Dagur - 19.12.1992, Blaðsíða 24
Vegagerðin:
N á 11 li r ii n f ii r d tí r E i/ / a f i r ð i n u m
Léttreukta lambakjötiö
YFA
L\JL_l/. JL G h l l v c r <3 / n ii n n h n f i í I N T F R F A I R 7 99 2
l X G u H v e r ö I a ii n n h nfi í I N T F R F A I R 7 9 9 2
- n l þ j ó (3 / í’ g r i f n $ k c p p n i k j ö t i (3 it n <3 n r in n n n n
Norðlenska léttreykta lambakjötið
er Ijúffengur hátíðamatur á hagstæðu verði
Urvals hráefni og nákvæm reyking
i reykhúsi KEA tryggir þér lambakjötið
eins og það á vera.
KEA - léttreykta lambakjötið.
Óskar Gunnarsson hjá vega-
eftirliti Vegagerðar ríkisins á
Akureyri segir að ef lát verði á
óveðurskaflanum nú um helg-
ina verði ruðningstæki Vega-
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri:
Færri
fæðingar í ár
ení fyrra
- orðnar 413
í gærmorgun
I gærmorgun voru fæðingar á
Fæðingardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri orðnar 413
talsins en á sama tima í fyrra
voru þær 429.
Ingibjörg Jónsdóttir, yfirljós-
móðir á FSA, segir ljóst að
fæðingarnar verði færri í ár en í
fyrra, en þá voru þær 435 talsins.
í gær áttu níu konur, sem
skrifaðar eru inn í desember, eft-
ir að fæða. Að sjálfsögðu er með
öllu óvíst að þær fæði börn sín í
heiminn fyrir áramótin.
Pegar fæðingartölur fyrir síð-
asta ár og árið 1992 eru bornar
saman vekur athygli að á síðasta
ári fæddust níu tvíburar á FSA en
á þessu ári hafa aðeins fæðst einir
tvíburar. óþh
gerðarinnar að störfum alla
helgina úti á vegum.
„Ég hef trú á að hafist verði
handa við mokstur strax og veður
verður til þess. Það er alls staðar
ófært og þess vegna verður ekk-
ert hugsað um þó sé helgi ef stytt-
ir upp,“ sagði Óskar.
Til sveita bíða menn átekta og
vilja síður leggja í mokstur fyrr
en öllum skafrenningi linnir.
Snjódýpt er víða mikil og því
munu ruðningar gera illt verra í
svo miklum skafrenningi eins og
verið hefur síðustu dagana. Ósk-
ar segir einna mesta fannfergið í
Svarfaðardal og þar sé ekki um
annað að ræða en beita stórvirk-
um blásurum við moksturinn.
Óskar segir að þó svo veður
gangi niður þá muni það taka
moksturstækin nokkurn tíma að
opna leiðir en strax verði brugð-
ist við þegar færi gefst. JÖH
Grenivíkurhöfn:
Olíuskúr
á ferð um
haJhargarðiim
Olíuskúr við höfnina á Greni-
vík, sem boltaður var niður á
járnbita, slitnaði af festingun-
um sl. miðvikudag, en með
snarræði tókst að flytja hann
upp að frystihúsinu í skjól.
Polli um borð í tíu tonna báti,
sem var í höfninni á Grenivík,
slitnaði upp sama kvöld og hélt
eigandinn fyrst sjó fyrir utan
höfnina en fór síðan með bátinn
til Akureyrar þegar lægði. Stór-
streymt var þegar þetta gerðist og
norðan hvassviðri og þvf mjög
ókyrrt í höfninni og segir Tómas
Jóhannesson, hafnarvörður, að
ástandið hafi ekki verið eins
slæmt í Grenivíkurhöfn í mörg
ár. GG
Moksturstæki á vegum um helgina gangí veður niður