Dagur - 07.02.1992, Síða 16
Akureyri, föstudagur 7. febrúar 1992
Nýr kvöldseöill
Fimm lauka súpa
Grafin nautalund m/hunangssinnepssósu
Humarfylltar grísalundir
Piparmyntufrauð
Verð kr. 2.900,-
Leikhústilboö
Gratineruð skelfisksúpa m/hvítlauksbrauði
Glóðarsteiktar lambamedalíur m/Madeirasósu
Kaffi og konfekt
Kr. 1.900 fyrir 1-10 manns
Kr. 1.800 fyrir fleiri en 10
Blaðamenn Dags á austurleið rákust á þessa fjörugu félaga á Kópaskeri. Halldór Sævar var að koma úr skólanum
og hitti þá hundinn Varg. Þeir gáfu sér tíma til að brosa framan í Ijósmyndarann. Mynd: Golli
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
„Aðgerðir miða að því að niinnka
kostnað og hagræða í vinnu“
- segir Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
Lengri opnunartími leiktækjasala:
Verið að verðlauna þá
fyrir að brjóta reglur
- segir Baldvin Bjarnason, skólastjóri
Hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hefur verið sam-
þykkt sparnaðaráætlun sem
tekur til þeirra 56 milljóna
króna sem sjúkrahúsinu er gert
að spara á þessu ári. Tillögur
stjórnarinnar voru kynntar á
fundi með starfsfólki í gær og
að sögn Inga Björnssonar,
framkvæmdastjóra FSA, var
ekki annað að heyra en að
starfsfólk væri sátt við áætlun-
ina og að allir myndu leggjast á
eitt til að ná fram þessum
sparnaði.
„Við grípum fyrst og fremst til
allrar þeirrar hagræðingar í
rekstri sem við höfum tök á.
Menn geta alltaf gert betur en
þeir hafa gert áður og við ætlum
að reyna það með almennu
Halldór Blöndal, landbúnað-
ar- og samgönguráðherra, kom
víða við í ræðu sinni á fundi
Kjördæmisráðs Sjálfstæðisfé-
laganna sem haldinn var á
Húsavík sl. miðvikudagskvöld.
Um 30 manns sátu fundinn og
fundarstjóri var Páll Þór
Jónsson. Ráðherra ræddi um
efnahagsmálin og efnahagsráð-
stafanirnar og sagði m.a.: „Við
verðum öll að sýna af okkur
sparnað og fyrirgefa hvort
öðru þó við rekumst eitthvað
á, því við höfum einfaldlega
ekki tíma til að dúlla í kring
um þetta eins og þyrfti. Ef
menn sýna mótþróa þá verðum
við einfaldlega að keyra yfir
þá.“
aðhaldi. Aðgerðir okkar miða að
því að minnka kostnað við öll
innkaup á rekstrarvörum og hag-
ræða í vinnu,“ sagði Ingi
Björnsson.
Ekki verður gripið til beinna
uppsagna starfsfólks en Ing; sagði
að reynt yrði að halda yfirvinnu
og afleysingum í eins miklu lág-
marki og mögulegt væri. Jafn-
framt munu menn halda að sér
höndum varðandi nýráðningar.
Ingi sagði að áætlunin gerði
ekki ráð fyrir lokunum einstakra
deilda um lengri tíma. Hins vegar
yrði að draga verulega saman í
starfseminni en það yrði gert yfir
alla línuna en ekki látið bitna á
einstökum deildum. Menn væru
að horfa fram á samdráttartíma-
bil og ekki væri ljóst hvað það
Síðar í ræðu sinni kom Halldór
inn á samgöngumálin og sagði:
„Það er brýnast fyrir okkur hér á
þessum stað að rjúfa þá einangr-
un sem Norðurland eystra hefur
verið í og þá einangrun sem
Húsavík hefur verið í, sam-
göngulega séð.
Það hefur tekist svo blessunar-
lega, að það verður ráðist í fram-
kvæmdir við vöruhöfnina hér
með eins miklum hraða og hægt
er, ekki er þó hægt að ljúka fram-
kvæmdum fyrr en á næsta ári.
Við verðum að opna leiðina
upp í Mývatnssveit og það hlýtur
að vera mikið forgangsverkefni í
þessu kjördæmi, ef við ætlum að
halda þessum stað áfram sem
miðstöð verslunar og viðskipta
yrði langt.
„Við munum draga saman eins
og hægt er í innskrift á sjúkling-
um og aðgerðum en bráðastarf-
seminni verður haldið gangandi í
óbreyttri mynd,“ sagði Ingi.
Aðspurður sagði hann að gert
væri ráð fyrir að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri yrði að
taka á sig að einhverju leyti
niðurskurð á sjúkrahúsum í ná-
grannasveitarfélögunum. Skert
þjónusta og lokanir deilda á
minni sjúkrahúsunum leiddi
óhjákvæmilega til meira álags á
Fjórðungssjúkrahúsinu. Þess
vegna yrði reynt að standa vörð
um bráðastarfsemina því FSA
þarf að sinna bráðatilfellum á
Eyjafjarðarsvæðinu og jafnvel
víðar. SS
fyrir héruðin, og ef við ætlum
líka að reyna að byggja staðinn
upp með hliðsjón af þeirri ferða-
þjónustu sem náttúran hér í kring
um okkur er sköpuð fyrir.
Um leið og við veltum þessu
fyrir okkur má ekki líta svo á að
ég sé að halda því fram að Norð-
ur-Þingeyingar séu einskis virði.
Við verðum auðvitað að veita
þeim einhverja úrlausn, en það
hlýtur að vera mikið áhersluverk-
efni að rjúfa einangrunina með
því að opna leiðina til Austur-
lands. Þessi orð mín þýða ekki
það að ég sjái hvenær við fáum
peninga til þessa, því ég hef ekki
þá sjóði til að ausa úr,“ sagði
samgöngumálaráðherra, varð-
andi samgöngumálin í héraði.
„Mér fínnst þetta fráleit
ákvörðun og með henni er ver-
ið að verðlauna forráðamenn
leiktækjasalanna fyrir að
brjóta reglur,“ sagði Baldvin
Bjarnason, skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Akureyri þegar
hann var inntur álits á þeirri
ákvörðun bæjarstjórnar Akur-
eyrar að breyta lögreglusam-
þykkt bæjarins á þann veg að
hcimila forráðamönnum leik-
tækjasala að hafa opið frá kl.
12.00 til 23.30 en samkvæmt
eldri ákvæðum var þeim einung-
is heimilt að hafa opið frá kl.
15.00 til 23.30.
Eigendur leiktækjasalanna
leituðu til bæjaryfirvalda um leyfi
til lengri opnunartíma eftir að
forráðamenn Barnaskóla Akur-
eyrar og Gagnfræðaskólans á
Ákureyri bentu á þá staðreynd
að leiktækjasalir hefðu opið leng-
ur en ákvæði í lögreglusamþykkt
sögðu til um. Nú hefur bæjar-
stjórnin samþykkt að breyta lög-
reglusamþykktinni og laga hana
að þeim tímamörkum sem leik-
tækjasalirnir höfðu opið í trássi
við reglur. Baldvin Bjarnason
kvaðst ekki hafa heyrt rökin fyrir
þessari samþykkt bæjarstjórnar
en hann hefði áhuga á að vita
hver þau séu. Baldvin sagði að
salirnir sköpuðu ákveðinn vanda
í skólastarfinu og það væri oftast
þeir nemendur er verst stæðu
sem fyrstir færu niður brekkuna
og staðnæmdust við þessa staði.
Hann sagði einnig að brögð væru
að því að leiktækjasalirnir væru
fyrsti viðkomustaður á leið ung-
linga á skemmtanir - til dæmis í
Dynheimum og þótt forráða-
menn salanna væru allir af vilja
gerðir til þess að sporna við
áfengisnotkun unglinga væri
ógerningur fyrir þá að fylgjast
Tómás I. Olrich, alþingismað-
ur, flutti einnig framsöguræðu á
fundinum. Ræddi hann um fjár-
lagahalla undangenginna ára og
efnahagsráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar. Sagði hann m.a. að við
byggjum við velferð á mjög veik-
um grunni og nauðsynlegt væri
að styrkja þann grunn, draga
þyrfti saman útgjöld ríkisins án
þess að minnka þjónustu, en
fresta kostnaðarsömum fram-
kvæmdum. Tómas Ingi sagði að
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
leiddu til erfiðleika á mörgum
sviðum, en hann endaði mál sitt
með að benda á hagsmunahóp
sem ekki heyrðist hátt í við
umræðuna, börnin sem erfa ættu
landið.
IM
með því að fullu.
Benedikt Sigurðarson, skóla-
stjóri Barnaskóla Akureyrar,
sagði að hér væri ekki um einfalt
mál að ræða. Frá sínum sjónar-
hóli hefðu leiktækjasalirnir ekki
góð áhrif á uppeldishagsmuni
barnanna í bænum. Hann kvaðst
verða að játa að þessi ákvörðum
bæjarstjórnarinnar gangi þvert
gegn þeim vonum sem hann hafi
gert sér þótt niðurstaðan komi í
sjálfu sér ekki á óvart eftir
afgreiðslu bæjarráðs frá því í des-
ember. Benedikt kvaðst geta
samfagnað hverjum þeim sem
búi við barnalán og takist að
halda utan um umhverfi barna
sinna. Því miður sé þó svo að þó
nokkrir unglingar búi alls ekki
við þær aðstæður að þeir þoli
truflun af því tagi sem leiktækja-
salirnir bjóði upp á. Hann sagðist
ekki vera viss um að þeir ágætu
menn, sem tækju þvílíkar
ákvarðanir þvert gegn skoðun
þeirra foreldra og skólamanna,
sem hafa látið sig málið varða
auk forsvarsmanna íþrótta- og
æskulýðsmála í bænum géri sér
nægilega grein fyrir stöðu þeirra
sem standa höllum fæti. Benedikt
sagði að þótt menn tali fyrir því
að leggja niður boð og bönn þá
vilji þessir sömu aliðar ekki
leggja umferðarreglurnar til hlið-
ar svo dæmi sé nefnt. Hann
kvaðst ekki trúa því að þessir
menn séu þeirrar skoðunar að
þeir eigi ekki að setja sínum eigin
börnum nein öryggismörk. ÞI
Fiskiðja Raufarhafnar:
Stakfellið og Þór
korau með 60 tonn
- Rauðinúpur enn í lamasessi
Þórshafnartogarinn Stakfell
ÞH kom til Raufarhafnar sl.
miðvikudag og lagði upp 30
tonn hjá Fiskiðju Raufarhafn-
ar. Afli togarans var lítill að
þessu sinni, eða um 45 tonn,
og fór afgangurinn til vinnslu í
Hraðfrystistöð Þórshafnar. Þá
kom Þór Pétursson einnig með
um 30 tonn til Raufarhafnar.
„Við brosum út að eyrum
núna. Þetta eru um 60 tonn og
það er það mesta sem við höfum
fengið til vinnslu á þessu ári,“
sagði Gunnar F. Jónasson, verk-
stjóri í Fiskiðju Raufarhafnar.
Togarinn Rauðinúpur er enn í
lamasessi en menn gera sitt ítr-
asta til að koma vélinni í lag. Að
sögn Gunnars er verið að prófa
að setja þýskar slífar í staðinn
fyrir japanskar, en menn eru ekki
vissir um hvort vélarbilanirnar
megi rekja til slífa eða stimpil-
hringja.
„Það var fyrst prófað að keyra
með gömlum japönskum slífum
en þær létu strax á sjá og þessa
stundina er verið að setja þriðju
þýsku slífina í. Við trúum ekki
öðru en þetta fari að ganga,"
sagði Gunnar. SS
Fundur sjálfstæðismanna á Húsavík:
„Ef menn sýna mótþróa þá verðum
við einfaldlega að keyra yflr þá“
- sagði Halldór Blöndal m.a. er hann ræddi um efnahagsráðstafanirnar