Dagur - 25.11.1992, Side 1
Akureyri, miðvikudagur 25. nóvember 1992 225. tölublað
Vel í fö 1 klæddur tum frá BER«.ARUT lennabudin
1 1 HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Ping Alþýðusambandsins:
Búist við spenn-
andi forsetakjöri
fyrir hádegi í dag
Við lok þingfundar á ASÍ-
þingi á Akureyri í gærkvöld
ríkti fullkomin óvissa um hvort
Orn Friðriksson, formaður
Málm- og skipasmiðasambands
Islands, gefí kost á sér til for-
setakjörs í dag. Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusam-
bands Vestfjarða gefur kost á
sér en svo virtist í gærkvöld
sem telja mætti öruggt að Örn
næði kosningu, gæfí hann kost
á sér.
Mikil baktjaldasinfónía var í
gangi á þinginu í gær þegar reynt
var að koma skýrum línum í for-
setakjörið. Þung pressa var á Örn
Friðriksson en ákvörðun Grétars
Þorsteinssonar, formanns Tré-
smiðafélags Reykjavíkur, að gefa
ekki kost á sér, virtist óbifanleg.
Bæjarstjórn
Akureyrar:
Mótmælir
virðisauka
á húshitun
Bæjarstjórn Akureyrar
samþykkti á fundi sínum í
gær harðorð mótmæli vegna
þeirrar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar að leggja 14%
virðisaukaskatt á húshitun
og hvatti stjórnvöld til að
endurskoða hana.
í ályktuninni er bent á að
húshitunarkostnaður í landinu
sé mishár og því valdi þessi
ákvörðun auknum mun á hús-
hitunarkostnaði og leggist
ójafnt á landsmenn, Þá er bent
á að þeir sem búi við hæstu
gjaldskrána greiði tvöfaldan
sicatt á við íbúa höfuðborgar-
svæðisins. óþh
Sá kostur sem helst var rætt
um, að því tilskyldu að Örn gæfi
ekki kost á sér, var að Benedikt
Davíðsson, frá Trésmiðafélagi
Reykjavíkur, byði sig þá fram og
sinnti forsetastarfinu næstu fjög-
ur ár, og á þeim tíma yrði reynt
að ná saman um eftirmann hans.
Allt var því í uppnámi í málinu
við lok þings í gær en samt ljóst
að reynt yrði til þrautar að finna
kandidat til framboðs, þrátt fyrir
framboð Péturs Sigurðssonar.
Þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld var pólitíkin komin af
fullum krafti í spilið og stóðu fyr-
ir dyrum fundir með flokksmönn-
um einstakra stjórnmálaflokka
um forsetahnútinn.
Varaforsetamálin virðast öllu
skýrari. Eining virðist vera um
Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur
frá VR í 1. varaforseta og Hervar
Gunnarsson frá Verkalýðsfélagi
Akraness í 2. varaforseta. JÓH
Ólafsijörðiir:
Þakplötur
fuku af húsi
Nokkrar þakplötur fuku af
húsþaki í Ólafsfírði í rokinu
sem gekk yfír landið í fyrra-
kvöld. Björgunarsveitin var
kölluð á vettvang og tókst
björgunarsveitarmönnum að
koma í veg fyrir að meira fyki.
Mjög hvasst var í Ólafsfirði á
milli klukkan sjö og níu í fyrra-
kvöld og fuku nokkrar járnplötur
af þaki húss neðarlega í bænum.
Björgunarsveitarmönnum tókst
að negla nærliggjandi plötur á
þakinu og tókst þannig að koma í
veg fyrir að meira tjón hlytist.
Þrátt fyrir hvassviðrið er ekki vit-
að um annað tjón á mannvirkjum
bænum. _ ÞI
Húsnæði Krónunnar er hið glæsilegasta. Fjöldi fólks skoðaði húsnæðið í gær, en þá voru þrjár fyrstu verslan-
irnar opnaðar. Mynd: Robyn
Ný verslunarmiðstöð við göngugötuna á Akureyri:
„Er að láta gamlan draum
rætast með þessari verslun“
- segir eigandi Sápubúðarinnar
Ný verslunarmiðstöð, Krón-
an, var opnuð í gær að Hafn-
arstræti 97 á Akureyri en hús-
ið er 4 hæðir, 2465 m2, en
verður 6 hæðir fullbyggt. Eig-
andi er Byggingarfélagið Lind.
Þrjár verslanir riðu á vaðið
og opnuðu í gær, Tískuversl-
un Steinunnar og Verslunin
ísabella, sem eru Akureyr-
ingum og nærsveitamönnum
að góðu kunnar áður og síðan
verslunin Sápubúðin, sem
ekki hefur verið rekin áður.
Rými er fyrir sex verslanir á
fyrstu hæðinni en átta á þeirri
næstu og hafa þau rými öll
verið seld utan eitt.
Margt eldra fólk man eflaust
eftir versluninni Sápubúðin,
sem til margra ára var rekin í
Strandgötunni, og þótti mjög
„kúltiveruð“ verslun með góðar
vörur og hangir uppi í þessari
nýju verslun mynd af gömlu
Sápubúðinni. Eigandi er Edda
Vilhjálmsdóttir og segir hún að
með stofnun þessarar verslunar
sé gamall draumur að rætast, en
hún hefur aldrei fyrr komið
nálægt verslunarrekstri, en
starfaði áður hjá launadeild
FSA. Meðal þess sem er á boð-
stólum hjá Eddu eru ýmsar teg-
undir af góðgætisvörum og þar
má m.a. sjá líkjörssultur og
ýmsar gjafapakkningar sem
vafalaust munu freista margra
þegar nær dregur jólahátíðinni.
„Við stefnum að því að fara
upp á efri hæðina, og höfum
reyndar selt flest plássin á efri
hæðinni. Á neðri hæðinni á eftir
að selja þrjú pláss, en segja má
að sala á tveimur þeirra sé á
umræðustigi. Ég er einnig viss
um að um leið og búið er að
opna þessa verslunarmiðstöð
koma fleiri sem áhuga hafa á að
setja hér upp verslun. Það er
hins vegar ríkjandi nokkur
hræðsla vegna þess ástands sem
ríkjandi er í þjóðfélaginu en við
erum byrjaðir og það er hið
besta mál. Ég vil hins vegar
taka fram af gefnu tilefni að við
erum ekkert að fara á hausinn,“
segir Aðalsteinn V. Júh'usson
hönnuður hússins.
Áhugi er fyrir því að opna
jólamarkað hægra megin við
innganginn en ekki hefur verið
tekin ákvörðun þar að lútandi
enn sem komið er. Samingaum-
leitanir hafa verið í gangi um
heilsugæslu á efstu hæðinni en
ekkert verið ákveðið í þeim
efnum. GG
Heitt í kolunum við efnahagsmálaumræðu á ASÍ þingi í gær:
Þýðir sex prósent kjaraskerðingu
- segir Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands
Akureyri:
Maurasýra
skvettíst
á mann
Starfsmaður hjá íslenskum
skinnaiðnaði varð fyrir því
óhappi í gær að maurasýra
skvettist á hann þar sem
hann var við vinnu sína.
Slysið varð skömmu eftir
hádegi og fékk maðurinn sýru
á hendur og brjóst. Samstarfs-
menn hans náðu að skola af
honum en hann var síðan
fluttur á slysadeild til frekari
rannsóknar. Maðurinn fékk
að fara heim af spítalanum
síðdegis. ÞI
„Ríkisstjórnin ákvað að það
skyldi, sem endra nær, vera
launafólk innan ASÍ sem
skyldi bera skellinn. í einu ein-
asta atriði í þessu plaggi er tek-
in upp sýndarmennskuþreifíng
á þá sem hafa hærri tekjur.
Fjármagnseigendur, þeir sem
virkilega hafa efnin, sigla frían
sjó eins og vanalega. Forsend-
ur kjarasamninga eru brostn-
ar,“ sagði Bjöm Grétar Sveins-
son, formaður Verkamanna-
sambands íslands á ASÍ-þingi í
gær. Umræða fór fram um
kjara-, atvinnu- og efnahags-
mál og var nýjum efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar
vægast sagt illa tekið af þing-
fulltrúum og boðað að sam-
þykkt verði á þinginu hörð
mótmæli.
Ásmundur Stefánsson og Gylfi
Arinbjörnsson höfðu framsögu í
umræðunni á þinginu og kynntu
þeir þátt ASI í umræðum um
efnahagsaðgerðir síðustu vikur.
Gylfi taldi merkjanlegt að sam-
tökin hafi haft áhrif en ekki nægj-
anlega. „Það urðu mér mikil von-
brigði að ríkisstjórnin skyldi ekki
tilbúin að þiggja okkar leið.
Niðurstaðan er í grófum dráttum
6% kjaraskerðing almennra
tekna. Ég er þeirrar skoðunar
þegar ég horfi á þær tölur að
nokkuð ljóst sé að það verði eng-
in sátt í okkar hreyfingu að taka
slíkri niðurstöðu án þess að fara
af stað í gerð kjarasamninga og
gera kaupkröfur. Ég held að það
væri óraunsæi af hálfu ríkis-
stjórnarinnar að ímynda sér það
að menn muni sitja sáttir við 6%
skerðingu almennra tekna og
bíða í huggulegheitum og vin-
semd á meðan það gengur yfir,“
sagði Ásmundur Stefánsson í
umræðunni.
Þingfulltrúum var heitt í hamsi
við umræðuna síðdegis í gær og
margir þeirra töldu hvergi nærri
öll kurl komin til grafar í aðgerð-
um ríkisvaldsins. Formaður
Verkamannasambandsins var
einn þeirra: „Það hvarflar ekki
að mér þar sem ég stend hér að
þetta sé eina gengisfellingin núna
á næstunni. Við eigum eftir að
standa frammi fyrir gengisfell-
ingu númer 2 og gengisfellingu
númer 3 því ég man ekki til þess
að þegar hreyft er við gengi þá
gerist það aðeins einu sinni. Þetta
er fyrsta aðgerð af öðrum verri,“
sagði Björn Grétar Sveinsson.
JÓH