Dagur - 25.11.1992, Side 7
Miðvikudagur 25. nóvember 1992 - DAGUR - 7
Brynjólfur fái lögreglubúning!
Mig langar til þess, að taka undir
kröfuna í laugardagsblaði Dags
14. nóv. sl. Hún var á þá leið, að
Brynjólfur Brynjólfsson mat-
reiðslumaður fengi búning og
derhúfu, og yrði gerður að
umferðarlögregluþjóni.
Er tegundin útdauð?
Nú veit ég ekki hvort þetta orð,
umferðarlögregluþjónn, er til í
norðlensku máli. Má vera að svo
sé. En það sem átt er við með
þessu orði, er harla fáséð í dag,
ef ekki alveg útdautt. Ég get að
„Þennan lögregluþjón
hefí ég ekki séð, það
sem af er vetri. Kannski
fer hann til heitu land-
anna á haustinn eins og
farfuglarnir. Kannski
leggst hann í hýði yfír
veturinn eins og skógar-
björninn. Kannski er
tegundin útdauð.
Hver veit?“
vísu ekki neitað því, að ég sá
stöku sinnum í sumar lögreglu-
þjón í miðbænum. En hann var
ekki á þeim buxunum að skipta
sér að umferðinni sem slíkri, svo
ömurleg sem hún annars var.
Nei, hann skrifaði sektarmiða og
setti undir rúðuþurrkur bíla, sem
stóðu við stöðumæla, sem ekki
hafði verið borgað í. Annað virt-
ist hann ekki sjá; t.d. bíla sem
lagt hafði verið á gangstéttina;
bíla hlið við hlið á akbrautinni,
með bílstjórana í hörkusamræð-
um, stöðvandi alla umerð; fólk
reynandi að komast yfir götuna á
Algeng sjón á götum Akureyrar og dæmi um afleita hegðun ökumanna. Þarna hafa tveir kunningjar tekið tal saman
og stöðvað bíla sína - og alla umferðina að auki!
Bátur af gerðinni SÓMI 860.
Bátasmiðja Guðmundar:
Framleiðir nýja gerð SÓMA-báta
Bátasmiðja Guðmundar í Hafn-
arfirði hefur nú hafið framleiðslu
á nýrri gerð SÓMA-báta, SÓMA
860. Þessi nýi bátur er hannaður
og byggður á langri reynslu, sem
skapast hefur við notkun SÓMA
800 báta, en þeir hafa verið not-
aðir til veiða hér við land og er-
lendis í tæp 10 ár. Hátt í 200 bát-
ar hafa verið smíðaðir af þeirri
gerð, sem ber vott um vinsældir
SÓMANNA.
SÓMI 860 er tæplega 8,6 m
langur og mælist 5,9 brúttótonn.
Báturnn hefur stærri botn og er
burðarmeiri en fyrirrennarar
hans. Sem vinnubátur hefur hann
uppá að bjóða mun meira dekk-
pláss, meira lestarrými og meiri
burðargetu en SÓMI 800. í lest
er hægt að koma fyrir teimur ein-
angruðum fiskikerjum auk fjög-
urra smærri kerja. Reynsla hefur
sýnt, að lestin rúmar upp undir 2
tonn af afla, auk þess sem hægt er
að hafa í kerjum eða kössum á
dekki.
Hvað öryggi og þægindi varð-
ar, hefur SOMI 860 öll nauðsyn-
leg staðsetningar- og fiskileitar-
tæki, en þau eru af gerðinni
Raytheon, frá fyrirtækinu Sónar í
Keflavík. Rými í húsi hefur verið
aukið töluvert.
Staðalbúnaður í SÓMA 860 er
306 hestafla Volvo dieselvél frá
Brimborg, með föstum öxli og
skrúfu. Með þessum búnaði hef-
ur ganghraðinn mælst 29 hnútar,
en eðlilegur keyrsluhraði er á bil-
inu 20-24 hnútar. Þessi mikli
hraði, sem er einstakur fyrir
fiskibáta af SÓMA-gerð, næst
við það að bátarnir lyfta sér og
liggja að mestu ofan á vatninu.
Þar með minnkar mótstaðan og
eldsneytiseyðslan helst í hófi.
Hægt er að fá hældrif í stað hefð-
bundins öxulbúnaðar í SÓMA
860.
SÓMI 860 hefur nú í nokkrar
vikur verið í notkun í Grímsey.
Að sögn eiganda hefur hann
reynst afar vel í alla staði við
mjög misjafnar aðstæður.
Árni Valur Viggósson.
gangbraut, án árangurs, vegna
frekju og tillitsleysís ökumanna,
jsem þarna áttu leið um. Þannig
Imætti lengi telja. Þennan lög-
regluþjón hefi ég ekki séð, það
sem af er vetri. Kannski fer hann
til heitu landanna á haustin eins
og farfuglarnir. Kannski leggst
hann í hýði yfir veturinn eins og
skógarbjörninn. Kannski er teg-
undin útdauð. Hver veit?
Að koma vitinu fyrir
akureyrska ökumenn
Því segi ég það. í fúlustu alvöru.
Okkur vantar mann, sem hefir
áhuga fyrir góðri umferðarmenn-
ingu og auga fyrir því sem betur
má fara. Látum Brynjólf taka að
sér umferðarstjórnun um tíma.
Ef það mætti verða til þess að
koma vitinu fyrir akureyrska
ökumenn.
Kannski ættum við þá eftir að
upplifa það í framtíðinni, að allir
ökumenn færu að virða bið- og
stöðvunarskyldu. Að allir lærðu
að aka hringtorgið (margir eru
þeir sem ekki kunna það í dag).
Að maður sæi ekki lengur bíla
fara yfir gatnamót á móti rauðu
ljósi (sem í dag er mjög algengt).
Ög síðast og ekki síst að allir
ökumenn lærðu að nota stefnu-
ljós (nokkuð sem harla fáir virð-
ast kunna í dag).
Við Brynjóflur vitum að allt
þetta verður aldrei lagað með því
að sitja einhvers staðar á rassin-
um og segja: Ég ætla ekki sam-
borgurum mínum það að þeir
brjóti umferðareglur! Þeir sem
eiga að sjá um að farið sé eftir
umferðalögum og reglum verða
að vera úti á götunum. Þeir verða
að hafa vakandi auga með öku-
mönnum og gangandi vegfarend-
um og leiðbeina þeim, sem ekki
kunna sig í umferðinni.
Kannski skapaðist þá hér á
Akureyri í framtíðinni það
ástand, sem í daglegu tali kallast
umferðarmenning. Kannski er
tegundin, sem að ég minntist á,
ekki útdauð. Kannski kemur lög-
regluþjóninn frá heitu löndunum
eða út úr hýðinu í vor og hjálpar
til við að kippa þessu öllu í lag
næsta sumar. Hver veit?
Árni Valur Viggósson.
Höfundur er áhugamaður um bætta
umferðarmenningu.
Millifyrirsagnir og fyrirsögn eru blaðsins.
Félag harmonikuunnenda
Félagsvist og
dansleikur
verður í Lóni v/Hrísalund laugardaginn 28.
nóvember.
Félagsvistin hefst stundvíslega kl. 21.00.
(Verðlaun verða veitt.)
Húsið er lokað til kl. 23.00 en þá hefst dansleik-
ur sem stendur til kl. 03.00. Stjórnin.
Orðsending
frá Sögufélagi Eyfirðinga
og Skjaldborg
Afgreiðslan í Hafnarstræti 90 verður opin tiljóla
sem hér segir:
Virka daga frá kl. 10-18, laugardaga eins og verslan-
ir í bænum. Þorláksdag frá kl. 10-23 og aðfangadag
frá kl. 10-12 á hádegi.
Alla dagana verður opnað kl. 10 árdegis.
w Námskeið um
K^sKVinnuvernd
Endurmenntunamefnd Háskólans á Akureyri
gengst fyrir stuttu námskeiði um vinnuvernd.
Fjallað verður m.a. um hvað felst í hugtakinu vinnu-
vernd og um vinnuverndarátak í fyrirtæki. Nám-
skeiðið er einkum ætlað stjórnendum.
Tími: Fimmtudagurinn 3. desembernk. kl. 16.30-19.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri v/Þingvallastræti.
Umsjón: Magnús Ólafsson, sjúkraþjálfari.
Verð: Kr. 2.000.
Innritun fer fram á skrifstofu Háskólans á Akureyri í
síma 11770 til og með 2. desember nk.