Dagur - 05.12.1992, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 5. desember 1992
iT....
Fréttir
Bólumarkaðurinn
er að Eiðsvallagötu 6 (sunnan við Eiðsvöll).
Þar er ávallt hægt að gera góð kaup.
Margir söluaðilar og fjölbreytt úrval.
M.a. laufabrauð, lukkupakkar, bækur,
ýmislegt til jólagjafa, jólaseríur o.fl.
Bólumarkaðurinn er opinn á laugardag
Akureyringar,
nærsveitamenn
Höfum opnað
markað
Fjölmennur fundur starfsmanna í Kristnesi í fyrrakvöld:
Málin skýrðust og létti yfir starfsfólkí
- segir Arndís Baldvinsdóttir, trúnaðarmaður
Nær allir starfsmenn Kristnes-
spítala mættu til fundar í fyrra-
kvöld þar sem þeim var kynnt
álit Kristnesnefndarinnar
svokölluðu. Jafnframt mættu
til fundarins fulltrúar verka-
lýðsfélaga til að gera grein fyrir
réttindastöðu starfsmannanna.
Arndís Baldvinsdóttir, trúnað-
armaður fyrir starfsmanna-
félag ríkisstofnanna, segir að
fundurinn hafi verið góður
enda verið nauðsynlegt að
skýra að ekki komu fram réttar
upplýsingar frá heilbrigðisráð-
herra um efni skýrslu Kristnes-
nefndarinnar fyrr í vikunni.
„Ég held að mjög gott hafi ver-
ið að fá þetta fram. Fólk er
rólegra með að vita núna hvað
nefndin lagði fram og hvað hún
lagði ekki fram. Og ég held að
starfsmönnum hafi líka þótt gott
að heyra að stéttarfélögin standa
nálægt okkur og fylgjast grannt
með því sem er að gerast hér,“
sagði Arndís.
Framundan eru viðræður milli
heilbrigðisráðuneytis og Fjórð-
ungssjúkrahússins um að rekstur
Kristnesspítala verði færður und-
ir FSA. Alls eru 77 starfsmenn á
launaskrá hjá Kristnesspítala þó
stöðurnar séu mun færri. Af þess-
um starfsmönnum eru 41 sem fær
greitt samkvæmt launatöxtum
Einingar. Björn Snæbjörnsson,
formaður verkalýðsfélagsins Ein-
ingar, mætti til fundarins í Krist-
nesi í fyrrakvöld og segir hann að
formsins vegna komi óhjákvæmi-
lega til uppsagna verði breytingar
af því tagi sem nú eru hugmyndir
um, enda verði þá um nýja stofn-
un að ræða. „Þaö eru líka í gangi
ákveðnar vaktir og ef á að breyta
þarf að segja upp með löglegum
fyrirvara. Menn umturna ekki
öllu 1. janúar því fólkið á sinn
uppsagnarfrest," sagði Björn.
Arndís Baldvinsdóttir segir
starfsmenn hafi búist við fréttum
um breytingar þó kynning á
niðurstöðum nefndarinnar hafi
orðið allt önnur en starfsmenn
hafi búist við. Ljósasta punktinn
í þeirri stöðu sem nú er segir
Arndís þann að ekki er lengur
rætt um að leggja Kristnesspítala
niður. „Ég held að með þessum
fundi hafi málin skýrst og létt yfir
fólki,“ sagði hún. JOH
í Skipagötu 1
Opið fram að jólum á verslunartíma.
Seldar verða framleiðsluvörur
Iðjulundar.
Útimarkaður verður í
göngugötunni alla laugardaga
fram að jólum
Iðjulundur,
Verndaður vinnustaður
^
Sýnum Polaris vélsleða árgerð '93,
fatnað og allt sem til þarf.
OpiÖ frá kl. 10-1 7.
Polarisumboðið
- Hjólbarðaþjónustan
Undirhlíð 2 - Sími 22840 - 603 Akureyri.
Opnum laugardaginn 5. desem
hluta af glæsilegum sýningarsal
í nýju húsnæði að Undirhlíð 2
(við hringtorgið í Glerárhverfi).
Sænes EA-75 innsiglað í Dalvíkurhöfn:
Samningaumleitanir við Grund
firðinga runnu út í sandinn
Rækjubáturinn Sænes EA-75
frá Dalvík, sem er 110 tonna
stálbátur smíðaður í Svíþjóð
1987, var sl. miðvikudag inn-
siglaður af sýslumanni vegna
vangoldinna opinberra gjalda.
Báturinn Iiggur við bryggju á
Dalvík.
Báturinn er eign útgerðar-
félagsins Ránar hf., sem í sumar
fékk greiðslustöðvun vegna
rekstrarörðugleika og lauk henni
föstudaginn 27. nóvember sl. Á
greiðslustöðvunartímabilinu
voru gerðar tilraunir til að selja
bátinn og m.a. voru í gangi við-
ræður við Grundfirðinga um báta-
skipti og var búið að fá bæjar-
ábyrgð hjá Dalvíkurbæ vegna
þeirra viðskipta en snæfellsku
kaupendurnir munu hafa heykst
á viðskiptunum á síðustu stundu.
Einnig mun Snorri Snorrason,
útgerðarmaður á Dalvík, hafa
komið inn í þær umræður vegna
kaupa eða leigu á aflaheimildum
Sænessins.
Féfang hf. á 1. veðrétt í skip-
inu samkvæmt kaupleigusamn-
Hegranes SK-2 seldi 122 tonn
af karfa í Bremerhaven í
Þýskalandi á fimmtudags-
morgun. Heildarverðmæti afl-
ans er 16.5 milljónir króna.
Karfinn seldist á 135 kr. kílóið,
sem er 10 kr. hærra kílóverð en
þegar Skagfirðingur seldi í Brem-
ingi og mun eflaust ganga eftir
því nú, þegar greiðslustöðvun-
inni er lokið, að fá skuldina
greidda eða krefjast nauðungar-
uppboðs á skipinu sem og aðrir
kröfuhafar. GG
erhaven 9. nóv. sl. Að sögn Gísla
S. Einarssonar útgerðarstjóra hjá
Skagfirðingi hf. er þetta sæmilegt
verð. Hann segir verðin hressast í
desember og janúar. Það hafi
jafnframt áhrif til hins betra að
minna framboð sé á karfaflökum
frá Færeyingum. sþ
Hegranesið seldi 122
tonn í Bremerhaven
- „ekki hægt að kvarta“, segir
útgerðarstjóri Skagfirðings
Gámaþjónusta Norðurlands hf.:
Nýr pressubíll tekinn í notkun
- fyrirtækið fimm ára um þessar mundir
Gámaþjónusta Norðurlands hefur ráðið yfir öflugum tækjakosti frá upphafí
og nú bætist öflugur pressubíll í flotann.
Síðastliðinn fimmtudag voru
fimm ár frá því Gámaþjónusta
Norðurlands hf. á Aklureyri
hóf starfsemi. Frá upphafi hafa
starfsmenn fyrirtækisins lagt
kapp á að leysa vanda fyrir-
tækja og stofnana varðandi
úrgangslosun og umhverfis-
hreinsun. Fyrirtækið hefur á
þessum tíma aflað sér þekking-
ar og reynslu og er nú leiðandi
á sínu sviði.
Starfsemi Gámaþjónustu
Norðurlands felst í almennri og
sérhæfðri sorphirðu, leigu, losun
og umhirðu sorpíláta og gáma.
Fyrirtækið þjónar nú átta sveitar-
félögum á Eyjafjarðarsvæðinu
með gámaleigu og losun og sér
um sorphirðu hjá fimm sveitar-
félögum, auk þess að þjóna
fjölda atvinnufyrirtækja á svæð-
inu.
„Á þessum tímamótum er það
okkur mikil ánægja að kynna nýj-
an og öflugan pressubíl fyrir
húsasorp og gáma, bifreið af
svokallaðri framhleðslugerð. í
tilefni afmælisins hefur stjórn
fyrirtækisins ákveðið að gefa
sveitarfélögum á Eyjafjarðar-
svæðinu ruslaílát til staðsetningar
utandyra. Með þessu vill Gáma-
þjónusta Norðurlands leggja sitt
að mörkum til að bæta umhverfi
okkar og jafnframt sýna sveitar-
félögunum þakklætisvott fyrir
gott og ánægjulegt samstarf á
undanförnum árum,“ segir Jör-
undur Þorgeirsson, rekstrarstjóri
Gámaþjónustu Norðurlands hf.
ój