Dagur - 10.06.1992, Page 15
Miðvikudagur 10. júní 1992 - DAGUR - 15
Daníel í Árgerði níræður
Pann 21. maí sl. varö níræður
Daníel Á. Daníelsson í Árgerði,
fyrrverandi héraðslæknir Dalvík-
urlæknishéraðs. Hann er fæddur
21. maí 1902 að Hóli í Mosvalla-
hreppi í Önundarfirði. Foreldrar
hans voru Guðný Kristín Finns-
dóttir frá Kirkjubóli í Valþjófs-
dal í Önundarfirði en faðirinn
Daníel Bjarnason frá Tannanesi í
Önundarfirði. Þetta kváðu vera
sterkar ættir vestfirskra bænda og
sjómanna, sem Daníel læknir er
runninn af. Faðir hans var sjó-
maður og smiður og bræður hans
voru sjómenn. Tveir þeirra,
Bjarni og Guðmundur, fórust á
sjó, ungir menn, en sá þriðji,
Finnur, fyrrverandi togaraskip-
stjóri, býr á Akureyri, maður á
níræðisaldri.
Daníel braut sér aðra leið og fór
í langskólanám, fyrst í Sam-
vinnuskólann í Reykjavík einn
vetur. Síðan lá leið hans til Norð-
ur-Ameríku þar sem hann stund-
aði menntaskólanám og tók
stúdentspróf 1928 eða 29. Hann
kaus sér læknisfræði að ævistarfi
og nam þau fræði hérlendis og
varð cand. med. frá Háskóla
íslands 1935. „Kandfdatsár" sitt,
1936-37, vann hann á Landspítal-
anum í Reykjavík.
Daníel varð héraðslæknir á
Hesteyri í Jökulfjörðum. Sléttu-
hreppi 1938-39. Dvalar sinnar
þar minnast þau hjónin ineð
ánægju þrátt fyrir frumstæð lífs-
skilyrði og örðugar samgöngur.
Það var sérstæð og dýrmæt lífs-
reynsla. Síðan var hann starfandi
læknir á Siglufirði 1939-44 og á
þaðan margar skemmtilegar
minningar. Héraðslæknir varð
Daníel í Svarfdælalæknishéraði á
Dalvík í nóv. 1944 og hélt því til
1972, er hann varð sjötugur.
Ofanskráðar upplýsingar eru
að mestu teknar úr uppsláttarrit-
um: Svarfdælingum 11 og íslensk-
um samtíðarmönnum.
En þetta er aðeins ramminn
utan um æviskrá óvenjulegs
inanns, sem Daníel læknir í Ár-
gerði er. Sú skrá verður hcldur
ekki rakin hér. Aðeins skrifuð
nokkur orð í tilefni dagsins, 21.
maí.
Daníel kvæntist 10. júní 1938
Dýrleifu Friðriksdóttur, Ijósmóð-
ur, frá Efri-Hólum í Húpasveit,
nú Öxarfjarðarhreppi. Börn
þeirra hjóna eru Guðný læknir,
Friðrik efnaverkfræðingur og
Bjarni skólastjóri Myndlistaskól-
ans, öll búsett í Reykjavík.
Skömmu eftir komuna til Dal-
víkur keyptu hjónin af Ingimar
Óskarssyni gamla timburhúsið í
Árgerði, sem fyrsti læknir hér-
aðsins, Sigurjón Jónsson, hafði
látið flytja frá Grenivík og endur-
reisa hér 1907. Þar byggðu þau
síðan steinhúsið, sem þar stendur
nú, á einum fegursta stað, sem
fyrirfinnst í Svarfdælabyggð og
þótt víðar væri leitað. Á þessum
stað í „hvíta húsinu" .við ána búa
þa.u hjónin enn.
Það mun vera sammæli manna
í héraðinu, að Daníel væri liinn
besti héraðslæknir, samviskusam-
ur. glöggskyggn og „heppinn" í
störfum sínum, eins og stundum
er að orði komist um lækna og
Ijósmæður, sem vel gengur í
starti. Þetta viðhorf kom glóggt
fram við verkalok Daníels, er
hann lét af opinberu læknisstarfi
1972. Þá undirritaði stór hópur
héraðsbúa þakkarávarp og árn-
aðaróskir til læknisins.
Sennilega hafa menn almennt
búist við, að gömlu læknishjónin
væru senn á förum suöur, þangað
sem llestir opinberir embættis-
menn hverfa að loknu starfi. En
ekki Dýrleif og Daníel læknir.
Nú 20 árum síðar eru þau enn „á
sínum stað“ mitt á meðal vor og
fylgjast grannt með gangi mála í
héraðinu.
Skyldi ekki gamli læknirinn
liafa forpokast óskaplega þarna í
fásinninu? Nei, ekki aldeilis.
Daníel í Árgerði er ekki einn
þeirra, sem leyfir sér að forpok-
ast. Og hann lifir heldur ekki í
neinu fásinni. Þvert á móti. Hann
lifir, fyrir tilstyrk bóka sinna,
a.m.k. hálfu lífi í fjölskrúðugum
heimi bókmennta og lista og á
daglegt samneyti við andans
jövra heimsbókmenntanna bæði
austan hafs og vestan. Það er
öðru fremur ljóðsins list, sem
hefur haldið huga hans föngnum,
líklega allt frá unga aldri. Og
hann lætur sér ekki nægja að
njóta sjálfur andans ávaxtar
erlendra meistara, heldur hefur
hann á langri ævi haft það að
tómstundagamni að þýða ljóð
þeirra á íslenska tungu, sem
heimtar að þýðandinn virði
„stuðlanna þrískiptu grein" og
aðrar hömlur hins hefðbundna,
íslenska Ijóðforms og gerir hon-
um oft svo yfirmáta erfitt fyrir.
Fyrir Daníel í Árgerði eru
ljóðaþýðingar e.t.v. fyrst og
fremst íþrótt, sem er yndi að
stunda og gefur tímanum inni-
hald. En að öðrum þræði líka
löngun til að miðla öðrum
nokkru af anda höfuðskálda
evrópskrar Ijóðagerðar að fornu
og nýju.
Eg styð þessar ályktanir mcð
tilvísun til bókar þeirrar gagn-
merkrar, sem út kom á vegum
Menningarsjóðs 1989. Þar birtast
þýðingar hans á sonnettum
Shakespeares í heild auk merki-
legrar ritgeröar um líf og starf
„trúbadoranna" svonefndu í
Frakklandi miðalda og víðar.
Fyrir þessi verk sín hlaut Daníel
læknir lof bæði fagurkera og
meinhorna og leyfi ég mér að
taka á þeim mark.
Hér fyrir utan þyrfti að nefna
frumsamin Ijóð Daníels, sem að
viti undirritaðs eru sum stórgóð,
þ.ám. náttúrulýsingar og erfi-
Ijóð, sem sum hafa birst á prenti
en önnur hvcrgi.
Þetta greinarkorn er ritaö til að
sýna Daníel lækni lit á þakkláts-
semi fyrir mjög góð og gagnleg
kynni. Það er hann, sem afmælið
á svo hann er í sviðsljósinu. Þar
fyrir er Dýrleif ekki gleymd.
Hvernig mætti það líka vera,
þegar rætt er um eiginmanninn,
svo lengi og vel, sem þau tvö hafa
bollokað saman allt frá þrönga
læknisbústaðnum á Hesteyri til
hvítu hallarinnar á Árgerðishóln-
um? Þau hafa með langri dvöl
sinni hér lyft menningunni í
Svarfdælahéraði þónokkra þuml-
unga upp frá grasrótinni.
Fyrir hönd lesenda blaðsins
sendi ég Árgerðishjónum og
börnum þeirra bestu heilla-
kveðjur. Ég óska Daníel þess, að
hann fái notið samvista viö það
besta úr bókmenntaheiminum,
innlendum og erlcndum, svo
lengi sem ævi endist.
Hjörtur E. Þórarinsson.
Rauði kross íslands og Landsbjörg:
Sjúkrapúði í hvern bíl!
Sjálfboðaliðar Rauða kross
íslands og Landsbjargar,
landssambands björgunarsveita,
ganga fyrir hvers manns dyr á
næstu dögum og selja sjúkra-
púða. í púðunum eru nauð-
synlegustu sjúkragögn til að
búa um flest opin sár, sem oft
eru fylgifiskar slysa.
Söluátakið hófst á uppstignin-
ardag og stendur fram yfir hvíta-
sunnu. Markmiðið er að gefa sem
flestum tækifæri til að eignast
sjúkrapúða áður en fólk leggur
land undir fót í sumarleyfi. Þegar
ferðast er um landið er oft langt í
læknis- og öryggisþjónustu og því
brýnna en endranær að hafa
sjúkrapúða í bílnum. Púðana má
einnig nota á heimilum, í sumar-
bústöðum, sportbátum og með
viðleguútbúnaði.
„Kaupandi sjúkrapúða stuðlar
ekki einungis að eigin öryggi og
sinna nánustu - hann tekur þátt í
að ríða öryggisnet, sem er trygg-
ing fyrir okkur öll. Því miður er
þetta öryggisnet ekki nógu þétt
hér á landi. Það er raunar gisnara
en útbreiðsla sjúkrapúða gefur til
kynna, því mikið vantar á að eig-
endur sjúkrapúða haldi þeim við
og endurnýi sem skyldi, en
plástrar, grisjur og annað því um
líkt fúnar með árunum. Hagnað-
ur af sölu púðanna rennur til
uppbyggingar björgunarstarfs í
landinu og til Rauða kross
íslands og deilda RKÍ." ój
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Borgarhlíð 11 c, Akureyri, þingl. eig-
andi Ingibjörg Tryggvadóttir, föstu-
daginn 12. júni 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Óskar Magnússon hdl.
Brekkugata 9, Hrísey, þingl. eigandi
Ársæll Alfreðsson o.fl., föstudaginn
12. júní 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Sigríður
Thorlacius hdl.
Byggðavegur 111, Akureyri, þingl.
eigandi Gunnar Blöndal og Margrét
Magnúsdóttir, föstudaginn 12. júní
1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Ásgeir Thoroddsen hrl.
Dýrholt, Svarfaðardal, þingl. eigandi
Dalalæða hf., föstudaginn 12. júní
1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Búnaðarbanki fslands.
Karlsbraut 2, Dalvík, þingl. eigandi
Sigurður Kristmundsson, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs og
Gunnar Sólnes hrl.
Lokastígur 2, íb. 101, Dalvík, þingl.
eigandi Hannes Sveinbergsson,
föstudaginn 12. júní 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Ránargata 10 b, Akureyri, þingl.
eigandi Eyfirsk matvæli hf., föstu-
daginn 12. júní 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigríður Thorlacius hdl. og Ólafur
Gústafsson hrl.
Rimasíða 13, Akureyri, þingl. eig-
andi Birna Sigurðardóttir, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Gústafsson hrl. og Húsnæð-
isstofnun ríkisins.
Skipagata 14, 2. hæð, norðurhl.
o.fl., þingl. eigandi Iðja félag verk-
smiðjufólks, föstudaginn 12. júní
1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
Sólvallargata 1, Hrísey, þingl. eig-
andi Ásgeir Halldórsson, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Innheimtumaður ríkissjóðs.
Sunnuhlíð 21 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Aðalheiður B. Vilhelmsdóttirog
Einar Viðarsson, föstudaginn 12.
júní 1992, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Tungusíða 2, Akureyri, þingl. eig-
andi Bernharð Steingrímsson,
föstudaginn 12. júní 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hreinn
Pálsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Ásabyggð 6, Akureyri, þingl.eigandi
Uppinn hf., föstudaginn 12. júní
1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Gunnar
Sólnes hrl., Ólafur Birgir Árnason
hrl., Bæjarsjóður Akureyrar og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bárugata 2, efri hæð, Dalvík, þingl.
eigandi Þorsteinn J. Haraldsson
o.fl., föstudaginn 12. júní 1992, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Ólafur Birgir Árnason
hrl.
Björnshús, Hjalteyri, þingl. eigandi
Einar Helgason o.fl., föstudaginn
12. júní 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins, inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Sigríður Thorlacius
hdl.
Hólabraut 19, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eigandi Frímann Jóhanns-
son, föstudaginn 12. júní 1992, kl.
15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Ásgeir Þ. Árnason hdl.
Hringtún 5, Dalvík, þingl. eigandi
Magnús I. Guðmundsson, föstu-
daginn 12. júnf 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Benedikt Ólafs-
son hdl., Arnar Sigfússon hdl. og inn-
heimtumaður rfkissjóðs.
Langamýri 32, e.h., Akureyri, þingl.
eigandi Álfhildur Pálsdóttir, föstu-
daginn 12. júní 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Ólafur Birgir Árnason hrl.
Lækjargata 4, e.h., Akureyri, þingl.
eigandi Magnús Jónsson, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl., Hús-
næðisstofnun rfkisins og Gunnar
Sólnes hrl.
Melasíða 5 e, Akureyri, þingl. eig-
andi Stjórn Verkamannabústaða,
föstudaginn 12. júní 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Melasíða 6 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Ingvar Kristjánsson, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Sjávargata 4, Hrísey, þingl. eigandi
Birgir Sigurjónsson, föstudaginn 12.
júní 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Eggert B. Ólafsson hdl.
Smárahlíð 4g, Akureyri, þingl. eig-
andi Björn Valdimarsson, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ásgeir Þ. Árnason hdl., Ásgeir Thor-
oddsen hrl., Gunnar Sólnes hrl. og
innheimtumaður ríkissjóðs.
Strandgata 31, Akureyri, þingl. eig-
andi Útgáfufélag Dags - Dagsprent
hf„ föstudaginn 12. júní 1992, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Þverá II, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig-
andi Ari Biering Hilmarsson, föstu-
daginn 12. júní 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Hafsteinn Hafsteinsson hrl.
Ægisgata 23, Akureyri, þingl. eig-
andi Sigurður Pálmason, föstudag-
inn 12. júní 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl. og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Reykingamenn!
Vitið þið hversu mörg slys hafa hlotist
af sigarettueldi?