Dagur - 10.06.1992, Síða 9
8 - DAGUR - Miðvikudagur 10. júní 1992
Miðvikudagur 10. júní 1992 - DAGUR - 9
Iþróttir
Jón Haukur Brynjólfsson
1. deild kvenna
Þór- Valur 0:4
ÍA-Höttur 4:0
Stjarnan-Höttur Staðan: 9:0
UBK 3 3-0-0 21:1 9
Valur 3 3-0-0 6:0 9
ÍA 3 2-0-1 12:3 6
Stjarnan 3 1-1-110:2 4
KR 3 1-1-1 3:10 4
Þróttur N. 3 1-0-2 5:17 3
Þór 3 0-0-3 0:10 0
Höttur 3 0-0-3 1:15 0
3. deild
3. umferð: Ægir-TindastóII 1:2
Haukar-Grótta 3:2
Skallagrímur-Þróttur N. Dalvík-Völsungur 0:0 1:2
KS-Magni 1:5
Staðan: Tindastóll 3 3-0-0 9: 5 9
Þróttur N. 3 2-1-0 9: 3 7
Völsungur 3 2-1-0 6: 1 7
Magni 3 2-0-1 7: 3 6
Grótta 3 2-0-1 7: 4 6
Dalvík 3 1-0-2 4: 4 3
Haukar 3 1-0-2 6: 8 3
Skallagrímur 3 0-1-2 4: 8 1
Ægir 3 0-1-2 2: 6 1
KS 2 0-0-3 1:13 0
Samskipadeildin
3. umferð: Víkingur-Valur 2:1
FH-ÍBV 1:2
Þór-KA 2:2
ÍA-Fram KR-UBK Staðan: 2:0
Þór 3 2-1-0 4:2 7
Víkingur 3 2-0-1 4:4 6
KA 3 1-2-0 7:5 5
ÍA 3 1-2-0 5:3 5
FH 3 1-1-1 6:6 4
Valur 3 1-1-1 4:4 4
ÍBV 3 1-0-2 4:5 3
Fram 3 1-0-2 3:4 3
KR 2 0-1-1 3:5 1
UBK Markahæstir: 2 0-0-2 1:3 0
Ormarr Örlygsson, KA 4
Bjarni Sveinbjörnsson, Þór 2
Andri Marteinsson, FH 2
Grétar Einarsson, FH 2
Haraldur Ingólfsson, í A 2
Arnar Gunnlaugsson, í A 2
Tónias Ingi Tómasson, IBV 2
Atli Helgason Víkingi, 2
Gunnar Már Másson, KA 2
2. deild
3. umferð: ÍR-ÍIIK 2:1
Stjarnan-Fylkir 0:1
Grindavík-Selfoss 1:1
Leiftur-Þróttur R. 5:0
Víðir-BÍ 4:1
Staðan: Fylkir 3 3-0-0 8:2 9
Þróttur R. 3 2-0-1 6:8 6
ÍR 3 1-2-0 4:3 5
Leiftur 3 1-1-1 5:1 4
ÍBK 3 1-1-1 4:4 4
Víðir 3 1-1-1 5:6 4
Stjarnan 3 1-0-2 4:5 3
Selfoss 3 0-2-1 3:4 2
Grindavík 3 0-2-1 4:6 1
BÍ 3 0-1-2 5:9 1
Knattspyrna 3. deild:
Stórsigur Magna á Siglufirði
Heil umferð fór fram í 3. deild-
inni í knattspyrnu um helgina.
KS tapaði fyrir Magna, 1:5, á
Siglufírði, Tindastóll vann Ægi
í Þolákshöfn, 1:2, Völsungar
unnu Dalvíkinga á Dalvík, 1:2,
Haukar unnu sigur á Gróttu,
3:2 og Skallagrímur og Þróttur
N. skildu jöfn í Borgarnesi,
0:0.
Þunglamalegt í Þorlákshöfn
Tindastólsmenn sóttu þrjú stig til
Þorlákshafnar um helgina þegar
þeir unnu Ægi 1:2. Stólarnir byrj-
uðu mjög vel og komust yfir þeg-
ar einungis örfáar mínútur voru
búnar af leiknum. Pétur Péturs-
son tók aukaspyrnu rétt fyrir
utan teig og skoraði með glæsi-
legu skoti, 0:1. Lítið annað
markvert gerðist í leiknum í fyrri
hálfleik en Ægismenn jöfnuðu
svo metin í byrjun þess síðari.
Það var Kjartan Helgason sem
skoraði með föstum skalla sem
Gísli Sigurðsson, markvörður
- Stólarnir með fullt hús stiga eftir 3 umferðir
Tindastóls, réð ekki við. Þegar
u.þ.b tuttugu mínútur voru eftir
af leiknum skoraði Sverrir Sverr-
isson síðan sigurmark Tindastóls
eftir góðan undirbúning Björns
Björnssonar.
Leikurinn var fremur lítið fyrir
augað. Talsverður vindur var og
völlurinn þungur og háll eftir
rigningar undanfarinna daga.
Enginn var áberandi bestur í
frekar slöku liði Tindastóls en þó
má nefna að Gísli Sigurðsson,
markvörður greip vel inn í á
köflum. Magni Blöndal Péturs-
son, þjálfari og leikmaður Ægis
var allt í öllu hjá liðinu.
Yölsungar sigruöu
á Dalvík
Dalvíkingar fengu Völsunga í
heimsókn á mánudag og urðu að
sjá á eftir stigunum þremur til
Húsavíkur. Staðan var 1:1 þar til
u.þ.b. tvær mínútur voru eftir af
leiknum en þá skoruðu Völsung-
ar sigurmark leiksins. Fyrra mark
Völsunga gerði Skarphéðinn
ívarsson úr aukaspyrnu en Jón
Ö. Eiríksson jafnaði fyrir
Dalvík. Jónas Hallgrímsson
gerði svo út um leikinn með
marki tveimur mínútum fyrir
leikslok.
Guðjón Guðmundsson, þjálf-
ari Dalvíkinga, var að vonum
ósáttur við tapið. „Þetta var jafnt
allan tímann. Liðin skiptust á um
að sækja og sigurinn hefði getað
lent hvoru megin sem var,“
sagði Guðjón. Hann sagði að
bæði lið hefðu verið að spila
ágætis bolta og að allt annað
hefði verið að sjá til sinna
manna, en í undanförnum leikj-
um, þrátt fyrir tapið.
„Þetta var sanngjarnt, við
hefðum átt að vera búnir að gera
út um þetta miklu fyrr,“ sagði
Björn Ólgeirsson, þjálfari Völs-
unga.
Stórsigur Magna á KS
Magni Grenivík gerði góða ferð
til Siglufjarðar á mánudag og
Nói Björnsson og félagar gerðu góða ferð tii Siglufjarðar. Guðjón Guðmundsson og hans menn töpuðu fyrir Völs-
ungi-_____________________________________________________
Knattspyrna 2. flokkur:
KA úr leik en Þórsarar áfram
Fyrsta umferð bikarkeppninn-
ar í knattspyrnu 2. flokki fór
fram um helgina. Einherji frá
Vopnafírði átti að spila við Þór
en gaf leikinn. KA-menn lágu
fyrir Stjörnunni í lélegum leik,
2:4.
KA-menn í 2. flokki riðu ekki
feitum hesti frá leik gegn jafn-
öldrum sínum úr Stjörnunni frá
Garðabæ. í leikhléi var staðan
0:2, Stjörnumönnum í vil og í
þeim síðari bættu þeir öðrum
tveimur mörkum við. KA-menn
Körfubolti:
Landsliðið vaMð fyrir
undankeppni ÓL
Torfí Magnússon landsliðs-
þjálfari í körfuknattleik hefur
valið landslið íslands sem tek-
ur þátt í undankeppni Ólym-
píuleikanna sem fram fer á
Spáni 21.-26. júní.
Liðið leikur í C-riðli í Murcia á
Spáni. Leikið verður við Grikk-
land 22. júní, Þýskaland 23. júní,
Króatíu 24. júní, Rúmeníu 25.
júní og Portúgal 26. júní. Tvö
efstu liðin í riðlinum komast
áfram í úrslitakeppni undan-
keppninnar sem fram fer í Zara-
gossa. Eftirtaldir leikmenn voru
valdir: Axel Arnar Nikulásson,
KR, Páll Kolbeinsson, KR, Jón
Kr. Gíslason, ÍBK, Valur Ingi-
mundarson, UMFT, Guðmundur
Bragason, UMFG, Nökkvi Már
Jónsson, ÍBK, Guðni Guðnason,
KR, Magnús Matthíasson, Val,
Herbert Arnarson, Kentucky
Westline Univ., Tómas Holton,
Val, Falur Harðarson, Charlest-
on Southern Univ., Teitur
Örlygsson, UMFN. Þjálfari er
Torfi MagnÚSSOn. Fréttaskeyti
náðu svo að klóra örlítið í bakk-
ann með tveimur mörkum undir
lok leiksins. Mörk KA skoruðu
þeir ívar Bjarklind og Höskuldur
Þórhallsson. KA-menn spiluðu
ekki vel í þessum leik og þurfa
þeir að gera betur ef þeir ætla sér
að spila í 1. deild þessa aldurs-
flokks að ári.
Þórsarar komust áfram því
Einherjamenn sáu sér ekki fært
að mæta og gáfu leikinn. SV
ívar Bjarklind skoraði annað mark
KA-manna í tapleik gegn Stjörn-
unni.
vann stóran sigur á heimamönn-
um, 1:5. „Við vorum bara ein-
faldlega betri,“ sagði Nói
Björnsson, þjálfari Magna. Hans
menn voru komnir 0:2 yfír eftir
átta mínútna leik og voru sterkari
framan af. „Þeir voru ívið sterk-
ari rétt fyrir og eftir leikhlé en við
bættum þriðja og fjórða mlarkinu
við á stuttum kafla, snemma í
síðari hálfleik og þá var þetta
búið hjá þeim,“ sagði Nói. KS-
ingar náðu að setja eitt rrtark og
minnka muninn í 1-4 en Magna-
menn bættu sínu fimmta marki
við rétt undir lok leiksins. Mörk-
in fyrir Magna skoruðu Ólafur
Þorbergsson, Eymundur Eym-
undsson og Sverrir Heimisson
eitt hver og Hreinn Hringsson
tvö. Markið fyrir KS gerði Sveinn
Sverrisson.
Haukar fengu sín fyrstu stig í
3. deild þegar þeir lögðu Gróttu á
eigin heimavelli, 3:2. Mörk
Hauka gerðu þeir Óskar Theo-
dórsson eitt og Þór Hinriksson
tvö. Mörk Gróttu skoruðu Kristj-
án Brooks og Gísli Jónsson.
Skallagrímur og Þróttur N.
gerðu markalaust jafntefli í
Borgarnesi.
Þorlákur Árnason gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk fyrir Leiftur.
Knattspyrna:
Þorlákur skoraði 4 mörk í
stórsigri Leifturs á Þrótti R
Stórleíkur 2. deildar var ílÓlafs-
fírði á mánudagskvöldið þegar
Leiftursmenn burstuðu Þrótt
R. 5:0. Þróttarar byrjuðu örlít-
ið betur en heimamenn en þeir
síðarnefndu náðu að skora eitt
mark í fyrri hálfleik. í síðari
hálfleik var alger einstefna að
marki Þróttara og skoruðu
Leiftursmenn fjögur mörk.
Heimamenn spiluðu mjög vel í
þcssum leik og verður gaman
að fylgjast með framhaldinu
hjá þeim ef fram heldur sem
horfír.
„Ég er himinlifandi með sigur-
inn. Dagsskipunin var sigur og
ekkert annað en sigur því við
vorum bara með eitt stig fyrir
leikinn,“ sagði Marteinn Geirs-
son. Hann sagðist hafa átt von á
hörkuleik og sigurinn því stærri
en hann hafi átt von á. Marteinn
sagði þó að miðað við gang leiks-
ins hafi sigurinn síst verið of stór.
Þróttarar byrjuðu betur í
leiknum en náðu þó ekki að
skapa sér nein veruleg marktæki-
færi. Fyrri hálfleikurinn var tíð-
indalítill ef undan er skilið fyrsta
mark Leiftursmanna, sem kom á
40. mínútu. Goran tók þá innkast
og Friðrik Einarsson spyrnti bolt-
anum inn í teiginn þar sem Þor-
lákur Árnason lagði hann fyrir
sig og skoraði, 1:0.
Síðari hálfleikurinn var alger-
lega í eign heimamanna og
spurningin aðeins hversu stór
sigurinn yrði. Annað mark Leift-
urs kom á 65. mínútu þegar
Goran sendi á Þorlák sem lék á
Halldór, í marki Þróttar, og skor-
aði, 2:0. Eina umtalsverða færi
Þróttara í síðari hálfleik kom á
71. mínútu. Þeir fá þá auka-
spyrnu rétt utan vítateigs en Þor-
valdur, í marki Leifturs, varði vel
í horn. Aðeins örfáum mínútum
síðar var Þorlákur enn á ferðinni
fyrir Leiftur og skoraði eftir góð-
an undirbúning Gorans, 3:0.
Fjórða markið skoraði svo Þor-
lákur eftir góða fyrirgjöf frá
Gunnlaugi Sigursveinssyni. Þor-
lákur tók við boltanum og þrum-
aði efst í marknetið, glæsilegt
mark og staðan orðin 4:0. Goran
átti svo síðasta orðið með marki
á 85. mínútu og verðskuldaður
sigur heimamanna var í höfn,
5:0.
Leiftursliðið spilaði allt mjög
vel í leiknum en ef taka á ein-
hverja út má nefna þá Þorlák
Árnason og Sigurbjörn Jakobs-
son sem spiluðu mjög vel að
þessu sinni. KH/SV
Handknattleikur:
Jakob áfram í Noregi
Jakob Jónsson, handknatt-
leiksmaður, hefur framlengt
samning sinn hjá norska liðinu
Viking í Stavanger. Hann
gerði samning til tveggja ára
síðastliðið haust, og var sá
samningur í endurskoðun nú á
dögunum.
Jakob sagði í samtali við
blaðamann að hann yrði a.m.k.
eitt ár ennþá hjá félaginu og átti
allt eins von á því að þau yrðu
fleiri. „Ég hitti stjórnarmenn
félagsins fyrir helgi þar sem málin
voru rædd varðandi næsta ár.
Þeir létu í ljós áhuga sinn á því að
ég yrði áfram hjá félaginu og
buðu mér samning sem ég er
mjög ánægður með,“ sagði
Jakob. Hann sagði að liðið væri
byrjað að æfa fyrir næsta vetur en
vegna verkfalls væru öll íþrótta-
hús lokuð. „Við æfum hérna á
ströndinni í frábæru veðri, bæði
Jakob Jónsson verður í Noregi enn
um sinn
hlaup og kraftæfingar," sagði
Jakob og bætti við að allar
aðstæður hjá félaginu væru mjög
góðar og að það þyrfti mikið að
gerast til þess að hann færi frá
félaginu.
Eins og menn eflaust muna var
talsvert skrifað um það, eftir B-
Heimsmeistarakeppnina í vor, að
Jakob ætti möguleika á því að
komast í norska landsliðshópinn.
Jakob er norskur ríkisborgari
eins og kunnugt er. Aðspurður
hvort eitthvað væri að frétta af
þeim málum kvaðst hann ekkert
hafa heyrt frá þeim ennþá. „Ég
vænti þess að verða valinn í ein-
hvern æfingahóp varðandi lands-
liðið, en geri mér frekar litlar
vonir um að komast alla leið,“
sagði Jakob. SV
1. deild kvenna:
Þór tapaði fyrir Val
- liðið enn án stiga í deildinni
Þórsarar töpuðu fyrir Val í 1.
deild kvenna á föstudagskvöld-
ið, 0:4. Leikurinn var mun
jafnari en tölurnar segja til um
því mörkin sem þær fengu á sig
voru af ódýrara taginu. Þetta
var þriðji tapleikur Þórsara í
röð.
„Ég hef í raun ekkert um þetta
að segja,“ sagði Guðmundur
Svansson, þjálfari Þórs. „Við
vorum ekkert minna með bolt-
ann, fengum ágæt færi en náðum
ekki að skora. Hins vegar fáum
við á okkur mjög ódýr mörk,“
bætti Guðmundur við.
Leikurinn fór frekar rólega af
stað og skiptust liðin á að sækja.
Talsverður vindur var og sóttu
Þórsarar undan í fyrri hálfleik.
Talsverð hætta skapaðist við
mark Valsara eftir vel teknar
horn- og aukaspyrnur Steinunnar
Jónsdóttur, besta leikmanns Þórs.
Herslumuninn vantaði þó upp á
að einhver sóknarmaður Þórsara
næði að reka haus eða tá í bolt-
ann og var eins og stelpurnar
væru ekki nógu grimmar upp við
markið. Valsstúlkurnar voru
mun ákveðnari í sóknaraðgerð-
um sínum og uppskáru tvö mörk
fyrir leikhlé. Hjördís Símonar-
dóttir skoraði bæði mörkin.
Síðari hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri og skiptust liðin á að
sækja, Valsstúlkur undan vindin-
um og voru heldur sterkari. Þær
bættu við þriðja markinu stuttu
eftir leikihlé og fjórða markið
kom svo um miðjan hálfleikinn.
Helga Ósk Hannesdóttir og
Guðrún Sæmundsdóttir skoruðu
mörkin.
Sem fyrr segir var leikurinn
mun jafnari en úrslitin segja til
um þótt sigur Vals hafi verið fylli-
lega verðskuldaður. Best hjá Þór
var Steinunn Jónsdóttir og höfðu
menn á orði að þar færi stúlka
sem ætti að geta komið til greina
í landslið íslands. Þrjú gul spjöld
voru gefin í leiknum. Tvö til
Valsstúlkna og eitt til Þórsara,
Þórunn Sigurðardóttir fékk
spjald fyrir að slæma hönd í
boltann. SV
Steinunn Jónsdóttir og Inga Huld Pálsdóttir í baráttunni á móti Val.
Gullbikarinn í golfi:
Bjöm sigraði án forgjafar
Fyrsta 36 holu golfmót ársins
fór fram hjá Golfldúbbi Akur-
eyrar um helgina. Keppt var
um Gullsmiðabikarinn, sem
gefínn er af Pétri Breiðfjörð
hjá Gullsmiðum Sigtryggi og
Pétri, og var spilað bæði með
og án forgjafar. .Valdemar Örn
Pálsson var hlutskarpastur í
keppni með forgjöf en Björn
Axelsson án forgjafar. Kepp-
endur voru 40 og þar af aðeins
ein kona.
Fimm efstu keppendur í hvor-
um flokki:
Án forgjafar: högg
1. Björn Axelsson GA 150
2. Ólafur A Gylfason GA 155
3. Skúli Ágústsson GA 159
4. Sigurður H Ringsted GA 160
5. Jón Steindór Árnason GA 162
Með forgjöf:
1. Valdemar Örn Valsson GA 136
2. Haraldur Júlíusson GA 139
3. Björn Axelsson GA 142
4. Unnar Þór Lárusson GA 143
5. Skúli Ágústsson GA 145
SV
Sigurvegarar í keppni um Gullsmiöabikarinn í golfi. Frá vinstri: Haraldur Júlíusson, Skúli Ágústsson, Bjöm Axels-
son, Ólafur A. Gyifason og Valdemar Örn Valsson, allir í GA. mynd: sv.
I