Dagur - 05.12.1992, Qupperneq 21
Laugardagur 5. desember 1992 - DAGUR - 21
Glerárkirkja.
Sunnudagur 6. desember kl. 10.30
sunnudagaskólinn heimsækir barna-
starfið í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Lagt af stað frá Glerárkirkju
kl. 10.30. Foreldrar eru hvattir til að
koma með börnum sínum.
Kl. 14.00 vígsla Glerárkirkju.
Biskup íslands herra Ólafur Skúla-
son vígir kirkjuna. Safnaðarfólk er
hvatt til að fjölmenna til hátíðarinn-
ar.
Sóknarprcstur.
Akureyrarprestakall:
Sunnudagaskóli Akur-
eyrarkirkju verður nk.
sunnudag kl. 11 í Safnað-
arheimilinu. Sunnudaga-
skóli Glerárkirkju kemur í heim-
sókn. Fjölmennum og eigum
ánægjulega stund með góðum
gestum.
Messað verður í Akureyrarkirkju
nk. sunnudag kl. 11.
Athugið breyttan messutíma. Kór
Lundarskóla syngur í messunni und-
ir stjórn Elínborgar Loftsdóttur.
Víða eru kirkjur þéttsetnar á
aðventu. Verum ekki eftirbátar.
B.S.
Aðventukvöld verður í Akureyrar-
kirkju nk. sunnudag kl. 20.30.
Ræðumaður verður Þorsteinn Páls-
son kirkjumálaráðherra. Kór Akur-
eyrarkirkju og Kór Menntaskólans
á Akureyri munu syngja. Æskulýðs-
félag Akureyrarkirkju verður með
helgileik og helgistund. Fyllum
kirkjuna eins og oft áður.
iGmsEB
Kaþólska kirkjan
Eyrarlandsvegi 26,
Akureyri. Sími 96-21119.
Messur:
Laugard. 5. desember kl. 18.00.
Sunnud. 6. desember kl. 11.00.
Þriðjud. 8. desember kl. 18.00.
(Óflekkaður getnaður alsællar
Maríu meyjar).
Möðruvallaprestakall.
Aðventukvöld verður haldið í
Möðruvallakirkju annan sunnudag í
aðventu, 6. desember nk. og hefst
kl. 21. Kór kirkjunnar syngur nokk-
ur aðventu- og jólalög undir stjórn
Birgis Helgasonar organista, lesin
verður jólasaga, auk þess sem
barnakór Þelamerkurskóla syngur
nokkur lög. Ræðumaður kvöldsins
verður Þóra Magnúsdóttir frá
Fagraskógi. Eftir athöfnina verða
seld friðarljós frá Hjálparstofnun
kirkjunnar.
Sóknarprestur.
Stærri-Árskógskirkja:
Aðventukvöld verður í kirkjunni á
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Fyrirbænastund verður á þriðjudag
kl. 17.30.
Sóknarprestur.
Grundarkirkja:
Aðventukvöld verður sunnudaginn
6. desember kl. 21.00.
Kór Grundarkirkju syngur undir
stjórn Sigríðar Schiöth, undirleikari
er Guðjón Pálsson.
Ræðumaður: Haraldur Bessason
háskólarektor.
Barnakór úr Hrafnagilsskóla syngur
undir stjórn Geirs Gunnarssonar og
ungmenni úr Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar leika nokkur lög undir stjórn
Atla Guðlaugssonar.
Einsöngur: Már Magnússon.
Saga: Kristín Pálsdóttir.
Sóknarprestur.
□ HULD 59921277 VI 2
I.O.O.F. 15!= 17481281/2= 9.0.
□ RÚN 599212512 = 6
Konur, konur!
Aglow, kristileg samtök
kvenna, halda opinn
fund, mánudaginn 7. des-
ember kl. 20.00 að Hótel KEA.
Ræðumaður verður Sólveig Ingólfs-
dóttir.
Söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjón-
usta.
Kaffiveitingar kr. 500.
Bjóðum bæði konur og karla hjart-
anlega velkomin.
Stjórn Aglow Akureyri.
Aðalfundur.
Sjúkraliðar og nemar.
Deild sjúkraliða á
Norðurlandi eystra held-
ur aðalfund þriðjudaginn 15. des-
ember næstkomandi kl. 20.30 í sal-
arkynnum Starfsmannafélags Akur-
eyrarbæjar (STAK) við Ráðhús-
torg. Dagskrá fundarins: 1. Kosning
fundarstjóra. 2. Ávarp formanns. 3.
Kosning fulltrúa deildarinnar til
setu á fulltrúaþingi SLFÍ samkvæmt
ákvæðum 15. gr. laga SLFÍ. 4. Lögð
fram tillaga að fjárhagsáætlun til
samþykktar. 5. Kaffi og kökur. 6.
Kosning stjórnar. 7. Önnur mál.
Það er von okkar í stjórn deildar-
innar að sem flestir sjúkraliðar og
nemar sjái sér fært að mæta. Oft er
þörf en nú er nauðsyn.
Stjórnin.
Konur í kvenfélagi Akureyrar-
kirkju.
Jólafundur verður haldinn í Safnað-
arheimilinu miðvikudaginn 9. des-
ember kl. 20.30.
Munið að hafa með ykkur einn jóla-
pakka.
Mætum allar í jólaskapi og takið
með ykkur gesti.
Stjórnin.
SSIysavarnafélagskonur
Akureyri.
Jólafundurinn verður 7.
des. kl. 20.30 að Laxa-
götu 5.
Munið að taka með ykkur jóla-
pakka.
Stjórnin.
Frá Sáiarrannsóknar-
, . félaginu á Akureyri.
Jólafundur félagsins
verður haldinn laugard.
5. des. kl. 20.30 í húsi félagsins
Strandgötu 37b.
Allir hjartanlega velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Ræðumaður kvöldsins séra Sigurður
Haukur Guðjónsson.
Stjórnin.
Efst í huga
Kristján Kristjánsson
Rannvcig Alfreðsdóttir, Lönguhlíð
7 c, Akureyri verður 50 ára í dag, 5.
desember. Hún tekur á móti gestum
að Galtalæk (húsi Flugbjörgunar-
sveitarinnar) frá kl. 20.00.
Veljum íslenskt
Þá er jólamánuðurinn genginn ( garð
með öllu sem því fylgir. Framundan
eru erfiðir en jafnframt skemmtilegir
tímar, alla vega fyrir börnin okkar og
vonandi kaupmennina líka. Það hefur
mikið verið rætt og ritað um stöðu
íslenskrar verslunar síðustu vikur og
mánuði og ekki síst í framhaldi af öll-
um innkaupaferðum (slendinga erlend-
is. Þar sýnist sitt hverjum og svo sem
ekkert óeðilegt við það.
, Verkalýðsfélög og fleiri aðilar hafa
auglýst grimmt; Veljum íslenskt -
tryggjum atvinnu, eða eitthvað í þeim
dúr og ekki er vanþörf á að minna land-
ann á hversu mikilvægt það er versla
hór á landi og þá helstjslenskar vörur.
En það skapar líka atvinnu á íslandi,
þó hér séu keyptar erlendar vörur. Þar
spilar margt inní og má í því sambandi
nefna, flutning á vörunni til landsins,
flutning á vörunni innanlands og vinnu
fyrir íslenskt afgreiðslufólk í verslun-
um.
Þegar ég fer í verslun, reyni ég yfir-
leitt að velja íslenskar vörur, svo fram-
arlega sem þær standast verð og gæði
á við sambærilegar erlendar. - Og það
er æði oft sem íslenskar vörur standast
þær kröfur og því er valið einfalt.
Félag íslenskra stórkaupmanna
sendi frá sér fréttatilkynningu fyrir
skömmu, þar sem sagt var að 400 störf
í verslun töpuðust á íslandi vegna inn-
kaupaferða landans erlendis. Félagið
segir einnig að gera megi ráð fyrir að
25.000 íslendingar fari utan í þessum
erindagjörðum nú í haust og ef hver
þeirra eyði 1.000 pundum eða 100
þúsundum krónum, þýði það að versl-
un sem flyst úr landi á þessum stutta
tíma sé um 2,5 milljarðar króna. Þetta
er að mínu mati mjög ýkt dæmi og skil
ekki af hverju Félag íslenskra stór-
kaupmanna sér ástæðu til að leggja
það svona fram. Auðvitað eyðir fólk
peningum í þessum ferðum en að það
sé í þessum mikla mæli og stórkaup-
menn ýja aö, er að mínu mati algjör-
lega út í hött. Ekki veit ég hvað stór-
kaupmenn hafa til grundvallar en
mín skoðun byggist á samtölum viö
fólk sem farið hefur í slíkar ferðir.
Það eru svo erfiðir tímar framundan (
íslensku þjóðlífi. Það stefnir ( óróa á
vinnumarkaðnum eftir áramót og ekki
síst vegna síðustu aðgerða ríkisstjórn-
arinnar. Það er því vissara fyrir fólk að
halda um budduna í desember og
eyða ekki um efni fram. En umfram allt;
veljum íslenskt og verslum á íslandi.
Hjálpræðisherinn:
Sunnud. 6. des. kl. 11.00:
Helgunarsamkoma.
Kl. 13.30: Sunnudagaskóli.
Kl. 19.30: Bæn.
Kl. 20.00: Almenn samkoma.
Mánud. 7. des. kl. 16.00: Heimila-
samband.
Kl. 20.30: Hjálparflokkur.
Miðvikud. 9. des. kl. 17.00: Fundur
fyrir 7-12 ára.
Fimmtud. 10. des. kl. 20.30: Biblía
og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
HVÍTASUtinUKIfíKJAfí mmdshlíð
Laugardagur 5. desember kl. 21.00
samkoma fyrir ungt fólk.
Sunnudagur 6. desember kl. 11.00
barnakirkjan, allir krakkar vel-
komnir. Sama dag kl. 15.30 vakn-
ingarsamkoma, samskot tekin til
kirkjubyggingar. Barnagæsla verður
á sama tíma fyrir krakkana.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 7. desember 1992
kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Jón Kr. Sólnes og Jakob
Björnsson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2.
hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
SJÓNARHÆÐ
W HAFNAHSTRÆTI 63
Sjónarhæð, Hafnarstræti 63.
Laugardagur 5. des.: Laugardags-
fundur fyrir 6-12 ára kl. 13.30. Ás-
tirningar og allir aðrir krakkar vel-
komnir! Unglingafundur kl. 20. All-
ir unglingar velkomnir.
Sunnudagur 6. des.: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30.
Krakkar í Lundarhverfi, verið dug-
leg að mæta. Almenn samkoma á
Sjónarhæð kl. 17. Kaffi og meðlæti
á eftir. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
. KFUM °8 KFUK»
Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 6. desem-
ber. Söngva- og bæna-
stund kl. 17.
Allir velkomnir.
Minningarkort Minningarsjóðs Jóns
Júl. Þorsteinssonar kennara fást á
eftirtöldum stöðum: Bókabúð Jón-
asar Akureyri, Versl. Valberg Ólafs-
firði og Kirkjuhúsinu Klapparstíg 25
Reykjavík.
Tilgangur sjóðsins er að kosta út-
gáfu á kennslugögnum fyrir hljóð-
lestrar-, tal- og söngkennslu.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð,
Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu
F.S.A.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð
Jónasar og í Bókvali.
Minningarspjöld Slysavarnafélags
íslands fást á eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Jónasar, Bókvali, Blóma-
búðinni Akri og Happdrætti DAS
Strandgötu 17.
Styrkið Slysavarnafélagið í starfí.
Áttræðar verða í dag, laugardaginn 5. desember, tvíburasysturnar
Sigríður og Laufey Stefánsdætur. Þær taka á móti gestum að Hjarð-
arlundi 11, Akureyri, frá klukkan 15.00 á afmælisdaginn.