Dagur - 19.12.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 19. desember 1992 - DAGUR - 11
Af erlendum vettvangi
Hvað er
Kirlian-myndataka?
Það var árið 1939, að sovéska raf-
eindafræðingnum Semjon Dav-
idovitsj Kirlian tókst að finna
aðferð til að gera orkuútgeislun
frá lifandi verum sýnilega, en
almennt getur mannsaugað ekki
greint þessa útgeislun.
„Myndavél“ hans útbjó raf-
magnað hátíðnisvið á milli
tveggja rafskauta. Allt það, sem
hefur líf í sér og kemur inn á slíkt
hátíðnisvið, sýnist umlukið skín-
andi eldgeislun. Þessi aðferð við
myndatökur hefur síðan verið
kennd við Kirlian.
Kirlian gerði m.a. tilraunir
með laufblöð af trjám. Hann sá,
að ljósáran, sem umlukti blöðin,
minnkaði í réttu hlutfalli við visn-
un blaðanna. Þegar blöðin voru
skrælnuð orðin og líflaus, var
áran líka horfin.
Einnig athugaði Kirlian, hvað
gerðist, ef hluti laufblaðs væri
skorinn burtu. Honum til mikill-
íslenska
lyfjabókin
- komin út í nýrri útgáfu
Islenska Lyfjabókin, sem kom
síðast út fyrir rúmum 4 árum,
er nú komin út að nýju. Yfir 20
þúsund eintök hafa selst af
fyrri útgáfum og mikið hefur
verið beðið eftir nýrri útgáfu
bókarinnar sem nú birtist,
enda hafa orðið miklar breyt-
ingar á lyfjamarkaðnum und-
anfarið og yfir 200 ný lyf bæst
við síðan síðast. Þá hefur fjöldi
lyfja fallið út og upplýsingar
um önnur breyst.
Höfundar bókarinnar eru
Helgi Kristbjarnarson læknir,
Magnús Jóhannsson læknir og
Bessi Gíslason lyfjafræðingur.
Bókin er bæði vönduð og ódýr.
Hún er 624 bls. og kostar 2460
kr. Þeim sem eiga eldri útgáfu
bókarinnar gefst kostur á að skila
henni í apóteki og fá nýju bókina
í staðinn með 40% afslætti,
þ.e.a.s. á 1460 kr. Þetta er m.a.
gert til að ná gömlu útgáfunum úr
umferð þar sem þær eru orðnar
úreltar og innihalda í sumum til-
vikum rangar upplýsingar.
Það sem líklega vekur hvað
mesta athygli í þessari nýju bók
er umfjöllunin um nýjungar á
lyfjamarkaðnum. Má þarna sjá í
hnotskurn merkar nýjungar sem
komið hafa fram síðan bókin
kom síðast út.
Ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar á bókinni og bætt við
fróðleiksköflum, m.a. um blóð-
þrýstingslyf og hjartalyf. Til að
draga úr misskilningi hefur auka-
verkanaköflum verið skipt í
algengar og sjaldgæfar aukaverk-
anir.
Vegna nýrrar reglugerðar og
breytts afgreiðslufyrirkomulags í
apótekum eru samheitalyf nú oft
afgreidd í stað annarra lyfja.
Þetta veldur stundum ruglingi og
jafnvel hættu. Þess vegna er nú í
öllum lyfjaköflum getið sam-
heitalyfja þeirra lyfja sem eiga
sér slík samheitalyf.
Bókin fæst í bókaverslunum og
apótekum landsins, en einungis
verður hægt að skipta eldri bók-
inni í apótekum. Lyfjabókaútgáf-
an sf. sér um dreifingu bókarinn-
ar til bókaverslana, en Lyfja-
verslun ríkisins sér um dreifingu
til apótekanna. Bókin er prentuð
hjá G. Ben. Prentstofu.
ar undrunar sá hann, að ljósáran
hélt áfram sömu lögun og hún
hafði á meðan blaðið var heilt.
En að vísu var hún nokkru dauf-
ari, þar sem búið var að skera úr
blaðinu.
Það kom í ljós, að þá fyrst
hvarf áran, ef meira en þriðjung-
ur blaðsins hafði verið skorinn
burtu. Af því verður að draga þá
ályktun, að þá hafi blaðið dáið.
Það reyndist líka ljósára
umhverfis fingurgóma manna.
Og ekki nóg með það. Útlit Ijós-
árunnar breyttist, ef breyting
varð á hugarástandi eða heil-
brigði viðkomandi manns.
Sjálfur sagði Kirlian: „Innra
ástand lífvera virðist endurspegl-
ast í skírleika og litum eldgeisl-
anna. Augljóst er, að sálarorka
mannsins birtist í þessu ljósa-
munstri.“
Kirlian og kona hans reyndu
að útbúa eins konar „ljósáru-
kort“ af öllum mannslíkamanum.
Þá kom í ljós, að einstakir blettir
á líkamanum gáfu frá sér miklu
meiri geislun en aðrir.
Vísindamenn á Vesturlöndum
hafa leitast við að sannreyna
þessi merkilegu fyrirbæri, en með
misjöfnum árangri. Þó hafa bor-
ist fréttir af velheppnuðum til-
raunum á þessu sviði, m.a. frá
Sittaram BhaAia-stofnuninni í
Kalkútta á Indlandi.
Semjon Davidovitsj Kirlian
lést 1978.
(Bengt Bengtsson í Fakta. - Þ.J.)
SMHHBÍ
Persónuleg jólagjöf
STJÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskipta-
kort.
Sendum í póstkröfu samdægurs.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin, Kjörgarði,
Laugavegi 59, sími 91-10377.
Leitin
eftir Vigfús Björnsson hefur
að geyma 25 sögur og þætti.
Leitin
er fyrir ungt fólk sem
leitar róta sinna - einnig þá
sem leita skemmtilegs prósa.
Leitin
eflir skilning á mannssálinni
- þó einkum mannlífinu.
Leitin
er spennandi bók, full af
dulúð, þar sem harpa þjóðar-
sálar er slegin á hvassan - en
jafnframt seiðmagnaðan hátt.
Leitin
er ramm-íslensk bók
fyrir íslendinga á öllum aldri
- heima og heiman.
KORNIÐ
Fæst í öllum
bókabúðum
Jt£Þli
<go íMwCmmA\m s
JAORI • SÍIVII 2384B
□PIO MÁMUD.-FÖ5TUD. KL. 17.00-01.00
LAUGARD. OG 5UIMIVUUD. KL. 10.00-18.00
iGAMANSÖGUR AF KENNURUM 0G NEMENDUM
■
Enn meira ðkólaekop
Enn meira skólaskop er fjórða bindi hinna
bráðskemmtilegu og vinsælu skólaskops-bóka,
sem hafa að geyma safn af gamansögum úr
skólalífinu.
í Enn meira skólaskop fá allir sinn skammt, jafnt
kennarar sem nemendur.
Enn meira skólaskop er tilvalin jólagjöf til
kennara, nemenda - og allra sem vilja láta kitla
hláturtaugarnar um jólin!
PESKANÍ
Spurningakeppnin okkar
Spurningakeppnin okkar er sjálfstætt framhald
bókarinnar Spurningakeppnin þín, sem hlaut
afar góðar viðtökur í fyrra. í Spurningakeppnin
okkar eru 600 fjölbreyttar spurningar og gátur
sem snerta áhugasvið allra. Bókin er þannig
uppbyggð að hún hentar jafnt fyrir tvo einstaklinga
sem tvö keppnislið.
Spurningabókin okkar er fróðleg og spennandi
bók sem sameinar fjölskylduna og
kunningjahópinn í skemmtilegum leik.
Spurningabókin okkar er möndlugjöfin í ár. Það
er ekki spurning!