Dagur - 10.06.1992, Qupperneq 16
Akureyri, miðvikudagur 10. júní 1992
Hadegistilboð alla daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauðum fylgja öllum aöalréttum og pizzum
Frí heimsendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingahús
VEITINGAHUSIÐ
Glerargotu 80 • ® 86690
Bændur í EyjaQarðarsveit þreifa sig áfram í byggrækt:
Getur svalað 60% af kjamfóðurþörfinni
- segir Óskar Kristjánsson, bóndi í Grænuhlíð
Þrír bændur í Eyjafjarðarsveit
standa nú að byggræktun á
jörðinni Miðgerði þriðja árið í
röð. Að þessu sinni var sáð í 14
hektara en þær tilraunir sem
bændurnir hafa gert hafa tekist
vel og fóðra kýrnar sig vel á
búunum. í fyrra var sáð í um 3
hektara þannig að nú er stigið
mun stærra skref í þessari
ræktun en áður.
Síðustu tvö ár hafa Óskar
Kristjánsson í Grænuhlíð og
Félagsbúið í Garði staðið að
byggræktinni en í ár bættist Sig-
urgísli Sveinbjörnsson á Hrísum í
hópinn. Óskar sagðist í samtali
við blaðið hafa malað byggið í
vetur og fóðrað kýrnar á því.
„Ég álít að byggið geti gefið
um 60% af því kjarnfóðri sem
þarf að nota. Enn sem komið er
hef ég gefið byggið beint en ef
feta ætti í fótspor alvöru korn-
ræktenda þá kæmi hvert bú sér
upp fóðurblöndunarstöð til að
laga sína eigin fóðurblöndu. Ég
hugsa hins vegar ekki svo stórt og
mala mitt korn frá degi til dags til
að gefa kúnum,“ sagði Óskar.
Ef vel gengur með ræktina í
sumar segir Óskar ætlunina að
Fjölnismenn hf.
gjaldþrota:
Skuldir 50-70
miUjónir
umfram eignir
Byggingafyrírtækið Fjölnis-
menn á Akureyri hefur verið
úrskurðað gjaldþrota. Beiðni
um gjaldþrotaskipti var lögð
fram síðdegis á föstudag og er
úrskurður fyrirliggjandi.
Brynjólfur Kjartansson, hrl. í
Reykjavík, verður skiptastjóri
í þrotabúinu.
Skuidir Fjölnismanna við
gjaldþrotið eru um 120 milljónir
króna en eignir eru metnar á 50-
70 milljónir króna. f>ar er fyrst og
fremst um að ræða verkstæðishús
að Óseyri 8, auk véla og tækja
fyrirtækisins.
Fjölnismenn hf. voru með í
byggingu íbúðir í Huldugili, rað-
hús við Vestursíðu auk verkefnis
í Síðuskóla. Að sögn Erlings Sig-
tryggssonar, hjá embætti skipta-
ráðandans á Akureyri, hefur eng-
in ákvörðun verið tekin um fram-
hald þeirra en það er þrotabúið
sem tekur afstöðu til slíks.
Um 25 starfsmenn voru hjá
Fjölnismönnum þegar fyrirtækið
varð gjaldþrota. JÓH
þurrka hluta af uppskerunni í
haust. Petta var reynt í fyrra þar
sem byggið var þurrkað hjá
Krossanesverksmiðjunni og síð-
an notað í blöndu sem löguð var
fyrir félagsbúið í Garði hjá fóður-
vörudeild KEA. Óskar segir að
þetta hafi tekist ágætlega og hafi
kýrnar étið þetta fóður mjög vel.
Jörðin Miðgerði liggur vel við
kornrækt en byggið er nú ræktað
á ökrum sem áður voru ræktuð
tún. Óskar vísar því á bug að
kornrækt geti ekki komið undir
sig fótunum hérlendis. „Þetta er
vitleysa. Ef hægt er að rækta
kartöflur þá er hægt að rækta
korn. En auðvitað getur korn-
ræktin farið á hinn versta veg ef
þannig eru aðstæður. Miðgerði er
líkast til lang besta jörð hér í
Eyjafirði til að rækta korn. Þar er
langur sólargangur og landið ligg-
ur það hátt að frosthætta er lítil,“
sagði Óskar.
Kornið verður væntanlega
slegið í lok september næstkom-
andi. Takist vel til gætu fengist
3,5-4 tonn af hektara en Óskar
segir ekki óraunhæft að ætla að
fengist geti um 50 tonn að þessu
sinni.
„Hugmyndin er sú að í fram-
tíðinni getum við blandað okkar
fóður sjálfir en ég malaði sjálfur í
vetur og gaf jafnframt fóður-
blöndu. Þetta var því ekki afger-
andi sparnaður í rekstrinum en
það getur orðið þegar fram í
sækir,“ sagði Óskar. JÓH
Húsavík:
Atviimulausum útveguð
tveggja mánaða vinna
- þetta er engin framtíðarlausn, segir
Einar Njálsson, bæjarstjóri
Atvinnuleysistryggingasjóður
hefur samþykkt að ganga til
samstarfs við Húsavíkurbæ og
greiða bænum upphæð sem
svarar til atvinnuleysisbótum
23 manna í tvo mánuði, gegn
því að bærinn ráði þetta fólk í
vinnu og greiði því sem svarar
mun á bótunum og taxtakaupi,
auk trygginga og launatengdra
gjalda.
Upphæðin frá Atvinnuleysis-
tryggingasjóði nemur um 2,3
milljónum og bærinn þarf að
leggja fram á móti 2,3 til 2,5 mill-
jónir. Bærinn hyggst nýta vinnu-
aflið til sérstaks verkefnis við
hreinsun og tiltekt á hafnarsvæð-
inu, auk þess sem hópur mun
starfa við gróðursetningu og
landgræðslu. í sumar verða
gróðursettar milli 200 og 250 þús-
und plöntur í bæjarlandið.
Húsavík er fyrsti bærinn sem
fær slíkt framlag úr sjóðnum, en
fleiri bæjarfélög hafa sent inn
umsóknir og hefur Akureyrarbær
m.a. verið beðinn um nánari
skýringar á notkun hugsanlegrar
fjárveitingar.
„Þetta hefur verið að veltast í
kerfinu, við sendum inn umsókn
í fyrra en fengum ekki framlag og,
svo sendum við inn endurnýjaða
umsókn í vetur,“ sagði Einar
Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík.
Bærinn er skuldbundinn til að
ráða fólk sem er á atvinnuleysis-
skrá til þessa verkefnis. Ráðið
verður fólk sem verið hefur lengi
á skrá, án þess að fá atvinnu.
„Það er ágætt að þetta samstarf
skuli hafa komist á þegar ástand-
ið er með þessum hætti, heppi-
legra er að nota hluta af því fé
sem fer til atvinnuleysisbóta til að
koma fólki í vinnu. En auðvitað
vildum við helst vera laus við að
þurfa á svona aðgerðum að halda
og heppilegast að næg atvinna
væri fyrir hendi. Þetta er tíma-
bundið verkefni og engin fram-
tíðarlausn,“ sagði bæjarstjóri.
IM
„Þú fœrð ekkert hjá mér.
Mynd: Golli..
Eyjagarðarsveit:
Fyrstu tún slegin
Sláttur hófst á bænum Stóra-
hamri I í Eyjafjarðarsveit í
fyrrinótt. Að sögn Boga Þór-
hallssonar, bónda, eru þau tún
sem fyrst var borið á vel sprott-
in og segir hann ekki eftir
neinu að bíða.
„Þetta er búin að vera þvílík
tíð að undanförnu að tæplega er
hægt að hugsa sér betra. Um
tíma var kannski full þurrt en að
undanförnu hefur tíðin verið
mjög góð og víða komið gott
gras,“ sagði Bogi.
Síðdegis í gær var hann búnn
að slá um 3 hektara og sagðist
Bogi halda áfram óhikað. „Þetta
lítur mjög vel út og það þarf ekki
að bíða eftir meiri sprcttu," sagði
Bogi. JOH
Menntaskólinn á Akureyri:
Nemendur á fyrsta ári 175
- 8,5% niðurskurður kemur niður á tímaíjölda
Menntaskólinn á Akureyri hef-
ur fengið 220 umsóknir um
skólavist á fyrsta ári. Að sögn
Tryggva Gíslasonar, skóla-
meistara MA, verða 175
nýnemar skráðir á fyrsta ár en í
fyrra voru þeir óvenjulega
margir eða rúmlega tvöhund-
ruð. Þótt færri nýnemum verði
veitt skólavist í ár er það ekki
vegna niðurskurðar á fjárlög-
um ríkisins 1992 heldur verður
Hvítasunnuhelgin:
Slysalaust í umferðinm
Mikil umferð var á Norður-
landi um helgina enda fyrsta
ferðahelgi ársins. Lögreglu-
menn eru þó sammála um að
umferðin hafi gengið greiðlega
fyrir sig og urðu engin umferð-
aróhöpp, svo vitað sé.
Frá því á fimmtudag til mánu-
dagskvölds voru um 30 ökumenn
á svæði Akureyrarlögreglunnar
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Ingimar Skjóldal, varðstjóri, seg-
ir að enginn þeirra hafi farið yfir
130 km. hraða og því var ekki um
ökuleyfissviptingar að ræða.
Hjá lögreglunni á Blönduósi
fengust álíka upplýsingar.
Umferð var þung á föstudag og á
mánudag en gekk þokkalega fyrir
sig. JÓH
niðurskurði mætt með fækkun
kennslustunda.
„í 28 kennslustofur getum við
komið 630 nemendum. Það eru
tvær aðferðir til að mæta niður-
skurði á rekstrarfé. Önnur er sú
að fækka nemendum en þá myndi
rekstrarfé skólans lækka enn frek-
ar því það er miðað við fjölda
nemenda. Þess vegna ætlum við
að fækka kennslustundum í viss-
um námsgreinum," segir Tryggvi
og nefnir sem dæmi kennslu í
framburði erlendra tungumála.
Auk þess verður ein af þremur
kennslustundum í íþróttum á viku
skorin niður en aðsókn nemenda í
íþróttakennslu hefur verið dræm
víða í framhaldsskólum. Alls
verða um 100 af 1200 kennslust-
undum á viku skornar niður á
næsta skólaári. Sparnaður í
rekstri MA nemur fjórum stöðu-
gildum kennara eða um 8,5% en
flatur niðurskurður á fjárveiting-
um er 7% auk þess sem tekið
verður fyrir aukafjárveitingar
sem tíðkast hafa.
Ljóst er að MA þarf að vísa frá
nokkrum fjölda umsækjenda
vegna skorts á kennslurými. Er
það gert í samræmi við reglur sem
skólameistari hefur sett enda er
innritun nemenda á hans ábyrgð
samkvæmt lögum um framhalds-
skóla. Að sögn Tryggva hafa þeir
forgang til skólavistar í MA sem
ekki geta sótt sambærilegan skóla
eða námsbraut frá lögheimili
sínu. Ef sú regla dugar ekki til er
þeim nemendum vísað frá sem
taldir eru þurfa fornám vegna
lágrar einkunnar í grunnskóla. Þó
hefur MA lengi tekið inn
nemendur sem orðnir eru 18 ára
óháð einkunnum og er sá réttur
nú bundinn í lög. Ef takmarka
þarf inntöku í skólann enn frekar
er litið á einkunnir; sérstaklega á
einkunnir í íslensku, stærðfræði,
dönsku og ensku. Þeir nemendur
sem ekki fá inni í MA fá þó yfir-
leitt skólavist í öðrum framhalds-
skólum á Norðurlandi. GT