Dagur - 10.06.1992, Qupperneq 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 10. júní 1992
107. tölublað
Vel í fö 1 klæddur tum frá B,RN"ARm lemabudin
I | HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Vaglaskógur:
Þétt var setinn bekkurinn í áhorfendastæðum Akureyrarvallar í fyrrakvöld þegar fram fór nágrannaslagurinn milli
Þórs og KA í knattspyrnu. Alls voru um 2000 áhorfendur á leiknum og skemmtu sér vel. Mynd: Goiu.
Ölvaður ökumaður velti bfl
sínum í Vaglaskógi og þrír aðr-
ir voru teknir fyrir ölvunar-
akstur. Nokkrir ungir menn
þreyttu Fnjóskársund um hvíta-
sunnuna eftir skemmtun í
skóginum og þóttust hafa synt
yfir í annan landsfjórðung.
Tjaldstæðið í Vaglaskógi hýsti
sinn skerf af ungu fólki um hvíta-
sunnuna. Auk tjaldstæðisgesta
komu margir að nóttu frá þétt-
býlisstöðunum. „Það virðist vera
orðin lenska hér að fólk komi eft-
ir böll og skemmti sér í nokkra
klukkutíma og sofi kannski úr sér
Búnaðarbankinn á Akureyri:
Hópur viðskiptaaðila vfll viðræður
við bankaráð um mál útibúsins
- „það þarf að taka á ýmsum málum,“ segir nýr útibússtjóri
arms.
Hópur aðila úr viðskiptalífinu
á Akureyri kom saman til
fundar í fyrradag til að ræða
mál Búnaðarbankans á Akur-
eyri en fyrst og fremst er um að
ræða forsvarsmenn fyrirtækja
sem eru í viðskiptum hjá bank-
anum. I framhaldi af banka-
stjóraskiptum í útibúinu telja
þessir aðilar að ný stefna hafi
verið tekin upp þar. Af aðiium
innan þessa hóps er bent á
nýtt gjaldþrot Fjölnismanna
hf. sem dæmi um þetta þar
sem bankinn hafi lokað á fyrir-
greiðslu til fyrirtækisins og
knúið það í gjaldþrot. Jafn-
framt gangi samskipti við
bankann erfíðar fyrir sig en
áður. Guðmundur Thorodd- Guðmundur Thoroddsen sagði
í samtali við blaðið síðdegis í gær
að það væri víðsfjarri að gjald-
þrot Fjölnismanna sé til komið
vegna aðgerða bankans. Þar
megi benda á að skuldastaða hafi
verið tugmilljónir umfram eignir.
En standa einhverjar sérstakar
aðgerðir yfir hjá bankanum á
Akureyri?
„Hvernig á ég að lýsa því í
stuttu máli? Héðan fer gamal-
gróinn útibússtjóri, flyst til, og
það þarf að taka á ýmsum málum
sem hefði kannski átt að vera
sen, núverandi útibússtjóri
Búnaðarbankans, vísar þessu á
bug og einnig því að unnið sé
nú eftir nýjum reglum í útibú-
inu. Fyrrnefndur hópur skip-
aði með sér stjórn á fundinum
til að ræða við bankaráð Bún-
aðarbankans um mál útibús-
ins.
Guðbjörn Garðarsson, einn
þeirra sem er í forsvari fyrir
hópnum, sagði í gær að fjölmiðl-
um verði að sinni ekki gefnar
upplýsingar um niðurstöðu fund-
Aðspurður segir hann
starfi þessa hóps ekki lokið og
þeirri spurningu hvort starf þessa
hóps hafi komið til í framhaldi af
gjaldþroti Fjölnismanna hf. svar-
ar hann þannig að þetta komi
gjaldþrotinu sem slíku ekki við.
Eins og greint var frá í Degi
fyrir skömmu urðu bankastjóra-
skipti í útibúinu á Akureyri þegar
Gunnar Hjartarson lét af störfum
og tók við starfi útibússtjóra
bankans í Hveragerði. Jafnframt
tók Guðmundur Thoroddsen,
fyrrverandi útibússtjóri í Hvera-
gerði við starfinu nyrðra tíma-
bundið en hann hefur síðar á
árinu störf við aðalbanka Búnað-
arbankans í Reykjavík.
búið að taka á áður. Hér eru ekki
aðrar aðgerðir en ý>ær að koma
hlutum í rétt horf. í bænum hefur
maður heyrt um hálfgerða panik
vegna þessa og að við séum að
stöðva fyrirgreiðslu til fjölda
fyrirtækja en það er út í hött. Við
höfum ekki stöðvað fyrirgreiðslu
til nema sárafárra fyrirtækja sem
eru svo illa haldin að ekki er hægt
að halda áfram fyrirgreiðslu til
öðruvísi en þeirra mál séu
skoðuð," sagði Guðmundur.
JÓH
undir berum himni eða í bílum.
Síðan fer fólk heim þegar það
rankar við sér enda hafði lögregl-
an strangt eftirlit á morgnana,"
sagði Sigurður Skúlason, skógar-
vörður, í samtali við Dag. Lög-
reglan tók þrjá vegna ölvunar við
akstur um helgina.
Að sögn Sigurðar hefur komið
til tals að fá fógetaleyfi til að tak-
marka aðgang að Vaglaskógi eins
og gert var á árum áður. „Versti
þröskuldurinn er að við erum
með þjóðveg í gegnum skóginn.
Annars gætum við lokað og selt
inn í skóginn en það á að vera
hægt að treysta fólki til að virða
almennar umgengnisreglur. Hér
er mikið traðk en það sér svo sem
ekkert á skóginum. Við erum
með menn á vakt en ráðum samt
ekkert við þann fjölda sem vill
skemmta sér. Til þess þyrfti tugi
manns en ég held að breyta þurfi
hugsunarhætti hjá ungu fólki því
þetta er ósköp leiðinlegur
umgangur," sagði Sigurður.
Þótt lögreglan hefði afskipti af
ölvunarumferð kom ekki til þess
vegna umferðar yfir Fnjóská.
Nokkrir ungir ofurhugar syntu
yfir ána. „Þeir virtust ekki vita
hvar þeir væru í veröldinni því
þegar þeir komu á bæina hinum
megin við ána voru þeir að tala
um að hafa synt yfir ár sem eru
suður á landi,“ sagði Sigurður að
lokum. GT/IM
Akureyri:
Róstusamt á tjaldstæðinu
- „fýllerí líðst ekki,“ segir Pétur tjaldvörður
Eftir róstusama nótt á tjald-
stæði Akureyrar voru nokkrir
tjaldgestir reknir burtu að
morgni sl. laugardags. Lög-
reglan tók einn tjaldgesta í
vörslu sína eftir að bílrúða
hafði verið brotin og slagsmál
höfðu brotist út um nóttina.
Tjaldverðir voru á vakt alla
aðfararnótt laugardags en komið
hefur til tals að auglýsa eftir sér-
stökum næturvörðum til að fást
við ófriðarseggi á tjaldstæðinu.
Að sögn Péturs Halldórssonar,
tjaldvarðar, virðist vera komin
hefð fyrir því hjá ungu fólki á
Suðurnesjum að fara á tjald-
stæði Akureyrar um hvítasunnu
Eyjafjarðará:
Mönnum bjargað úr bfl
í gærmorgun bjargaði lögregl-
an á Akureyri tveimur mönn-
um úr jeppa í Eyjafjarðará.
Mennirnir höfðu ætlað á bfln-
um yfír ána fyrir neðan Ytra-
Gil en ekki vildi betur til en
svo að bfllinn drap á sér í miðri
anm.
Að sögn Ingimars Skjóldals,
varðstjóra hjá Akureyrarlögregl-
unni, reri lögreglan á gúmbát út
að bílnum og flutti mennina í
land. Því næst var bíllinn dreginn
að landi en mönnum varð ekki
meint af.
Síðdegis í gær varð vinnuslys á
Lónsbakka þegar maður sagaði í
fingurinn á sér en meiðslin voru
ekki alvarleg að sögn Ingimars.
Þá varð telpa á hjóli fyrir bíl á
mótum Fjólugötu og Norðurgötu
síðdegis en meiddist ekki telj-
andi. JÓH
og skemmta sér. „Síðla nætur
brutust út slagsmál hérna og
þurfti að kalla á lögreglu. Við
viljum Iosna við svona fólk og
þess vegna viljum við fá það orð
á okkur að hér líðist ekki fyllerí,"
sagði Pétur.
Rólegra var aðfararnótt sunnu-
dags því á laugardeginum kom
fjölskyldufólk í stað ófriðarseggj-
anna sem fóru í Vaglaskóg. „Það
er eins og við höfum skipst á fólki
við Vaglaskóg því sumt af fjöl-
skyldufólkinu hafði flúið úr
Vaglaskógi," sagði Pétur að
lokum. GT
Hótel á Akureyri:
Sæmilega gestkvæmt
- ágætt útlit fyrir sumarið
Sæmileg aðsókn var að hótelum
á Akureyri um hvítasunnu-
helgina og lítur sumarið ágæt-
lega út hvað pantanir varðar.
Um miðjan júní opnar nýtt
hótel undir nafninu Harpa þar
sem Hótel Stcfanía var áður til
húsa.
Sumarið lítur vel út fyrir Hótel
KEA hvað varðar bókanir en þó
er nokkuð um afpantanir að sögn
Þórnýjar Snædal í gestamóttök-
unni. „Hvítasunnuhelgin var
betri en við bjuggumst við enda
varð svolítil sprenging hérna því
við vorum með hvítasunnu-
pakkaverð. Síðan eru margir
júbílantar búnir að panta fyrir
17. júní,“ sagði Þórný.
Að sögn Tryggva Tryggvason-
ar í afgreiðslu Hótels Norður-
lands er álíka gestkvæmt og á
sama tíma og í fyrra. „Hvíta-
sunnuhelgin var góð og það lítur
vel út með pantanir framundan -
sérstaklega með hópa,“ sagði
Tryggvi.
„Hvítasunnuhelgin virðist ekki
skila sér á hótelin en júní er alveg
fínn. Það er talsvert um pantanir
hjá hópum en einstaklingarnir
koma fyrirvaralaust,“ sagði
Oddný Ólafsdóttir, annar eigandi
Hótels Óðals. GT
Slæm umgengni tjald-
gesta um helgina