Dagur - 05.12.1992, Síða 5
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Frá vinstri. Asgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Akureyrar, Bjarni Jónasson, framkvæmda-
stjóri Islensks skinnaiðnaðar hf. einn fyrirlesara á námsstefnunni, Magnús Magnússon, útgerðarstjóri hjá ÚA en
hann er einnig fyrirlesari á námsstefnunni og námsstefnustjórinn, Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA.
Námsstefna um gæðastjórnun:
Gjörbreyttar áherslur í rekstrinum
forsenda þess að fyrirtækið lifði
- sagði Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri íslensks
skinnaiðnaðar hf. í framsögu sinni
Á námsstefnu um gæðastjóm-
un, sem haldin var á Akureyri
í vikunni, sagði Bjarni Jónas-
son, framkvæmdastjóri hjá
íslenskum skinnaiðnaði hf. að
gjörbreyttar áherslur í rekstri
fyrirtækisins hafi verið for-
sendur þess að fyrirtækið lifði.
Á ráðstefnunni kom einnig
fram í máli útgerðarstjóra
Útgerðarfélags Ákureyringa
að þar hafí verkefni á sviði
gæðastjórnunar skilað marg-
földum þeim kostnaði sem í
það var lagt.
Bjarni Jónasson lýsti í fram-
söguerindi sínum miklum breyt-
ingum sem orðið hafi innan fyrir-
tækisins sl. 3-4 ár. Hann sagði að
kúvenda hafi þurft stefnu fyrir-
tækisins eftir fækkun fatafram-
leiðenda í Skandinavíu og því
hafi verið leitað til Ítalíu og Bret-
lands þar sem tískusveiflur séu
geysilegar og aðeins það besta
nógu gott. Bjarni nefndi að með
hagræðingu hafi tekist að auka
hlutfall skinna í hæsta gæðaflokki
úr 50% í 60% sl. 2-3 ár, fastur
kostnaður hafi lækkað um 22%
og meðalframleiðslultími á hvert
skinn styst um 10% á síðustu 4
árum.
„Ég veit ekki hvar við værum
stödd ef við hefðum ekki gjör-
breytt áherslum í öllu okkar
innra starfi þar sem gengismálin
hafa verið okkur afar óhagstæð.
Við höfum gjörbreytt okkar
stefnu í starfsmannamálum og
vinnum nú sem eitt lið við að ná
sameiginlegum árangri,“ sagði
Bjarni í erindi sínu.
Magnús Magnússon, útgerðar-
stjóri hjá ÚA, nefndi í sínu
erindi um gæðastjórnun innan
fyrirtæksins að eitt verkefni, þ.e.
að draga úr ísmagni í hverjum
kassa sem vigtaður er inn í húsið,
hafi skilað margföldum þeim
kostnaði sem í það var lagt. Þetta
hafi gerst með samstilltum vinnu-
brögðum þar sem vandamálið var
brotið til mergjar. JÓH
Hönnunarsamkeppni ístex hf. á handpijónuðum peysum úr íslenskri ull:
„Átak Istex mjög mikilvægt“
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra
Alls bárust 230 uppskriftir í hönnunarsamkeppni á prjónuðum peysum úr
íslenskri Ull. Mynd: sv
- sagði
AU sérstæð samkeppni fór
fram á dögunum á vegum fyrir-
tækisins Istex hf. sem var reist
upp af gamla Álafossi hf. Efnt
var til hönnunarsamkeppni á
prjónuðum peysum úr íslenskri
ull. Varan skyldi vera hand-
prjónuð og úr náttúrulitum
eingöngu. AIls bárust 230
uppskriftir í keppnina og af
þeim fara tuttugu til tuttugu og
fímm í sérstaka bók, sem gefín
verður út á nokkrum tungu-
málum næsta vor.
Takmarkið með keppninni var
að gera markaðsátak þar sem ull-
in verði kynnt sem umhverfisvæn
náttúruafurð og fá meiri breidd í
vöruúrval. Ekki er síður hugað
að mörkuðum erlendis fyrir þessa
vöru og var bent á að talsverð
söluaukning hefur þegar orðið á
mörkuðunum jafnt erlendis sem
hér heima.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, gerði kunn úrslit og
afhenti verðlaun. Hann sagði
þetta átak ístex mjög mikilvægt
til þess að ýta undir nýja hönnun
og vöruþróun á ull. íslenskir
neytendur segðust vilja kaupa
íslenskt og nú væri aðeins að fá
þá til þess að nota aurana á sama
hátt og orðin. „Á næstu misser-
um verða mikil umskipti í
atvinnulífi okkar. Viðskiptamúr-
ar munu hrynja, verslun mun
aukast milli landa og nýir mark-
aðir opnast. Pví er mikilvægt að
fyrirtæki efli hjá sér vöruþróun
og hagræðingu í markaðssókn,"
sagði Jón.
Áður en verðlaunaafhendingin
fór fram sýndi hópur sýningar-
fólks nokkrar þeirra peysa sem
þóttu skara framúr í keppninni.
Veitt voru þrenn verðlaun. Þau
fyrstu hlaut Edda Hrund Gunn-
arsdóttir og Sæunn Þorsteinsdótt-
ir hlaut önnur, báðar úr Reykja-
vík. Þriðju verðlaun hlaut Guð-
rún Þorsteinsdóttir úr Mosfells-
bæ. Veitt voru peningaverðlaun.
150 þúsund, 100 þúsund og 50
þúsund. SV/ój
Sigluijarðarbær:
Jafn margar krónur í
rekstrarkostnað á næsta ári
Bæjarráð Siglufjarðar hefur
samþykkt að rekstrarkostnað-
ur bæjarins á næsta ári verði sá
sami í krónum og á yfírstand-
andi ári. Þetta þýðir sparnað í
rekstri bæjarins á milli ára sem
nemur verðbólgu þessa árs.
Björn Valdimarsson, bæjar-
stjóri, segir að aðhalds hafi verið
gætt í rekstri bæjarfélagsins, en
hægt sé að gera ennþá betur og
það verði gert á næsta ári.
í Árbók sveitarfélaga fyrir
1991 kemur fram að af kaupstöð-
um landsins var rekstrarkostnað-
ur aðeins lægri á fjórum stöðum
en á Siglufirði. Lægstur var
rekstrarkostnaður (fyrir utan
fjármagnskostnað) 54 þúsund
krónur á íbúa í Garðabæ, síðan
komu Mosfellsbær og Borgarnes
með 55 þúsund, Egilsstaðir með
56 þúsund og Siglufjörður með
57 þúsund krónur. Að meðaltali
var rekstrarkostnaður í kaup-
stöðum landsins 64 þúsund krón-
ur á íbúa. óþh
Vígsla
Glerárkirkju
Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason,
vígir Glerárkirkju,
nk. sunnudag, 6. desember, kl. 14.00.
Kaffiveitingar að vígslu lokinni.
Allir innilega velkomnir.
Sóknarnefnd.
Kynntu þér möguleika
myndstækkarans frá Kodak
Mynd úr honum er tilvalin jólagjöf, sem er
tilbúin á aðeins 5 mínútum.
^Peáíomyndir*
Skipagötu 16 • Sími 23520.