Dagur - 25.11.1992, Síða 3
Miðvikudagur 25. nóvember 1992 - DAGUR - 3
r
Fréttir
55
Desembervaka, söfnunarátak Gilfélagsins á Akureyri:
Engin upphæð er of smá
44
Á fullveldisdaginn 1. desem-
ber hefst „Desembervaka“ á
Akureyri og framkvæmdastjóri
hennar er Haraldur Ingi Har-
aldsson, myndiistarmaður. Til
vökunnar er efnt af Gilfélaginu
á Akureyri. „Desembervak-
an“ er fjáröflunarátak og pen-
ingum verður varið í að full-
gera gestavinnustofu, sýninga-
sal og þjónustumiðstöð í Lista-
gili (Grófargili).
Haraldur Ingi segir að Gil-
félagið sé hópur áhugamanna er
vinna að uppbyggingu á lista- og
Athugasemd
vegna fréttar
Vegna fréttar í Degi í dag (24.
nóvember) um fjölda lögreglu-
manna og íbúa í umdæmunum
hér á Norðurlandi, þykir rétt að
taka fram eftirfarandi:
íbúafjöldi í umdæmi lögregl-
unnar á Akureyri/Dalvík eftir 1.
júlí sl. er 19322 (miðað við íbúa-
skrá 1. desember sl.). Lögreglu-
þjónar eru 29 og þar með taldir 4
rannsóknarlögreglumenn. Því
koma hér 666 íbúar á lögreglu-
mann en ekki 586. Að auki eru
starfandi 4 fangaverðir á Akur-
eyri. Elías I. Elíasson.
menningarstarfsemi í Grófargili á
Akureyri. Félagið vinnur að því
að koma á fót iistsýningasal,
gestavinnustofu og þjónustumið-
stöð og mun annast þann rekstur
í framtíðinni. Þetta starf er nú
langt komið og af því tilefni er
efnt til söfnunarátaks með það að
markmiði að hefja megi blóm-
lega starfsemi þegar á næsta ári.
„Fjáröflunarátakið er nú þegar
hafið og nær hápunkti sínum með
„Desembervöku" er hefst í byrj-
un desember með myndlistarsýn-
ingu og uppákomum. Myndlist-
armenn landsins hafa sýnt starfi
og uppbyggingu í Listagilinu ein-
stakan stuðning og velvilja. Á
sannkallaðri stórsýningu, sem
haldin verður í því húsnæði sem
söfnunarféð rennur til, verða
sýnd og boðin til sölu um 90 lista-
verk sem Gilfélagið hefur fengið
að gjöf af þessu tilefni. Á meðan
á sýningunni stendur verða ýmsar
uppákomur gestum til yndisauka
s.s. tónlist, söngur, dans og upp-
lestur. Þessi atriði verða auglýst
síðar. Desembervakan stendur
fram til jóla.
Meðan á átakinu stendur verð-
ur haft samband við fyrirtæki sem
einstaklinga með bón um lið-
veislu. Hinir fjölbreyttustu kostir
eru fyrir velunnara lista og
menningar að hjálpa Gilfélaginu
síðasta spölinn. Fyrir utan mik-
inn fjölda listaverka sem kosta á
bilinu 4-150.000 kr. eru seldar
Akureyri:
Verðkönnun í bakaríum
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis gerði verðkönnun í
bakaríum á Akureyri dagana 18.
og 19. nóvember sl. og eru niður-
stöður hennar meðfylgjandi.
Samkvæmt upplýsingum Neyt-
endafélagsins er uppgefið verð í
þessari könnun miðað við eitt
kíló af brauði eða kökum og er
það viðmiðunarverð bakarísins.
Einstaka matvöruverslanir gefa
afslátt frá þessu viðmiðunarverði
og auglýsa hann þá sérstaklega.
Ekki er tekið tillit til hugsanlegs
mismunar á gæðum hráefnis, en
gert ráð fyrir að brauð með sama
eða svipuðu nafni séu sambæri-
leg.
EtNARS KEA KRISTJÁNS
Ver6 pr. kg. Ver8 pr. kg. Verð pr. kg, Mismunur
BRAUÐ: Franskbrauð 254 212 247 20%
Snittubrauð 611 641 429 49%
Kjamabrauð 323 232 300 39%
Seytt rúgbrauð 26$ 194 235 38%
GRÓFBRAUÐ: Meðalverð 4 tegunda 264 274 270 4%
SMÁBRAUÐ: Birkirúnnstykki 783 611 727 28%
Gróf rúnnstykki 585 524 449 30%
Hamborgarabrauð 625 466 474 34%
Pylsubrauð 500 667 468 42%
Mjúkar kringlur 600 688 471 46%
KÖKUR: Vínarbrauð 745 686 986 44%
Snúðar 378 304 373 24%
Vlnarterta 627 624 453 38%
Jólakaka 747 682 710 10%
Marmarakaka 754 991 793 32%
Verðstuðull 106 99 96 10%
S? £ ...alltaf þegar
/,v W við erum vandlát
1 auglýsingar og styrktarlínur í
sýningarskrá sem dreift verður í
öll hús á Akureyri. Hægt er að
freista gæfunnar í listaverka-
happdrætti og gírónúmer söfnun-
arinnar er 608335. Engin upphæð
er of smá,“ segir Haraldur Ingi
Haraldsson. ój
0 sole mio í Gryíjunni
Jón Hlöðver Áskelsson, framkvæmdastjóri Kammerhljómsveitar
Akureyrar, segir að fjáröflunartónleikar fyrir Kammerhljómsveit-
ina sl. sunnudag í Gryfjunni í húsnæði Verkmenntaskólans á Akur-
eyri hafi gengið vel. Jón Hlöðver sagði að sá fjöldi listamanna sem
lagði fram sína vinnu endurgjaldslaust væri til marks um góðan hug
til Kammerhljómsveitarinnar. Á meðfylgjandi mynd sem Robyn
tók á tónleikunum taka þrír stórtenórar O sole mio; Óskar Péturs-
son, Sigurður V. Demetz og Sigurður Bernhöft. óþh
Verðhækkun
ábensíni
og díselolíu
Bensín og díselolía hækkaði
í verði í gærmorgun af völd-
um 6% gengisfellingar. Lítr-
inn af bensíni hækkar um
tvær krónur og díselolían
um eina krónu og sextíu
aura.
Bensín er selt í þremur
flokkum sem fyrr, 92, 95 og 98
okt. Hjá Esso Olíufélaginu hf.
kostar 92 okt. bensín kr. 58,70
(hækkun kr. 2,00), 95 okt.
kostar kr. 61,80 (hækkun kr.
2,10) og 98 okt. kostar kr.
65.80 (hækkun kr. 2,30).
Hjá Skeljungi hf. kostar 92
okt. bensín kr. 58.80 (hækkun
kr. 1,90), 95 okt. kostar kr.
61.70 (hækkun 2,20) og 98
okt. kostar kr. 65,80 (hækkun
kr. 2,20).
Hjá Olíuféiagi íslands hf.
kostar 92 okt. bensín kr. 58,80
(haskkun kr. 2,00), 95 okt. kr.
61.80 (hækkun kr. 2,20) og 98
okt. kostar kr. 65,70 (hækkun
kr. 1,90).
Hver lítri af díselolíu kostar
nú 22,90 (hækkun kr. 1,60) og
steinolíulítrinn kostar kr.
35,40 (verð óbreytt). ój
ÞettaerErk
Húnereinaf
78 þjónustufulltrúurn
í Landsbankanum.
Þjónustufulltrúinn
aðstoðar Vörðufélaga
við gerð fjárhagsáætlana
um heimilisreksturinn.
Þjónustufulltrúinn í Landsbankanum
er persónulegur fjármálaráðgjafi þinn
og trúnaðarmaður og gætir fjárhags-
legra hagsmuna þinna í hvívetna.
Hann gefur þér ráð og svarar spurn-
ingum þínum um hvaðeina sem lýtur
að fjármálum og bankaþjónustu.
Ef þú ert þátttakandi í Vörðu, Námu
eða RS, Reglubundnum
sparnaði, færðu þinn eigin
fasta þjónustufulltrúa.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna