Dagur - 05.12.1992, Blaðsíða 18

Dagur - 05.12.1992, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 5. desember 1992 Popp Magnús Geir Guðmundsson ekki er laust við að vera samið undir áhrifum frá Trúbrot. Með þessari fyrstu plötu virðist Jet Black Joe eiga bjarta framtíð fyrir sér. Verður spennandi að fylgjast með framvindu hennar, sem án efa mun bera margt athyglisvert í skauti sér með meiri reynslu og er vonandi að þarfylgi með íslenskirtextar. Eru ensku textarnir nefnilega það helsta sem setja má út á varð- andi nýju plötuna. (slenskir ungl- ingar eiga heimtingu á íslenskum textum við þá íslensku tónlist sem þeim er ætluð. Annars gætu þeir bara yfir höfuð hlustað á erlendu tónlistina Ungir og efnilegir. Hljómsveitin Jet Black Joe. Jet Black Joe: Ungir menn, eldri tónn Það þykir alltaf mikið gleðiefni þegar nýir og ungir listamenn koma fram á sjónarsviðið og gild- ir þá einu hvort það er í myndlist, tónlist eða bókmenntum. Bera þessir ungu nýliðar oftar en ekki með sér nýja strauma og stefnur sem brjóta niður ríkjandi hefðir, en byggja nýjar í staðinn. Erslík endurnýjun á vissu bili ávallt æskileg og kærkomin og þá ekki hvað síst í tónlistinni, illa líður stöðnun til lengdar. En eins og um flest í heimi hér, þá eru þetta ekki algild sannindi. Sköpunargáfa ungra listamanna er nefnilega ekki bara hneigð til nýstárlegra verka, heldur einnig í þá átt að vinna það gamla upp á nýtt, eða beinlínis að endurnýja fortíðina með nútíðarblæ. Þetta er einmitt það sem ungu mennirnir í hljómsveitinni Jet Black Joe, einni þeirri nýjustu og efnilegustu á landinu þessa stundina, eru að gera á sam- nefndri frumsmíð sinni sem út kom fyrir nokkru. Hefur hljóm- sveitin, sem skipuð er þeim Páli Rósenkrans söngvara, Gunnari Bjarna Ragnarssyni á gítar, Starra Sigurðssyni á bassa, Jóni Erni Arnarsyni á trommum og Hrafni Thorlacius á orgel, nú starfað í um eitt ár og voru það þeir Páll og Gunnar sem áttu frumkvæðið að stofnuninni. Þrátt fyrir ungan aldur bæöi sveit- arinnar sjálfrar og meðlima henn- ar (þeir eru vart eldri en um tvítugt) er það ansi hreint mikill þroski sem finna má á þessu jómfrúarverki og verður ekki sagt annað en að það sé nokkuð vel- heppnað sem slíkt. Raunin hefur líka verið sú að ungdómur lands- ins hefur tekið Jet Black Joe opn- um örmum og flykkst á tónleika sveitarinnar hvarvetna sem hún hefur komið fram. Áðurnefnd fortíðarendurnýjun (Poppskrifari hefur einnig kallað fyrirbærið fortíðarhyggju) endur- speglast hjá Jet Black Joe í væg- ast sagt miklum áhrifum frá hippatímanum og sýnu mest frá einni hljómsveit, Led Zeppelin. Er það líka svo að þar sem Zeppelináhrifanna gætir mest t.d. í lögunum Rain og Coming In, tekst sveitinni best upp að mati Poppskrifara. Eru bæði þau lög með fallegum melódíum sem festast vel í minni. Upþtöku plötunnar annaðist Eyþór Arnalds úr Todmobile og ferst honum það ágætlega úr hendi. Leikur hann svo einnig á selló á plötunni og semur eitt laganna ellefu, Listen To The Wind, sem KK fetar brautina fram á við og upp á nýju plötunni. KK bandið: A beinni (upp)leið Sinead O’Connor segist nú hætt við að hætta alveg, eins og sagt var frá hér í Poppi fyrir skömmu. Að minnsta kosti er þetta skilningur talsmanns útgáfu söngkonunnar eftir að hann hafði rætt við hana fyrir nokkrum dögum. Segir hann að hún hafi í raun ekki meint það sem hún sagði í viðtali við breska poppritið Melody Maker, að hún „Bein leið, gatan liggur greið/ Bein leið, gatan liggur greið/Það kostar svita og blóð/að fara þessa slóð." Þannig eru fyrstu hendingarnar í upphafs- og titil- lagi nýjustu plötu KK band, Krist- jáns Kristjánssonar og félaga, Bein leið, sem nú nýkomin er út. Ekki er gott að segja hvort þetta á við um tónlistarferil Kristjáns í bókstaflegri merkingu (textinn fjallar ekki beinlínis um það) en það er víst að hann hefur þurft að hafa fyrir því að komast á beinu brautina, sem hann teljast verður kominn á nú í íslensku tónlistar- lífi. Það vissu nefnilega ekki margir hver þessi náungi, sem leyfði sér að kalla sig KK, aðdáendum þess eldra til mikillar hneykslun- ar, var er hann sló í gegn í fyrra væri búin að gefast upp á popp- inu vegna þeirra rauna sem hún hafi orðið fyrir að undanfömu. Hins vegar er ekki víst að hún hljóðriti fleiri plötur, heldur ein- beiti sér eingöngu að því að koma fram og syngja. Siöustu fregnir herma svo að hún hafi aft- ur birst á sviði í London í siðustu viku. Þá hefur það einnig fregn- ast að Sinead hafi gefið einbýlis- hús sitt í Hollywood, til hjálpar bágstöddum í Sómalíu, sem mun vera andvirði 48 milljóna ísl. kr. Ekki amaleg gjöf það. með fyrstu þlötunni Lucky One. Hafði Kristján áður um árabil ver- ið búsettur erlendis þar sem hann flakkaði um með gítarinn, spilandi á götum úti sér og sinum til viðurværis. Eins og kunnugt er hefur KK og. félögum í kjölfar útgáfunnar á Lucky One, gengið áfram vel. Náði lag Kristjáns Vegbúinn úr leikritinu Þrúgur reiðinnar miklum vinsældum fyrr í ár, sömuleiðis sem túlkanirnar á Ó borg, mín borg eftir Hauk heitinn Morthens og gamla Flowerslaginu Slapp- aðu af í bíómyndinni Sódóma Reykjavík, hafa notið hylli. Eru þau öll þrjú að finna á Beinni leið auk níu annarra. Með Kristjáni í bandinu er sem fyrr Þórleifur Guðjónsson á bassa, en á trommum er nú Kormákur Geir- Þær fregnir hafa nú borist frá Bandaríkjunum að W. Axl Rose söngvari Guns n’ Roses hafi verið fundinn sekur varðandi margumtalað uppþot sem varð á tónleikum hljómsveitarinnar í St. Louis í fyrra. Var hann nánar til- tekið ákærður fyrir að hafa ráðist á einn tónleikagesta með barsmíð- um, sem í leyfisleysi var að taka myndir af hljómsveitinni og fékk hann dóm upp á tveggja ára skilorð. Þá mun. hann einnig þurfa að greiða um þrjár milljónir íslenskra króna í sekt (50.000 harðsson, Kommi, í stað Matthiasar Hemstock sem barði húðir á Lucky One. Er um eigin útgáfu að ræða, en Japis sér um dreifingu. Það verður ekki annað sagt en að um framför sé að ræða hjá KK band á Beinni leið frá Lucky One. Fyrir það fyrsta að textarnir eru nú á íslensku, sem skiptir ekki svo litlu máli auk þess sem tón- listin er nú almennt betur unnin en á Lucky One. Ekki er þó nein teljandi breyting á tónlistarstefn- unni, nema hvað að kántrí/þjóð- lagaáhrif eru enn meiri en áður á kostnað blúsins sem þó er ennþá vel fyrir hendi. Verður Bein leið að teljast rökrétt fram- hald af KK bandinu á tónlistar- ferlinum. Er hún með öðrum orð- um bein leið upp á við. dollara), en slapp hins vegar við fjárkröfu upp á tólf milljónir vegna skemmdanna sem unnar voru á tónleikasvæðinu í kjölfar árásar- innar. Neitaði Rose sakargiftum, en var fundinn sekur á grundvelli myndbandsupptöku af atvikinu. Ekki er gott að segja á þessu stigi hvaða áhrif dómurinn muni hafa á starfsemi Guns n’ Roses, en svo lítur út fyrir að hljómsveit- in geti ekki a.m.k. haldið tónleika utan Bandaríkjanna þ.e. með Rose innanborðs. Úr því mun væntanlega verða skorið fljótlega.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.