Dagur - 25.11.1992, Page 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 25. nóvember 1992
Tónlist
Hl styrktar Kanunerhljómsveitimii
Sunnudaginn 22. nóvember var
efnt til mikilla tónleika til styrkt-
ar Kammerhljómsveit Akureyr-
ar. Tónleikarnir voru haldnir í sal
Verkmenntaskólans á Akureyri,
sem kallaður er Gryfjan.
Nokkur eftirvænting ríkti varð-
andi hljómburð í salnum. Hann
er engan veginn hannaður sem
tónleikahúsnæði, heldur er hann
samkomusalur skólans og matsal-
ur nemenda. í ljós kom, að
hljómburður er nokkuð góður
hvað snertir tónburð einstakra,
en nokkuð dempaður og daufur.
Nú þyrfti að athuga með góðra
manna aðstoð, hvaða breytingar
mætti gera á salnum til þess að
bæta hljómburð hans og einna
helst gera hann bjartari, því að
sem húsnæði til samkomuhalds af
ýmsu tagi er hann tilvalinn fyrir
margra hluta sakir. Einnig þyrfti
að huga að aðferðum til þess að
lyfta öftustu sætaröðum, því að
útsýni þeirra, sem aftast sitja, er
óneitanlega nokkuð takmarkað.
Á meðan gestir voru að ganga í
salinn lék hljómsveit skipuð
Völvu Gísladóttur, Arnheiði Sig-
urðardóttur og Hlíf ísaksdóttur á
þverflautur, Ármanni Einarssyni
á píanó, Jóni Rafnssyni á kontra-
bassa og Karli Petersen á
trommur, nokkur jazzlög. Hljóð-
færaskipanin var sannarlega
óvenjuleg, en flutningurinn var
skemmtilegur; vandaður og fág-
aður. Petta var einkar ánægjulegt
upphaf góðrar samverustundar.
Efnisskrá tónleikanna var afar
fjölbreytt. Hún hófst á söng Kórs
Akureyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar.
Kórinn flutti negrasálminn Deep
River, Skólavörðuholtið hátt eft-
ir Atla Heimi Sveinsson við ljóð
Pórbergs Þórðarsonar og Pú ert
eftir Þórarinn Guðmundsson við
texta Gests. Síðari lögin tvö
útsetti Jón Hlöðver Áskelsson.
Kórinn fór vel með þessi lög öll,
en þó hefði nokkuð meiri fylling í
raddirnar verið æskileg, sér í lagi
efri raddir. Bassinn stóð sig
skemmtilega ekki síst í Deep
River, þar sem hann náði
ánægjulegri fyllingu víða í laginu.
Næst flutti mezzosópransöng-
konan Moira Lang við undirleik
Jenniferar Spears á gítar Come
Again eftir J. Dowland og Polo
eftir M. de Falla. Rödd Moiru
Langs var nokkuð óstyrk í fyrstu,
en er á leið færðist í hana aukið
öryggi og naut hún sín orðið all-
vel er leið að lokum fyrra
verksins. Seinna verkið var allvel
flutt, en ekki meira en svo við
hæfi söngkonunnar. Jennifer
Spears sló gítarinn af miklu
öryggi og studdi söngkonuna
dyggilega.
Hólmfríður Benediktsdóttir
flutti aríuna In quelle trine mobide
eftir G. Puccini. Undirleikari á
píanó var Guðrún A. Kristins-
dóttir. Frammistaða beggja var
með áægtum. Guðrún Iék einnig
undir söng Óskars Péturssonar í
laginu Zueignung eftir R.
Strauss. Óskar var góður að
vanda, en örlítið brá þó fyrir því
að tónninn væri í lokaðra lagi á
miðsviði raddarinnar.
Sigurður Bernhöft, tenór,
flutti við undirleik Helgu Bryn-
dísar Magnúsdóttur lögin Kveðja
eftir Þórarinn Guðmundsson við
ljóð Bjarna Þorsteinssonar og
Dein is mein gazes Hertz eftir F.
Lehár. Sigurður er ungur söngv-
ari og enn í námi hjá Sigurði
Demetz, söngkennara. Með það
í huga var frammistaða hans góð
og bar þess vott, að hann geti náð
langt á söngsviðinu. Undirleikur
Helgu Bryndísar var góður, en
ekki gallalaus.
Næst kom uppákoma utan
prógrams, en það var þrísöngur
Óskars Péturssonar, Sigurðar
Demetz og Sigurðar Bernhöfts.
Þeir fluttu O, sole mio í anda
erlendra stórsöngvara við mikla
gleði þeirra, sem á hlýddu.
í hléi lék Stórsveit Lúðrasveit-
ar Akureyrar þrjú lög: Over the
Rainbow, The Preacher og Fly
Me to the Moon. Leikur hljóm-
sveitarinnar var allgóður. Reynd-
ar var hornatóninn nokkuð
óstyrkur á köflum sérstaklega í
básúnum, en tréblásarar komust
almennt vel frá sínu. Einleikarar
gerðu vel. Þeir voru Gordon
Jack, sem blés fallegum, opnum
tóni í trompet sitt, Ingvi
Vachlaw, á saxófón, Finnur Eydal
líka á saxófón og Guðjón Pálsson
á píanó.
Kór Glerárkirkju kom fram
næstur og flutti þrjú lög undir
stjórn Jóhanns Baldvinssonar.
Lögin voru: Ut í vár hage,
Kerringa med staven og Undir
bláum sólarsali. Flutningur kórs-.
ins var léttur og óþvingaður.
Hann var öruggur og bar vott
sönggleði, sem skiptir miklu í
flutningi kórverka.
Næst kom leikur hljóðfæra-
sveitar, sem skipuð var nemend-
um í Tónlistarskólanum á Akur-
eyri. Þeir léku á fiðlur, selló,
þverflautu og óbó. Þessi sveit
flutti óbókvartett í G-dúr eftir
J. C. Bach, en Christopher
Thornton, kennari við skólann,
hafði haft umsjón með þjálfun
flutningsins. Frammistaða
nemendanna var með ágætum.
Leikur þeirra var öruggur og
góður í sem næst öllu tilliti,
áherslur jafnar og vel útfærðar og
allur bragur mjög við hæfi.
Ánægjulegt væri að eiga þess
kost að heyra oftar þessa ágætu
tónlistarmenn leika saman.
Jaqueline Simm, óbóleikari,
og Tom Higgerson, píanóleik-
ari fluttu Italskan dans eftir
Madeleine Drieg. Þetta er létt og
Auglýsendur
takið eflir!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblöðin
okkar er kl. 14.00 ó fimmtudögum.
Ml
auglýsingadeild, sími 24222
Opið frá kl. 8-17 virka daga, nema föstu-
daga frá kl. 8-16. Ath! Opið í hádeginu.
skemmtilegt verk, sem báðir
flytjendur fluttu af öryggi og
fjöri.
Þá kom fram Christopher
Thornton með sópransaxófón og
Helga Bryndís Magnúsdóttir,
píanóleikari, og fluttu Piéce en
Forme de Habanera eftir M.
Ravel. Samleikur tónlistarmann-
anna var með ágætum og leikur
Christophers Thorntons sérlega
lifandi og góður á sópransaxófón-
inn.
Helga Bryndís Magnúsdóttir,
píanóleikari, lék píanóverkið
Flugeldar, sem er prelúdía eftir
Cl. Debussy. Flutningur Helgu
Bryndísar var hrífandi. Hún fór á
milli ljúfra, hrynblíðra kafla
verksins og æðis þess af léttleika
og öryggi, sem lét engan mann
ósnortinn.
Tónleikunum lauk á leik
Kammerhljómsveitar Akureyrar
undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar. Hljómsveitin
flutti þrjú verk: Valse Romantique
eftir J. Sibelius, Söknuð eftir
Jóhann Helgason, þar sem Páll
Gunnarsson söng texta Vilhjálms
Vilhjálmssonar, og Snert hörpu
mína eftir Atla Heimi Sveinsson
við texta Davíðs Stefánssonar og
í útsetningu Jóns Hlöðvers
Áskelssonar. Leikur hljómsveit-
arinnar í fyrsta verkinu var engan
veginn góður. Strengir voru ekki
samhæfðir og flutningur allur
daufur og þunglamalegur. Hin
tvö verkin tókust mun betur og
var sérstaklega flutningur á
Soknuði talsvert vel af hendi
leystur.
Nokkur hundruð manns sóttu
tónleikana í Gryfju Verkmennta-
skólans á Akureyri og gerðu þeir
góðan róm að frammistöðu flytj-
enda. Kynnir var Björn Þórleifs-
son, en hann hljóp í skarðið fyrir
þann, sem vera átti í þessu hlut-
verki, og gerði mjög vel.
Það er Ijóst, að grundvöllur er
fyrir tónleika af þessu tagi og
vonandi verður efnt til einhvers í
svipuðum dúr aftur. Vafalítið
yrði aðsókn ekki síðri þá - miklu
líklegra, að hún yrði meiri, því
vel hlýtur framtakið að mælast
fyrir svo gott sem það er.
Haukur Ágústsson.
Námskeið um kristið líf og kristinn vitnisburð:
Gervihnattamóttaka í marsmánuði
frá samkomum Billy Graham
Þessa dagana stendur yfir á
Akureyri námskeið um kristið
líf og kristinn vitnisburð. Það
eru kristnir söfnuðir og hópar
sem standa fyrir námskeiðinu,
en í undirbúningi er gervi-
hnattamóttaka á samkomum
bandaríska vakningaprédikar-
ans Billy Graham í borginni
Essen í Þýskalandi í marsmán-
uði 1993.
Námskeiðið er ætlað til undir-
búnings þeim sem vilja vera virk-
ir við samkomuátakið og fara þau
fram á miðvikudagskvöldum.
Um 70 manns sótti fyrsta nám-
skeiðið þar sem fjallað var um
árangursríkt trúarlíf og var leið-
beinandi Bjarni E. Guðleifsson.
Næsta námskeið verður í Hvíta-
sunnukirkjunni og fjallar um
sigrandi trúarlíf. Fyrsta nám-
skeiðið í desember verður í húsi
Hjálpræðishersins og fjallar um
kristinn vitnisburð og á síðustu
samverunnni verður fjallað um
uppbyggingu kristins manns.
GG
Tónleikar söng-
deildar í kvöld
Söngdeild Tónlistarskólans á
Akureyri verður með tónleika
í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju í kvöld, miðvikudaginn
25. nóvember, kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt. íslensk og erlend sönglög,
dúettar og óperuaríur.
(Fréttatilkynning)
Skák
Haustmót yngri flokka lokið
Björn og Birna sigurvegarar
- Páll,
Haustmóti Skákfélags Akur-
eyrar í barna- og unglinga-
flokki er nú lokið. Teflt var í
flokki 13-15 ára og í flokki 12
ára og yngri (drengja- og
stúlknaflokki).
Efstu menn í unglingaflokki,
13-15 ára, urðu: 1. Páll Þórsson 8
vinningar af 9 mögulegum. 2.
Gestur Einarsson 6'A v. 3. Einar
Jón Gunnarsson 6lá v. 4. Halldór
Ingi Kárason 6V2 v. 5. Baldur Sig-
Skákfélag Akureyrar stóð
nýverið fyrir 15 mínútna móti
og þar sýndi Ólafur Kristjáns-
son á áþreifanlegan hátt að
hann er ekki dauður úr öllum
æðum. Ólafur fékk 8 vinninga
af 8 mögulegum og sigraði með
urðsson 5Vi v.
Efstu menn í drengjaflokki: 1.
Björn Finnbogason 6 vinningar
af 7 mögulegum. 2. Davíð Stef-
ánsson 5 v. 3. Sverrir Arnarsson
4 v. 4. Heimir Örn Jóhannesson
4 v.
Fyrsta atskakmot Akureyrar
hefst fimmtudaginn 26. nóv-
yfirburðum.
í 2. sæti varð Jón Björgvinsson
með 5 V2 vinning, Sveinbjörn Sig-
urðsson náði 3. sætinu með 5 v.
og Einar Jón Gunnarsson nartaði
í hæla hans, einnig með 5 vinn-
inga. SS
í þessum flokki, 12 ára og
yngri, tefldu stúlkur og varð röð
þeirra efstu þessi eftir auka-
keppni: 1. Birna Baldursdóttir 4
v. (+3). 2. Þórhildur Kristjáns-
dóttir 4 v. (+2). 3. Ólafía K.
Guðmundsdóttir 4 v. (+1). SS
ember næstkomandi kl. 20 í
skákheimilinu við Þingvalla-
stræti. Umhugsunartími er 30
mínútur á skákina fyrir hvern
keppanda.
Teflt verður um farandbikar
sem gefinn var af Teiknistofu
Karls G. Þórleifssonar.
Tefldar verða a.m.k. þrjár
umferðir á fimmtudagskvöldið,
en mótinu lýkur sunnudaginn 29.
nóvember og hefst taflmennskan
kl. 14 þann dag. Mótið er öllum
opið. SS
Skákfélag Akureyrar:
Ólafur fór á kostum
Atskákmót Akureyrar