Dagur - 25.11.1992, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 25. nóvember 1992
Fréttir
Slæmt að fá nýjan skatt á ferðaþjónustu
Ferðaþjónustuaðilar eru
óánægðir með þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að leggja
14% virðisaukaskatt á ferða-
og gistiþjónustu frá og með 1.
september á næsta ári. Magnús
- segir Magnús Oddsson hjá Ferðamálaráði
Oddsson hjá Ferðamálaráði
sagði í samtali við Dag að ekki
hefði enn gefist tóm til að
reikna út hvað þessi skattur
þýddi, en engu að síður væri
mjög slæmt fyrir þessa atvinnu-
Furðufatadagur í Síðuskóla:
vika í skól-
þessa viku
Opin
anum
Á mánudaginn hófst svokölluð
„opin vika“ í Síðuskóla á Akur-
eyri og stendur hún yfir til 27.
nóvember. í vikunni verður starf-
ið í skólanum að mestu með
hefðbundnum hætti en hins vegar
er foreldrum velkomið að koma
og fylgjast með því sem fram fer.
Síðastliðinn föstudag var hins
vegar efnt til furðufatadags í
Síðuskóla en slíkur dagur hefur
verið fastur liður í skólastarfinu
þar undanfarin ár. Nemendur
mættu þá í skólann klæddir hin-
um furðulegustu fötuin, sér og
öðrum til ánægju. Tvívegis yfir
daginn var síðan efnt til stuttra
samverustunda allra nemenda og
var þá sungið og sprellað í stutta
stund. Að öðru leyti var kennsla
að mestu með hefðbundnum
hætti þann daginn.
Ljósmyndari Dags, Robyn
Anne Redman, tók meðfylgjandi
myndir í skólanum á furðufata-
daginn.
Sverrir Leósson:
„SannkaJlað hálfkák“
„Ekki er hægt
að hafa mörg
orð um gengis-
fellinguna og
ráðstafanir
ríkisstjórnar-
innar. Reynsl-
an á eftir að
leiða í ljós að
aðeins er tekið á hluta þess
vanda sem blasir við okkur
íslendingum. Sannast sagna þá
líst mér ekki á gang mála,“
segir Sverrir Leósson, formað-
ur Útvegsmannafélags Norð-
urlands.
Sverrir segir, að það eina sem
sé jákvætt í aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar, er lýtur að sjávar-
útvegi, sé niðurfelling á aðstöðu-
gjöldum, en að heildarpakkinn
leysi ekki þann stóra vanda sem
sjávarútvegurinn sé í, þá bæði er
tekur til útgerðar og vinnslu. Öll
aðföng hækka vegna gengisfell-
ingarinnar og auknar tekjur
vegna breytts gengis vega þar
lítið.
„Skrefið sem stigið var markar
engin spor til framfara eða hag-
sældar. Ef heldur fram sem horfir
er ljóst að enn fleiri fyrirtæki
lenda í vandræðum, sem síðan
leiðir til gjaldþrots. Ég hefði vilj-
að sjá þessa menn sem ríkis-
stjórnina skipa taka á málum af
alvöru. Það sem nú hefur verið
gert er sannkallað hálfkák," segir
Sverrir Leósson. ój
Flskmibiun Noröurlands á Dalvík - Fiskvorö á markaö) vikuna 15.11-21.111992
Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verð Meðalverö (kr/kg) Magn (kg) Verðmæti
Grálúöa 80 70 70,97 1.549 109.930
Hlýri 56 50 52,67 45 2.370
Karfi 38 10 29,54 234 6.912
Keila 59 24 31,68 421 13.337
Lúöa 330 120 236,80 203 48.070
Skarkoli 59 59 59,00 25 1.475
Steinbítur 60 43 52,44 1.408 78.839
Ufsi 34 19 22,31 124 2.766
Undirmál þ. 64 50 58,14 1.129 65.638
Ýsa 90 70 80,94 3.746 303.218
Ýsa smá 75 75 75,00 2 150
Þorskur 85 76 81,89 3.573 292.604
Samtals 73,87 12.459 920.604
Dagur Mrtlr vlkuloga töflu yflr flskvsrð hjá RskmlMun Noröurtands ö Dalvlk og grolnlr þar frö
verölnu sem fékkst i vlkunnl ö unrtan. Þotta er gert I |)6sl þesa aö hlutverk flskmarkaöa 1 verö-
myndun Islenskra sjövarafuröa hefur vaxlö hrööum skrefum og þvt sjálfsagt aö gera lesendum
Maöslns klelft aö fylgjast maö þróun markaösverös á flskl hér» Noröurtandl.
grein að fá á sig þann stimpil
sem nýir skattar gefa. Magnús
benti á að ferðaþjónustan
hefði þrefaldast á síðastliðnum
áratug og væru þessar ákvarð-
anir í mótsögn við almennar
yfirlýsingar stjórnmálamanna
þess efnis að vaxtarbroddur í
íslensku atvinnulífi felist eink-
um í ferðaþjónustunni.
Magnús Oddsson sagði að
jákvæði þátturinn við þessar ráð-
stafanir gagnvart ferðaþjónust-
unni væri, að hún hefði lengi bar-
ist fyrir því að fá tryggingargjald-
ið fært til samræmis við aðrar
útflutningsgreinar og það gerist
með þessum ráðstöfunum. Auk
þess sé einnig jákvætt að
aðstöðugjaldið skuli vera afnum-
ið og í samræmi við að þessi
atvinnugrein hefur barist fyrir því
að losna við skattlagningu. En
jafn neikvætt sé að á sama tíma
og ferðaþjónustan sé losuð við
þessar álögur sé tækifærið notað
til þess að leggja á nýja skatta.
Magnús sagði að í heild geti
niðurstaðan orðið sú að ferða-
þjónustan komi slétt út úr þess-
um skattkerfisbreytingum, en þó
verði að setja slíkt sjónarmið
fram án allrar ábyrgðar á þessari
stundu. Ef niðurstaðan verði sú
að dæmið endi á núlli sé ljóst að
enginn árangur hafi náðst í því
sem barist hafi verið fyrir á
undanförnum árum - að létta
skattbyrði af ferðaþjónustunni
sem atvinnugrein. Og það sem
verra sé að þessar breytingar
komi ójafnt niður á mismunandi
greinum hennar. í þessu efni sé
ekki tekið tillit til neinnar
afkomu. Að öllum líkindum
komi þessar breytingar minna við
þá sem byggja að miklu leyti á
veitingarekstri en þeim sem starfi
eingöngu við gistingu. Magnús
kvað ljóst að þótt heildar dæmið
komi ef til vill út á núlli séu tnikl-
ar líkur til að verð á ferðum og
gistingu hækki án þess að neitt
lækki á móti. Sjá ennfremur
fréttaskýringu um ferðamál í
miðopnu blaðsins. ÞI
Iina kveður
Um næstu helgi verða þrjár
síðustu sýningar á Línu
langsokk hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Á laugardag verður sýning
kl. 14 og tvær sýningar verða á
sunnudag, kl. 14 og 17.30.
Sýningin á Línu langsokk
hefur notið mikilla vinsælda
og eru nú á sjötta þúsund sýn-
ingargestir skráðir á þær 25
sýningar sem komnar eru, en
auk þeirra hefur fjöldi sýning-
argesta setið í kjöltu þeirra
hávaxnari.
Næsta viðfangsefni Leikfé-
lags Akureyrar verður gaman-
leikurinn „Segðu eitthvað,
Charlie“ (The Foreigner) eftir
Larry Shue, sem frumsýndur
verður á þriðja í jólum. óþh
Ríkissaksóknari:
Beiðni Sigurðar hafiiað
Bragi Steinarsson, vararíkis-
saksóknari, fyrir hönd embætt-
is ríkissaksóknara, hefur hafn-
að beiðni Sigurðar Björnsson-
ar, bæjarfulltrúa í Olafsfirði,
um opinbera rannsókn á við-
skiptum Fiskmars hf. við Ólafs-
fjarðarbæ.
í bréfi embættis ríkissaksókn-
ara til Sigurðar segir orðrétt:
„Skilyrði þess að til opinberrar
rannsóknar sé stofnað er að öðru
jöfnu að fram komi kæra eða að
fyrir liggi rökstuddur grunur um
að refsivert brot hafi verið fram-
ið. Markmið slíkrar rannsóknar
er ávallt að ákæranda sé á grund-
velli hennar unnt að ákveða
hvort sækja skuli mann til saka
eða ekki. Sú beiðni um opinbera
rannsókn sem þér berið fram,
aðallega á hendur sjálfum yður,
en einnig með fyrirspurn um
hvort „embættismenn Olafsfjarð-
arbæjar hafi aðhafst eitthvað það
í máli að refsivert teljist,“ er sett
fram með þeim hætti að ekki
þykir, að minnsta kosti að svo
stöddu, efni til þess að verða við
málaleitan yðar.“ óþh
Norðurland vestra:
150 staurar brotnir
Ofsarok með krapahríð gekk
yfir landið á mánudagskvöld
og aðfaranótt þriðjudags.
Vindhraðinn á Norðvestur-
landi var mcstur um 10 vind-
stig í byggð skv. upplýsingum
Veðurstofu. Rafmagn fór
víða af í Skagafirði og Húna-
þingi og var ekki búist við að
rafmagn kæmist almennt á
fyrr en aðfaranótt miðviku-
dags.
Haukur Ásgeirsson svæðis-
rafveitustjóri Rarik á Norður-
landi vestra tjáði blaðinu á
þriðjudag að vitað væri um 150
brotna staura víðsvegar um
sýslurnar vegna ísingar og óveð-
urs. Hann sagði tjónið vera
umtalsvert, en kvaðst ekki geta
metið það í tölum enn sem
kontið væri. Rafmagn fór af
víða á mánudagskvöld og á
þriðjudag var rafmagnslaust á
Vatnsnesi og í Miðfirði í V-
Hún. og í allri A-Hún. nema í
Vatnsda! og á Skagaströnd og í
Skagafirði utan við Hofsós og í
Fljótum, í Sléttuhlíð og að
hluta í Hjaltadal. Að sögn
Hauks voru vinnuflokkar ásamt
björgunarsveitum mættir til
starfa og bjóst hann við að við-
gerð stæði langt fram á nótt og
Krubbsveður á Húsavík
Iliviðri gerði á Húsavík síð-
degis á mánudag. í hvassri
vestanátt myndast vind-
strengur niður með fjöllunum
sem valdið getur skaða, sér-
staklega í suðurbænum. Eru
slík áhlaup nefnd Krubbsveð-
ur og geta verið mjög stað-
bundin. Að sögn Iögreglu er
mildi að enginn varð fyrir
meiðslum í veðrinu á mánu-
daginn en nokkurt tjón varð á
eignum, bílum og húsum.
Allt tjón sem tilkynnt var um
varð í syðsta hluta bæjarins.
Kyrrstæður jeppi, um 1,6
tonn, fauk af veginum við fjár-
húsin á Skógargerðismel. Jepp-
inn fór fjórar veltur og er jafn-
vel talinn ónýtur. Bíll fauk til á
bílastæði, á annan bíl og
skemmdust þeir. Vöruflutn-
ingabíll lenti þversum á vegin-
um á Laxamýrarleiti. Stofu-
gluggi splundraðist í húsi við
Brúnagerði og bílskúrsdyr og
bílskúrshurðir í húsum við
Litlagerði. Gluggar brotnuðu
einnig í húsum við Heiðargerði
og Stórhól. Garðhýsi fauk og
jeppakerrur voru á ferð við
Þverholt.
Fólk beið í röðum eftir
aðstoð iögreglu og um tíma var
einnig vakt hjá Björgunarsveit-
inni Garðari. IM
því ekki að vænta rafmagns á ný
fyrr en á aðfaranótt miðviku-
dags. Rafmagn var skammtað á
Siglufirði, en fjórir staurar
brotnuðu í Siglufjarðarlínu.
Haukur sagði jafnframt að
tvær staurasamstæður í Byggða-
línu væru brotnar við Köldu-
kinn milli Blönduvirkjunar og
Laxárvatns. Þetta kemur þó
ekki að sök eins og er, „við
njótum góðs af því að hring-
bindingin er á Byggðalínunni og
Bianda inni á kerfinu", sagði
Haukur. Hjá Vegagerð ríkisins
á Sauðárkróki fengust þær upp-
lýsingar á þriðjudagsmorgun að
verið væri að skafa krap af veg-
um og allar leiðir væru opnar.
Að sögn Magnúsar Jónssónar
veðurfræðings er líklegt að
mesti vindhraði á mánudags-
kvöldið hafi verið um 10
vindstig. Hann sagðist ekki eiga
von á annarri eins lægð í bráð.
sþ
Tjömeslína gaf sig
Miklar rafmagnstruflanir uröu
á Húsavík frá kl. 16.40 til 21 á
mánudag. Tjörneslína gaf sig
um tíma og leggurinn frá
henni tU endurvarpsstöðvanna
á Húsavíkurfjalli fór mjög
illa. Endurvarpsstöövar fyrir
sjónvarp og útvarp urðu því
rafmagnslausar. Póstur og
sími er með rafgeyma á fjall-
inu fyrir sinn búnað, sem
endast í sóiarhing.
Á þriðjudagsmorgun fóru
starfsmenn Pósts og síma með
rafstöð á fjallið og komust
útvarpsendingar f samt lag kl.
10.15, að sögn Eggerts Haralds-
sonar, stöðvarstjóra. Línan á
fjallið er sliguð af ísingu og mun
taka nokkurn tíma að koma
henni í samt lag.
Eftir miklar rafmagnstruflan-
ir fyrir tæpum tveimur árum var
ákveðið að Húsavíkurbær
keypti varasendi til notkunar í
neyðartilfellum. Aðspurður
sagði Einar Njálsson, bæjar-
stjóri, að sendirinn hefði verið
keyptur, væri kominn til bæjar-
ins og framhaldsskólanemar
væru nú að vinna að því að
koma upp útvarpsstöð. „Þessi
sendir var hugsaður til að geta
komið tilkynningunt til fólks ef
eitthvað bæri útaf, en i fram-
haldi af því var reynt að hafa
áhrif á að varaaflsstöð yrði kom-
ið upp við endurvarpsstöðvarn-
ar á fjallinu," sagði Einar.
Rafmagn fór einnig af endur-
varpsstöðinni á Viðarfjalli. Þar
er vararafstöð, sem komst þó
ekki í gang fyrir farið var upp á
fjallið um miðnætti. IM