Dagur - 29.08.1992, Blaðsíða 12

Dagur - 29.08.1992, Blaðsíða 12
JH NN3nS»tkSfl TVÖFALDUR 1. VINNINGUR Akureyri 130 ára: Fjölbreytt afinælisdagskrá Sérstök undirbúningsnefnd var sett á laggirnar til aö undirbúa dagskrá á 130 ára afmæU Akur- eyrarkaupstaðar. Jón Björns- son, félagsmálastjóri, var skipaður formaður nefndar- innar og hann sendi frá sér til- kynningu um helstu viðburði sem skipulagðir hafa verið í dag. „Pað er ærið tilefni til þess að gera sér dagamun. Við stefnum ekki að neinni stórhátíðardag- skrá heldur einungis fjörugu bæjarlífi þennan laugardag, og þá ekki síst á nýgerðu Torginu og til þess hefur afmælisbarnið leit- að liðsinnis hjá ýmsum aðilum. Hér á eftir verður talið upp hvað vitað er til að verður á seyði þennan dag. Upptalningin er ekki tæmandi, það væri aðeins ánægjulegt ef enn fleiri tækju sig til og skemmtu sér og öðrum. Upptalningin er með fyrirvara; atriði gætu færst til eða fallið út, ekki síst ef verður vont veður, og enginn má falla í geðvonsku eða sút vegna þess. Verslunareigendur hafa verið hvattir til að hafa sem mest opnar verslanir í miðbænum laugardag- inn 29. ág. Veitingahúsaeigendur hafa verið hvattir til þess að gera bæjarbúurn sérstök afmælistilboð þennan dag. Sölumönnum, pröng- urum og prútturum er boðið að setja upp söluborð og sölutjöld sín í göngugötunni eða við Torg- ið norðanvert," segir í tilkynn- ingunni. Sund, skoðunarferðir og harmonikuleikur Lítum þá á fyrirhugaða dagskrá. Kl. 8 sýna morgunmenn Möllers- æfingar í Sundlaug Akureyrar og kl. 9 og 10 verður iðkuð sundleik- fimi í útilaug og kl. 11 í innilaug undir stjórn sundkennara. Kl. 9 hefst plöntuskoðun í Lystigarðinum undir forystu blómafræðings. Farið verður frá Eyrarlandsstofu. Kl. 10 verða söfn bæjarins opnuð, þ.e. Nonnahús, Davíðs- hús, Náttúrugripasafnið, Steina- safnið í Hafnarstræti 90, Minja- safnið og Laxdalshús. Sérstök sýning verður í Laxdalshúsi í tilefni af 30 ára afmæli Minja- safnsins og þar verður mynd- bandið „Gamla Akureyri“ sýnt. Aðgangur að söfnunum er ókeyp- is. Á sama tíma, kl. 10, hefst nátt- úruskoðunarferð um Glerárgil með leiðsögn Þóris Haraldsson- ar, líffræðings, og er áætlað að hún taki eina til tvær klukku- stundir. Kl. 10 leikur Lúðrasveit Akur- eyrar á Ráðhústorgi. Kl. 10.30 verða keppendur í kassabíla- keppni ræstir á Torginu. Kl. 11 hefst söguskoðunarferð um Inn- bæinn á vegum Minjasafnsins. Farið verður frá Laxdalshúsi um söguríka staði. Ferðin tekur tæpa klukkustund. Kl. 11.30 verður harmoniku- konsert á Torginu á vegum Fé- lags harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Kl. 12.30 hefst hlaupakeppni barna á Torginu. Hlaupið verður um næsta ná- grenni og aftur að Torginu. íþróttir, árelíuz og Listagil Eftir hádegi verður fjörinu fram haldið. Kl. 13 verður júdósýning á vegum KA á Torginu og er von á ólympíufaranum Frey Gauta. Kl. 13.30 leikur rokksveitin Stjánarnir. Kl. 14 verður haldið upp á 130 ára afmæli Akureyrarbæjar og 40 ára afmæli Jóhanns skálds árelíuzar í 1929. Jóhann árelíuz og fleiri listamenn fara með ljóðmæli, kafla úr óbirtu skáldverki og ann- að menningarlegt efni. Aðgangs- eyrir er enginn en veitingar verða til sölu. Þeir sem hafa meiri áhuga á íþróttum en menningu geta á sama tíma, kl. 14, fylgst með badmintonkeppni á Torginu á vegum Badmintonfélags Akur- eyrar. Kl. 14.30 er röðin síðan komin að Kirkjukór Glerárkirkju sem róar afmælisgesti með ljúf- um söng. Kl. 15 hefst skoðunarferð um húsakynni í Listagilinu og verður farið frá Ketilhúsi um vinnustof- ur, Myndlistaskólann, væntan- legt listasafn, væntanlega hljóm- leikahöll og endað á kaffidrykkju í Samlagshúsinu þar sem veitt verður gjafakaffi frá Braga og sérstök menningarterta frá Brauðgerð KEA. í leiðinni er upplagt að skoða sýningu í Myndlistaskólanum á einþrykks- myndum sem Menningarstofnun Bandaríkjanna hefur sent oss. Einnig er sýning á ljósmyndum sem tengjast sögu Gilsins og verður hún hjá arkitektunum sunnan Kaupvangsstrætis. Húsa- kynnin í Gilinu verða opin frá kl. 14-18 og eru allir bæjarbúar vel- komnir í heimsókn. Kl. 15 leikur Blásarasveit æsk- unnar á Torginu. Hross, skemmtidagskrá, tækjasýningar „Kaupskapur, gjálífi og almennt útstáelsi á vegum einstakiinga heldur síðan áfram í miðbæ Akureyrar langt fram á kvöld. Skemmtidagskrár færast hins vegar út um víðan völl,“ segir í tilkynningunni. Kl. 16 stendur Hestamannafé- lagið Léttir fyrir reiðsýningu á flötunum fyrir neðan Samkomu- húsið og kl. 16-18 verður í Sund- laug Akureyrar kennsla og æfing fyrir börn í meðferð björgunar- vesta. Kl. 16.30 hefst skemmtidag- skrá í Davíðshúsi og um svipað leyti verður ljúf tónlist leikin í Laxdalshúsi. Pá mun Garðyrkju- félag Akureyrar hefja áttatíu ára afmælisfagnað sinn um þetta leyti með kaffiveitingum uppi í Lysti- garði. Bæjarbúar eru velkomnir til þessara mannfagnaða meðan rúm leyfir og loks verður sögu- skoðunarferðin frá Laxdalshúsi endurtekin kl. 17.30. Af öðrum uppákomum má nefna að Slökkvilið Akureyrar verður statt nálægt Torginu og sýnir tæki sín og björgunarsveitir sýna bíla í göngugötunni. Þá verður sjóbjörgunartækjasýning við Torfunefsbryggju eftir há- degi. íþróttafélagið Akur ætlar að kenna fólki boccia í miðbæn- um og hjólabrettabraut verður sett upp við göngugötuna. Skáta- félagið Klakkur mun leggja undir sig hluta Skipagötunnar fyrir uppákomur og einnig verða hverfismiðstöðvar skáta opnar fyrir gesti. Eins og sjá má er margt í boði fyrir afmælisgesti í dag og sjálf- sagt ráðlegt fyrir fólk að skipu- leggja tímann vel til að geta kom- ist yfir sem flesta atburði. SS Hátídardagskráin á 125 ára afinælinu Bæjarbúar muna fiestir eftir 125 ára afmæli Akureyrarbæj- ar 29. ágúst 1987, en þá söfnuðust t.a.m. margir saman í Lystigarðinum um kvöldið. Það var vel viðeigandi því Lystigarðurinn átti 75 ára afmæli þetta ár. Hátíðardagskráin hófst með mótttöku á Akureyrarflugvelli. Þar var tekið á móti forseta Íslands, frú Vigdísi Finnboga- dóttur. Skömmu síðar var hátíð- arfundur í bæjarstjórn Akureyrar og hátíðarsamkoma í Akureyrar- kirkju. Eftir hádegi var farið í skrúð- göngu um bæinn og það frekar tvær en eina. Síðdegisdagskrá var í göngugötu, á flötinni fyrir neð- an Samkomuhúsið og á Pollin- um. Leikfélag Akureyrar var með hátíðarsýningu í íþróttaskemm- unni og í göngugötunni var boðið upp á kvölddagskrá. Síðan söfnuðust bæjarbúar saman í upplýstum Lystigarðinum og nutu blíðunnar, veitinga og skemmtunar. Iðnsýning Norðurlands stóð yfir í íþróttahöllinni þennan dag. Hátíðin þótti takast vel og nú er að sjá hvernig bæjarbúum gengur að fagna 130 ára afmæl- inu. SS Kveðja tíl Akureyrar höfuðstaðar Norðurlands! Bestu hamingjuóskir í tilefni 130 ára afmœlis Akureyrarbœjar, með von um bjarta framtíð og aukna hagsœld á Norðurlandi Grímseyjarhreppur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.