Dagur - 05.12.1992, Qupperneq 11
Nýjar bækur
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 11
Lífsgleði
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent
frá sér bókina Lífsgleði. Hún hefur
að geyma viðtöi og frásagnir um líf
og reynslu á efri árum. í frétt frá
útgefanda segir m.a.:
„Hvað segja aldraðir um eigin til-
veru? í þessari nýju bók segja við-
mælendur á jákvæðan hátt frá
ánægjulegri og óvæntri reynslu. í
bókinni eru einnig mikilvægar upp-
lýsingar og leiðbeiningar fyrir fólk,
sem komið er á eftirlaunaaldurinn."
Þórir S. Guðbergsson félagsráð-
gjafi skráði viðtölin og bjó til prent-
unar. Rætt er við: Elínu Þóru Guð-
laugsdóttur, Gísla Gíslason, Guð-
rúnu Nielsen, Hrefnu Tynes, Ingi-
björgu Gísladóttur, Jón M. Jónsson
og Þorstein Einarsson.
í viðtölum við Þóri S. Guðbergs-
son, félagsráðgjafa og kennara, sem
margir kannast vel við, kemur
greinilega fram hvað aldraðir eru
ólíkir innbyrðis, en margir viðmæl-
enda minnast einmitt á félags- og
tómstundastarf og þýðingu þess og
allir leggja áherslu á hversu mikiis
virði það er að hafa yndi af áhuga-
málum hverju nafni sem þau nefn-
ast, kunna þá miklu list að sníða sér
stakk eftir vexti og njóta lífsins
meðan kostur er.
Bókin Lífsgleði er 143 bls. að
stærð.
Stóra
vísindabókin
Stóra vísindabókin er komin út hjá
Iðunni. Höfundur hennar er Judith
Hann, en Óskar Ingimarsson þýddi
bókina á íslensku.
Stóra vísindabókin er áhugaverð
bók fyrir börn og unglinga, full af
fróðleik og hagnýtum tilraunum
sem hjálpa lesandanum að skynja
og skilja lögmál tækni og vísinda á
eigin spýtur. Við tilraunirnar eru
notuð einföld tæki og ódýr efnivið-
ur, og stórar og skýrar litmyndir
sýna skref fyrir skref hvernig, til-
raunirnar eru gerðar, hvað þarf að
hafa við höndina og hver árangurinn
verður. í sérstökum verkefnaköfl-
um er einnig kennt að búa til allt
mögulegt, jafnt gufubát og transis-
tortæki.
Bókin varpar ljósi á allt það
helsta í þróun vísinda í heiminum
og bæði börn og fullorðnir geta
stuðst við hana þegar kannaðir eru
spennandi leyndardómar vísind-
anna.
Við erum heppnir,
við Víðir
Bókaútgáfan Æskan hefur sent frá
sér bókina V7ð erum heppnir, við
Víðir, eftir Karl Helgason.
í frétt frá útgefanda segir m.a. um
efni bókarinnar:
„Birkir og Víðir eru bræður á 10.
og 11. ári, sprækir og snjallir
snáðar. Það er oft afar gaman hjá
þeim því að þeir og vinir þeirra taka
upp á ýmsu skemmtilegu. Sóley
systir þeirra baksar við að safna
inniskóm í leikskólanum; Ösp vin-
kona þeirra les ævintýri úr skýjun-
um; Sigþrúður Hróðný höttur fer
með þeim í dýflissuna með mat til
fangans sem vill ekki láta frelsa
sig---!!
Heppnin er alltaf með þeim
bræðrum - þó að þeir lendi í þoku
og óveðri, takist á við hrekkjusvín
og skemmdarvarga, meira að segja
þegar Sokki fælist. Og heppnin fylg-
ir Víði enn þegar óhapp verður...
Búi Kristjánsson teiknaði myndir
sem falla vel að fjörlegri frásögn.“
Bókin er 113 blaðsíður að stærð.
Þess má geta að í tilefni 95 ára
afmælis Barnablaðsins Æskunnar
hefur bókin verið send að gjöf
íslenskum börnum fæddum 1983.
Mömmudrengur
- ný Úrvalsbók
Úrvalsbækur hafa sent frá sér
bókina „Mömmudrengur“,
eftir Charles King. Hún er sjö-
unda bókin í flokki Úrvals-
bóka sem út kemur á þessu ári.
í kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Gagnrýnendur hafa jafn-
að „Mömmudreng“ við bókina
„Lömbin þagna“. í bókinni
„Mömmudreng“ verður það að
veruleika sem við óttumst mest.
Ódæðismaðurinn, sem er í senn
raðmorðingi og fjöldamorðingi,
læðist að grunlausum fórnar-
lömbum sínum og þurrkar út
heilar fjölskyldur, en lætur líta
svo út að heimilisfaðirinn hafi
gengið berserksgang og framið
ódæðið.
En jafnvel sjúkum manni af
þessu tagi verður á í messunni. Á
heimili Harrow-fjölskyldunnar
sést honum yfir litla, mállausa
tökudrenginn frá Trinidad, Win-
ston Churchill, sem felur sig inn í
klæðaskáp og verður vitni að öllu
saman... Og þar kemur að
ódæðismanninum verður ljóst að
vitni er til - vitni sem verður að
þagga niður í áður en það er um
seinan...“
„Skemmtilegu
smábarna-
bækumar“
Bókaútgáfan Björk hefur sent frá
sér tvær nýjar bækur í bókaflokkn-
um „Skemmtilegu smábarnabæk-
urnar“.
Tinna byggir kastala - er nr. 31 í
bókaflokki þessum. Hún segir frá
kettinum Tinnu, sem byggir vegleg-
an kastala úr sandi á sjávarströnd-
inni og hinu fjölþætta lífríki í flæðar-
málinu.
Höfundur bókarinnar er Stephanie
Calmenson en teikningar gerði
Sheila Beckett.
Nýja rúmið hans Tóta er nr. 32 í
sama bókaflokki hinna yngstu les-
enda. Hann Tóti litli eignast nýtt
rúm, sem hann er eki alveg ánægður
með, því gamla rúmið var honum
svo kært. Svo gerist ævintýrið, sem
sagan segir frá. Höfundur er Phina
Moed-Kass en teiknari Turi Mac-
Combie.
Stefán Júlfusson rithöfundur
íslenskaði báðar framangreindar
bækur.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Skemmtilegu smábarnabækumaT‘
eru safn úrvalsbóka fyrir byrjendur
sem átt hafa miklum vinsældum að
fagna. Sumar þeirra hafa komið út í
áratugi en eru þó alltaf sem nýjar.
Þær eru hinar vönduðustu að efni og
öllum frágangi, sem völ er á fyrir lít-
il börn, enda valdar og íslenskaðar
af hinum færustu skólamönnum."
Verslanir okkar á
Akureyrí verða opnar
umfram venju í desember
sem hér segir:
HRÍSALUNDUR BYGGÐAVEGUR SUNNUHLÍÐ NETTÓ
Laugard. 5. des. 10.00-16.00 10.00-20.00 10.00-20.00 10.00-16.00
Sunnud. 6. des. Lokað 10.00-20.00 Lokað 13.00-17.00
Laugard. 12. des. 10.00-18.00 10.00-20.00 10.00-20.00 10.00-18.00
Sunnud. 13. des. Lokað 10.00-20.00 Lokað 13.00-17.00
Laugard. 19. des. 10.00-22.00 10.00-22.00 10.00-22.00 10.00-22.00
Sunnud. 20. des. 13.00-17.00 10.00-20.00 13.00-17.00 13.00-17.00
Miðv.d. 23. des. 10.00-23.00 9.00-23.00 9.00-23.00 12.00-23.00
Aðfangadagur 9.00-12.00 9.00-12.00 9.00-12.00 9.00-12.00
Laugard. 26. des. Lokað 13.00-20.00 Lokað Lokað
Sunnud. 27. des. Lokað 10.00-20.00 Lokað Lokað
Gamlársdagur 9.00-12.00 9.00-12.00 9.00-12.00 9.00-12.00
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Hefur síminn þinn happanúmer?
Símanúmer þitt
er númer
happdrættismiðans
Nú byggjum við
nýja sundlaug
fyrir börnin okkar
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA OG FATLAÐRA
Háaleitisbraut 11-13, Reykjavík
Kaup á miða í símahappdrættinu styðja framkvæmdir félagsins í þágu fatlaðra barna