Dagur - 15.09.1992, Síða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 15. september 1992
Þriðjudagur 15. september 1992 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
Samskipadeildin
Lcikir 18. uniferðar:
Valur-KR 1:9
Þór-ÍA 2:2
FH-Fram 3:0
Víkingur-UBK 3:1
ÍBV-KA 2:1
Lokastaðan:
ÍA 18 12-4- 2 40:19 40
KR 18 11-4- 3 41:17 37
Þór 18 10-5- 3 30:13 35
Valur 18 9-4- 5 33:27 31
Fram 17 8-1- 8 25:24 25
FH 18 5-6- 7 25:29 21
Víkingur 18 5-4- 9 25:33 19
ÍBV 18 5-1-12 23:44 16
UBK 18 4-3-1114:3115
KA 18 3-4-11 18:33 13
Markahæstir: Arnar Gunnlaugsson, ÍA 15
Bjarni Sveinbjörnsson, Þór 11
Helgi Sigurðsson, Víkingi 10
Ragnar Margeirsson, KR 10
Anthony K. Gregory, Val 10
2. deild karla
18. umferð:
Fylkir-Selfoss 9:1
Stjarnan-Keflavík 2:1
Grindavík-ÍR 0:1
BÍ-Leiftur 0:4
Víðir-Þróttur Þriðjud. kl.17.30
Staðan:
Fylkir 18 14-1- 3 47:19 43
ÍBK 18 12-4- 2 42:16 40
Grindavík 18 9-2- 7 34:30 29
Leiftur 18 8-4- 6 38:23 28
Þróttur R. 17 8-1- 8 29:33 25
Stjarnan 18 6-6- 6 27:26 24
BI 18 5-6- 7 25:37 21
ÍR 18 4-6- 8 22:33 18
Víðir 17 2-6- 9 17:28 12
Selfoss 18 1-4-13 19:61 7
Markahæstir:
ÓIi Þór Magnússon, ÍBK 18
Þorlákur Árnason, Leiftri 17
Kjartan Einarsson, ÍBK 14
Kristinn Tómasson. , Fylki 13
Indriði Einarsson, Fylki 13
Þórður Bogason, Grindavík 10
3. deild karla
Lokastaðan:
Tindastóll 18 16-1- 1 53:23 49
Grótta 18 9-4- 5 32:25 31
Þróttur N. 18 9-4- 4 41:35 31
Skallagrímur 18 8-4- 6 41:29 28
Haukar 18 6-5- 7 33:35 23
Völsungur 18 6-5- 7 23:30 23
Magni 18 6-4- 8 26:24 22
Dalvík 18 5-2-11 29:32 17
Ægir 18 4-5- 9 20:39 17
KS 18 3-3-12 21:48 12
1. deild kvenna
Lokastaðan:
UBK 14 10-3- 2 48:10 32
ÍA 14 14-2- 2 42: 9 32
Valur 14 10-1- 3 28: 9 31
Stjarnan 14 9-1- 4 36:13 28
Þróttur N. 14 5-1- 8 23:42 16
KR 14 4-1- 9 16:29 13
Þór 14 2-1-11 8:49 7
Höttur 14 1-1-12 7:50 4
Samskipadeildin:
KA fallið í 2. deild
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust
út meðal leikmanna og áhang-
enda IBV í Vestmannaeyjum
þegar leik þeirra við KA Iauk á
sunnudag og Ijóst var að þeir
héldu sæti sínu í fyrstu deild á
næsta kcppnistímabili. Á sama
tíma gengu KA menn niðurlút-
ir af leikvelli enda hlutskipti
þeirra að leika í annarri deild
að ári. Sigur Vestmannaeyinga
var sanngjarn og greinilegt að
hungur þeirra í stigin var meira
en KA manna.
Leikurinn hófst með miklum
látum af beggja hálfu og skiptust
liðin á að sækja milli þess sem
barist var um skallaeinvígi á
miðjunni. Nokkur færi litu dags-
ins ljós og átti ÍBV m.a. færi á
annarri mínútu og KA menn
nokkrum mínútum síðar eftir
aukaspyrnu en bæði færin runnu
út í sandinn.
Næstu mínútur einkenndust af
miklum taugatitringi beggja liða
og jafnræði var með liðunum.
Færin komu á báða bóga og allt
gat gerst. Á 21. mínútu fékk ÍBV
innkast og eftir mikla baráttu í
teig KA manna skaut Tómas Ingi
Tómasson í þverslá og yfir
markið. Fjórum mínútum síðar
átti Leifur Geir Hafsteinsson
skot rétt framhjá marki KA. j
Skömmu síðar fékk Pavel Vandas |
KA ágætt marktækifæri eftir
hornspyrnu að marki ÍBV en
skaut yfir og átti hann reyndar
fleiri tækifæri í fyrri hálfleik sem
ekkert varð úr.
Um þetta leyti fóru að berast
fréttir af gangi mála í leik UBK
og Víkinga og kepptust áhorf-
endur í Eyjum sem voru fjöl-
margir, við að kalla stöðu leiksins
til leikmanna. Hleypti það
nokkru lífi í leikinn en á kostnað
knattspyrnunnar því eins og fyrr
segir, var mikið um skallaeinvígi
á miðju þar sem tilviljun ein réð
því hvar knötturinn lenti.
Það voru svo heimamenn sem
sóttu meira í lok fyrri hálfleiks og
komust oft í góð færi og máttu
KA menn teljast heppnir að vera
ekki undir í hálfleik þar sem stað-
an var jöfn, 0:0.
Flestir bjuggust við að bæði lið
mættu grimm til síðari hálfleiks
og svo var með Vestmannaey-
inga. KA menn virtust hins vegar
ekki nógu kraftmiklir og komust
þeir vart fram yfir miðju í langan
tíma. Gunnar Már Másson sem
kom sérstaklega ti! landsins frá
Bandaríkjunum til að taka þátt í
leiknum, átti þó ágætt færi á 4.
mínútu en skallaði framhjá. Mikil
pressa var nú á mark KA og upp-
skáru Vestmannaeyingar fyrir
erfiðið á 25. mínútu þegar Martin
Eyjólfsson sem kom inn á sem
Körfubolti hjá Tindastól:
Bandaríkjamaður í skoðun
- miklar mannabreytingar hjá liðinu
Körfuboltamenn æfa sig nú af
kappi fyrir veturinn en nú fer
senn aö styttast í að úrvals-
deildin byrji, en fyrstu leikir
eru 4. október. Tindastóls-
menn verða á fullu í þeirri bar-
áttu líkt og undanfarin ár og
eru nú eina liðið í úrvalsdeild-
inni af Norðurlandi. Fyrir
skömmu kom Bandaríkjamað-
ur á Krókinn og eru forráða-
menn körfuknattleiksdeildar-
innar hjá Tindastól nú að
íhuga hvort gengið verði til
samninga við kappann. Ákvörð-
jun um það liggur væntanlega
'fyrir í dag eða á morgun.
„Okkur líst þokkalega vel á
manninn," sagði Pórarinn
Torlacius hjá Tindastól. „Hann
fellur vel inn í liðið en auðvitað
vilja menn alltaf eitthvað betra
en spurningin er hversu langt er
hægt að ganga og hvað menn
komast af með, en við erum alls
ekki óhressir með hann og höfum
fullan hug á að ganga til samn-
inga,“ sagði Þórarinn. Tindastóll
tók nú um helgina þátt í 4 liða
móti í Borgarnesi þar sem einnig
kepptu Skallagrímur, Pór og
Snæfell. Pað mót átti að skera úr
um hvað verði gert í málum
Bandaríkjamannsins sem heitir
Chris Moore. Par kom hann
þokkalega út að sögn Þórarins en
ekkert væri samt enn frágengið.
M.a. sagði hann að eftir væri að
ganga frá málum Moore við það
lið sem hann sfðast lék með en
slík pappírsvinna tæki oft tíma.
Endanlega ákvörðun væri í raun
ekki hægt að taka fyrr en hann
væri endanlega laus allra mála
hjá erlenda félaginu.
Þórarinn sagði að veturinn
legðist þokkalega vel í menn þó
allir geri sér grein fyrir að þetta
veri erfitt. „Við höfum misst 5
menn en fengið 2 í staðinn.
Kristján Sigtryggsson, Pétur
Guðmundsson, Kristján Bald-
vinsson, Einar Einarsson og Ivan
Jonas. Liðið hefur hins vegar
fengið Pál Kolbeinsson sem
vissulega er mikill fengur og síð-
an væntanlega Cris Moore. Það
er því mikil breyting á liðinu. Við
komum til með að byggja mikið á
strákum sem eru að koma upp úr
unglingaflokki hjá okkur en nú er
unglingastarfið fyrst að skila sér
af verulegri alvöru," sagði Þórar-
inn. Unglingaflokkar Tindastóls
hafa verið mjög sterkir undan-
farin ár en vissulega vantar þá
stráka leikreynslu meðal þeirra
bestu. „Númer 1, 2 og 3 er að
halda sér í deildinni. Síðan get-
um við rætt um framhaldið,"
sagði Þórarinn. Tindastóll leikur
í erfiðum riðli með Keflavík,
Njarðvík og Haukum og er því
ljóst að baráttan verður hörð.
Heimavöllur Tindastóls er sterk-
ur en það sama má reyndar segja
um velli hinna liðanna líka. Það
má því búast við spennandi
keppni í vetur. HA
Valur Ingimundarson þjálfari
Tindastóls.
varamaður fyrir ÍBV á 14. mín-
útu síðari hálfleiks, skoraði fyrir
ÍBV eftir innkast. Eyjamenn
komust svo til strax á eftir í
dauðafæri á ný en skutu rétt
framhjá marki KA.
Þótt KA menn hresstust nokk-
uð eftir markið voru Eyjamenn
nær því að skora en KÁ. Þeir
náðu þó að klóra í bakkann á 35.
mínútu þegar Bjarni Jónsson
jafnaði metin eftir hornspyrnu og
mikla þvögu í teig ÍBV. Staðan
var orðin 1:1, tíu mínútur voru til
leiksloka og bæði liðin gátu
tryggt sig í deildinni því enn var
staðan sú sama í hinum leik botn-
baráttunnar. Eins og fyrr segir
var hungrið meira hjá Vest-
mannaeyingum því aðeins tveim-
ur mínútum eftir mark Bjarna,
skoraði Martin annað mark fyrir
heimamenn og fögnuðu þeir
mjög. Martin hefur reynst KA
mönnum skeinuhættur því fyrir
þennan leik, hafði hann aðeins
skorað þrjú deildarmörk á ferlin-
um, öll gegn KA. Sigur Eyja-
manna var aldrei í hættu eftiitþetta
þótt KA menn hafi sótt heldur
meira í lokin.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu og þurfti Gylfi Orrason
fjórum sinnum að veifa gula
spjaldinu. Fyrstur fékk það Bojan
Bevc ÍBV fyrir munnsöfnuð, þá
Halldór Kristinnsson KA fyrir
brot á Tómasi Inga Tómassyni,
loks Steingrímur Birgisson KA
fyrir mótmæli við dóm Gylfa og
loks Leifur Geir Hafsteinsson
ÍB V en það uppskar hann eftir að
nærri lá við handalögmálum í teig
Eyjamanna þegar Pavel Vandas
og Friðrik Friðriksson markmað-
ur lentu í samstuði.
Lið KA átti ágætan leik í fyrri
hálfleik en það sama var ekki
hægt að segja um hinn síðari.
Pavel Vandas lék einn sinn besta
leik í sumar og þá var Steingrím-
ur Birgisson að vanda traustur í
vörninni og bjargaði oft vel. VG
Sagt eftir leikinn
Sveinn Brynjólfsson, formaður
Knattspyrnudeildar KA:
„Það var viljameira liðið sem
sigraði hér í dag og ekkert meira
um það að segja. Við verðum í
annarri deild í eitt ár og gerum
svo vonandi eitthvað af viti; ger-
um betur.“
Gunnar Níelsson:
„Leikurinn var erfiður allan
tímann fyrir okkar menn en við
ætlum að koma fljótt aftur og ég
er sannfærður um að við gerum
það.“
Sæmundur Oskarsson, for-
maður KA klúbbsins í Reykja-
vík:
„Nú stokkum við bara upp
spilin, komum fílefldir næsta
sumar, vinnum deildina og verð-
ur íslandsmeistarar árið þar á
eftir.“ Sæmundur bætti því jafn-
framt við að hann myndi fylgja
KA mönnum til Kína til að sjá
leiki þeirra ef með þyrfti.
Stefán Gunnlaugsson:
„Betra liðið vann hér íi dag.
Þeir áttu miklu fleiri færiren KA.
Ég átti alls ekki von á að svona
færi í upphafi móts, átti frekar
von á þeim um miðja deilcLþví ég
tel að við höfum haft mánnskap í
það.“
Gunnar Gíslason þjálfaríiKA:
„Hvað á ég að segja, við vor-
um einfaldlega ekki nógu góðir.
Þá vorum við ekkert að. tapa
deildinni núna, því við hefðum
átt að vera búnir að bjarga sætinu
fyrir löngu. Vissulega eru þetta
mikil vonbrigði og ég. tel að
bikarúrslitin hafi dregið nokkuð
úr mönnum. Við vorum reyndar í
bullandi fallhættu þá líka og það
var erfitt að rífa mannskapinn
upp. En það fór sem fór og nú er
bara að stefna á fyrstu deildina
aftur næsta ár.“ VG
Handbolti:
Mál Sigurpáls Áma leyst
- samningur um félagaskipti milli Þórs Qg KA
Mál Sigurpáls Árna Aðal-
steinssonar eru nú loksins
komin á hreint, enda ekki
seinna vænna þar sem mótið
hefst á morgun. Sigurpáll Árni
sem óumdeilanlega er einn
allra besti hornamaður lands-
ins hefur sem kunnugt er
ákveðið að spila með Þór í 1.
deildinni í handboltanum í
vetur, eftir að hafa leikið um
nokkurn tíma hjá KA. Nokk-
uð treglega hefur gengið fyrir
félögin tvö að koma sér saman
um með hvaða hætti félaga-
skiptin ættu að eiga sér stað en
nú er það mál endanlega leyst.
Enn fremur hafa Akureyrar-
félögin gert með sér samning
um tilhögun félagaskipta
næstu 4 árin.
Sigurpáll Árni skiptir úr KA í
Þór án þess að nokkur greiðsla
komi fyrir. Ef Sigurpáll fer hins
vegar úr Þór í eitthvert annað
félag á næsta ári þá fær KA helm-
ing hugsanlegs söluverðs. Sú
upphæð fer svo lækkandi eftir því
Sigurpáll Árni.
sem árunum fjölgar. Einnig hafa
Þór og KA gert með sér samning,
sem búist er við að allir aðilar
muni samþykkja, þar sem tekið
er á því með hvaða hætti leik-
mannaskipti milli félaganna skuli
eiga sér stað á næstu 4 árum. Það
er í raun með svipuðum hætti og
í tilfelli Sigurpáls Árna, þ.e. eng-
ir. peningar eru í spilinu. HA
Halldór Arinbjarnarson
Kærumál í 2. deild:
Gunnari Má tókst ekki að skora fyrir KA í Eyjuni. Mynd: Golli
Lið KA: Haukur Bragason, Örn Viðar
Arnarson, Gauti Laxdal, Pavel Vandas,
Halldór Kristinsson, Gunnar Már
Másson, Bjarni Jónsson, ívar Bjarklind
(Árni Hermannsson á 84. mínútu), Páll
Viðar Gíslason, Steingrímur Birgisson,
Ormarr Örlygsson.
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson, Friðrik
Sæbjörnsson, Bojan Bevc (Martin
Eyjólfsson á 55. mínútu), Elías Friðriks-
son, Jón Bragi Arnarson, Leifur Geir
Hafsteinsson, Heimir Hallgrímsson,
Steingrímur Jóhannesson, Kristján
Kristjánsson, Tómas Ingi Tómasson,
Nökkvi Sveinsson.
Dómari: Gylfi Orrason.
Línuverðir: Kristinn Jakobsson og Kristján
Guðmundsson.
Þorvaldur Örlygsson hjá Nottingham Forest:
„Óskiljanlegt af hvequ
ég datt úr liðinu“
„Þetta gengur bara ekki neitt
hjá okkur,“ sagði Þorvaldur
Órlygsson þegar hann var
spurður um slakt gengi Nott-
ingham Forest nú í upphafi
keppnistímabilsins. Lið hans
hefur nú einungis 3 stig þegar 7
umferðir eru búnar og hefur
sjaldan eða aldrei byrjað eins
illa.
Þorvaldur sagði að það væri
vörnin sem væri aðal höfuðverk-
ur liðsins um þessar mundir og að
liðið fengi allt of mörg mörk á
sig. „Vörnin er búin að vera með
allt á hælunum í þessum leikjum.
Við erum auðvitað búnir að
missa Des Walker frá því í fyrra
sem skilur mikið gat eftir sig og
vörnin er alveg ótrúlega sein,“
sagði Þorvaldur. Hann sagði
einnig að liðið væri í raun ekki að
spila neitt ver.r heldur en undan
farin ár en mörkin væru bara allt
of mörg sem liðið fengi á sig.
Þorvaldur sagðist hafa verið í
liðinu allt þangað til í gær þegar
Brian Clough tók hann út og setti
Kingsley Black inn í liðið á nýjan
leik. „Ég fékk enga skýringu á
því af hverju ég datt út og finnst
það reyndar hálf fáránlegt". Þor-
valdur hefur reyndar ekki alltaf
verið í náðinni hjá Clough og
grunnt verið á því góða með
þeim félögum. „Miðjan og sókn-
in hafa verið að spila vel en vörn-
in ekki svo ég skil ekki þessa
breytingu þó auðvitað hafi
kannski mátt gera einhverjar
breytingar þegar það gengur
svona illa,“ sagði Þorvaldur.
Hann sagði einnig að þó liðið hafi
oft verið seint í gang þá sé þetta
óvenju slæmt.
Annars lét Þorvaldur vel af
veru sinni í Englandi. Sagðist
Nottingham Forest um helgina.
vera betri en ítrekaði að vörnin
væri aðal höfuðverkurinn og
bjóst við að buddan yrði dregin
upp og sterkir varnarmenn
keyptir. Varðandi landsleikinn
bjóst Þorvaldur við að vera til í
slaginn ef kallið kæmi. „Ég hef
verið í liðinu að undanföru og
býst ekki við að nein breyting
verði þar á. Hann sagði að liðið
ætti leik á mánudaginn eftir viku
og þá kemur í ljós hvort Þorvald-
ur Orlygsson hlýtur náð fyrir aug-
um Brian Clough eða verður að
bíða enn um sinn. HA
Þorvaldur Örlygsson komst ekki í lið
vera í góðri æfingu og laus við öll
meiðsl. Það ætti því ekki að vera
neitt því til fyrirstöðu að hann
geti sýnt það sem í honum býr,
fái hann tækifæri til þess. Hann
sagði að undirbúningstímabilið
væri frekar stutt í Englandi en
mikil keyrsla meðan á þvf stæði.
Einnig byrjaði tímabilið af mikl-
um krafti þar sem leikið væri
mjög þétt í byrjun. Þá færi bikar-
keppnin að byrja og þá eykst
álagið enn á leikmenn. Hann
sagðist ekki geta dæmt um hvort
undirbúningur liðsins hefði mátt
Eyjólfur Sverrisson hefur leikið vel hjá Stuttgart.
Leiftursmenn ekki ánægðir
A föstudaginn birti dómstóll
KSÍ niðurstöðu sína í kæru-
máli Leifturs gegn ÍR í 2.
deildinni í knattspyrnu. Nöfn
tveggja leikmanna IR sem
voru í leikbanni voru skráð á
leikskýrslu. Dómstóll KRR
hafði vísað málinu frá í héraði
vegna þess að mennirnir höfðu
hvergi komið nálægt leiknunt.
Dómstóll KSÍ felldi málið nið-
ur með þeim orðum að eins og
Eyjólfur Sverrisson hjá Stuttgart:
Hefur spilað mjög vel
Eyjólfur Sverrisson knatt-
spyrnumaður hjá Stuttgart í
Þýskaiandi hefur verið að gera
góða hluti með liði sínu að
undanförnu og hlotið góða
dóma í þýskum blöðum.
Eyjólfur er ákaflega fjölhælfur
leikmaður og getur leikið nán-
ast hvaða stöðu sem er á vellin-
um. Þegar Dagur hafði sam-
band við kappann var hann
nýlega kominn heim til sín eftir
erfiða ferð til Rostock þar sem
Stuttgart beið lægri hlut fyrir
Hansa Rostock í bikarkeppn-
inni.
„Ég var reyndar ekki í liðinu
og á eftir að fá skýrirngar á því
hjá Daum þjálfara hvers vegna
það var,“ sagði Eyjólfur. Hann
var ekki í liðinu um helgina
sagðist enga skýringu geta fundið
á þessari breytingu og vera væg-
ast sagt mjög ósáttur við þessa
framkomu. „Ég hef spilað þessa
leiki sem búnir eru og fengið
góða dóma eftir því sem ég veit
best. Það er í raun skrítið að
Christoph Daum hafi tekið Eyjólf
út úr liðinu þar sem hann lýsti
yfir mikilli ánægju með frammi-
stöðu hans í síðustu viku í sam-
tali við þýska blaðið Kicer.
Eyjólfur sagði að meiðsl hefðu
nokkuð hrjáð liðið og hann hefði
því tekið sæti Uwe Schneiders í
vörninni. „Það vantaði einhvern
sem gæti hlaupið," sagði Eyjólf-
ur.
Gengi Stuttgart hefur verið
nokkuð gott í deildinni það sem
af er. í gær hafi hins vegar allt
klikkað sem hugsast gat. Hann
sagðist vera í fínu formi enda
búinn að æfa vel. „Þetta er búið
að vera erfitt undirbúningstíma-
bil. Mjög erfitt. Við voru í
æfingabúðum hérna í Bæjara-
landi. Hér er alltaf svo gott veður
að menn fara bara eitthvert upp í
fjöll til þess að æfa því þar er loft-
ið betra,“ sagði Eyjólfur. Það
væri ekki verið að eyða pening-
um í það að fara eitthvað erlend-
is. Aðspurður sagði hann að
miklar mannabreytingar hafi átt
sér stað og búið væri að kaupa
mikið af mönnum. Liðið væri
vissulega sterkt á pappírunum en
það hafi samt ekki náð að sýna
það sem í því býr. „Það eru hér
nokkrir mjög dýrir leikmenn sem
ekki hafa sýnt það sem til var
ætlast.“ Hann sagðist þó búast
við því að gengi liðsins ætti eftir
að vera nokkuð gott í vetur og
vera bjartsýnn á tímabilið.
Þegar hann var spurður hvort
hann ætlaði eitthvað að láta sjá
sig á íslandi á næstunni sagðist
hann vonast til að komast í lands-
leikinn sem verður 7. október, en
þá taka íslendingar á móti Grikkj-
um á Laugardalsvelli í undan-
keppni heimsmeistaramótsins.
„Þ.a.s., ef maður verður valinn í
liðið.“ Miðað við hversu Eyjólfur
virðist vera í góðri æfingu um
þessar mundir verður að telja
ákaflega sennilegt að hann hljóti
náð fyrir augum Ásgeirs
Elíassonar landsliðsþjálfara. Það
styttist því vonandi í að menn sjái
Eyjólf Sverrisson í leik á íslandi.
málið sé vaxið þyki ekki rétt að
beita refsingu.
Stigin skipta reyndar ekki máli
úr því sem komið er þar sem ÍR
bjargaði sér endanlega frá falli
um helgina. Þorsteinn Þorvalds-
son hjá Leiftri var ekki ánægður
með úrskurð dómstólsins því í
raun hefði engin niðurstaða feng-
ist í málinu. Hann sagðist vera
mjög óhress með það hvernig
staðið hafi verið að málinu. I
skeyti dagsettu 4.9. þar sem
Leiftri hafi verið tilkynnt um að
málið yrði tekið fyrir, hafi ekkert
verið minnst á að aðilar þyrftu
sjálfir að mæta við þingfesting-
una. í samskonar skeyti til Völs-
ungs dagsettu 9.9. hafi hins vegar
skýrt verið tekið fram að réttar-
spjöll geti hlotist af því ef aðilar
ekki mæti. Enn fremur telur Þor-
steinn sig hafa fengið þær upplýs-
ingar á skrifstofu KSÍ að aðilar
þyrftu ekki að mæta nema þeir
væru sérstaklega til þess kvaddir.
í lögum KSÍ er skýrt tekið fram
að báðum aðilum beri að mæta
þegar mál þeirra er dómtekið.
„Auðvitað má segja að við hefð-
um átt að kynna okkur lögin
betur, en ég treyst þeim upplýs-
ingum sem ég fékk á skrifstof-
unni,“ sagði Þorsteinn. „Stigin
sem slík skipta okkur engu en við
vildum bara fá niðurstöðu í mál-
inu,“ sagði hann enn fremur.
HA