Dagur - 05.12.1992, Blaðsíða 13

Dagur - 05.12.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 13 Nýjar bækur Gimsteinar - nýtt ljóðasafn frá Hörpuútgáfunni Hörpuútgáfan hefur sent frá sér ljóðasafnið Gimsteina, sem hefur að geyma ljóð eftir 16 höfunda. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Hér eru saman komin í bók ljóð höfunda sem gáfu út fyrstu bók sína á því tímabili er ísland var sjálfstætt konungsríki, 1918-1944. Mörg ljóð- in spegla vel viðhorf og tíðaranda áranna milli heimsstyrjaldanna og tíma seinna stríðsins." Ólafur Haukur Árnason valdi ljóðin. Hann segir m.a. í forspjalli: „Ég hef notið þess að skynja enn einu sinni þann galdur sem gerir orðræðu skálds að listaverki, notið návistar sérhvers þeirra eins og gamalla vina. Þá er tilgangi þessa kvers náð ef lesendur njóta endur- fundanna við ljóðin á svipaðan hátt - eða stofna til nýrra kynna við skáldskap sem auðgar sálarlíf þeirra og dýpkar skilning þeirra á sjálfum sér og öðrum.“ Gimsteinar er 223 blaðsíður. Bjami Jónsson teiknaði kápu og titil- síður. Ævintýrabókin umAIfreðFlóka Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út Ævintýrabókina um A/freð Flóka eftir Nínu Björk Árnadóttur. Þar dregur hún upp persónulega og hispurslausa mynd eftir minningum sínum af listamanninum, leitar fanga í bréfum hans og frásögnum fjölmargra vina. í kynningu Forlagsins segir: „Al- freð Flóki á sér engan líka í íslenskri myndlistarsögu og persóna hans var dregin í stærri mynd en við íslend- ingar eigum að venjast. Persónu- töfrar Alfreðs Flóka, hæfileikar hans og víðfeðm þekking á afkimum heimsmenningarinnar urðu öllum sem kynntust honum að innblæstri. Líf hans var eins og listaverk sem afhjúpar jafnt fegursíu kenndirnar í hugum mannanna og órætt myrkrið sem býr handan hversdagsleikans." Ævintýrabókin um Alfreð Flóka er 202 bls. prýdd miklum fjölda mynda - þar á meðal eru myndir af listaverkum sem aldrei hafa birst áður. Jón Ásgeir Hreinsson hannaði kápu. Verð 2.980 kr. Andartak a jorðu - ný ljóðabók eftir Jónas Þorbjarnarson Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út ljóðabókina Andartak á jörðu eftir Jónas Þorbjarnarson. Þetta er önn- ur ljóðabók Jónasar, en árið 1989 sendi hann frá sér bókina í jaðrí bæjarins sem hlaut góða dóma. I kynningu Forlagsins segir: „Ljóð Jónasar geyma skýrt dregnar myndir af manni og heimi: landi, sjó, stundum lágum bæ. Og svo sem höfundi er einkar lagið að kalla landið fram í ljóð sín, þá leikur hann af þokkafullu öryggi með hljóm tungunnar. Ljóðunum er það sameiginlegt að eiga sér grunn í undrun höfundar á því að til sé heimur, sem og í óvenjulegu næmi hans fyrir því hve veigamikill þáttur af heiminum og manninum tíminn er - sem aftur beinir athygli að nauðsyn minnisins fyrir samhengi og merkingu." Veðraþytur Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út skáldsöguna Veðraþytur eftir Doris Lessing. Þetta er sjálfstætt framhald bókanna Marta Ouest og / góðu hjónabandi sem út hafa komið á íslensku og þriðja bindið af fimm í þeim meistaralega sagnabálki sem Doris Lessing nefndi síðar Börn ofbeldisins. Hjörtur Pálsson þýddi söguna. I kynningu Forlagsins segir: „Heimsstyrjöldin síðari er í algleymingi. Marta Quest hefur yfir- gefið eiginmann sinn og dóttur og eignast pilt í flughernum að elsk- huga. Vissan um að hann verði sendur á vígstöðvarnar og að ham- ingjudagar þeirra eigi sér kvöld, eykur einungis á ljöma þeirra. Þau eru systkini í alþjóðlegu bræðra- bandi ungra róttæklinga og fyrirlíta það þjóðfélág Suður-Afríku sem þau hrærast í. En hvert stefna þau? Til hvers er að sitja og „skilgréina stöðuna“ endalaust í landi spilling- ar, þar sem milljónum þeldökkra er haldið í ógnarklóm, og allar tilraun- ir til áhrifa virðast vonlausar?" Veðraþyturer 302 bls. Verð 1.980 kr. ib - 990 kr. kilja. á? ^ ...alltafþegar erum vandlát & MEÐ NYJUM JÓLA FERNUM B8HBRRB9 MJOLKURSAMLAG - líka á jólunum u tómar má breyta þeim f . njraH (11 o 4 ^ □§ Og þegar fernurnar eru tómar má breyta þeim í skemmtilegt / jólaskraut

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.