verður haldið í
KA-heimilinu í kvöld. Blótið
hefst kl. 20 og eru allir velkornn-
ir. Miðaverð er 1500 kr.
inu með ró og héldu 9-12 marka
mun lengst af.
KA-menn léku vel og sýndu
styrk sinn á köflum en mótherj-
arnir voru allt of slakir til að hægt
sé að meta liðið út frá þessum
leik. Þó verður ekki hjá því kom-
ist að nefna Sigurpál sem skoraði
11 mörk, hvert öðru glæsilegra,
þrátt fyrir að hann hvíldi lang-
tímum saman. Þeim sem þetta
skrifar finnst það jaðra við
hneyksli ef hann verður ekki tek-
inn með til Austurríkis. Er lík-
amlegur styrkur ekki nægur? Á
nokkuð að fara að keppa í lyft-
ingum?
Hjá Blikunum voru það helst
markverðirnir sem sýndu eitt-
hvað en annar þeirra, Þórir, fékk
að líta rauða spjaldið í seinni
hálfleik.
KA-Grótta í kvöld
KA-menn mæta Gróttu í kvöld í
KA-húsinu og hefst sá leikur kl.
20.30. Grótta hefur verið að ná
sér á strik upp á síðkastið og liðið
vann óvæntan sigur á Val í fyrra-
kvöld. KA-menn verða þó að
teljast sigurstranglegri og spurn-
ingin er hvort liðið vinnur sinn
sjöunda heimasigur í röð í kvöld.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
11/3, Árni Páll Jóhannsson 5, Stefán Krist-
jánsson 4, Jóhann Jóhannsson 3, Alfreð
Gíslason 2, Pétur Bjarnason 1, Jón Egill
Gíslason 1, Árni Stefánsson 1. Axel
Stefánsson varði 4 skot og Birgir Frið-
riksson 3.
Mörk UBK: Björgvin Björgvinsson 6/3,
Elvar Erlingsson 3, Árni Stefánsson 3,
Eyjólfur Einarsson 2, Ingi Þór Guð-
mundsson 2, Ingólfur Sigurðsson 1, Sig-
urbjörn Narfason 1. Ásgeir Baldursson
varði 8 skot og Þórir Siggeirsson 4.
Blak:
KA-Víkingur
og KA-Þróttur
KA-stúlkur mæta íslands-
meisturum Víkings í bikar-
keppni kvenna í blaki í KA-
húsinu á morgun. Á undan
mæta KA-menn Þrótti R. í
1. deild karla.
Lið íslandsmeistaranna er
geysilega sterkt og hefur enn
ekki tapað leik á tímabilinu.
Verður fróðlegt að sjá hvort
KA-stúlkur ná að velgja þeim
undir uggum og tryggja sér
sæti í undanúrslitunum.
Leikurinn hefst kl. 15.15 en
leikur karlanna kl. 14.
Íshokkí:
SA-Bjöminn
Á morgun mætast Skauta-
félag Akureyrar og Isknatt-
leiksfélagiö Björninn öðru
sinni á íslandsmótinu í
íshokkí. Leikurinn fer fram
á skautasvellinu á Akureyri
og hefst kl. 14.
Síðasta leik liðanna lauk
með „naumum“ sigri Akur-
eyringa, 21:0, svo búast má
við að skorað verði töluvert af
mörkum á morgun. Hins veg-
ar er búist við að Birnirnir
mæti með sterkara lið en síð-
ast en þá vantaði fimm Banda-
ríkjamenn í liðið.
Björninn kemur einnig með
pollalið skipað 10-13 ára leik-
mönnum og leikur það tvo
leiki við pollalið SA, á laugar-
dags- og sunnudagsmorgun kl.
10.30.
Fimleikar:
Skrúfumót
Á morgun, laugardag, verð-
ur haldið svokallað skrúfu-
mót í almennum fímleikum í
íþróttahöllinni á Akureyri.
Keppendur verða um 200
talsins víðs vegar að af land-
inu og verður keppt í þrem-
ur aldursflokkum 10-16 ára.
Fimleikaráð Akureyrar sér
um framkvæmdina og er
þetta í fyrsta sinn sem félag-
ið heldur svo fjölmennt FSI-
mót.
Keppt verður í nýjum fim-
leikastiga, svokölluðum
skrúfustiga. í lok mótsins
verður kynntur nýr skrúfustigi
fyrir pilta en hingað til hefur
þetta keppnisform aðeins ver-
ið fyrir stúlkur.
Keppti hefst kl. 14 á morg-
un og er keppnistími áætlaður
4 tímar.
Handbolti 1. deild
KA-Grótta
föstudaginn 7. febrúar kl. 20.30 í KA-húsinu
/ síöasta leik skoraði
Guömundur W mörk
gegn KA.
Hvaö gerir hann
í kvöld?
Guðmundur
Hvetjum KA
til sigurs!
Axel