Dagur - 25.11.1992, Síða 15
Miðvikudagur 25. nóvember 1992 - DAGUR - 15
Iþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Handknattleikur, 1. deild karla:
Spennandi leikir framundan í kvöld
í kvöld verður heil umferð í 1.
deild Islandsmótsins í hand-
knattlcik. Þórsarar eiga útileik
á móti FH. Liðinu hefur geng-
ið vel á útivöllum og því ættu
íslandsmeistararnir að vara
sig. KA tekur á móti Haukum
í KA-húsinu kl. 20.30.
En hvað skyldu þjálfarar lið-
anna sem eigast við á Akureyri í
kvöld, segja um leikinn?
Handknattleikur, 3. flokkur:
Akureyrarfélögin á uppleið
ÍBV og þá náði liðið mun betri
leik en tapaði þó 11:14. Það voru
síðan Vestmannaeyingar sem
fóru upp. í næsta leik var leikið
gegn gestgjöfunum og sá leikur
endaði með jafntefli 9:9. Þá loks
tóst liðinu að sýna hvað í því býr.
í síðasta leik mótsins vannst síð-
an stórsigur á Fjölni 12:5. Óskar
E. Óskarsson þjálfar liðið og
sagði hann hafa verðið stíganda í
leik liðsins. Það veit á gott upp á
framhaldið.
Strákarnir í Þór léku í 3. deild,
í nýju íþróttahúsi Fjölnis í Graf-
arvogi og vann liðið alla sína
leiki. Þórsarar munu því leika í 2.
deild á næsta móti. Rúnar Sig-
tryggsson, sem þjálfar strákana,
var að vonum ánægður með árang-
urinn og nú væri bara að halda sæti
sínu í deildinni og jafnvel gera
enn betur. Þórsarar tóku gest-
gjafana í bakaríið og unnu 21:12
Fylkismenn voru lagðir með 17
mörkum gegn 13 og Selfyssingar
með 15 mörkum gegn 10. Marka-
hæsti leikmaður Þórs var Heið-
mar Felixson með 17 mörk. Elm-
ar Steindórsson skoraði 11 og þeir
Baldvin Hermannsson og Kristján
Jóhannsson 7 hvor. Um næstu
helgi er síðan komið að 5. flokki
að sýna snilli sína á handknatt-
leiksvellinum.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær voru 3. flokkar Akureyrar-
félaganna að keppa um helg-
ina. KA sendi bæði stráka- og
stelpnalið til keppni en Þórsar-
ar tefldu aðeins fram strákun-
um. Öll liðin náðu viðunandi
árangri þó alltaf sé hægt að
gera betur.
Strákarnir í KA féllu í 2. deild
á síðasta fjölliðamóti og tókst
ekki að vinna sig upp að nýju,
þrátt fyrir að tapa aðeins einum
leik. Keppt var í 2 riðlum og að-
eins 1 lið úr hvorum komst upp.
KA vann ÍA 20:16, Gróttu 17:14
og ÍR 21:17. í síðasta leik móts-
ins var leikið gegn FH en þessi lið
féllu saman í 2. deild í síðasta
móti. FH vann leikinn naumlega
13:10 og komst því upp. Þjálfari
KA-liðsins, Árni Stefánsson,
kvaðst vera sæmilega sáttur við
árangurinn þó vissulega hafi ver-
ið súrt að komast ekki upp. Liðið
lék illa á móti FH, en þessi lið eru
svipuð að styrkleika. Markahæst-
ir voru Atli Þ. Samúelsson með
28 mörk, Óskar Bragason með 13
og Þórhallur Hinriksson með 12.
KA-stelpur kepptu á sínu 1.
fjölliðamóti á Selfossi, en liðið
tók ekki þátt í 1. umferð, en það
keppir í 2. deild. Nokkur skrekk-
ur var í liðinu fyrir 1. leik sem var
gegn íslandsmeisturum KR. Lið-
ið náði sér ekki á strik og tapaði
stórt, 7:20. Síðan var spilað gegn
Herrakvöld
hjá KA
Herrakvöld KA verður á
iaugardagskvöldið en ekki á
föstudagskvöldið eins og
sagt var í blaðinu í gær.
Vegna misskilnings var sagt
að herrakvöld KA yrði á
föstudagskvöldið. Hið rétta er
að að þessi einstaka samkoma
verður á laugardagskvöldið.
Menn geta pantað miða í KA-
húsinu í síma 23482 og er viss-
ara að tryggja sér eitt eintak,
eða jafnvel tvö, í tíma.
Rúnar Sigtryggsson kom liði sínu
upp í 2. deild. Vonir standa til að
hann leiki með Þór í 1. deildinni í
kvöld.
Alfreð Gíslason, KA:
„Ég vona að menn haldi sig við
jörðina, þrátt fyrir gott gengi að
undanförnu. Ég á von á Haukun-
um sterkum og því eins gott að
taka vel á. Liðið hefur verið að
koma til og menn eru að sýna það
sem ég bjóst við fyrir mót,“ sagði
Alfreð Gíslason.
Jóhann Ingi Gunnarsson,
Haukum:
„Ég á ekki von á að gera aðra
eins ferð og síðast,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson og vísaði þá til
stórsigurs Hauka á Þór fyrr í
haust. „Annars á ég von á hörku-
leik. KA-liðið hefur verið að
rétta úr kútnum. Mér sýnist liðin
vera svipuð að styrkleika en KA
hefur auðvitað heimavöllinn. Við
munum því taka á af fullum
krafti.“
Alfreð Gíslason þekkir vel til þjálfunaraðferða Jóhanns Inga Gunnarssonar
en Alfreð lék undir hans stjórn bæði með KR og í Þýskalandi. Mynd: Robyn
Borðtennis:
Landsleikur við Færeyinga
Margrét Hermannsdóttir vann báða leiki sína
tókst að afla áreiðanlegra upplýs- áður en blaðið fór í prentun en
inga um frammistöðu Margrétar frekari úrslit verða birt um leið
Hermannsdóttur á opna mótinu og þau berast.
Á mánudagskvöldið áttust
Islendingar og Færeyingar við í
landskeppni í borðtennis.
Keppt var í 3 flokkum, A-
landsliðsflokki og eldri og
yngri unglingalandsliðsflokki.
A-landsliðið tapaði 2:5. Töl-
urnar segja þó ekki allt um gang
leikjanna, því allir 5 töpuðust
naumlega í oddaleik. Eldra ungl-
ingaliðinu gekk betur. Það vann
6:1. Margrét Hermannsdóttir frá
Magna á Grenivík, sem var í
þessum flokki, stóð sig mjög vel.
Húnn vann andstæðing sinn í ein-
liðaleik. Tvenndarleikinn vann
hún einnig og halaði þannig inn
tvo vinninga fyrir sitt lið. Yngsti
aldursflokkurinn tók Færeyinga í
bakaríið og vann 7:0.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, formanns BTÍ, er borðtennis-
íþróttin í sókn hér á landi og um
stöðugar framfarir að ræða. Það
sést best á því að krakkarnir í
unglingaflokkunum vinna þau
sem eru í A-landsliðinu reglu-
lega. Á sunnudaginn fór fram
opið mót í Þórshöfn í Færeyjum,
með þátttöku landsliðanna beggja.
Þar stóðu íslendingar sig mjög
vel. Sigurður Jónsson, sem
aðeins er 15 ára gamall, vann það
mót í flokki fullorðinna. Hinn 10
ára gamli Guðmundur Stephen-
sen vann bæði flokk 17 ára og
yngri og 15 ára og yngri. Ekki
Ársþing fijálsíþróttasainbandsins
Um síðustu helgi var 46. árs-
þing Frjálsíþróttasambands
Islands haldið í Gerðubergi í
Breiðholti.
Fram kom að mikil gróska var
í frjálsíþróttalífi á síðasta ári.
Vaxandi þátttaka var í æfingum
og mótum og einkum í yngri ald-
ursflokkum. Þátttaka í Ólympíu-
leikunum var stærsta verkefni af-
reksmanna á síðasta ári. Aldrei
áður hefur svo góður árangur
náðst á þeim vettvangi. Tveir ís-
lendingar eru nú í hópi 7 efstu
manna á heimsafrekalista 1992.
Á þinginu kom fram mikil
ánægja með þá frjálsíþrótta-
aðstöðu sem býggð hefur verið
upp á Laugardalsvellinum og
voru borgarstóri og Júlíus Haf-
stein, formaður íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur,
Sigurður Einarsson náði bestum
árangri allra íslendinganna á
Ólympíuleikunum.
sæmdir gullmerki FRÍ. Stefnu-
mótun í málefnum frjálsíþrótta
var sérmál þingsins og ákveðið
var að undirbúa gerð stefnuskrár
í málefnum frjálsíþrótta 1993-
1988 sem afgreidd verður á auka-
þimgi FRÍ 1993.
Hagnaður af rekstri sambands-
ins varð 2 milljónir króna og
stefnt er að því að búið verði að
borga upp allar skuldir 1995, en
þær nema mú 5,1 milljón. Magnús
Jakobsson var endurkjörinn for-
maður sambandsins. Aðrir í
stjórn voru kjörnir Haukur Ingi-
bergsson, Kópavogi, Sigþór
Hjörleifsson, Stykkishólmi, Guð-
mundur V. Gunnlaugsson, Akur-
eyri, Dóra Gunnarsdóttir, Fá-
skrúðsfirði, Óskar Thorarensen,
Reykjavík og Helgi S. Halldórs-
son, Rangárvallasýslu.
48.
-fyrir þig og þina fjöiskyidu! 16 Í kV Í kd
Lína Langsokkur
mætir til leiks
Logi Már Einarsson náði að leggja félaga sinn Pétur Bjarnason að velli í
síðustu umferð getraunaleiksins. Ekki mátti þó miklu muna því aðeins
einn leikur skildi að. Logi Már hefur nú jafnað árangur Árna Stefánssonar
sem einnig sigraði tvisvar. Logi sagðist mikið hafa velt fyrir sér hugsan-
legum andstæðingi. „Mér finnst mál til komið að færa þetta út fyrir KA-
liðið. Ég ákvað einnig að velja mér sterkan andstæðing, þann sterkasta
sem ég gat hugsað mér. Lína Langsokkur er sterkust af öllum og því skora
ég á hana," sagði Logi.
Bryndís Petra Bragadóttir, sem leikur Línu í uppfærslu LA, féllst á að
spá fyrir fyrir hönd Línu. Hún sagðist reyndar aldrei hafa verið sérlega
sterk í getraununum en ákvað þó að slá til. Athygli vekur að Bryndís tipp-
ar grimmt á útisigra og jafntefli meðan Logi heldur sig við heimasigra.
Það verður því fróðlegt að skoða úrslitin á laugardaginn þegar þau liggja
fyrir.
Akureyri er mesti getraunabær landsins. Um það efast enginn sem
fylgist með getraunum. Golfklúbburinn ber höfuð og herðar yfir aðra
klúbba á landinu og um síðustu helgi sannaðist það enn einu sinni þegar
2 raðir með 13 réttum komu á kerfi frá GA, að ógleymdum hellingi af 11
og 12 réttum. Sala á getraunaseðlum tók mikinn kipp um síðustu helgi og
var selt fyrir hálfa 12. milljón. Eitt er Ijóst. Það vinnur enginn nema hann
spili með.
’CD O _J Bryndís Q. tn C £L
1. Arsenal-Man. Utd. 1X 1
2. Aston Villa-Norwich 12 X2
3. Blackburn-QPR 1 12
4. Ipswich-Everton 1X X
5. Liverpool-Crystal Palace 1 1X
6. Man. City-Tottenham 12 2
7. Nottingham Forest-Southampton 1 1X
8. Oldham-Middlesbro 1 X
9 Sheff. Utd-Coventry 1X 12
10. Wimbledon-Sheff. Wed 1 1
11. Barnsley-Charlton 1 X
12. Derby-Tranmere 12 12
13. Portsmouth-Millwall 1 1
Upplýsingar um rétta röö og vinningsupphæðir:
Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455
Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888
I