Dagur - 05.12.1992, Page 24
Siglufjörður:
Stúlka féll í höfnina
- mikil ölvun var í bænum
Aðfaranótt föstudagsins var
lögreglan á Siglufirði kölluð
niður að höfn þar sem stúlka
hafði fallið í sjóinn milli skips
og bryggju.
Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði voru tuttugu og þrjú loðnu-
skip og togarar í höfninni. Skipin
leituðu vars vegna óveðurs á
miðum. Mikil ölvun var í bænum
og barinn opinn til klukkan eitt.
Lögreglunni barst kall um miðja
nótt vegna stúlku er hafði fallið í
sjóinn. Fljótt var brugðist við en
er að var komið var búið að ná|
stúlkunni á þurrt. Hún var flutt
| til sjúkrahúss blaut og hrakin. Að
i skoðun lokinni var stúlkunni
leyft að fara til síns heima. ój i
Flestir vegir færir
- þrátt fyrir snjókomu og skafrenning
Rannsóknarlögregumenn skoða verksummerki á skrifstofu fréttastjóra Dags, þar sem aðkoman var hvað verst
Slæmt veður var um norðan-
vert landið í gær en þó voru
flestir vegir færir. Erfítt gat þó
reynst að komast leiðar sinnar
vegna skafrennings, en þar
sem snjór er lítill var ekki talin
mikil fyrirstaða á vegum en
nokkur hálka víða.
Vegurinn um Víkurskarð var
opnaður í gærmorgun og einnig
leiðin til Grenivíkur. Snjóruðn-
ingstæki fór til Dalvíkur en um
hádegi í gær beið það á Dalvík,
eftir að opna veginn að Múla-
göngum ef veður lægði. Fært var
um Öxnadalsheiði þrátt fyrir
dimmviðri að sögn vegaeftirlits-
manns á Akureyri. Úr Skagafirði
var það að frétta að bjart var í
Blönduhlíð en dimmviðri þegar
utar kom. Slæmt veður var á
Sauðárkróki en fært þangað frá
Varmahlíð. Ófært var hinsvegar í
Fljót og til Siglufjarðar og ekki
ætlunin að opna þangað nema ef
verður lægði. Þá var fært vestur
yfir Vatnsskarð þrátt fyrir mikið
dimmviðri að sögn vegagerðar-
manna á Sauðárkróki. Hjá vega-
gerðinni í Borgarnesi fengust þær
upplýsingar að Holtavörðuheiði
væri talin fær þrátt fyrir hvass-
viðri og skafrenning þar sem lítill
snjór væri á veginum. Vegagerð-
armenn úr Borgarnesi fylgdust
með færð um Holtavörðuheiði í
gær.
ÞI
Brotist inn í Dagshúsið á Akureyri:
Skemmdir unnar á ritstjóm
og blóðslóð um allt hús
Rækjuverksmiðjan Gefla á Kópaskeri:
Hefiir imnið 220 tonn af innfjarðar-
- lýst eftir vitnum að mannaferðum í Strandgötunni
innbrotsins í Hvítasunnukirkj-
una aðfaranótt fimmtudagsins
og innbrotsins í Dagshúsið. Inn-
brotið í Dagshúsið virðist mjög
tilviljunarkennt og allt bendir til,
að um mjög drukkinn aðila hafi
verið að ræða. Rúða var brotin í
hurð er veit fram að Strandgöt-
unni, þ.e. í alfaraleið. í anddyri
var brotin léttvínsfiaska. Blóð-
slóð var um allt hús, á báðum
hæðum. Hinn drukkni ruddi um
koll, niður á gólf, blómapottum,
tölvuskjá, myndavél og fylgihlut-
um. Aðkoman var því ljót. Blóð
Aðfaranótt föstudags var brot-
ist inn í húsnæði dagblaðsins
Dags við Strandgötu á Akur-
eyri. Ekki er vitað til að neinu
hafí verið stolið, en skemmdir
voru unnar á ritstjóm blaðsins.
„Engin sýnilcg tengsl eru milli
rækju síðan veiði hófst í haust
Síðan innfjarðarrækjuveiði
hófst á Öxarfirði um miðjan
októbermánuð hefur rækju-
verksmiðjan Gefla hf. á Kópa-
skeri aðeins verið hráefnsislaus
einn dag og er það mun skárra
ástand en ríkt hefur á þessum
tíma undanfarin ár.
Hraðfrystihús Ólafsgarðar:
Þriggja vikna jólaleyfi
„Við gerum ráð fyrir að loka
hér frá og með 23. desember,
en von er á skipi hingað þann
18. desember. Það ræðst hins
vegar af veiðum og ekki síður
veðrí hvort sú áætlun gengur
eftir,“ segir Karl Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar.
Tveir togarar sjá Hraðfrysti-
húsinu aðallega fyrir hráefni,
Múlaberg ÓF-32 og Sólberg ÓF-
12. Ekki er gert ráð fyrir að unn-
ið verði í frystihúsinu milli jóla
HELGARVEÐRIÐ
Engra breytinga er að vænta á
veðri á Norðurlandi í dag og á
morgun. Áfram verður norðan
hvassviðri eða stormur með
snjókomu. Á mánudaginn
gengur veðrið niður með
auknu frosti.
og nýjárs og vinna hefst ekki á
nýju ári fyrr en um miðjan mán-
uðinn, þegar togararnir landa eft-
ir fyrstu veiðiferð ársins. Ef ann-
ar afli fæst fyrir þann tíma verður
starfsfólkið kallað út til að vinna
þann fisk. Hraðfrysthús Ólafs-
fjarðar er nú sæmilega mannað,
þ.e. enginn vinnuaflsskortur er
þar nú þessa stundina. GG
Vegna slæms veðurs hafa
rækjubátar ekki komist á sjó í
nokkra daga og því viðbúið að
verksmiðjan verði hráefnislaus
nk. mánudag ef ekki verður þar
breyting á. Síðast vinnudagur hjá
Geflu hf. verður 18. desember og
lokað milli jóla og nýárs en
vinnsla hefst aftur fyrstu dagana í
janúar ef einhver rækjuafli hefur
þá borist. Síðan innfjarðarrækju-
veiðin hófst hefur verksmiðjan
unnið úr 220 tonnum af rækju.
Verð á rækju hækkaði örlítið
vegna gengisfellingarinnar og
eins hefur verið eilítill stígandi á
verðinu erlendis, en þessar breyt-
ingar vinna þó engan veginn upp
það verðfall sem skapast hefur af
allt að 12% gengissigi á pundinu
fyrri hluta þessa árs. GG
Innbrot hjá Hvítasunnusöfnuðinum á Akureyri:
Peningum stolið
Aðfaranótt fímmtudagsins var
brotist inn í húsnæði Hvíta-
sunnusafnaðarins á Akureyri.
Peningum var stolið en
skemmdir eru óverulegar.
„Farið var inn um nýbygging-
una að norðanverðu og gluggi
brotinn upp. Þannig komst þjóf-
urinn inn í eldri bygginguna og
aðdráttaraflið voru söfnunar-
baukar safnaðarins. Ekki er vitað
hversu háa fjárhæð þjófurinn
hafði upp úr krafsinu. Unnið er
að rannsókn,“ segir talsmaður
rannsóknarlögreglunnar á Akur-
eyri. ój
var a húsgögnum, tölvum, tækj-
um og á síma. Af ummerkjum
má sjá að síminn var notaður.
Engu var stolið að því er best
verður séð. Unnið er að frum-
rannsókn. Búið er að taka blóð-
sýni og leitað er fingrafara,"
sagði talsmaður rannsóknarlög-
reglunnar á Akureyri.
Vegna innbrotsins lýsir rann-
sóknarlögreglan á Akureyri eftir
vitnum að óeðlilegum manna-
ferðum í Strandgötunni aðfara-
nótt föstudagsins. ój
Hlutabréfm í hlutafl árútboði Þormóðs ramma seld:
Traustsyfírlýsing við
fyrirtækið og byggðarlagið
- segir Róbert Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
Síðdegis í gær átti að ganga frá
sölu á síðustu bréfunum í hluta-
fjárútboði Þormóðs ramma hf.
á Siglufírði, en í það heila nam
hlutafjárútboðið um 50 millj-
ónum króna á nafnvirði.
Róbert Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
sagðist mjög ánægður með þessi
viðbrögð og þau staðfestu að
fjárfestar hafi ekki misst trúna á
sjávarútvegsfyrirtækjum þó illa
áraði nú um stundir. „Ég lít svo á
að þetta sé ákveðin traustsyfirlýs-
ing við fyrirtækið og byggðarlag-
ið,“ sagði Róbert.
Stórir aðilar, fyrst og fremst
lífeyrissjóðir og verðbréfasjóðir,
keyptu hlutabréf í Þormóði
ramma, en að sama skapi fáir
einstaklingar.
í fyrra nam hagnaður af rekstri
Þormóðs ramma 85,5 milljónum
króna, en fyrstu átta mánuði
þessa árs var hagnaðurinn um 50
milljónir króna. Róbert segir
ljóst að hagnaður þessa árs verði
minni en gert hafi verið ráð fyrir
vegna 6% gengisfellingar krón-
unnar, sem hafi leitt til óhagstæðs
gengismunar. „Gengismunurinn
mun keyra niður hagnaðinn á
þessu ári, en aftur á móti gerum
við ráð fyrir meiri hagnaði á
næsta ári vegna hækkandi verðs á
afurðum vegna gengisfellingar-
innar,“ sagði Róbert. óþh