Dagur - 05.12.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Bruni Krossanesverksmiðjunnar er stærsta tjón Sjóvá-Almennra síðustu fímm árin. Myndin var tekin er skoðunar-
menn skoðuðu verksummerki eftir brunann.
Húsavík:
Framtíðaráfonn í
simdlaugarmálum rædd
Framtíðaráform varðandi
sundlaugarbyggingu á Húsavík
voru rædd í bæjarstjórn Húsa-
víkur sl. þriðjudag.
Sundlaug var tekin í notkun á
Húsavík um 1958. Er laugin
16,67 m á lengd og stendur við
Héðinsbraut á móts við íþrótta-
vellina. Við sundlaugina er heitur
pottur og barnalaug og búnings-
klefar fyrir vellina eru á neðri
hæð hússins. Lengi hafa verið
uppi áform um að byggja nýja 25
metra langa laug við þá laug sem
fyrir er.
Árið 1987 var vígt nýtt íþrótta-
hús á Húsavík, sem staðsett er
rétt norðan við skólabyggingarn-
Bruninn í Krossanesverksmiðjunni:
Bætur tryggingarfélagaima námu
allt að 350 miDjónum króna
Dr. Benedikt Jóhannesson,
stærðfræðingur, hélt nýlega
fyrirlestur í Háskólanum á
Akureyri sem fjallaði um
Krossanesverksmiðjuna, kosti
og ákvarðanir eftir brunann
um áramótin 1989-1990. Til-
gangurinn var að sýna hvernig
hægt væri að nota stærðfræði-
legar aðferðir til að ná niður-
stöðu í máli, sem almenningur
þekkti og skyldi.
í fyrirlestrinum lýsti Benedikt
því hvernig þetta horfði við
tryggingarfélaginu Sjóvá-
Almennar annars vegar og frá
sjónarhóli forráðamanna verk-
smiðjunnar hins vegar, en hann
var þá starfsmaður tryggingar-
félagsins. Hann kemst að þeirri
niðurstöðu að tryggingarfélagið
hafi greitt um 10% meira en það
hefði helst viljað og forráðamenn
fengið 5% minna en vonir þeirra
stóðu til í upphafi, áður en endur-
reisn verksmiðjunnar hófst.
Stærsti óvissuþátturinn voru
rekstrarstöðvunartryggingar sem
áttu að bæta það tap sem verk-
smiðjan varð fyrir með því að
starfa ekki, en við uppgjör varð
reiknað með að vorvertíðin færi
alveg forgörðum og verksmiðjan
ekki tilbúin til vinnslu fyrr en ein-
hvern tíma um haustið, en sum-
arið var hvort sem er dauður
tími. Stefnt var að því að hefja
bræðslu í nóvembermánuði en
það gekk ekki eftir, aðallega
vegna gæftaleysis.
Tryggingarfélagið, Sjóvá-
Almennar, greiddi 232 milljónir í
bætur og einnig fékk verksmiðjan
bætur frá Vátryggingafélagi
íslands, sem tryggði sjálft húsið,
og námu þær bætur liðlega 100
milljónum króna. Bruni Krossa-
nesverksmiðjunnar er stærsta
tjón Sjóvá-Almennra síðustu
fimm árin og hafa þó komið til
stór tjón eins og skipstapar og
bruninn á dekkjaverkstæðinu á
Réttarhálsi í Reykjavík.
Engin alvarleg samskiptavanda-
mál komu upp milli tryggingar-
félagsins og eigenda meðan á
endurbyggingunni stóð, þó var
um tíma nokkur meiningarmun-
ur um það hvort tryggingarfélag-
ið ætti að bæta haglabyssu sem
var í verksmiðjunni og er kannski
dæmigert um það að ágreiningur
skuli standa um slíkt smámál í
milljónatjóni. Byssan var notuð
til að skjóta máva til að fyrir-
byggja mengun ef þeir færu í
þrærnar og því var fallist á að
greiða hana.
Benedikt telur að mestum erf-
iðleikum við matið hafi valdið
mat á tjóni á t.d. tönkum sem
sviðnuðu allir að utan en breyttu
ekki um lag, en við notkun kom í
ljós að einhverjar efnabreytingar
höfðu átt sér stað í þeim sem
|gerði þá nánast ónothæfa. Því var
upphaflegt mat á tjóninu sífellt
að taka breytingum eftir því sem
leið á endurbyggingu verksmiðj-
unnar.
Benedikt Jóhannesson starfar
nú hjá fyrirtækinu Talnakönnun
hf., sem m.a. gefur út íslenskt
atvinnulíf, sem veitir ítarlegar
upplýsingar úr ársreikningum
íslenskra fyrirtækja í ýmsum
greinum. Bókin er handbók
þeirra sem hafa samskipti við
fyrirtæki og stofnanir og að sjálf-
sögðu góð fyrir þá sem fjárfesta
vilja í fyrirtækjum á almennum
hlutabréfamarkaði. GG
ar. Síðustu misseri hafa komið
fram hugmyndir um að byggja
nýja sundlaug við íþróttahúsið,
en þar er landrými af skornum
skammti. Fyrir nokkrum mánuð-
um barst neikvætt svar frá arki-
tekt, varðandi athugun á hvort
nýta mætti búningsaðstöðu í
íþróttahöllinni jafnframt fyrir
sundlaug á staðnum.
Á fundi íþrótta- og æskulýðs-
nefndar í nóv. voru lagðar fram
teikningar og kostnaðaráætlun
fyrir sundlaug við íþróttahöll að
upphæð 84 milljónir. Nefndar-
menn vilja láta kanna betur með
hugsanlega samnýtingu á klefum
í höllinni með það fyrir augum að
þurfa ekki að byggja sér bún-
ingsklefa fyrir sundlaugina að svo
stöddu. Samþykkt var að óska
eftir fjárveitingu frá bæjarráði til
að kanna þetta mál nánar og
greinargerð frá forstöðumönnum
íþróttamannvirkja, skólastjórum
og skipulagsmönnum bæjarins.
Á bæjarstjórnarfundinum tóku
alls sjö bæjarfulltrúar til máls um
sundlaugarmálið, auk bæjar-
stjóra. Þeir sem tjáðu sig um mál-
ið töldu skynsamlegra að byggja
nýju laugina upp á þeim stað sem
sundlaugin er fyrir. Beiðni nefnd-
arinnar um fjárframlag til
könnunar á samnýtingu bún-
ingsklefanna í íþróttahúsinu var
vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
IM
Húsavík:
Björgunarsveitín leitar lóðar
„Við vonum að farið verði að
taka ákvarðanir um gerð hús-
næðis og staðsctningu,“ sagði
Jón Kjartansson, formaður
Björgunarsveitarinnar Garð-
ars á Húsavík. Björgunarsveit-
in og Kvennadeild Slysavarna-
félags íslands á Húsavík hyggj-
ast byggja hús fyrir félögin, en
Olíufélagið Skeljungur hefur
sýnt áhuga á að kaupa hús
björgunarsveitarinnar og
koma upp birgðageymslu á
lóðinni.
Um tvö ár eru síðan björgun-
arsveitin fór að huga að endur-
nýjun á húsnæði sínu, en þröngt
er um búnað sveitarinnar og
húsnæðið óhentugt. Skoðað hefur
verið húsnæði sem til sölu er í
bænum, en nú hafa félögin
ákveðið að ráðast í byggingu og
sótt um lóðir. Bygginganefnd
Neytendasamtökin:
Efasemdir um efiuahags-
aðgerðir ríkisstjómarirmar
Stjórn neytendasamtakanna
samþykkti ályktun á fundi í
gær, fimmtudag, þar sem þau
mótmæla ýmsum boðuðum
aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum. Einnig eru
settar fram efasemdir um að
afnám aðstöðugjalds og lækk-
un tekjuskatts fyrirtækja komi
fram í lægra vöruverði. Reynsla
neytenda sé sú að þegar
aðstæður hafi skapast til verð-
lækkana lækki verð óverulega
eða alls ekki.
Neytendasamtökin telja brýnt
að viðhalda stöðugleika undan-
farinna missera og gengisfelling
geti stefnt honum í hættu, sér-
staklega ef söluaðilar nota hana
sem skálkaskjól til verðhækkana.
Þau segja virðisaukaskatt hér á
landi með því hæsta sem þekkist í
heiminum og slík skattlagning
komi þyngst niður á efnalitlu og
tekjulágu fólki. Því telja samtök-
in að matvöru ætti að undan-
þiggja virðisaukaskatti umfram
annað.
Þau segja jafnframt: „Stjóm-
málamenn hafa hins vegar metið
það sem nauðsynlegt þjóðfélags-
legt réttlæti að undanþiggja
veiðileyfi í laxveiðiám þessum
skatti á meðan brýnustu lífs-
nauðsynjar bera hann af fullum
þunga.“ Einnig mótmæla Neyt-
endasamtökin hækkun á húsa-
hitunarkostnaði heimilanna. ohr
hefur hafnað beiðni um lóð á
horni Garðarsbrautar, Þverholts
og Stangarbakka, en ákveðið að
skoða aðra möguleika. Félögin
sóttu einnig um lóðina sunnan
við Múla sf.
Félögin hyggjast koma sér upp
félagsaðstöðu sem nýta má til
námskeiðahalds, auk húsrýmis
fyrir bíla og búnað sveitarinnar.
Ef lóð fengist á hafnarsvæðinu
kæmi einnig til greina að byggja
yfir björgunarbátinn Náttfara.
„Það er mjög þröngt í húsun-
um hjá okkur og erfitt að vinna.
Einnig eykst búnaður stöðugt,
enda takmarkið að bæta sig,“
sagði Jón. IM
Fyrirhuguð hækkun á gjaldskrá hitaveitna:
Fundur með Jóni um virðisaukaim
Verði 14% virðisaukaskattur
lagður á allar hitaveitur á land-
inu munu gjaldskrár þeirra
hækka misjafnlega mikið. Af
hitaveitum á Norðurlandi yrði
hækkunin mest á Akureyri og
Siglufirði. Þessu vilja forráða-
menn þessara hitaveitna og
annarra hitaveitna sem hafa
háa gjaldskrár mótmæla.
í gær var boðaður fundur for-
ráðamanna þessara dýru hita-
veitna með iðnaðarráðherra þar
sem átti að fara yfir þetta mál
með honum. Franz Árnason sat
þennan fund fyrir hönd Hitaveitu
Akureyrar. Niðurstaða fundarins
lá ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun.
Á fundi þingmanna Norður-
lands eystra með bæjarstjórnar-
mönnum á Akureyri sl. fimmtudag
kom fram að Akureyringar telja
með öllu óásættanlegt ef
gjaldskrá Hitaveitu Akureyrar
hækki Iangt umfram landsmeðal-
tal.
Á þessum fundi voru rædd
ýmis önnur hagsmunamál Akur-
eyringa gagnvart ríkisvaldinu,
sem tengjast samþykkt fjárlaga
komandi árs. Nefna má framlög
til Akureyrarhafnar, kaup á
húsnæði fyrir heilsugæslustöð
(Amaró) og byggingarmál fram-
haldsskólanna. óþh
S.-Þingeyjarsýsla:
Samstarfs-
samningur um
brunavarnir
I Samstarfssamningur Húsavík-
urbæjar við Tjörneshrepp og
Reykjahrepp um brunavarnir
var samþykktur af bæjarstjórn
Húsavíkur sl. þriðjudag.
Slökkvilið Húsavíkur mun
annast þjónustu við hreppana
jafnt sem bæinn. Kostnaðinum af
rekstri slökkviliðsins verður deilt
niður samkvæmt íbúafjölda og
sami háttur verður á hafður með
kaupin á nýja slökkvibílnum sem
kom til bæjarins í sumar. Bíllinn
fór í fyrsta brunaútkallið fyrir
nokkrum dögum í Ljósavatns-
hrepp og reyndist ákaflega vel.
IM