Dagur


Dagur - 23.12.1992, Qupperneq 2

Dagur - 23.12.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992 Fréttir Samningur um yfirtöku FSA á rekstri Kristnesspítala frágenginn í gær: FSA fær 100 miUjónir til reksturs í Kristnesi - ætlunin að halda uppi sem mestri starfsemi á núverandi deildum fyrir þessa fjármuni í gær náðist samkomulag milli heilbrigðisráðuneytisins og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri um yfirtöku FSA á Kristnesspítala frá næstu ára- mótum. Með þessu munu bæt- ast tvær deildir við sjúkrahús- ið, þ.e. endurhæfingardeild og öldrunardeild, en FSA fær 100 milljónir króna til rekstursins í Kristnesi. Starfsmannamál á Kristnesi munu skýrast endan- lega um áramót en eins og fram hefur komið mun starfs- fólki þar fækka frá því sem nú er. „Við ætlum að reyna að halda uppi sem mestri starfsemi á þess- um tveimur deildum fyrir þessa fjárhæð,“ sagði Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri FSA, í gær og bætti við að stefna FSA sé sú að halda áfram uppbyggingu endur- hæfingardeildarinnar á Kristnesi. Eins og margoft hefur komið fram hafa heilbrigðisyfirvöld miðað við að ná 40 milljóna króna sparnaði á Kristnesi og aðspurður segir Ingi að í samein- ingunni við FSA verði notið góðs af hagræðingar- og sparðnaðar- aðgerðum sem ráðist hafi verið í á Kristnesspítala á yfirstandandi ári. Þá verði t.d. stjórnun færð til FSA og reynt að sinna þjónustu við Kristnesspítala sem mest frá FSA. „í þessum atriðum felst sá sparnaður sem hægt er að ná. Við erum með kostnaðaráætlun sem Ólafsfjörður: Elsti íbúinn 101 árs á aðfangadag Elsti íbúi Ólafsfjarðar, Elín Guðbjartsdóttir, verður 101 árs á aðfangadag, 24. desem- ber. Hún flutti ung til Ólafs- fjarðar innan úr Eyjafirði og stofnaði heimili með Sigurði Jóhannessyni skósmið, sem lengi rak skósmíðavinnustofu á Ólafsfirði. Elín er bundin hjólastól eftir slys sem hana henti fyrir nokkr- um árum en er ern og fylgist vel með öllu sem gerist í kringum hana. Elín var ein af fyrstu íbú- um Hornbrekku, dvalarheimilis aldraðra á Ólafsfirði, þegar það hóf starfsemi fyrir 11 árum síðan. GG r i Schiesser® Gœðanna vegna úk er ívið hærri en 100 milljónir þannig að við verðum að vinna að því áfram að ná kostnaði niður. Við gætum þá þurft að grípa til ráðstafana þegar á líður árið til að þetta takist en leggjum upp með þetta svona. Það er ljóst að eitthvað af starfsmönnum verður ekki áfram en ég get ekki farið nánar út í þann þátt að sinni. Við munum tala við starfs- fólk í Kristnesi í kringum ára- mótin,“ sagði Ingi. Aðspurður segir hann að starfsfólk á Krist- nesi verði eftir áramótin starfs- fólk FSA en uppsögn nú og greiðsla biðlauna heyri undir Ríkisspítalana. JÓH Flugeldasalan hefst á þriðja í jólum: Verðbreytingar litlar mllll ára Fyrir hver áramót kaupa lands- menn flugelda, blys og annan skyldan varning fyrir tugmillj- ónir króna. Reikna má með að í ár verði verslunin svipuð og almennt og voru viðmælendur blaðsins sammála um að sára- lítilla breytinga væri að vænta milli ára. Vegna gengisbreyt- ingar í haust kunna þýskar vör- ur að hækka um 5-6% en kín- verskar, breskar og íslenskar minna eða ekkert. Reynsla undanfarinna ára hef- ur sýnt að ef mikill snjór er um áramótin er líflegasta salan í flug- eldum, en ef snjór er lítill eða auð jörð þá eykst sala á skotkök- um (tertum). Sala hefst sunnu- daginn 27. desember hjá nokkr- um en hjá öðrum á mánudegin- um og hjá flestum söluaðilum verður einnig hægt að versla fyrir þrettándann. í norðlensku kaup- stöðunum verða eftirtaldir aðilar með flugeldasölu en í smærri byggðarlögum sjá björgunar- sveitir eða þjónustuklúbbar um söluna: Akureyri: Hjálparsveit skáta í Lundi, hjá Bílasölunni Stórholti og söluskúrum við Hita og Hag- kaup. íþróttafélagið Þór verður með sölu í Hamri og Knatt- spymufélag Akureyrar við félags- heimili klúbbsins. Húsavík: Kiwanisklúbburinn Skjálfandi í húsnæði Trésmiðj- unnar Borgar ofan verslunar- húsnæðis Kaupfélags Þingeyinga. Ólafsfjörður. Björgunarsveitin Tindur í Sandhóli, húsi Slysa- varnafélagsins. Dalvík: Kiwanisklúbburinn Hrólfur, Slysavarnafélagið og Ungmennafélagið sameiginlega í Jónínubúð og austan Kaupfélags- ins og Hjálparsveit skáta í hús- næði sveitarinnar á Sandskeiði. Siglufjörður: Björgunarsveitin Strákar og Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Þormóðsbúð, húsi Slysavarnafélagsins. Sauðárkrókur: Björgunarsveit- Kaupmenn á Norðurlandi vestra segja að salan fyrir jólin verði Iíklega svipuð og fyrri ár. Óveðrið hefur þó sett strik í reikninginn, bæði til ills og góðs. Fólk verslar í heimabyggð fyrir jólin, þó alltaf sé eitthvað um ferðalög til Akureyrar eða Reykjavíkur. Slíkar ferðir hafa þó líklega verið færri í ár en ella vegna ótíðar. Kaupmenn eru sammála um að ófærðin geri að verkum að fólk versli fremur heima. En sumir segja að ófærðin geri líka að verkum að fólk kom- ist heldur ekki í búð í heima- byggð, a.m.k. fólk úr sveitunum. Þetta sagði t.d. Brynjar Pálsson í Bókabúð Brynjars á Sauðár- króki. Hann kvaðst þó ekki vita ennþá um söluna, en taldi ólík- legt annað en ófærðin hafi dregið úr henni. Ómar Bragi Stefánsson sagði hins vegar að salan hjá Kaupfélaginu á Sauðárkróki sé svipuð og önnur ár, meira sé um fólk úr sýslunni, en minna um aðkomufólk m.v. fyrri ár. Ingunn Gísladóttir kvaðst þokkalega ánægð með söluna hiá Kaup- félaginu á Blönduósi. I fámenn- in Skagfirðingasveit og Skátafé- lagið Eilífsbúar í húsi Trésm. Hlyns, Sæmundargötu 8. Blönduós: Hjálparsveit skáta í Björgunarstöðinni, Efstubraut 3. Þar verður einnig selt í nágranna- sveitunum. GG ari þéttbýlum er salan dræmari, enda færri og smærri verslanir. sþ Akureyri: Aldrei verið fleiri á atvinnu- leysisskrá Ennþá sígur á ógæfuhliðina með atvinnuleysið á Akureyri. Samkvæmt skráningu hjá Yinnumiðlun Akureyrarbæjar sl. föstudag voru 455 manns á atvinnuleysisskrá, sem er hæsta tala sem sést hefur hjá Vinnumiðlun frá upphafí. Þær upplýsingar fengust hjá Vinnumiðlun í gær að nánast á hverjum degi fjölgaði á atvinnu- leysisskrá og væri verkafólk mest áberandi. í lok desember í fyrra voru 260 á atvinnuleysisskrá og því hefur fjölgað um hátt í 200 manns á atvinnuleysisskrá á árinu. óþh Norðurland vestra: Fólk verslar í heimabyggð - kaupmenn sæmilega ánægðir Eldvarnaeftirlitið: Gæta verður vel að jólaskreytíngum - nauðsynlegt að yfirfara allar jólaseríur Umjólin eykst eldhætta á heim- ilum til muna. Margskonar skreytingar bjóða hættu heim - einkum þegar kerti eru hluti skreytinganna. Þá er einnig nauðsynlegt að huga að öllum rafmagnsbúnaði, eins og jóla- trésseríum og öðru og gæta þess að tengja ekki of mörg rafmagnstæki við hverja inn- stungu. Víkingur Björnsson, hjá eld- vamareftirlitinu á Akureyri, sagði í samtali við Dag að brýna þyrfti fyrir fólki að fara með allri gát við jólaskreytingar. Einkum verði að viðhafa aðgát þegar um kertaskreytingar sé að ræða eins og aðventukransa. Gæta verði þess að slökkva á kertum áður en þau brenni of nálægt skreyting- unum og einnig að kerti komist hvergi í snertingu við eldfim efni á borð við gluggatjöld. Þá sagði Víkingur að gæta verði vel að öllum rafmagns- búnaði. Yfirfara jólaseríur og aðgæta hvort þær séu trosnaðar og einangrun ábótavant. Þá sé einnig nauðsynlegt að gæta þess að tengja ekki of mörg tæki við eina og sömu innstunguna - með öðrum orðum að nota ekki fjöl- tengi við hverja innstungu. Af því geti hlotist að innstunga og fjöltengi hitni og valdi íkveikju. Víkingur sagði að til væru sér- stakar lokur er setja mætti á kerti er virkuðu á þann veg að þegar kertið væri brunnið hæfilega langt niður leggðist lokan yfir kveikinn og skökkti á því áður en hætta hlytist af. Hjá Blómabúð- inni Laufási fengust þær upplýs- ingar að slíkar lokur hefðu verið til og nokkuð selst af þeim fyrir síðustu jól en nú hefði ekki tekist að útvega þær. pi dagur til jóla

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.