Dagur - 10.06.1992, Blaðsíða 13

Dagur - 10.06.1992, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 10. júní 1992 - DAGUR - 13 Minning Jóruim Mary Ingvarsdóttir Fædd 19. nóvember 1934 - Dáin 17. maí 1992 Mig langar að minnast góðrar frænku minnar, Jórunnar Mary Ingvarsdóttur, eða Dúddu eins og hún jafnan var nefnd. Hún lést í Lúxemborg 17. maí síðast- liðinn, eftir erfiða baráttu við erf- iðan sjúkdóm. Dúdda fæddist á Siglufirði 19. BORGARBÍÓ Salur A Miðvikudagur Kl. 9.00 Stúlkan mín Kl. 11.00 Thelma og Louise STÓRMYfíD RtOL£Y SCÖTT THELMA OG LOUISE Salur B Miðvikudagur Kl. 9.00 Frankie og Jonny Kl. 11.00 Hundaheppni BORGARBÍÓ S 23500 GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 Á söluskrá Stapasíða: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, samtals ca. 163 fm. Eignin er í mjög góðu lagi. Laus í júlí. Litlahlíð: 5 herb. raðhús á tveimur hæð- um, samtals ca. 128 fm. Ástand gott. Laus 1. júli. Smárahlíð: 3ja herb. íbúð á 2. hæð, ca. 84 fm. Endaíbúð í mjög góðu lagi. Laus fljótlega. Steinahlíð: Gullfallegt raðhús á tveimur hæðum, 5 herb., ca. 136 fm. Laus fljótlega. Þórunnarstræti: 4ra herb. íbúð á 2. hæð ca. 95 fm. Eignin er í góðu lagi. Áhvll- andi húsn. lán ca. 3,5 millj. Laus 1. júlí. Tjarnarlundur: 4ra herb. íbúð á 3. hæð ca. 84 fm. Áhvílandi húsn.lán ca. 3,5 millj. Laus fljótlega. FASIÐGNA&fJ SKIPASAUSS NORÐURLANDS fl Glerárgötu 36, sími 11500 Opið virka daga kl. 13-17 og á morgnana eftir samkomulagi. Sölustjöri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Benedikt Ólafsson hdl. nóvember árið 1934, dóttir hjón- anna Ingvars Eiríkssonar húsa- smiðs, sem nú er látinn, og Aðal- bjargar Sigurðardóttur húsmóð- ur, sem búsett er á Akureyri. Systur Dúddu eru Aðalbjörg María og Inga Sigrún, sem báðar eru búsettar á Akureyri. Þann 18. nóvember 1956 giftist Dúdda Emil Sigurbjörnssyni, góðum dreng sem studdi hana og hvatti allt til enda. Ég minnist stundar sem ég átti með Dúddu. Við ræddum gang lífsins og hún sagði: „Hann ræður þessu öllu, hann þarna uppi; við gerum ekki annað en að hlýða honum.“ Og svo sannarlega var þetta viðhorf hennar. Hún lifði í æðruleysi og kvartaði ekki. Við- kvæði hennar var að margir ættu erfiðara en hún. Elsku amma, Emil, Adda, Inga og fjölskyldur. Guð styrki ykkur og verndi á erfiðri stund. Gitta. Hið íslenska bókmenntafélag: Vorhefti Skímis 1992 Vorhefti Skírnis, Tímarits Hins íslenska bókmenntafélags, 166. árgangur 1992, er komið út. Skáld Skírnis er að þessu sinni Hannes Pétursson og eru tvö ljóð eftir hann frumbirt í þessu hefti. Myndlistamaður Skírnis er Louisa Matthíasdóttir; mynd hennar, Fólk í landslagi, er. á kápu ritsins og Aðalsteinn Ing- ólfsson ritar pistil um listamann- inn og verkið. Annar listfengur Vesturfari kemur einnig við sögu í heftinu, því birt eru áður óprentuð bréf Stephans G. Step- hanssonar til Jóns Kjærnested. Skírnir sækir einnig í Austurveg og minnist M.I. Steblin-Kamen- skijs, sem var forystumaður íslenskra fræða í Sovétríkjunum Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættisins á neðangreindum tíma: Helluhrauni 15, Mývatnssveit, þingl. eigandi Jón lllugason, þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Ketilsbraut 7, Húsavík, þingl. eig- andi Borg hf., þriðjud. 16. júní 1992, kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Söru ÞH-177 sksr.nr. 7056, hluti, þingl. eigandi Bjarni J. Guðmunds- son, þriðjud. 16. júní 1992, kl. 14.20. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Túnsbergi, Svalbarðsstrandar- hreppi, þingl. eigandi Sveinberg Laxdal, þriðjud. 16. júní 1992, kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður rikissjóðs. Bæjarfógeli Húsavíkur, Sýslumaður Þingeyjarsýslu. fyrrverandi. Helgi Haraldsson ritar um hann stutta grein og þýð- ir smásögu hans „Dreka“. Tengsl Islands og hins rússneska menn- ingarheims eru einnig til umfjöllunar í grein Áslaugar Agnarsdóttur um þýðingar Ingi- bjargar Haraldsdóttur á skáld- sögum Fjodors Dostojevskijs. Elsa E. Guðjónsson fjallar í ritgerð um það hvernig nýfundn- ar textilfornminjar varpa ljósi á íslenska prón- og vefnaðarsögu. Sigurður Steinþórsson gefur yfir- lit um samtímaviðbrögð Evrópu- búa við náttúruhamförum sem urðu árið 1783, sérílagi þeim mikla mekki sem gaus úr iðrum íslenskrar foldar í Skaftáreldum og teygði sig suður á nteginland Evrópu. Um þær mundir voru íslenskir menntamenn raunar að veita birtu upplýsingarinnar frá meginlandinu inn í íslenskt sam- félag, eins og Guðmundur Hálf- danarson rekur í grein um rann- sóknir á upplýsingarhræringum. Leiðin frá upplýsingu til rómatík- ur er stundum rakin frá Eggerti Ólafssyni til Jónasar Hallgríms- sonar en tengsl þeirra eru í brennidepli í ritgerð Dagnýar Kristjánsdóttur um „Hulduljóð“ Jónasar. „Hulduljóð" eru jafn- framt birt í heild með ritgerð hennar. Jón Sigurðsson skrifar ritgerð um Njáls sögu og Gudrun Lange um Kormáks sögu og glíma þau við grundvallarspurningar um nterkingarheim íslenskra forn- sagna og tengsl hans við klassíska menningarstrauma. I heftinu er einnig grein eftir Ástráð Ey- steinsson um nýjustu skáldsögur Steinars Sigurjónssonar og Guð- bergs Bergssonar, Kjallarann og Svaninn. Vorhefti Skírnis 1992 er 264 blaðsíður. Ritstjórar eru Vil- hjálmur Árnason og Ástráður Eysteinsson. Afgreiðsla Hins íslenska bókmenntafélags er í Síðumúla 21. (Fréttatilkynning). Aðalfundur MENOR Menningarsamtaka Norðlendinga verður haldinn laugardaginn 13. júní 1992, í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju og hefst kl. 10.30 árdegis. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fyrirhugað samstarf MENOR og Gilfélagsins á Akureyri. 3. Framtíð MENOR í Ijósi skiptingar Fjórðungssambands Norðlendinga. 4. Önnur mál. Félagar og annað áhugafólk um menningu og listir er hvatt til að mæta. „Æskan og listin“, dagskrá ungs listafóiks verður flutt í sal Safnaðarheimilisins kl. 12.15, og er öllum heimill ókeypis aðgangur. MENOR. AKUREYRARBÁER l|f Norsku- og sænskukennara vantar fyrir næsta skólaár. Um er að ræða 7-9 kennslustundir í hvoru tungumálinu. Umsóknum sé skilað á skólaskrifstofu Akureyrar fyrir 15. júní nk. Nánari upplýsingar á skólaskrifstofunni, Strand- götu 19 b, sími 27245. Skólafulltrúi. Oddeyrarskóli Laust er til umsóknar starf ritara við Oddeyrar- skóla (1/2 starf). Umsækjendur hafi reynslu af skrifstofustörfum. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur- eyrarbæjar. Upplýsingar um starfið gefa skólafull- trúi í síma 27245 og starfsmannastjóri í síma 21000. Umsóknarfrestur er til 19. júní. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur- eyrarbæjar Geíslagötu 9. Starfsmannastjóri. Viðgerðir - Þjónusta Þarf að líta á ritvelina, reiknivélina, búðarkassann eða faxtækið. Ef svo er komdu þá til okkar. Fijót og góð þjónusta. ■Bókabúðin EddaH ■■■ Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 ■■■ Þjónustusími 11744. Almennir bændafundir með Halldóri Blöndal landbúnaðarráðherra verða haldnir sem hér segir: Ýdalir, Aðaldal miðvikudaginn 10. júní kl. 21.00. Miðgarður, Skagafirði laugardaginn 13. júní kl. 13.30. Dagskrá fundanna: Landbúnaðarráðherra flytur ræðu um stöðu og horfur í landbúnaði. Almennar umræður og fyrirspumir. Fundirnir eru öllum opnir Landbúnaðarráðuneytið i't Faðir okkar, HANNES HALLDÓRSSON, Skarðshlíð 11, Akureyri, lést 5. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 12. júnf kl. 13.30. Þeim er vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og Sjálfsbjörg. Halldór Hannesson, Helgi Hannesson, Viktoría Hannesdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.