Dagur - 25.11.1992, Síða 16
REGNBOGA
FRAMKÖLLUN
Hafnarstræti 106 • Sími 27422
Edinborgarfarar Úrvals-Útsýnar tepptir yflr nótt á Blönduósi:
Soflð á göngum, í matsal og á bar
- áfangastað náð einum og hálfum sólarhring síðar en ráðgert var
Edinborgarfararnir 150 frá
Akureyri og nágrenni, sem
fóru utan sl. fímmtudag á
vegum Urvals-Utsýnar hf.,
náðu til síns heima laust fyrir
hádegi í gær eftir allsérstætt
ferðalag.
Sem fram kom í Degi í gær
gat þota, í beinu flugi frá Edin-
borg til Akureyrar, ekki lent á
Akureyrarflugvelli á sunnu-
dagskvöldið. Þotunni var snúið
til Keflavíkurflugvallar og
farþegarnir 150 fengu gistingu
að Hótel Loftleiðum í Reykja-
vík. Á þriðjudagsmorgun voru
farþegarnir sendir norður með
þremur langferðabifreiðum frá,
Hópferðamiðstöðinni hf.
Veðurútlit var ótryggt til flugs
og svo kom á daginn að þjóð-
brautin norður reyndist býsna
strembin.
Talsmaður Hótels Blönduóss
segir, að þröngt hefði verið
aðfaranótt þriðjudagsins á
hótelinu. Engum var vísað frá,
en nokkrir Edinborgarfaranna
fengu gistingu úti í bæ hjá vin-
um eða ættingjum. Á hótelinu
var sofið jafnt í HerBérgjum, á
göngum, í matsal og á bar. Þeir
sem ekki fengu rúm fengu dýn-
ur og rúmföt. Enginn þurfti að
liggja á berum steininum.
Að morgunverði loknum, um
kl. 07.00 í gær, var haldið af
stað til Akureyrar og áfanga-
stað var náð einum og hálfum
sólahring síðar en ráðgert var.
ój
Vegna veðurofsa þurftu
farþegarnir 150 að leita sér næt-
urgistingar á Blönduósi.
Þessi mynd var tekin þegar farþegarnir komu með rútum til Akureyrar í gær eftir langt og strangt ferðalag.
Mynd: Robyn
Halldór Jónsson:
Villkannasöluá
hluta af bréfum
bæjarins í ÚA
Halldór Jónsson, bæjarstjóri,
sagði á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær þegar hann
fylgdi frumvarpi að fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir 1993 úr
hlaði, að hann teldi að bærinn
ætti að kanna með sölu á hluta
af 58,4% hlut bæjarins í
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Nafnverð bréfanna er 300 millj-
ónir króna.
„Fyrirtækið er traust og eitt af
þeim, sem horft er til í íslenskum
sjávarútvegi og fiskvinnslu. Fjár-
munir sem fengjust með slíkum
ráðstöfunum yrðu notaðir til þess
að styrkja stöðu Akureyrarbæjar
og til framfara og nýrra átaka í
atvinnumálum. Eg tel rétt að
kannað verði um áhuga fjárfesta
og almennings, en horfi þó ekki
síst til samstarfs við lífeyrissjóði,
þar sem í þessu tilviki færi saman
krafa þeirra um ávöxtun fjár-
muna og það að slíkt myndi
renna styrkari stoðum undir
atvinnulífið og uppbyggingu þess
hér á Akureyri. Lífeyrissjóðir
hafa á undanförnum misserum
fjárfest nokkuð í hlutabréfum
fyrirtækja, en sú starfsemi þeirra
mun örugglega aukast verulega á
næstunni. Ég tel það vænlegt,
bæði fyrir Iífeyrissjóði og bæjar-
félagið, ef samstarf gæti verið
með þessum aðilum á þessu
sviði,“ sagði Halldór. óþh
Hækkun húshitunar vegna virðisaukaskattsins:
Hitakostnaður hækkar um 11,8% á
Akureyri en 5,1% í Reykjavík
Einn forstjóri
yflr Slipp-
stöðinni-Odda
Ákveðið er að einn forstjóri
verði yfír hinu nýja samein-
aða fyrirtæki Slippstöðinni-
Odda hf., sem formlega hef-
ur rekstur 1. janúar nk.
Knútur Karlsson, stjórnar-
formaður fyrirtækisins, seg-
ir ekki cndanlega frágengið
með yfírstjórn fyrirtækisins.
„Unnið er að sameiningu
fyrirtækjanna og markmiðið
er að formleg sameining verði
1. janúar," sagði Knútur.
Ætlunin er að öll starfsemi
nýja fyrirtækisins verði í hús-
næði Siippstöðvarinnar. Þang-
að verður flutt kælideild og
veiðarfæradeild ásamt þjón-
ustudeild frá Odda. Knútur
segir ekki ljóst hversu margir
starfsmenn verði hjá Slipp-
stöðinni-Odda hf. Hann segir
að ekki sé alveg frágengið með
yfirstjórn fyrirtækisins, en að
þeim málum sé unnið. Þó sé
ákveðið að einn forstjóri verði
yfir fyrirtækinu.
Til þessa hefur verið sjö
manna stjórn yfir Slippstöð-
inni, en á hluthafafundi sl.
mánudag var kjörin þriggja
manna stjórn hins nýja fyrir-
tækis. Knútur Karlsson verður
stjórnarformaður en aðrir
stjórnarmenn eru Magnús
Gauti Gautason, kaupfélags-
stjóri, fulltrúi KEA og Þor-
steinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja hf.,
fulltrúi ríkisins. óþh
Hitunarkostnaður 400 fer-
metra húss á Akureyri mun
hækka um 11,890 krónur á árs-
grundvelli eða um 11,8%
vegna ákvörðunar ríkisstjórn-
arinnar um að leggja 14% virð-
isaukaskatt á húshitun í land-
inu. Samkvæmt upplýsingum
Hitaveitu Akureyrar var meðal-
hitunarkostnaður 400 fermetra
húss á ársgrundvelli kr. 84,926
en verður 96,815 að virðis-
aukaskattinum viðbættum.
Mest hækkun verður hjá Hita-
veitu Rangæinga en þar mun
hitunarkostnaður sambærilegs
húss hækka um 12,402 krónur
vegna virðisaukans. Hitaveitur
Akraness og Borgarness og
Hitaveita Siglufjarðar munu
einnig hækka um sambærilega
upphæð en aðrar hitaveitur
minna.
Hitunarkostnaður Reykvík-
inga mun hækka um 5,123 krónur
eða rúm 5% á ári sé 400 fermetra
hús lagt til grundvallar. Það er
innan við helmingur af þeirri
hækkun sem Akureyringar verða
að taka á sig. Sömu sögu er að
segja af nokkrum öðrum hitaveit-
um og eiga einstakar veitur á
Norðurlandi eins og á Húsavík
og Sauðárkróki þar hlut að máli.
Á þeim stöðum hækkar hita-
kostnaður innan við 4% með til-
komu virðisaukaskattsins og um
4,7% á Dalvík.
Vestfirðingar fara illa út úr
þessum ráðstöfunum, sem þýða
10,1% hækkun á hitakostnaði á
svæði Orkubús Vestfjarða. Ef lit-
ið er á þá hækkun sem verður á
hitakostnaði vegna virðisauka-
skattsins leggst hann með meiri
þunga á landsbyggðina þótt ein-
stakir staðir standi þar betur en
aðrir að vígi. Ekki er ljóst á
Guðjón Magnússon, skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu og formaður nefndar
um framtíð Kristnesspítala,
segist vonast til þess að nefnd-
in skili af sér tillögum til Sig-
hvatar Björgvinssonar, heil-
brigðisráðherra, í þessari viku.
„Við höfum lagt áherslu á að
flýta þessari vinnu, ekki síst út af
starfsfólki Kristnesspítala og
þeim taugatitringi sem þetta hef-
hvern annan hátt hitaveitur geta
brugðist við þessari skattlagningu
en leggja skattinn á selda orku.
Franz Árnason, hitaveitustjóri
á Akureyri, sagði í samtali við
Dag að það versta við virðisauka-
skattinn sé hvað hann komi mis-
jafnlega niður á einstök byggð-
arlög. Hitakostnaður hækki tvö-
falt til þrefalt á sumum svæðum
miðað við önnur. Ýmsar leiðir
séu til er fara mætti eftir við að
jafna þessa hækkun og hitakostn-
ur allt orsakað," sagði Guðjón.
Um það hvort nefndin hefði í
hyggju að leggja Kristnesspítala
niður sagði Guðjón: „Það er einn
af þeim fjórum valkostum sem við
erum að vega og meta í nefnd-
inni. Hann er enn á blaði, en við
höfum ekki komist að endanlegri
niðurstöðu. Við vinnum að því
að nefndin skili sameiginlegu
áliti, að samstaða sé í nefndinni
um það sem verði lagt til. Menn
hafa að mínu mati verið opnir og
aðinn í heild. 1 því sambandi
nefndi Franz endurgreiðslukerfi
og einnig að rikið aflétti skuldum
af skuldugustu hitaveitunum
þannig að orkuverð þeirra gæti
lækkað til samræmis við þær sem
lægri eru. Vel mætti hugsa sér að
nota tekjur af virðisaukaskattin-
um til þeirra hluta. Þess má geta
að heildarskuldir Hitaveitu
Akureyrar munu hækka á bilinu
180 til 200 milljónir við 6% geng-
isfellinguna á mánudag. ÞI
tilbúnir að ræða þá valkosti sem
eru í stöðunni og það er verið að
kanna betur hvað leið verður
ofan á.“
Guðjón segir að í fjárlaga-
frumvarpinu sé gert ráð fyrir 40
milljóna króna lækkun á framlög-
um til Kristnesspítala frá fjárlög-
um yfirstandandi árs og út frá því
sé unnið. „Allar þær leiðir sem
við erum að kanna verða að ná
því marki," sagði Guðjón. óþh
Kristnesnefindin ætlar
að skfla álíti í vikunni