Dagur - 19.12.1992, Blaðsíða 20
JAKOB - GRAFÍSK HÖNNUN
20 - DAGUR - Laugardagur 19. desember 1992
ŒNNSLA
iYRARHF
Húsnæðismálastjórn:
Varar við afleiðmgum
vaxtabótaskerðingar
hjá eignaMum flölskyldum
Auglýsing í Degi
ber árcmgur
Húsnæðismálastjórn varar
sterklega við afleiðingum
vaxtabótaskerðingar hjá eigna-
litlum fjölskyldum með lág eða
miðlungslaun, sem nú þegar
eru á mörkum þess að ráða við
greiðsluskuldbindingar sínar.
Afleiðingar slikra aðgerða
munu koma fram í auknum
í ár!
Ingólfur Margeirsson skrifaði metsölubækurnar
LÍFSJÁTNINGU - endurminningar Guðmundu
Elíasdóttur söngkonu og
LÍFRÓÐUR Árna Tryggvasonar leikara
og hefur nú sent frá sér
HJÁ BÁRU - ævisögu Báru Sigurjónsdóttur kaupkonu
Ingólfur Margeirsson rithöfundur
„ ... Skemmtileg bók. Og sann-
kölluð þjóðháttafræði. Ingólfur
skilar persónu Báru á mjög sann-
færandi hátt... Ingólfur Margeirs-
son er nefnilega pennafærari en
flestir rithöfundar sem gefa sig að
skáldskap."
Hrafn Jökulsson, Pressan
ORN OG
ORLYGUR
Síðumúla 11, sími (91) 68 48 66
vanskilum við byggingarsjóð-
ina og afkoma þeirra og mögu-
leikar til að standa við áætlanir
sínar versna, eins og segir í
ályktun frá Húsnæðismála-
stjórn.
Ennfremur segir í ályktuninni:
„Um margra ára skeið hefur verið
fyrir hendi sérstakur stuðningur
samfélagsins við húsbyggjendur
og kaupendur vegna vaxtakostn-
aðar þeirra, ýmist með beinni
lækkun skatta eða með endur-
greiðslu á tilteknum hluta hans
eins og nú er, þ.e. vaxta- og
húsnæðisbótum. í umræðunni
upp á síðkastið hefur verið rætt
um að skerða þessar bætur, jafn-
framt því að hækkaðir verði vext-
ir á húsnæðislánum Byggingar-
sjóðs ríkisins og verkamanna.
Ljóst er að ráðstöfunartekjur
almennings í landinu munu
lækka verulega á næstunni frá því
sem verið hefur, um leið og
atvinna dregst saman og atvinnu-
leysi eykst. Möguleikar hús-
byggjenda og kaupenda til að
standa í skilum vegna íbúða
sinna versna því mjög af þeim
sökum. Skerðing vaxtabóta til
viðbótar, breytir aðstæðum
þeirra enn til hins verra.
Þeir gengust undir greiðslumat
og voru í góðri trú um fjárhags-
lega getu sína þegar ráðist var í
framkvæmdir. Hafa verður í
huga í þessu sambandi hinn
mikla áróður, sem rekinn hefur
verið í seinni tíð, allt frá tilkomu
húsbréfakerfisins, um að fólk fari
ekki út í byggingu eða kaup á
húsnæði nema með fullu öryggi,"
eins og segir í ályktuninni. -KK
Kvenna-
athvarfið
í nýtt hús
- aðsókn hefur aukist
mjög milli ára
í landssöfnun Samtaka um
kvennaathvarf fyrir nýju húsi
sem fram fór 2. október sl.
söfnuðust 19 milljónir króna.
Sú upphæð dugði til að kaupa
nýtt hús og gera á því nauðsyn-
legustu endurbætur. Fimmtu-
daginn 17. desember var ráð-
gert að flytja I húsið.
Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá samtökunum að hið
stóra og fallega hús bætir mjög
alla aðstöðu kvennaathvarfsins
og það verða ekki síst börnin sem
munu njóta þessa, þar sem að-
staða fyrir þau innan húss sem
utan er mjög góð og mun betri en
í gamla húsinu.
Mörg hundruð sjálfboðaliðar
um land allt tóku þátt í söfnun
Samtaka um kvennaathvarf og
var hún þríþætt. Seldar voru
tölur, safnað var á Rás 2 og hjá
fyrirtækjum. Undirtektir voru
frábærar og vilja Samtök um
kvennaathvarf flytja þjóðinni
bestu þakkir fyrir hlýhug, skiln-
ing og velvild, nú sem endranær.
Á þessum tímamótum, 17.
desember, höfðu 360 konur og
179 börn komið í athvarfið frá
áramótum, en á árinu 1991 komu
alls 217 konur og 116 börn. Þörf-
in fyrir kvennaathvarf hefur því
sýnilega aukist mjög milli ára.
SS