Dagur - 19.12.1992, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 19. desember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNAR-
SON, (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRlMSDÓTTIR
(Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
ímyndferskleikans
verdur að viðhalda
ísland er hreint og ómengað
land, loftið tært og vatnið
ferskt. Þar eru framleiddar
hreinar náttúruafurðir og fisk-
urinn dreginn úr ómenguðum
sjó, glænýr og ferskur. Náttúr-
an er óspillt, öll matvæh fram-
leidd úr úrvals hráefni undir
ströngu gæðaeftirliti hámennt-
aðra sérfræðinga. ísland er
paradís heilsu og hollustu.
Helsta tromp íslendinga á
alþjóðavettvangi í vaxandi
samkeppni á flestum sviðum er
að leggja áherslu á þennan
hreinleika og ferskleika. — Þetta
er sú mynd sem við viljum sýna
öðrum þjóðum, mynd sem
íslendingar eru að selja og ætla
sér að hagnast vel á í framtíð-
inni.
Það er vonandi að heilsu-
ímyndin styrki sig í sessi og að
íslendingar geti í vaxandi mæh
gert út á hana, selt útlending-
um vatn, fisk og unna fiskrétti,
landbúnaðarafurðir og ýmis
matvæh og laðað erlenda ferða-
menn til landsins á forsendum
ferskleikans. Hugmyndir um
heilsuhótel og hliðstæða starf-
semi eru áhugaverðar og menn
vonast til að landið selji sig
sjálft út af hinni hreinu og
ómenguðu náttúru.
Þetta er aht saman gott og
blessað en okkur er þó hollt að
hta í eigin barm. Því miður hafa
íslensk matvæh oft komið iha út
úr gæðakönnunum og er
skemmst að minnast könnunar
á hangikjöti sem Hollustuvernd
ríkisins gerði fyrir Morgunblað-
ið. Niðurstöður rannsókna á 12
mismunandi stykkjum á hangi-
kjöti í þremur verslunum í
Reykjavík voru þær að aðeins
þrjú sýni fengu heildareink-
unnina „fuhnægjandi“, fjögur
„ábótavant" og fimm „ófuh-
nægjandi". Töluvert skorti á
ferskleika vörunnar, sem met-
inn er út frá gerlafjölda, í meira
en helmingi tilfeha, en ekki var
tahn ástæða til að ætla að kjötið
ógnaði heilsu manna hvað
mengun eða eitrun varðar.
Þessar niðurstöður hljóta að
vera áfah fyrir framleiðendur
því þótt kjötið sé ekki varasamt
heilsu manna þá er gerlafjöldi í
flestum tilvikum vel yfir stöðl-
um Hohustuverndar sem þýðir
að geymsluþolið sé htið og
stutt í að kjötið fari að
skemmast. Minnisstæðar eru
hhðstæðar niðurstöður úr rann-
sóknum á unnum kjötvörum
fyrir fáeinum árum, en þær voru
í svipuðum dúr hvað gerla-
innihald varðar.
TU að geta státað af ferskum
og ómenguðum matvælum í
samkeppni við innflutt mat-
væli, sem mun fara vaxandi
með EES-samningnum, þurfa
íslenskir matvælaframleiðend-
ur að hafa vakandi auga með
gæðum vörunnar. Neikvæðar
niðurstöður úr gæðakönnunum
hljóta að hafa áhrif á neytendur
á sama hátt og orðrómur um
notkun hormóna, skordýraeit-
urs og annarra vafasamra efna
hefur gert ýmsum matvæla-
framleiðendum erlendis erfitt
fyrir á tímum aukinnar áherslu
á hið hreina og ómengaða.
íslendingar verða að halda
vöku sinni og þeir mega ekki
láta hanka sig á atriðum eins
og þessum því ímynd ferskleik-
ans er viðkvæm eins og náttúr-
an og það verður að hlúa að
henni með öllum ráðum og
dáðum. Verði það ekki gert
geta íslenskar vörur í versta
falli farið halloka í samkeppni
við innfluttar vörur og þá er
voðinn vís. SS
Hræringur Stefón Þór Sæmundsson
Um skelfQegar afleiðingar þess að
konan tók sig tíl og bakaði ætar kökur
„Sælgætisát og gosdrykkjaþamb
er mikið. Mundi Bjarna á Leiti
hafa þótt það lélegur átmatur
saman borið við bringu af
þriggja vetra gelding." Svo segir
í Heilbrigðisskýrslum árið 1954
og á lýsingin við Vopnafjarðar-
hérað. Nú hafa liðið hátt í 40 ár
og enn hafa sælgætið og gos-
drykkirnir sótt á meðan bringa
af geldingi hefur hrapað í vin-
sældum. Ekki ætla ég að staldra
lengi við þessi tíðindi en íslend-
ingar eiga heimsmet í sykuráti
og má kannski rekja það til þess
að sykur er hér ódýrari en víða
um heim.
Eftir því sem ég kemst næst
er sykurinn töluvert ódýrari í
stórmörkuðum en í heildsölu og
mun ástæðan vera sú að versl-
anirnar niðurgreiða þessa vöru
til að koma betur út í verð-
könnunum. Já, undarlegt er allt
mitt líf; hvers vegna að niður-
greiða sykur, hvítan sykur,
súkrósa, bráðóhollan bölvald
tanna og andlegrar jafnt sem
líkamlegrar heilsu? Ég skil ekki
slíka verslunarhætti.
Hvers vegna er
óhollustan niðurgreidd?
Neyslustýring með verðlagn-
ingu er áhrifarík og með því að
niðurgreiða sykurinn selja
verslanir meira af honum en
ella. f Svíþjóð er sykurinn tölu-
vert dýr, að ég held af ásettu
ráði til að draga úr neyslunni.
Hér á landi keppast verslanir
við að bjóða ódýra gosdrykki
meðan hreinir ávaxtasafar eru í
hæsta verðflokki. Eftir þessum
gylliboðum og niðurgreiðslum
hlaupa neytendur, enda vilja
allir spara á þessum ógnartím-
um, og afleiðingarnar eru þær
að sykurneysla eykst, tann-
skemmdir aukast, aukakílóin
verða til vandræða og geðsveifl-
ur miklar þegar blóðsykurinn
rís og fellur. Þá er nú betra að
fá sér bringu af geldingi til að
naga!
I fúlustu alvöru sagt þá mætti
nota verðlagningu til neyslu-
stýringar á skynsamlegri hátt. í
Kanada hafa þeir verið að prófa
að snarhækka tóbakið og árang-
urinn virðist ætla að vera aug-
ljós; stórlega dregur úr tóbaks-
neyslu. Það sama er hægt að
gera með áfengið. Hugsið ykk-
ur bara hvað myndi gerast ef
(þegar?) verð á áfengi væri
lækkað um helming hér á ís-
landi. Hræddur er ég um að
neyslan myndi aukast all-
skuggalega.
Með mismunandi álagningu
má stjórna neyslu fólks, fá það
til að kaupa meira af hollum
matvælum og t.a.m. íslenskum
vörum en minnka ásókn þess í
óhollustu og hreinasta óþarfa.
Smákökurnar kláruöust
um miðjan desember!
Nei, það þýðir ekkert að predika
um hollustuhætti svona rétt fyr-
ir jól, enda er ég sjálfur búinn
að gefa það upp á bátinn að
vera með sléttan kvið og stinn-
an þjó yfir hátíðarnar. Fögur
fyrirheit gufuðu upp um leið og
konan byrjaði í bakstrinum fyr-
ir jólin. Og nú er voðinn vís.
Ég hef ekki verið ýkja hrifinn
af smákökum til þessa. Konan
hefur haldið í þennan forna sið
að baka fjölmargar plötur af alls
kyns tegundum fyrir jólin og
síðan hafa kökurnar dagað uppi
ofan í dunkum inni í geymslu
þangað til þeim hefur verið hent
fyrir næstu jól. Ég hef aldrei
skilið þennan vítahring smá-
kökubakstursins.
Nú varð hins vegar breyting
á. Konan tók sig til og bakaði
ætar smákökur, ekki gömlu
Þingeyingana, spesíurnar, hálf-
mánana, kossana, gyðingakök-
urnar, piparkökurnar, mynda-
kökurnar og allt þetta drasl sem
maður fékk nóg af í bernsku.
Nei, nú töfraði hún fram sann-
kallað sælgæti (enda nóg af
sykri, sýrópi og súkkulaði í öll-
um uppskriftunum) og afleið-
ingin varð sú að við kláruðum
smákökurnar um miðjan mán-
uðinn! Ég endurtek; smákök-
urnar kláruðust og konan þurfti
að byrja að baka upp á nýtt.
Á ístran aö vera ofan á
eða undir tölvuborðinu?
Æ, mikið verður maður eitt-
hvað sljór af allri þessari sykur-
neyslu. Aldrei raunverulega
saddur, alltaf hálfsvangur, og
síðan kemur sjokkið þegar
blóðsykurinn fellur. En nú er ég
að ná blóðsykrinum aftur í
topp. Konan er búin að baka
sætustu kökurnar aftur. Ég veit
ekki hvað þær heita en þetta eru
nánast sýrópshjúpaðar sykur-
kúlur með súkkulaðihúð. Og
svo bjó hún til konfekt líka.
Nammi, namm. Hún hefði tekið
Konfektmeistarann í bakaríið.
Óhófleg sykurneysla hefur
margvíslegar afleiðingar í för
með sér. Nú er ég til dæmis að
velta því fyrir mér hvort ég eigi
að hafa ístruna ofan á eða undir
tölvuborðinu. Ef ég hef hana
ofan á er hún alltaf að flækjast
fyrir mér á lyklaborðinu en ef
ég hef ístruna undir tölvuborð-
inu þarf ég að hafa stólinn í
lægstu stöðu og teygja mig upp í
lyklaborðið. Það er óþægileg
stelling. Einnig hef ég reynt að
sitja lengra frá borðinu og vera
með handleggina útrétta en það
er þreytandi til lengdar. Erfitt
er að snúa á hlið eða hreinlega
snúa bakinu í tölvuna og teygja
hendurnar aftur fyrir sig. Þetta
eru bölvuð vandræði sem rekja
má beint til þess hvað konan
mín bakar góðar smákökur.
Legg ég að lokum til að Dag-
ur efni til samkeppni um upp-
skrift að heilsubrauði strax í
byrjun janúar og verðlaunin
verði árskort í líkamsræktar-
stöð.