Dagur - 10.06.1992, Qupperneq 7
Miðvikudagur 10. júní 1992 - DAGUR - 7
Samskipadeildin í knattspyrnu:
Bragðdauft hjá Akureyrarliðunum
þrátt fyrir flögur mörk í jafnteflisleik
Akureyrarliðin, Þór og KA,
áttust við í Samskipadeildinni í
gær og eins og svo oft áður
voru leikar jafnir þegar upp
var staðið. Leikurinn var frem-
ur daufur þrátt fyrir að báðum
liðum tækist að skora tvö
mörk. KA-menn voru fyrri til
að skora og var það Gunnar
Már Másson sem gerði það
mark. Þórsarar skora svo tvö
mörk fyrir leikhlé, fyrst Hall-
dór Áskelsson og síðan Árni
Þór Árnason. Fljótlega eftir
leikhlé skorar Gunnar Már sitt
annað mark í leiknum. Fleiri
urðu mörkin ekki og staöan
því 2:2 þegar flautað var til
leiksloka.
„Við áttum að klára þetta,“
sagði Sigurður Lárusson, þjálfari
Þórs, eftir leikinn og sagðist afar
óhress með að missa leikinn nið-
ur í jafntefli. „Við vorum mun
betri aðilinn í leiknum, sérstak-
lega í fyrri hálfleik,“ sagði
- Þorsarar sitja enn einir í efsta sætinu í deildinni
Sigurður.
Gunnar Gíslason, þjálfari KA
var ekki sáttur við leik sinna
manna í fyrri hálfleik. „Menn
voru staðir og enginn virtist vilja
fá boltann. Þetta er dæmigert
stress,“ sagði Gunnar. Hann
sagðist vera nokkuð sáttur þegar
upp er staðið. „Þeir voru betri í
fyrri hálfleik en við í seinni svo
að líklega má segja að úrslitin séu
sanngjörn,“ sagði Gunnar Gísla-
son.
Leikurinn fór rólega af stað og
virtist sem menn væru lengi að
átta sig. Fátt markvert gerðist
fyrstu mínúturnar og það var
ekki fyrr en á 24. mínútu að
fyrsta markið leit dagsins ljós.
Sigþór Júlíusson átti þá lúmska
sendingu inn á Gunnar Má og
það var sem Þórsvörnin svæfi á
verðinum því Gunnar var skyndi-
lega kominn einn í gegn og skor-
aði framhjá Lárusi Sigurðssyni,
markverði. Eftir þetta sóttu Þórs-
ararnir í sig veðrið og ekki leið á
lörigu áður en Halldór Áskelsson
jafnaði með glæsilegu marki.
Sveinbjörn Hákonarson tók
hornspyrnu, sendi háan bolta inn
á miðjan vítateig KA-manna og
Halldór kastaði sér fram og skall-
aði boltann í hornið hjá Hauki
Bragasyni í markinu. Níu mínút-
um síðar skoruðu Þórsarar aftur
og var þar að verki Árni Þór
Árnason. KA-menn reyndu að
hreinsa frá marki sínu en ekki
vildi betur til en svo að boltinn
berst til Árna Þórs sem skoraði
með föstu skoti sem hafnaði í
varnarmanni og þaðan yfir Hauk
í markinu og inn. Gunnar Már
Másson var svo aftur á ferðinni
fyrir KA á 56. mínútu. Ormarr
Örlygsson prjónaði sig þá
skemmtilega inn fyrir vörn Þórs
og sendi á Pavel Vandas sem beið
á markteig. Hann skaut lausu
skoti í átt að marki og þar var
Gunnar Már réttur maður á rétt-
um stað og afgreiddi boltann í
netið.
Sem fyrr segir var leikurinn
frekar bragðdaufur og fátt um
fína drætti. Liðin virkuðu óstyrk
framan af og menn reyndu lítið
að spila boltanum. Þegar á heild-
ina er litið ættu bæði lið að geta
unað við annað stigið.
Erfitt er að taka einhverja leik-
menn út sem bestu menn en hjá
Þór var Sveinbjörn duglegur í
fyrri hálfleik og Örn Viðar var
lengst af traustur í vörninni hjá
KA.
Liö Þórs: Lárus Sigurðsson, Þórir
Áskelsson, Hlynur Birgisson, Júlíus
Tryggvason, Lárus Orri Sigurðson,
Sveinn Pálsson, Sveinbjörn Hákonarson
(gult spjald), Ásmundur Arnarson, Árni
Þór Árnason (gult spjald) (Birgir Þór
Karlsson 90. mín), Halldór Áskelsson,
Bjarni Sveinbjörnsson.
Lið KA: Haukur Bragason, Gunnar
Gíslason, Steingrímur Birgisson, Örn
Viðar Arnarson, Sigþór Júlíusson (Árni
Hermannsson 76. mín.), Ormarr Örlygs-
son, Bjarni Jónsson, Gauti Laxdal, Páll
V. Gíslason, Pavel Vandas (gult spjald),
Gunnar Már Másson.
Dómari: Sæmundur Víglundsson.
Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Svan-
laugur Þorsteinsson.
Gunnar Már Másson og Þórir Áskelsson í baráttunni á mánudagskvöld.
Mynd: Golli
Keppnin Aflraunameistari íslands á Akureyri 17. júní:
Sterkasti madur heims meðal keppenda
- einnig heimsmeistarinn í kraftlyftingum
Keppnin um titilinn Aflrauna-
meistari íslands fer fram á
Akureyri, 17. júní. Flosi Jóns-
son kraftlyftingamaður og
gullsmiður frá Akureyri er
skipuleggjandi mótsins auk
þess sem hann ætlar sjálfur að
keppa. Flosi sagði að flestir
sterkustu menn íslands, auk
sterkasta manns heims, myndu
taka þátt í mótinu.
Keppt verður t sjö greinum og
má búast við að vei verði tekið á.
Mótið stendur aðeins yfir í einn
dag, 17. júní og fer það fram við
íþróttahöllina, í sundlaugargarð-
inum og í kirkjutröppunum.
Þetta er í þriðja sinn sem mótið
er haldið og hefur það ávallt ver-
ið hin besta skemmtun fyrir
áhorfendur.
Magnús Ver Magnússon, sterk-
asti maður heims, tekur þátt í
mótinu og meðal annarra sem
taka þátt má nefna þá Guðna Sig-
urjónsson, heimsmeistara í kraft-
lyftingum, Andrés Guðmunds-
son, sigurvegara frá því í fyrra,
og heimamanninn Flosa Jónsson.
Hann sér einnig um alla fram-
kvæmd á mótinu.
í blaðinu næstu daga verða
keppendur mótsins kynntir, svo
og keppnisgreinarnar.
hór-KA 2:2
„Áttum skilið að sigra“
- segja markaskorarar liðanna
Fjögur mörk voru gerð á
Akureyrarvellinum í gær.
Gunnar Már Másson gerði tvö
mörk fyrir KA en þeir Halldór
Áskelsson og Árni Þór Árna-
son gerðu sitt markið hvor fyr-
ir Þór.
„Það var frekar ljúft að setja
tvö hjá Lalla, hann er mjög mikið
efni og menn eiga örugglega ekki
eftir að skora mikið hjá honum í
sumar,“ sagði Gunnar Már Más-
son en þeir Lárus Sigurðsson,
markvörður Þórs, eru fyrrum
félagar hjá Val. „Við áttum stigin
Halldór Áskelsson.
þrjú fyllilega skilin, það vantaði
bara herslumuninn á að við næð-
unt að skora meira,“ sagði Gunn-
ar Már.
Halldór Áskelsson gerði annað
mark Þórsara og hann sagðist
vera ósáttur við byrjunina í
seinni hálfleik. „Mér fannst við
vera með þetta og ég er viss um
að við hefðum haft þetta ef við
hefðum haldið dampi fyrstu
fimmtan mínúturnar í síðari hálf-
leik. Við gerðum það hins vegar
ekki og því eru úrslitin sjálfsagt
sanngjörn sagði,“ Halldór. Hann
sagði ennfremur að leikir Þórs og
KA væru alltaf miklir baráttu-
'leikir. „Menn eru stressaðri
fyrir þessa leiki en aðra og það
kemur niður á þeim fótbolta sem
spilaður er,“ sagði Halldór.
„Þetta var náttúrulega glæsi-
legt mark. Ég fékk smá aðstoð
hjá einhverjum KA-manni,“
sagði Árni Þór Árnason um
markið sem hann skoraði. „Við
vorum sterkari aðilinn í leiknum
og áttum skilið að sigra," sagði
Árni Þór. SV
Gunnar Már Másson.
Árni Þór