Dagur - 25.11.1992, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 25. nóvember 1992
Spurning vikunnar
Er undirbúningur fyrir jólin
______hafinn hjá þér?
Steinþór Þorsteinsson:
Undirbúa jólin? Nei, það held
ég ekki, en það gæti farið að
styttast í það.
Aðalsteinn Júlíusson:
Nei!
Ragnheiður Högnadóttir:
Já, ég erfarin að undirbúa jólin
og hef þegar keyþt mikið af jóla-
gjöfum. Ég fór m.a. til Glasgow
að versla fyrir þremur vikum
síðan.
Bryndís Kristjánsdóttir:
Ég er aðeins byrjuð að kaupa
jólagjafir. Ég fer síðan að setja
upp aðventuljós þegar aðvent-
an byrjar og baka einhverjar
smákökur.
Jóhannes Páll Jónsson:
Já, ég er farinn að hugsa til jól-
anna og hugleiða hvað ég
kaupi til jólagjafa. Annar undir-
búningur er nú ekki hjá mér.
D
Tækni hefur rutt sér til rúms í bílaþjónustu eins og öðrum atvinnugreinum. Myndin er af réttingavé! á bilaverkstæð-
inu Þórshamri hf. á Akureyri. Áður urðu menn oft að notast við sleggjuna þegar laga þurfti skemmdir á ökutækjum.
Bflgreinasambandið:
Um 10% af heildarvuinu-
afli starfar við bfla
- komið verði á fót sérstökum bílgreinaskóla
Um 1500 einstakiingar störf-
uðu við bflaviðgerðir hér á
landi í lok síðasta áratugar. Er
það nokkur fækkun frá undan-
förnum árum, því allt að 1800
manns voru starfandi í grein-
inni þegar flest var á árinu
1984. I upphafi áratugsins
störfuðu um 1620 manns við
bflaviðgerðir og hafa ekki færri
starfað í greininni allan áratug-
inn en við lok hans. Þá hefur
einnig orðið umtalsverð fækk-
un þeirra sem starfa við sölu-
bíla. í upphafi störfuðu um
600 manns við þá atvinnugrein
og náði fjöldi þeirra hámarki
árið 1987 þegar sölumenn voru
um 800. í árslok 1990 störfuðu
ekki nema tæplega 700 manns
við þessa sölustarfsemi. Þá
hefur fyrirtækjum er annast
þjónustu vegna bíla og vara-
hluta farið fækkandi. Tæplega
120 aðilar sinntu slíkri þjón-
ustu árið 1990 en voru orðnir
um 185 á árinu 1987, þegar
bílainnflutningur var í
hámarki. í árslok 1990 önnuð-
ust um 130 fyrirtæki þjónustu
með bfla. Þessar upplýsingar
koma fram í talnahefti um
þróun bflgreinarinnar, sem
lagt var fram á aðalfundi Bfl-
greinasambandsins fyrr í þess-
um mánuði.
Hlutfall bílgreinanna í heildar-
vinnumarkaði landsmanna var
um og yfir 2% allan síðasta ára-
tug þar til í lok hans að hlutfallið
fór niður fyrir 2%. Þá lækkaði
hlutfall þeirra tekna sem ríkið
hefur af bílum úr um 20% af
heildartekjum þess á árinu 1980 í
14% á árinu 1990 en var rúm
15% á árinu 1991. Á sama tíma
fór fjöldi bíla á hverja þúsund
íbúa vaxandi fram til ársins 1988.
Þá voru um 570 bílar á hverja
þúsund íbúa en eru liðlega 500
eða einn bíll á hverja tvo íbúa í
dag þegar allt er talið. Á árinu
1991 voru hátt í 140 þúsund bílar
á skrá hér á landi.
Um 10% af heildarvinnu-
afli starfar við bfla
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins vakti athygli á þjóðhagslegu
mikilvægi bílgreinarinnar þar
sem 2% til 2,5% af vinnandi fólki
starfi innan hennar. Ef tekið sé
tillit til þeirra sem starfi við akst-
ur bifreiða, afgreiðslu eldsneytis
og fleiri starfa tengdri bílgrein-
inni láti nærri að 10% af heildar-
vinnuafli landsmanna hafi viður-
væri sitt, beint og óbeint af tilvist
og notkun bifreiða hér á landi. Þá
benti aðalfundur Bílgreinasam-
bandsins á að einungis þriðjung-
ur þeirra tekna er ríkið innheimti
af bílum renni til vegamála.
Margir vaxtarbroddar í atvinnu-
lífinu byggist hins vegar á góðum
farartækjum og að aðstaða til
samgangna sé góð. Aðalfundur-
inn benti sérstaklega á þróun
ferðamála í því sambandi.
Dregið verði úr gjald-
heimtu og skattlagningu
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins vakti einnig athygli á því að
miklar álögur og há gjöld á bíla
og bílavarahluti séu úr takt við
tímann - ekki síst nú á tímum
aukinnar samvinnu á milli landa
og sameiginlegs markaðar með
tilkomu samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið. Því sé nauðsyn-
legt að dregið verði úr þessari
gjaldheimtu en hún ekki aukin
eins og raunin virðist ætla að
verða. í því sambandi hefur Bíl-
greinasambandið lagt til að stefnt
verði að einu vörugjaldi á fólks-
bifreiðar með fækkun gjald-
flokka og verði þeim fækkað í
fyrsta skrefi úr sjö í þrjá um
næstu áramót.
Svört atvinnustarfsemi
í bflaviðgerðum
býður hættunni heim
Þá benti aðalfundur Bílgreina-
sambandsins á nauðsyn þess að
menntun fylgi hinni öru tækni-
þróun er nú eigi sér stað hvað
ökutæki varðar og sé í samræmi
við þær kröfur sem markaðurinn
geri á hverjum tíma og skorar á
menntamálaráðherra að koma í
framkvæmd tillögum sem fram
hafi verið lagðar um sérstakan
Bílgreinaskóla. Þá er einnig vak-
in athygli á brýnni þörf aukins
eftirlits og aðgerða gegn svartri
atvinnustarfsemi, sem bæði leiði
af sér tekjutap fyrir hið opinbera
og valdi einnig ákveðnum hætt-
um hvað öryggismál varðar. Bent
er á að bifreiðar nútímans krefj-
ist mikillar þekkingar af hálfu
iðnaðarmanna auk góðs tækja-
búnaðar til viðhalds og viðgerða.
ÞI
Búnaði bfla fer sífellt fram og viðgerðaþörf minnkar. Margt er breytt frá þeim tíma er þessi Land-Rover þurfti
aðhlynningar við á Langanesi í lok áttunda áratugarins.